Morgunblaðið - 29.12.2001, Blaðsíða 60
FÓLK Í FRÉTTUM
Hunang
í kvöld
Vesturgötu 2, sími 551 8900
Miðasölusími: 551 1200. Miðasalan er opin kl. 13-18 mánudaga og þriðjudaga.
Aðra daga kl. 13-20. Símapantanir frá kl. 10 virka daga.
Netfang: midasala@leikhusid.is Veffang: www.leikhusid.is
Í dag lau.29/12 kl.14:00 uppselt og kl.15:00 uppselt, sun. 30/12 kl.14:00 uppselt
og kl.15:00 uppselt, sun. 6/1 kl. 14:00, 15:00 og 16:00, sun. 13/1 kl. 14:00, 15:00
og 16:00.
KARÍUS OG BAKTUS - Thorbjörn Egner
VILJI EMMU - David Hare
Smíðaverkstæðið kl 20.00
Í kvöld lau. 29/12 síðasta sýning.
HVER ER HRÆDDUR VIÐ VIRGINÍU WOOLF? - Edward Albee
Ekki er hægt að hleypa inn í salinn eftir að sýning er hafin!
mið. 2/1 nokkur sæti laus, sun. 6/1.
Litla sviðið kl 20.00
MEÐ FULLA VASA AF GRJÓTI - Marie Jones
Sun. 6/1 nokkur sæti laus, fim. 10/1 nokkur sæti laus.
SYNGJANDI Í RIGNINGUNNI - Comden/Green/Brown og Freed
Í kvöld lau. 29/12 uppselt, lau. 5/1 nokkur sæti laus, lau 12/1, lau. 19/1.
CYRANO - SKOPLEGUR HETJULEIKUR - Edmond Rostand
Stóra sviðið kl 20.00
3. sýn. sun. 30/12 uppselt, 4. sýn. fim. 3/1 örfá sæti laus, 5. sýn. fös. 4/1 örfá sæti
laus, 6. sýn. mið. 9/1 örfá sæti laus, 7. sýn. sun. 13/1 nokkur sæti laus.
VILJI EMMU
SÍÐASTA SÝNING Í KVÖLD!
FJANDMAÐUR FÓLKSINS e. Henrik Ibsen
Lau 5. jan. - LAUS SÆTI
Su 13. jan. - LAUS SÆTI
BLÍÐFINNUR e. Þorvald Þorsteinsson
Su 30. des. kl. 14 - ÖRFÁ SÆTI
Su 6. jan. kl. 14 - LAUS SÆTI
Su 13. jan. kl. 14 - LAUS SÆTI
KRISTNIHALD UNDIR JÖKLI
e. Halldór Laxness
Fö 4. jan. kl. 20 - LAUS SÆTI
Lau 12. jan. kl. 20 - LAUS SÆTI
Fö 18. jan. kl. 20 - SÍÐASTA SÝNING
MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney
Í kvöld kl 20 - ÖRFÁ SÆTI
Lau 19. jan. kl. 20 - LAUS SÆTI
BEÐIÐ EFTIR GODOT e. Samuel Beckett
Fö 4. jan. kl. 20 - LAUS SÆTI
PÍKUSÖGUR e. Eve Ensler
Í kvöld kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Su 6. jan. kl. 20 - LAUS SÆTI
Stóra svið
Nýja sviðið
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu
sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
ÁRAMÓTADANSLE IKUR
Gömlu- og nýju dansarnir - Dansleikur fyrir alla
Kveðjum gamla árið með dúndrandi dansleik
í kvöld frá kl. 22.00 í ÁSGARÐI,
Glæsibæ við Álfheima.
Félagar úr Harmonikufélagi
Reykjavíkur leika fyrir dansi.
Söngkona Ragnheiður Hauksdóttir.
!
! "#
#
$
3 4)
,'
5
""
"6
#%&'
(#)*
+
*
*"
"7
,)
&
8
9
:;
'
8
1
<
='
) >
8
.
-.!
.' ?
+
-"
<
?
7"
"*
/,)
'/ 0
/ 0
$1'
+
-..
&
$
6"
?
"6
#"
?
#
@"
#
,)
*"
#
,)
'/ 0
/ 0
$1'
! "
#
! #$!
% !
&
' ' ( ) *+,'
)*./
0-1
" 2-
/
3
!
2 4
* 5
ÁRIÐ 2001 gaf af sér margar frá-
bærar myndasögur og fer hér listi
yfir þær sjö sem undirritaður telur
standa upp úr. Fjölbreytileikinn var
einkennandi þetta árið; allt frá
barnabókum til örgustu áróðursrita
með viðkomu í fréttamennsku og
kennslubók í göldrum. Það eina sem
vantar til að fullkomna árið er góð ís-
lensk myndasaga og vonandi að bót
verði gerð á því næstu árin.
1. The Invisibles: Entropy in the UK
Grant Morrison ásamt teikn-
urum. Vertigo Comics
Annað kom í
raun ekki til greina
í fyrsta sætið.
Grant Morrison
predíkar af miklum
móð um stöðu mála
í heiminum í dag og
er síður en svo sátt-
ur. Ekkert er hon-
um heilagt í skrif-
unum og þá allra
síst það allra heilagasta, Guð og
breska krúnan. Hugmyndaauðgin er
hreint ótrúleg og á stundum jafnvel
yfirdrifin. Invisibles er sértrúarsöfn-
uður án tíundar.
2. The Metabarons: Path of the
Warrior
Alexandro Jodorowsky skrifar og
Juan Gimenez teiknar.
Humanoids Publishing
Þessi er af meg-
inlandinu og guði
sé lof að hún var
þýdd úr frönsku yf-
ir á ensku því ann-
ars hefði þetta
meistarastykki far-
ið fram hjá okkur
hálf-enskumælandi
mönnum. Þetta er
ævintýri af bestu gerð. Kosmísk
sápuópera sem tvinnar saman fant-
asíu og vísindaskáldskap. Teikning-
ar Gimenez eru vægast sagt stór-
fenglegar; handmálaðar og ná
epískum drögum sögunnar fullkom-
lega.
3. Snakes and Ladders
Alan Moore skrifar og Eddie
Campbell teiknar.
Eddie Campbell Comics
Þetta hefði verið
einkennilegur
topplisti án Alans
Moore. Í Snakes
and Ladders út-
skýrir hann sköp-
unarsöguna út frá
minnstu einingum
lífs okkar; erfða-
menginu. Með
stórkostlegu orð-
færi sínu nær hann að fanga lesand-
ann og fræða um svörin í okkar
flókna en um leið, ef honum ber að
trúa, ofureinfalda heimi. Galdurinn
er að sjá tengingarnar milli alls og
einskis. Finna stað sinn í því hnita-
kerfi hugmynda sem heimur okkar
byggist á og feta sig þaðan í átt til
uppljómunar. Þung lesning sem
krefst einbeitingar og gjöful eftir
því. Vonlaust að kvikmynda sem bet-
ur fer.
4–7. Zero Girl
Sam Keith. Homage Comics
Sam Keith býður
lesendum sínum
upp á litla og sæta
ástarsögu með al-
veg einstaklega
súrum söguþræði.
Sveiflast eins og
pendúll frá róman-
tískri sögu um ást í
meinum yfir í súrr-
ealískan hrylling.
Teikningarnar, sem virðast leka eftir
blaðsíðunum, auka enn á draum-
kennda upplifunina. Einlægt verk
með sjálfsævisögulegu ívafi, ótrúlegt
nokk.
4–7. Planetary:
The Fourth Man
Warren Ellis skrif-
ar og John Cass-
aday teiknar.
WildStorm Prod-
uctions
Ef áfram heldur
sem horfir er hætt
við að Planetary-
sögur Ellis verði fastur liður í árs-
yfirlitum næstu árin. Þetta eru ör-
sögur og ævintýri þar sem Planet-
ary-hópurinn sviptir hulunni af
undrum og stórmerkjum síðustu ald-
ar. Ellis hefur framúrskarandi tök á
því að koma lesendum sínum á óvart
án þess að rjúfa framvindu sögunn-
ar. Ellis er að takast það ofurmann-
lega; að gera myndasögur „kúl“.
4–7. Strange Stories for
Strange Kids
Ritstjórar eru Art Spiegelman og
Françoise Mouly.
RAW Junior Books.
Safn smásagna
eftir höfunda báð-
um megin Atl-
antshafsins. Að
upplagi eru sög-
urnar ætlaðar
yngri lesendum
en það er síður en
svo nokkur fyrir-
staða fyrir þá
eldri. Skrítnar
sögur með súrrealísku ívafi þar sem
höfundarnir hafa látið barnslegt
ímyndunaraflið njóta sín. Hér er
ekki talað niður til lesenda heldur er
þeim treyst til þess að melta sög-
urnar eins og best þeir mega og auka
þannig á skemmtanagildið.
4–7. Palestine
Joe Sacco. Fantagrahics Books
„Nýja blaða-
mennskan“ sem
Tom Wolfe og
Hunter S.
Thompson skil-
greindu hefur nú
fengið forystu-
sauð í Joe Sacco.
Vertu hlutaðeig-
andi í því sem þú
fjallar um og los-
aðu þig við allar hugmyndir um hlut-
lausa fréttamennsku og þá fyrst
nærðu einhverjum tökum á viðfangs-
efninu. Hann fjallar hér um ástandið
hjá Palestínuaröbum undir oki Ísr-
aela í byrjun síðasta áratugar. Bygg-
ir á hundruðum viðtala sem hann tók
við Ísraelsmenn og Palestínumenn á
þessu tímabili. Sýnir andlitin á bak
við fréttamyndir af grjótkasti og
gúmmíkúlum og gefur þeim per-
sónulega dýpt. Sacco sýnir að
myndasagan getur verið ótrúlega
sterkur upplýsingamiðill um atburði
líðandi stundar.
MYNDASÖGUR
ÁRSINS 2001
Heimir Snorrason
60 LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ