Morgunblaðið - 29.12.2001, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isGráhærði galdramaðurinn
í Newcastle/B4
Misstu niður átta marka
forskot í Póllandi/B1
4 SÍÐUR16 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á LAUGARDÖGUM L a u g a r d a g u r29.
d e s e m b e r ˜ 2 0 0 1
LEIGUBÍLSTJÓRI á fertugsaldri
var dæmdur í eins árs fangelsi í
gær í Héraðsdómi Reykjavíkur fyr-
ir kynferðisbrot gegn rúmlega þrí-
tugri konu sem var farþegi hans í
bílnum. Ákærði var ennfremur
dæmdur til að greiða konunni 700
þúsund krónur í skaðabætur ásamt
vöxtum auk alls sakarkostnaðar.
Dóminum þótti sannað að ákærði
hefði ruðst í heimildarleysi inn í
íbúð konunnar, eftir að hann ók
henni heim, lagst ofan á hana, káfað
á henni og sett fingurinn inn í kyn-
færi hennar, og notfært sér það að
hún gat ekki spornað við brotinu
sökum ölvunar og svefndrunga.
Í dóminum kemur fram að leigu-
bílstjórinn hafi ekið konunni og
tveimur vinum hennar heim til
hennar af veitingastað, en þá var
hún ofurölvi. Vinir hennar lögðu
hana í rúmið og yfirgáfu síðan stað-
inn og létu bílstjórann aka sér
heim. Hann fór að því loknu strax
heim til konunnar og braut gegn
henni.
Dómurinn taldi að ákærði hefði
brotið gegn kynfrelsi konunnar og
friðhelgi heimilisins og notfært sér
ástand hennar. Þótti dóminum það
vera til refsiþyngingar að leigubíl-
stjórinn nýtti sér vitneskju sem
hann fékk í starfi sínu sem leigubíl-
stjóri. Hann þótti ekki eiga sér
neinar málsbætur og var dæmdur í
12 mánaða fangelsi.
Kvaðst hafa verið að
skila eyrnalokki
Dómurinn tók ekki mark á frá-
sögn ákærða um að hann hefði ætl-
að að skila konunni eyrnalokki sem
hún hefði gleymt í bílnum en þegar
á heimili hennar kom hefði hún átt
frumkvæði að atlotum þeirra.
Dómur héraðsdóms var fjölskip-
aður héraðsdómurunum Hjördísi
Hákonardóttur, Guðjóni St. Mar-
teinssyni og Sigríði Ólafsdóttur.
Skipaður verjandi ákærða var
Brynjar Níelsson hrl. Réttargæslu-
maður brotaþola var Herdís Hall-
marsdóttir hdl. Sigríður J. Frið-
jónsdóttir sótti málið fyrir hönd
ríkissaksóknara.
Leigubílstjóri dæmdur í árs fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn konu
Talinn hafa nýtt sér vitn-
eskju sem hann fékk í starfi
STARFSMENN Reykjavíkurborgar
sjá um að hlaða 11 áramótabálkesti
í borginni, en brennurnar verða á
sömu stöðum og undanfarin ár.
Söfnun í brennurnar hófst í
fyrradag. Starfsmenn frá hverf-
isbækistöðvum gatnamálastjóra sjá
um móttöku og uppröðun í bálkest-
ina og ákveða hvað hver brenna
verður stór, en síðan er ábyrgð-
armaður vegna hverrar brennu.
Rúnar Geirmundsson, formaður
Fylkis, er ábyrgðarmaður brennu á
Fylkisvelli. Hann segir að Nóatún
hafi styrkt félagið vegna nauðsyn-
legrar tryggingar en félagið sé
ábyrgt fyrir vakt við brennuna frá
hádegi á gamlársdag og gæti þess
að hvorki sé kveikt í of snemma né
fólk fari sér að voða á nýársnótt.
Hann segir að ábyrgðin geti gert
það að verkum að enginn fáist til að
taka hana að sér og þá geti ára-
mótabrennur lagst af. Reynt hafi
verið að koma þessu yfir á borgina
en þar hafi ekki virst vera áhugi
fyrir hendi því mikil vinna fylgdi
þessu auk þess sem greiða þyrfti
hátíðakaup fyrir það sem til þessa
hefði verið gert í sjálfboðavinnu.
„Ég sé ekki að það verði mjög
spennandi að standa í þessu í fram-
tíðinni en við höfum litið á þetta
sem skylduvinnu,“ segir Rúnar og
bætir við að ástæðan sé fyrst og
fremst ábyrgðin auk þess sem stöð-
ugt sé erfiðara að fá fólk til starfa í
sjálfboðavinnu, ekki síst þegar per-
sónulegar ábyrgðir vegna hugs-
anlegra óhappa bætist ofan á.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Starfsmenn Reykjavíkurborgar hlóðu í gær í brennu hjá Fylki í Árbæ.
Mikil vinna við að
hlaða bálkesti
RÚMLEGA 1.400 erlendir ferða-
menn verða í Reykjavík yfir ára-
mótin og er þetta svipaður fjöldi og
dvaldi hér í fyrra á sama tíma.
Bretar eru langfjölmennastir en
töluvert er um Þjóðverja, Japani og
Norðurlandabúa. Þá hefur Banda-
ríkjamönnum fækkað að sögn Ernu
Hauksdóttur hjá Samtökum ferða-
þjónustunnar.
„Það eru aðallega erlendar ferða-
skrifstofur sem eru að bjóða upp á
hópferðir hingað til lands yfir ára-
mótin,“ segir Erna en segir þó að
nokkrar íslenskar skrifstofur geri
slíkt hið sama. „Boðið verður upp á
skipulagða ferð milli áramóta-
brenna á gamlárskvöld fyrir er-
lenda ferðamenn og eru þessar
ferðir mjög vinsælar. Þá er verið að
sýna þeim stærstu brennurnar,
fylgst með flugeldasýningum og
reynt að leyfa þeim að upplifa þessa
sérstöku áramótastemmningu sem
hér er.“
Erna segir að ferðir sem þessar
hingað til lands séu ekki nýjar af
nálinni en vinsældir þeirra hafa far-
ið ört vaxandi undanfarin ár. Þá eru
sífellt fleiri sem koma hingað á eig-
in spýtur. „Ég hugsa að ekki sé víða
um heim jafn mikið um að vera um
áramót eins og í Reykjavík,“ segir
Erna. „Ferðamennirnir eru mjög
ánægðir og eiga ekki orð þegar þeir
sjá ljósadýrðina á gamlárskvöld.
Þeim finnst sérstaklega merkilegt
að það eru einstaklingar sem skjóta
upp flugeldunum en ekki borgaryf-
irvöld. Það þykir mjög gaman að
fara á staði sem eru úr alfaraleið og
að því leyti er Ísland skemmtilegur
og aðlaðandi kostur.“
Fjöldi erlendra
ferðamanna á Ís-
landi yfir áramót
SPÁÐ er hlýnandi veðri og slyddu
víðast hvar um landið á gamlársdag.
Minnst verður úrkoman austan til á
landinu. Fyrri hluta gamlársdags er
búist við snjókomu, en með kvöldinu
mun rigna vestanlands og búist er
við slyddu eða snjókomu norðan-
lands.
Vel ætti að sjást til flugelda víðast
hvar þrátt fyrir rigningu eða slyddu
að sögn Hrafns Guðmundssonar veð-
urfræðings þótt erfitt sé að spá um
þá skýjahæð sem verður. Vindur
verður hægur og hiti á bilinu 5–8 stig
síðdegis á gamlársdag og má búast
við að hlýjast verði vestanlands.
Norðaustanlands verður kaldast eða
um frostmark yfir daginn. Nánast
mun verða frostlaust á öllu landinu
um miðnættið þegar flugeldadansinn
hefst um himininn.
Nýja árið mun heilsa með rign-
ingu víðast hvar og segir Hrafn að
búast megi við mildu veðri víða um
land miðað við árstíma.
Milt og
hlýnandi
veður um
áramótin
ELDRI hjón af höfuðborgar-
svæðinu duttu aldeilis í lukku-
pottinn á miðvikudaginn þegar
þau hlutu fyrsta vinning í Vík-
ingalottóinu. Vinningsmiðinn
hefur verið staðfestur og er
vinningsupphæðin 44.627.123
krónur og keyptu hjónin mið-
ann í Happahúsinu í Kringlunni
þegar þau voru að kaupa jóla-
gjafirnar. Þar sem þau eru
bæði nýhætt störfum voru þau
hæstánægð með viðbótina við
ellilífeyrinn. Vinningshafarnir
gáfu sig fram í gær en tölurnar
höfðu þau séð í textavarpinu.
Íslendingar á sléttu
Íslendingar standa næstum á
sléttu ef hlutfall vinninga af
framlagi er skoðað. Alls hafa tíu
fyrstu vinningar lent hér á
landi og er það 96% nýting.
Norðmenn virðast vera heppn-
astir norrænna þjóða en hlut-
fallið hjá þeim er 106% og eiga
þeir metið í fjölda vinninga, því
271 sinni hefur hæsti vinning-
urinn ratað til Noregs. Næstir
koma Danir með 102% nýtingu,
Íslendingar eru í þriðja sæti og
fylgja Finnar og Svíar þar á eft-
ir. Eistlendingar, sem jafn-
framt spila minnst, eru með
verstu nýtinguna eða 36% en
aðeins einu sinni hafa Eistlend-
ingar hreppt fyrsta vinning.
Vinningshafinn er
kominn í leitirnar
Góð við-
bót við
ellilíf-
eyrinn
LÖGREGLAN á Hólmavík aðstoð-
aði allt að tuttugu manns á fimm bíl-
um á Steingrímsfjarðarheiði í gær-
morgun og fyrrinótt í aftakaveðri.
Lögregluvarðstjóri sagði veðrið hafa
verið „snælduvitlaust“, enda var
mikill bylur á heiðinni og ofankoma.
Veðrið fór að ganga niður í gær-
kvöldi. Heiðin lokaðist aldrei þrátt
fyrir aðstæðurnar, en vanbúnir bílar
áttu aldrei möguleika á að komast
yfir.
Fólki hjálpað
á Steingríms-
fjarðarheiði