Morgunblaðið - 06.12.2001, Side 64

Morgunblaðið - 06.12.2001, Side 64
DAGBÓK 64 FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Heimildarmynd um Gunnlaug Scheving FYRIR nokkrum árum var sýnd í Listasafni Íslands heimildarkvikmynd um Gunnlaug Scheving listmál- ara í sambandi við sýningu á verkum hans þar. Hvað er orðið um þessa mynd ef sjónvarpið á hana, því er hún ekki sýnd í sjónvarpinu í tilefni yfirlitssýningarinn- ar á verkum Gunnlaugs sem nú stendur yfir? Myndin er bæði fróðleg og listræn. Áhugamaður um stuttmyndir. Svínakjöt tekið af matseðlinum EFTIR að hafa lesið fréttir um að forsvarsmenn Aust- urbæjarskóla hafi ákveðið að taka svínakjöt af mat- seðlinum í skólanum get ég ekki orða bundist. Ég hef velt því mikið fyrir mér þegar fólk flyst hingað til lands hvort það eigi ekki að laga sig að þjóðfélaginu hér og hvort það sé ekki eðlileg krafa af okkar hálfu sem búum hér fyrir að það geri það. Þessar aðgerðir for- svarsmanna Austurbæjar- skóla stuðla ekki að því, heldur er þetta hrein mis- munun í þá veru að börn sem borða svínakjöt fá það ekki í skólanum vegna þess að það er verið að koma á móts við minnihlutahóp. Ég skil ekki af hverju þetta fólk getur ekki hreinlega tekið með sér nesti í skól- ann þegar svínakjöt er á boðstólum. Getur maður átt von á því að það verði bannað að setja skinku- sneið ofan á brauðið sem barnið manns tekur með sér í skólann, eða hreinlega að dætur manns verði skikkaðar til að mæta í skikkju í skólann til að mis- muna örugglega ekki minnihlutahópnum, sem á í raun að laga sig að okkar þjóðfélagi. Eða hreinlega að litlu jólin og allt sem tengist jólahaldi verði af- numið. Í kosningunum í Dan- mörku voru innflytjenda- mál ofarlega á baugi, las ég frétt um þetta hitamál þar sem „þreyttur“ danskur kennari var að segja frá því að það væri ómögulegt að kenna ýmis fög, t.d. að segja frá þróunarkenningu Darwins, það þyrfti hrein- lega að setja þetta fólk í sér skóla þar sem þarfir og kröfur þess væru allt aðrar. Ég veit ekki betur en að þetta fólk sem hefur komið hingað til lands hafi staðið sig ágætlega en ég segi að það er sjálfsögð krafa okk- ar sem búum hérna fyrir, að það aðlagist okkar þjóð- félagi, því vonast ég til að svínkjötið verði komið á matseðilinn í Austurbæjar- skóla sem fyrst. Fyrrverandi nemandi. Hvar er Íslenska dyslexíufélagið? GETUR einhver aðstoðað mig í leit minni að Íslenska dyslexíufélaginu. Ég hef í þrígang hringt í símanúm- er þess og fæ alltaf sím- svara sem segir að því mið- ur verði ekki hægt að svara í símann á mánudaginn en ef ég skilji eftir nafn og símanúmer verði haft sam- band við mig. Þegar ég hef hringt hef ég skilið eftir nafn og númer, en ekkert gerist og bið nú um aðstoð til að hafa upp á félaginu. Kristín B. Þorsteinsd., s. 553-3352/897-9294. Veski skilað – þakkir KONAN á Neshaganum sem fékk peningaveskið sitt, sem hún týndi, sent í pósti, vill þakka þessum heiðarlega sendanda. Tapað/fundið Lyklar týndust SL. MÁNUDAG týndust á göngudeild Lsp. 2 lyklar á kippu ásamt þráðlausum bíllykli. Finnandi hafi sam- band í síma 585 9380. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is Víkverji skrifar... Á HEIMASÍÐU Rafiðnaðarsam-bandsins er oft að finna áhuga- vert efni af ýmsu tagi. Reglulega er nýtt efni sett inn á vefinn en það er að sjálfsögðu forsenda þess að fólk hafi áhuga á að skoða hann. Fyrir skömmu voru forystumenn RSÍ á ferðalagi á Austurlandi og heyrðu þar skemmtilega sögu. „Í haust kom til Austfjarða flokk- ur þýskra túrista og þeir fór m.a. nið- ur á Mjóafjörð í fallegu veðri. Þar komu þeir niður á bryggjuna fyrir neðan Brekku. Þar var sonur Vil- hjálms fyrrv. ráðherra nýkominn að á trillunni sinni og karlinn Vilhjálm- ur kvikur og léttur á sér á áttræð- isaldri var þar ásamt barnabörnum í hörku aðgerð á bryggjunni. Vil- hjálmur er þekktur fyrir að vilja hafa eitthvað fyrir stafni og er kennari af guðs náð og er þekktur fyrir að miðla til barna þjóðlegum fróðleik og hand- bragði. Hann sagði því börnunum röggsamlega fyrir verkum. Þjóðverjarnir tóku fram mynd- bandsupptökuvélar sínar og tóku allt upp af miklum áhuga. Á leið sinni til baka spurðu þeir leiðsögumanninn hvernig þeir kæmust í samband við Vinnumálastofnun. Þeir væru með myndefni þar sem fram kæmi að ver- ið væri að þræla út háöldruðu gam- almenni og barni, sem væri vitanlega fullkomlega bannað, auk þess var þetta við aðstæður sem væru í engu samræmi við lágmarkstaðla Evrópu- ráðs um aðbúnað á vinnustað.“ Reyndar er Vilhjálmur á níræðis- aldri og væntanlega á Guðmundur við lágmarksstaðla Evrópusambandsins en ekki Evrópuráðsins. Sagan er hins vegar góð. x x x VINKONA Víkverja tók fyrirnokkrum vikum á leigu bíl hjá bílaleigunni Avis. Hún greiddi fyrir bílinn með kreditkorti, en henni brá hins vegar nokkuð þegar kortareikn- ingurinn kom því að þar var rukkað um nokkru hærri upphæð en bílaleig- an hafði gefið upp þegar hún tók bíl- inn á leigu. Skýringin á þessu er sú að bílaleigan reiknaði gjaldið yfir í doll- ara og síðan aftur yfir í krónur. Gengi krónunnar hefur sem kunnugt er lækkað mikið og þess vegna var kon- unni gert að greiða meira fyrir bílinn en bílaleigan gaf upp. Eins og nærri má geta var konan óánægð með þessa niðurstöðu enda hafði ekki verið kynnt fyrir henni að hún ætti að greiða leiguna í dollur- um. Þvert á móti var henni sagt ná- kvæmlega hver leigan á bílnum væri í íslenskum krónum. Sú spurning vaknar hvort íslensk fyrirtæki mega selja vöru og þjónustu í dollurum og hvort heimilt sé að gefa upp verð á vöru og þjónustu í einum gjaldmiðli og rukka síðan fyrir í öðrum. x x x ÞAÐ er oft sagt að mikilvægt sé aðsýna tillitssemi í umferðinni og það er örugglega rétt. Stundum get- ur hins vegar „tillitssemin“ gengið út í öfgar. Í vikunni var Víkverji á ferð á Miklubrautinni. Þegar Víkverji var rétt kominn yfir gatnamótin við Háa- leitisbraut hægði bíllinn fyrir framan skyndilega ferðina. Víkverji náði naumlega að forða árekstri þrátt fyr- ir að bíll hans rynni til í hálkunni. Ástæðan fyrir því að bíllinn hægði á sér var sú að bíll fyrir framan hann stansaði til að hleypa bíl inn á Miklu- braut sem beið við biðskyldumerki eftir því að komast inn á götuna! ÉG er svo þakklát lítilli stúlku sem ég veit engin deili á að ég get vart orða bundist. Þannig er mál með vexti að ég gleymdi tösku í Regnbogabíói á sunnudaginn og tveimur mínútum seinna var hún að sjálfsögðu horfin. Bækur, gjafir, sími, snyrtidót, trefill og alls kyns persónulegt smádót horfið og ég vorkenndi sjálfri mér býsna mikið á meðan ég bölvaði Reykja- vík, borg óttans, og öllum hennar glæpamönnum sem mest ég mátti. Seinna um kvöldið frétti ég af u.þ.b. tólf ára stúlku sem var með tösku að spyrja fólk á leiðinni út hvort það kannaðist við hana. Því næst fór hún á löggustöðina og skilaði töskunni með öllu inni- haldi og skildi ekki einu sinni eftir nafn. Svona góðverk ber að launa og mega allir taka þessa stúlku sér til fyrirmyndar og þakka ég henni inni- lega fyrir. Hún bjargaði mér algjörlega á þessum síðustu og verstu tímum og kom mér í hátíðar- skap. Takk. Takk. Takk. Elísabet Ólafsdóttir. Stúlkunni þakklát 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 LÁRÉTT: 1 bitur kuldi, 8 brotsjór, 9 töluðu um, 10 ýlfur, 11 svarar, 13 fugls, 15 samn- ingabralls, 18 lítið, 21 af- kvæmi, 22 ginna, 23 lík- amshlutann, 24 í flokki konungs. LÓÐRÉTT: 2 lands, 3 heldur, 4 gabba, 5 snúin, 6 ævi- skeið, 7 án raka, 12 um- fram, 14 borg, 15 jarð- vegur, 16 galdratilraun- um, 17 rifa, 18 leika, 19 töldu, 20 sárabindi. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 búkur, 4 gátur, 7 brölt, 8 ösnum, 9 aum, 11 tíst, 13 bali, 14 auður, 15 saup, 17 álka, 20 urt, 22 mágur, 23 Júðum, 24 rýmka, 25 niður. Lóðrétt: 1 búbót, 2 kjöts, 3 rita, 4 gröm, 5 tunga, 6 romsi, 10 Urður, 12 tap, 13 brá, 15 sumar, 16 uggum, 18 loðið, 19 armur, 20 urta, 21 tjón. K r o s s g á t a Skipin Reykjavíkurhöfn: Bjarni Ólafsson og Mánafoss koma í dag. Helgafell, Frár og Dettifoss fara í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Brúarfoss og Ocean Tiger fóru í gær. Katla kom í gær, Haugifossur, Polar Siglir og Ikan Serong koma í dag. Fréttir Bókatíðindi 2001. Núm- er fimmtudagsins 6. des. er 57649. Mannamót Árskógar 4. Kl. 9–12 baðþjónusta, opin handavinnustofan, bók- band og öskjugerð, kl. 9.45–10 helgistund, kl. 10.15 leikfimi, kl. 11 boccia, kl. 13–16.30 opin smíðastofan. Allar upp- lýsingar í s. 535-2700. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8– 16 hárgreiðsla, kl. 8.30– 14.30 böðun, kl. 9–9.45 leikfimi, kl. 9–12 mynd- list, kl. 9–16 handavinna, kl. 10–17 fótaaðgerð, kl. 14 dans. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið Hlaðhömrum er á þriðju- og fimmtudögum kl. 13–16.30, spil og föndur. Jóga á föstudög- um kl. 13.30. Kóræfing- ar hjá Vorboðum, kór eldri borgara í Mos- fellsbæ á Hlaðhömrum fimmtudaga kl. 17–19. Uppl. hjá Svanhildi í s. 586-8014 kl. 13-16. Uppl. um fót-, hand- og and- litssnyrtingu, hár- greiðslu og fótanudd, s. 566-8060 kl. 8-16. Félagsstarf aldraðra Dalbraut 18–20. Kl. 9– 12 aðstoð við böðun, kl. 9–16.45 hárgreiðslu- stofan opin, kl. 9–13 handavinnustofan opin, kl. 9.30 danskennsla, kl. 14.30 söngstund. Félagsstarf aldraðra Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð- un, kl. 9 fótaaðgerð, kl. 10 hársnyrting, kl. 11 leikfimi, kl. 13 föndur og handavinna. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Mánud. 10. des: Jólaupplestur í Bókasafni Garðabæjar kl. 17, spilað í Holtsbúð kl. 13.30. Jólakaffi kl. 15, föndurdagur í Kirkju- hvoli neðri hæð kl. 13.30. miðvikud. 12. des: Lögreglan í Garðabæ býður í árlega ferð. Far- ið verður í Svartsengi. Rútur frá Kirkjuhvoli og Holtsbúð kl. 13. Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50. Pútt í Bæjarútgerðinni kl. 10, glerskurður kl. 13. Á morgun er bridge og tréútskurður í Lækj- arskóla. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Kaffistofan opin virka daga frá kl. 10–13. Kaffi, blöðin og matur í hádegi. Fimmtud.: Brids kl. 13. Baldvin Tryggvason verður til viðtals um fjármál og leiðbeiningar um þau mál á skrifstofu FEB fimmtud. 6. des- ember kl. 11–12. Panta þarf tíma. Jólaferð verður farin um Suð- urnesin 17. des. Jóla- ljósin skoðuð. Far- arstjóri Sigurður Kristinsson. Brottför frá Glæsibæ kl. 15. Skráning hafin. Silf- urlínan er opin á mánu- og miðvikudögum kl. 10–12. Skrifstofan er flutt að Faxafeni 12, sama símanúmer og áð- ur. Félagsstarfið er áfram í Ásgarði, Glæsibæ. Uppl. á skrif- stofu FEB. kl. 10–16 s. 588-2111. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9–16.30 glerskurður, kl. 9–13 hárgreiðsla, kl. 9–16 böðun, kl. 10 leikfimi, kl. 15.15 dans. Opið alla sunnudaga frá kl. 14–16 blöðin og kaffi. Félagsstarfið, Furu- gerði. Aðventuskemmt- un verður haldin í kvöld kl. 20. Veislustjóri Gunnar Þorláksson, hugvekja sr. Kristín Pálsdóttir, smásaga Jónína H. Jónsdóttir, söngur Ágústa Ágústs- dóttir, Furugerðiskór- inn syngur undir stjórn Ingunnar Guðmunds- dóttur. Hátíðarkaffi. Allir velkomnir. Gerðuberg, félagsstarf. Sund- og leikfimiæf- ingar í Breiðholtslaug kl. 9.30, Veitingar í veit- ingabúð. Upplýsingar um starfsemina á staðn- um og í síma 575-7720. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnnustofan op- in, leiðbeinandi á staðn- um, kl. 9.30 klippimynd- ir og taumálun, kl. 9, kl. 9.05 og 9.50 leikfimi, kl. 13 gler- og postulíns- málun, kl. 16.20 og kl. 17.15 kínversk leikfimi. Aðventukaffi verður í Gjábakka fimmtudag- inn 6. des kl. 14. Á dag- skrá verður m.a. Hug- leiðing á aðventu, kór Snælandsskóla syngur jólalög, lesin jólasaga og fjöldasöngur, Kaffi- hlaðborð. Allir vel- komnir. Gullsmári, Gullsmára 13. Postulínsmálun kl. 9.15, jóga, kl. 9.05 brids, kl. 13 handavinnn- ustofan opin, leiðbein- andi á staðnum. Hraunbær 105. Kl. 9 opin vinnustofa, búta- saumur, kortagerð og perlusaumur, kl. 9.45 boccia, kl. 14 félagsvist. Föstudaginn 7. desem- ber verður jólahlað- borð, húsið opnað kl. 17.30, ræðumaður Sig- urður Sigurðarson dýralæknir, kór leik- skólans Núps syngur jólalög undir stjórn Kristínar Þórisdóttur, sr. Sigrún Óskarsdóttir verður með hugvekju, Ágústa Sigrún Ágústs- dóttir syngur einsöng, veislustjóri Jónína Bjartmarz alþing- ismaður. Upplýsingar í síma 587-2888. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9 böðun og bútasaumur, kl. 10 boccia, kl. 13 handavinna, kl. 14 fé- lagsvist. Hársnyrting og fótsnyrting. Jólafagn- aður Félagsmiðstöðv- arinnar í Hvassaleiti verður haldin föstud. 14. des. kl. 19. Húsið opnað kl. 18:30. Ýmislegt til skemmtunar, góður matur, söngur, gleði og jólalegt umhverfi. Miða- pantanir á skrifstofunni og í s. 588-9335. Sækja þarf miðana eigi síðar en miðvikud. 12. des. fyrir kl. 17. Norðurbrún 1. Kl. 9 tré- skurður og opin vinnu- stofa, kl. 10–11 ganga, kl. 10–15 leirmun- anámskeið. Vesturgata 7. Kl. 9 fóta- aðgerðir og hárgreiðsla, kl. 9.15–12 aðstoð við böðun, kl. 9.15–15.30 handavinna, kl. 10 boccia, kl. 13–14 leik- fimi, kl. 13–16 kóræfing, kl. 17–20 leirmótun. Vitatorg. Kl. 9 smíði og hárgreiðsla, kl. 9.30 glerskurður og morg- unstund, kl. 10 fótaað- gerðir og boccia, kl. 13 handmennt og frjálst spil, kl. 14 leikfimi. Að- ventu- og jólafagnaður verður 6. desember. Jólahlaðborð, ýmislegt til skemmtunar. Skrán- ing í s. 561-0300. Gullsmárabrids. Eldri borgarar spila brids í Gullsmára 13 mánu- og fimmtudaga. Skráning kl. 12.45. Spil hefst kl. 13. Sjálfsbjörg, félagsheim- ilið Hátúni 12. Kl. 19 tafl í Rauða sal. Sjálfboðamiðstöð Rauða krossins, Hverf- isgötu 105. Kl. 13–16 prjónað fyrir hjálp- arþurfi erlendis. Efni á staðnum. Allir velkomn- ir. Félag áhugafólks um íþróttir aldraðra, leik- fimi kl. 11 í Bláa salnum. Kvenfélag Grens- ássóknar. Jólafundurinn verður mánud. 10. des. og hefst með jóla- dagskrá í kirkjunni kl. 20, síðan verða veitingar og happdrætti í safn- aðarheimilinu. Kvenfélag Fríkirkj- unnar í Reykjavík. Jóla- fundirinn verður í safn- aðarheimili Laufásvegi 13, í kvöld kl. 19.30. Munið eftir jólapökk- unum. Kristniboðsfélags kvenna, Kristniboðs- salnum Háaleitisbraut 58-60. Biblíulestur kl. 17 í umsjá Benedikts Arn- kelssonar. Allar konur velkomnar. Kvenfélags Bústaða- sóknar heldur jólafund í Safnaðarheimilinu mánud. 10. des. kl. 19.30. Jólamatur, upp- lestur, happdrætti, söngur og helgistund. Í dag er fimmtudagur 6. desember, 340. dagur ársins 2001. Nikulás- messa. Orð dagsins: Sá sem gætir munns síns, varðveitir líf sitt, en glötun er búin þeim, er ginið glennir. (Orðskv. 13, 3.)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.