Morgunblaðið - 06.12.2001, Page 62

Morgunblaðið - 06.12.2001, Page 62
62 FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ                                   !  "     #  $" % "             BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. EINSOG kunnugt er hefur Sjálf- stæðisflokkurinn verið langstærsti stjórnmálaflokkurinn hér á landi síðan hann var stofnaður með sam- runa Íhaldsflokksins og Frjáls- lynda flokksins í kringum 1930. Nafnið Íhaldsflokkur var ekki sér- lega vinsælt, þá var Framsóknar- flokkurinn næststærsti flokkurinn hér á landi, en þá var slagorð hans, allt er betra en íhaldið. Þá var Framsóknarflokkurinn vinstrisinn- aður miðflokkur. En eftir það hall- aðist hann meira inn á miðjuna og hefur smátt og smátt, einkum á síðasta áratug, hallast meira og meira til hægri og formaðurinn virðist kunna vel við sig þar. Enda er nú svo komið að sumir gamlir framsóknarmenn segja að hann sé orðinn hægra megin við Sjálfstæð- isflokkinn, og benda meðal annars á að hann sé ennþá ákafari í að Ís- land gangi í ESB. Ef núverandi ríkisstjórn tekst að ná því takmarki sínu hefur Ísland glatað að fullu og öllu sjálfstæði sínu. Mér fannst það glata nógu stórum hluta af sjálfstæði sínu þegar Alþingi samþykkti að ganga í EES og held að fáir þingmenn- irnir hafi þá gert sér grein fyrir því hvað þeir voru að samþykkja. Sumir sögðu þá að aðeins einn þá- verandi þingmaður hefði lagt það á sig að lesa allan Rómarsáttmálann enda barist hart gegn inngöngu í EES. Ísland má aldrei verða til sölu Nú á síðustu árum erum við að fá allskonar fyrirmæli frá þessum samtökum um hvað við megum gera og hvað ekki. Þó að við höfum kannski fengið einhvern peninga- legan ávinning af að ganga í EES þá tel ég að sjálfstæði Íslands megi aldrei verða til sölu, jafnvel þótt verðið væri hátt. Það hefur sýnt sig að síðan Ísland varð frjálst og fullvalda ríki hefur þjóð- in aldrei lifað aðrar eins framfarir og á þessari rúmlega hálfri öld, og velmegun aukist gríðarlega þótt allir hafi ekki notið þess jafnt, því miður. Misskipting auðsins er þjóðinni, og fyrst og fremst þeim sem hafa farið með völdin í land- inu, til skammar. Framsóknarflokkurinn barðist lengi vel á móti frjálshyggjunni, en það er liðin tíð. Nú ræður Sjálf- stæðisflokkurinn ferðinni og hefur komist upp með það að einkavæða flest fyrirtæki hér á landi, flest fyrirtæki sem ríkið hefur grætt á hafa verið seld einstaklingum eða félögum, og hann ætlar að selja öll ríkisfyrirtæki sem nokkur fengur er í. Eins og við mátti búast hefur Framsóknarflokkurinn tapað miklu fylgi í samstarfinu við Sjálf- stæðisflokkinn eins og reynslan hefur alltaf orðið á undangengnum áratugum. Það má líka minna á að sama hefur gerst þegar hann hefur átt samstarf við Alþýðuflokkinn. Á viðreisnarárunum var hann nærri búinn að drepa Alþýðuflokkinn, í lok samstarfsins stóð Alþýðuflokk- urinn eftir með sex þingmenn. Ég yrði ekkert hissa þó að Framsóknarflokkurinn fengi 8–10 þingmenn í næstu þingkosningum. Margir kjósendur hans hafa áreið- anlega orðið fyrir miklum von- brigðum með frammistöðu hans á þessu kjörtímabili enda hafa skoð- anakannanir bent til þess og hann hefur barist mest fyrir þeim mál- um sem eru óvinsæl af mörgum en það eru ESB-málið og Kára- hnjúkavirkjunin ásamt risaálveri á Reyðarfirði. Mér heyrist á ýmsum sem voru hlynntir þessum fram- kvæmdum fyrst, að þeir séu nú orðnir vantrúaðir á þessar fram- kvæmdir, enda blöskrar mörgum hvað þetta verða gífurlega dýrar framkvæmdir og það verð sem mun fást fyrir rafmagnið sé allt of lágt. Óeðlilega hátt orkuverð Það var sagt frá því í útvarpinu í sumar að álverksmiðjan í Straums- vík greiddi 0,95 krónur fyrir hverja kílóvattstund en almennir notendur þyrftu að greiða 5,15 kr. Þetta finnst mér alveg fráleitt. Fyrst þegar var farið að tala í fullri alvöru um þessi mál, var haft eftir einhverjum sérfræðingi að rafmagnsverðið til væntanlegrar verksmiðju á Reyðarfirði þyrfti að vera 1,40 til 2,00 kr. á kílóvatt- stund til að okuverið gæti borgað sig á eðlilegum tíma. En Lands- virkjun sagði það trúnaðarmál og hún gæti ekki gefið það upp. Eitt- hvað finnst mér nú gruggugt við það. Ég man ekki betur en að rík- isstjórnin hafi samþykkt að ganga í ábyrgð fyrir væntanlega fjárfesta ef hallarekstur yrði á virkjunar- framkvæmdunum. Ef rétt er mun- að þá finnst mér það vera glæfra- leg samþykkt. Nú nýverið fór utanríkisráðherra í heimsókn til Japan, Kína og Rússlands m.a. til að afla markaða fyrir íslenskar vörur og aukin viðskipti milli þess- ara landa. Eftir að hann kom heim var rætt við hann í sjónvarpinu og lét hann mjög vel yfir árangri ferð- ar sinnar og taldi að um mjög auk- in viðskipti gæti orðið að ræða á næstu árum, sérstaklega með fisk- afurðir og fleira. Hvað eru þessir sendiherrar í þessum löndum að gera? Mér er ljóst að auðvitað þurfa þeir að sinna fleiru en markaðsmálum en ég hélt að það væri aðalverkefni þeirra. Það eru keyptar rándýrar hallir fyrir þessa embættismenn, en ótrúlega sjaldan heyrast fréttir um að þeir hafi aflað markaða fyrir Ísland í þessum löndum sem þeir búa í. Hvað kostar öll þessi senda- herrahjörð þjóðina? Gaman væri að vita það, enda á þjóðin heimtingu á því. SIGURÐUR LÁRUSSON, Egilsstöðum. Reynslan af stjórn- arsamstarfi við Sjálfstæðisflokkinn Frá Sigurði Lárussyni:

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.