Morgunblaðið - 13.12.2001, Page 33
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2001 33
ÖKUMAÐUR gámaflutninga-
bíls hefur verið handtekinn í
Belgíu en hann er grunaður um
að vera viðriðinn flutning á
ólöglegum innflytjendum, sem
köfnuðu í gámi á Írlandi. Flutti
maðurinn gáminn frá Köln til
Zeebrugge í Belgíu. Í honum
voru 13 ólöglegir innflytjendur,
flestir tyrkneskir, og voru átta
þeirra kafnaðir, þar af fjögur
börn, þegar gámurinn var opn-
aður í Wexford á Írlandi sl.
laugardag. Voru hinir nær
dauða en lífi. Í júní í fyrra fund-
ust 58 kínverskir innflytjendur
látnir í hollensku vörubíl í Dov-
er á Englandi.
Dæmdur fyrir
barnsmorð
ROY Whiting, rúmlega fertug-
ur Breti, var í gær dæmdur í
lífstíðarfangelsi fyrir að hafa
rænt átta ára gamalli stúlku og
myrt hana í júlí á síðasta ári.
Vakti hvarf hennar mikla at-
hygli í Bretlandi og herti á kröf-
um um, að barnaníðingar yrðu
ekki teknir neinum vettlinga-
tökum. Meðal annars birti eitt
síðdegisblaðanna nöfn og heim-
ilisföng manna, sem sagðir voru
hættulegir börnum. Þegar dóm-
urinn hafði verið kveðinn upp
var réttinum skýrt frá því, að
Whiting hefði rænt og misnotað
níu ára gamla stúlku 1995.
Sakharov-verð-
launin afhent
ÍSRAELSK
kona, Palest-
ínumaður og
angólskur
prestur hlutu
í gær Sakhar-
ov-verðlaun-
in, mannrétt-
indaverðlaun
Evrópu-
þingsins. Þau Nurit Peled-Elh-
anana, kennari við Hebreska
háskólann, og palestínski rit-
höfundurinn Izzat Ghassawi
fengu verðlaunin fyrir „óþrjót-
andi“ starf í þágu friðar í Mið-
Austurlöndum og angólski erki-
biskupinn Zacarias Kamuenho
fyrir að reyna að koma á friði í
sínu stríðshrjáða landi. Palest-
ínsk leyniskytta varð 13 ára
gamalli dóttur Peled-Elhanana
að bana fyrir þremur árum en í
stað þess að fyllast hefndar-
þorsta hefur hún síðan barist
fyrir sáttum milli Ísraela og
Palestínumanna.
Áhugi á flug-
vélum,
ekki njósnum
GRÍSKIR dómarar hafa fellt
niður njósnaákæru á 14 breska
og hollenska áhugamenn um
flugvélar og verður þeim sleppt
gegn tryggingu. Hefur ákær-
unni verið breytt í „ólöglega
upplýsingaöflun“ en mennirnir,
sem eiga sér það áhugamál að
taka myndir af flugvélum, voru
staðnir að því að mynda grískar
herflugvélar. Voru þeir hand-
teknir 8. nóvember sl. Verður
réttað yfir þeim síðar vegna
þess en í millitíðinni mega þeir
fara úr landi, það er að segja ef
þeir geta greitt trygginguna,
sem er næstum 1,4 millj. ísl. kr.
á mann.
STUTT
Handtek-
inn vegna
dauða inn-
flytjenda
Peled-
Elhanana
SILVIO Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, lét í
fyrradag undan þrýstingi annarra ríkja í Evrópu-
sambandinu og féllst á, að handtökutilskipun í
einu ríkjanna gilti í þeim öllum. Áður hafði hann
hafnað því, að handtökutilskipunin tæki til fjár-
málaglæpa.
Berlusconi tilkynnti þetta eftir fund með Guy
Verhofstadt, forsætisráðherra Belgíu, sem kvaðst
vera mjög ánægður með sinnaskipti Berlusconis.
Sameiginlega handtökutilskipunin varðar 32 af-
brot, þar á meðal hryðjuverk og fjármálamisferli,
en Berlusconi á einmitt yfir höfði sér ákæru fyrir
það síðarnefnda á Spáni.
Afstaða Berlusconis olli mikilli reiði í öðrum
ríkjum ESB en þótt hann hafi nú breytt henni, þá
gaf hann í skyn, að langan tíma gæti tekið að
breyta ítölsku stjórnarskránni og ekki víst, að því
yrði lokið 2004 þegar samræmda handtökutilskip-
unin á að koma til framkvæmda. Verhofstadt lagði
hins vegar áherslu á, að á leiðtogafundi ESB í
Brussel um helgina yrði Ítölum gert ljóst, að þeir
ættu engan annan kost en fylgja öðrum ríkjum í
sambandinu.
Stjórnarandstaðan á Ítalíu hefur gagnrýnt
Berlusconi harðlega fyrir framgöngu sína í málinu
og segir, að hann óttist það mest að verða sjálfur
framseldur til annars Evrópuríkis vegna fjármála-
glæpa.
Berlusconi gefur eftir og fellst á samræmda handtökutilskipun
Sakaður um að óttast framsal
Róm. AFP.
Reuters
Berlusconi hugleiðir málin á ítalska þinginu.