Morgunblaðið - 06.12.2001, Side 69

Morgunblaðið - 06.12.2001, Side 69
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2001 69 ÞJÓÐVEGUR 7 Nationale 7 GAMAN/DRAMA Frakkland, 2000. Myndform VHS. Bönn- uð innan 12 ára. Leikstjórn: Jean-Pierre Sinapi. Aðalhlutverk: Nadia Kaci, Olivier Gourmet, Said Taghmaoui og Chantal Neuwirth. ÞJÓÐVEGUR 7 er kvikmynd sem tvímælalaust sker sig úr hinu fremur einsleita framboði myndbandaleign- anna. Þar segir frá íbúum sambýlis nokkurs sem er skammt utan við þjóðveginn í franskri sveit. Aðalper- sónan er menntamaðurinn René sem þjáist af alvarleg- um lömunarsjúk- dómi. Hann er bit- ur yfir hlutskipti sínu og bregst við því með því að sýna öllum í kringum sig særandi and- styggð. Við kynn- umst einnig öðrum vistmönnum og starfsmönnum sam- býlisins, á náinn og persónulegan hátt, en í lok myndarinnar kemur óvænt í ljós að myndin er byggð á sögu raunverulegra persóna. Kvikmyndin fjallar síðan um það þegar Julie, ný starfskona býlisins, ákveður að reyna að uppfylla óskir René um að njóta kynlífs á meðan hann enn getur, með því að leita á náðir vændiskvennanna sem búa og starfa í hjólhýsum við þjóðveginn. Það er franski leikstjórinn Jean Pierre Sinapi sem skrifar myndina og leikstýrir henni, og beitir hann þar hráum og „heimildarmyndaleg- um“ aðferðum í anda dogma-stílsins danska, sem virka vel og gefa dálítið eldfimu efni eðlilegan og ótilgerðar- legan blæ. En aðferðirnar eru fyrst og fremst leið Sinapi til að miðla mannlegri sýn á viðfangsefni, þar sem fjallað er um ástir, þrár og sjálfsmynd fólks sem samfélags- stofnunin hefur dæmt úr leik.  Heiða Jóhannsdóttir Franskt dogma FRÆGÐ (Stardom) HÆÐNISHEIMILDARMYND Kanada/Frakkland 2000. (100 mín.) Myndform VHS. Bönnuð innan 16 ára. Leikstjórn Denys Archand. Aðalhlutverk Jessica Paré, Dan Aykroyd. ÞAÐ eina sem þessi ádeilumynd í hæðnisheimildarmyndastíl sannar er að þótt vel sé meint þá tekst ekki allt- af að hitta í mark. Það er klárt mál að höfundurinn Archand ætlaði sér aldeilis að af- greiða grimman og gervilegan tísku- heiminn í eitt skipti fyrir öll. Enginn átti að geta litið fyrir- sætustarfið sömu augum eftir að hafa séð myndina. En skot hans geigaði næstum algjörlega. Kannski út af því að hinn lánlausi Aykroyd átti hlut að máli? Ætli það, varla hægt að kenna þeim fornfræga gamanleikara um bara fyrir að vera heillum horfinn. Nei, stóra meinið er „handritið“, að ádeilan, broddurinn er svo vita bitlaus að hann stingur nákvæmlega ekki vit- und, sama hversu mikið er þjösnast á áhorfandanum með hinum dæmi- gerðu hæðnisheimildarmyndastælum sem flestir ef ekki allir kvikmynda- unnendur ættu að vera farnir að þekkja. Þreyttur og þunnur þrett- ándi. Áfram humar og frægð! Skarphéðinn Guðmundsson Myndbönd Humar og frægð KYLIE Minogue sópaði að sér hin-um spánnýju Top of the Pops verðlaunum þegar þau voru af- hent með viðhöfn í fyrsta sinn um síðustu helgi. Gamla Nágranna- stjarnan fékk verðlaun fyrir besta lag ársins „Can’t Get You Out Of My Head“ og einnig tónleikaferð- ina „On A Night Light This“, sem þykir hafa skarað framúr hvað varðar skemmtanagildi og glæsi- leika. Það var líka greinilegt er hún kom fram og söng fyrir hátíð- argesti að hún átti hug þeirra all- an og óskiptan þrátt fyrir að aðr- ar söngdívur á borð við Jennifer Lopez og Mariah Carey hefðu einnig komið fram og gert sitt besta til að fá hluta athyglinnar. Hápunktur hátíðarinnar var þó þegar handhafar Top of the Pops verðlaunanna fyrir plötu ársins, Travis, tóku lagið „Here Comes The Sun“ til minningar um höfund þessa sígilda lags, George Harri- son. Sir Paul McCartney var fyrstur til að verða innlimaður í sérstaka „frægðarhöll“ Top of the Pops. Vegna dauðsfalls gamla vinar síns treysti hann sér ekki til að veita viðurkenningunni viðtöku en sendi skilaboð þar sem hann til- einkaði Harrison heiðurinn. Aðrir sem hlutu verðlaun á há- tíðinni voru m.a. Westlife, sem val- in var besta poppsveitin, Destiny’s Child sem besta R&B sveitin og Nelly Furtado sem besti nýliðinn. Síðast en ekki síst var Jennifer Lopez útnefnd stærsta popp- stjarnan í heiminum í dag. Hátíð Kylie AP Kylie kom, sá og sigraði, í gömlum Nágrannakjól að því er virtist. Reuters Mariah Carey kom, sá og tapaði – í efnislitlum kjól að vanda. Fyrsta Top of the Pops-verðlaunahátíðin

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.