Morgunblaðið - 29.12.2001, Síða 51

Morgunblaðið - 29.12.2001, Síða 51
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2001 51 ✝ Frosti Gíslasonfæddist í Eyhild- arholti í Skagafirði hinn 14. júlí 1926. Hann lést á Sjúkra- húsinu á Sauðár- króki aðfaranótt þriðjudagsins 18. desember síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Gísli Magnús- son, f. 25. mars 1893, d. 17. júlí 1981, bóndi í Eyhildarholti, og kona hans, Guðrún Sveinsdóttir, f. 29. júlí 1895, d. 13. ágúst 1977. Systkini Frosta eru: 1) Magnús Halldór, f. 23. mars 1918, maki Jóhanna Þórarinsdóttir. 2) Konráð Elinbergur, f. 19. júlí 1919, d. 10. nóvember 1919. 3) Sveinn Þorbjörn, f. 10. júní 1921, maki Lilja Sigurðardóttir. 4) Kon- ráð, f. 2. janúar 1923, maki Helga Bjarnadóttir. 5) Rögnvaldur, f. 16. desember 1923, maki Sigríður Jónsdóttir. 6) Gísli Sigurður, f. 26. júní 1925, maki Ingibjörg Jóhann- esdóttir. 7) Kolbeinn, f. 17. des- ember 1928, d. 15. janúar 1995. 8) Árni, f. 21. janúar 1930, maki Ingibjörg Sveinsdóttir. 9) María Kristín Sigríður, f. 4. ágúst 1932, maki Árni Blöndal. 10) Bjarni, f. 8. ágúst 1933, maki Salbjörg Már- usdóttir. 11) Þorbjörg, f. 17. apríl 1935, d. 17. apríl 1935. 12) Þor- björg Eyhildur, f. 26. ágúst 1936, maki Sæmundur Sigurbjörnsson. Frosti giftist 6. júní 1953 Jórunni Sigurðardóttur, f. 12. nóvember 1926, dóttur Sigurðar Einarssonar, f. 4. september 1890, d. 16. apríl 1963, bónda á Hjaltastöðum í Blönduhlíð og konu hans, Margrétar Þorsteins- dóttur, f. 8. janúar 1889, d. 10. nóvember 1989. Frosti og Jórunn eignuðust fjóra syni auk þess að ala upp eina fósturdóttur. 1) Sigurður, flugvall- arvörður á Sauðár- króki, f. 22. mars 1953, kvæntur Ragnheiði Gutt- ormsdóttur og eiga þau tvö börn, Jór- unni og Óskar. 2) Gísli, húsasmiður í Varmahlíð, f. 19. mars 1954, kvæntur Ernu Geirsdóttur og eiga þau tvö börn, Rúnar Birgi og Þórhildi. 3) Frosti, rafvirki á Sauðárkróki, f. 20. júlí 1957, kvæntur Sigríði Ragnarsdóttur og eiga þau fjögur börn, Fann- eyju Björk, Ragnar Frosta, Arnar Frey og Huldu Maríu. 4) Magnús Halldór, blikksmiður í Reykjavík, f. 26. júní 1965, kvæntur Eddu Þorsteinsdóttur og eiga þau þrjú börn, Ástu Karenu, Þorra og Þór, auk þess á Magnús einn son fyrir, Dag, og Edda á einn son, Kristján. 5) Hafdís Huld Þórólfsdóttir, f. 4. júní 1974, sjúkraliði í Reykjavík, sambýlismaður Markús Sigur- jónsson og eiga þau einn son, Sig- urjón Má. Frosti bjó fyrstu ár ævi sinnar hjá foreldrum sínum í Eyhildar- holti en fór til náms í Héraðsskól- ann á Laugarvatni og svo Bænda- skólann á Hólum í Hjaltadal. Rétt fyrir 1950 gerðist hann bóndi á Frostastöðum þar sem hann bjó þar til hann fluttist til Sauðár- króks nóvember 1998 þar sem hann bjó til æviloka. Útför Frosta fer fram frá Sauðárkrókskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Það er skrýtið, afi, að setjast niður til að skrifa minningargrein um þig, þetta er hlutur sem ég hef stundum velt fyrir mér: Hvernig verður það þegar afi og amma deyja? Það verða jú allir að deyja. Svo kemur að því og maður er engan veginn tilbúinn, þú gafst okkur þó mikinn tíma til að undirbúa okkur. Ég man í haust þegar amma var orðin hress eftir veikindi sín og ég sagði við þig að þið kæmuð bæði til Reykjavíkur í vor í skírn væntanlegs erfingja okkar Hugrúnar, sem jafn- framt verður þitt fyrsta langafabarn, þá sagðir þú að það væri nú ekki víst að þú kæmir. Ég hugsaði með mér að ég skyldi með öllum ráðum fá þig til að koma, núna veit ég að þú verður hjá okkur þótt við sjáum þig ekki, þú munt líka örugglega vera hjá okkur þegar barnið fæðist og mér þykir vænt um það. Það er einhvern veginn með mann að maður vill að börnin sín fái að upplifa allt það skemmtilega sem maður upplifði sjálfur. Ég hlakka til að segja börnunum mínum frá öllum yndislegu stundunum sem ég átti með langafa þeirra, segja þeim frá kindunum sem þú gafst mér, fyrsta sem ég man eftir hét Dumba, ein af örfáum svörtum kindum í fjárhúsun- um hjá þér, þegar hún varð svo göm- ul fékk ég kind sem ég hafði meira að segja skírt sjálfur, hún hét Askja. Mér finnst ég hafa verið rosalega heppinn að fá að vera svona mikið á Frostastöðum og taka þátt í bú- skapnum, búskapurinn var líf þitt og yndi, þú áttir stóran hóp af kindum frá því ég man eftir mér, þú hugsaðir vel um þær, skráðir allt hjá þér til að rækta sem best. Oft fékk ég að skoða þessar bækur og þótti mér þær spennandi, þú þekktir allar kindurn- ar þínar með nafni og þannig var það skráð í bækurnar, nafn og afkom- endur og hægt var að rekja ættir allra kinda þinn aftur til þess þegar þú hófst búskap. Oft bað ég þig að kenna mér að marka en aldrei gat ég skilið þetta, það var svo einfalt í höndunum á þér og þú gast séð af margra metra færi hvaða mark var á kindinni. Nokkrum sinnum fór ég með þér í göngur og réttir í Gloppu, það þótti mér ósköp gaman og einfalt, þar gat ég fundið kindur með gulu merkjunum og dregið í okkar dilk. Stundum bentir þú mér svo á kindur sem ég elti uppi og fór með í réttan dilk, eins var í Silfrastaðarétt, þú bentir mér á kindurnar sem ég mátti draga. Það voru þó ekki aðeins kindur sem þú bjóst með, þú áttir alltaf hesta, Skjóni og Tvistur eru hestar sem ég mun aldrei gleyma, ég get sýnt börnunum myndina af mér á baki á Skjóna sunnan við bæ og sagt þeim sögur af þessum eðalfákum sem þeir voru í mínum augum. Þú áttir einnig kýr og eitt af því sem ég gat aldrei lært voru handbrögðin við að mjólka, þetta virtist svo einfalt í höndunum á þér en sama hvað ég reyndi, það gerðist ekki neitt. Annað stórt áhugamál hjá þér var söngurinn, ég man mest eftir Rökk- urkórnum og kirkjukórnum. Ég man þegar Rökkurkórinn setti upp kab- arett, þú lékst dyravörð og ég man hvað ég var stoltur af því að afi og amma væru í þessari sýningu sem mér þótti mikið ævintýri á þeim tíma. Ég man þó ekki til þess að þú hafir sungið mikið heima, en þú hummaðir löngum stundum hin ýmsu lög, stundum hélt ég að þú værir að semja lög því ég þekkti ekki það sem þú hummaðir. Það eru líka til margar fleiri minn- ingar frá því þegar ég var á Frosta- stöðum, í hádeginu var það heilagt að hlusta á fréttirnar, veðrið og svo dánarfregnirnar, það var því skrýtið að hlusta á dánarfregnirnar 19. des- ember síðastliðinn og heyra nafnið þitt lesið þar upp. Þú áttir þína skeið, stóra skeið, og ég hugsa að þú hefðir ekki getað borðað súpuna eða graut- inn með annarri skeið. Kíkirinn í suðurglugganum í stofunni. Það tók mig mörg ár að skilja hvað þú varst stríðinn, eftir að ég fór að stunda íþróttir af miklum krafti varst þú alltaf að segja mér að þetta væri stórhættulegt, menn slösuðu sig bara í þessu, og ef við vorum að horfa á fréttir saman og einhverjar fréttir af slysum í íþróttum komu sagðir þú alltaf: „Sko, heyrirðu þetta, þetta er stórhættulegt,“ og brostir svo. Ég man þegar ég heyrði frétt af manni sem hafði slasast við bústörfin, þá var ég snöggur að benda þér á að það væri líka hægt að meiða sig þar. Það var ekki fyrr en ég var orðinn fullorðinn sem ég skildi að þú varst bara að stríða mér, þú varst ekki mikill áhugamaður um íþróttir en þú hafðir bara svo gaman af því að stríða. Og það hafðir þú al- veg fram á síðasta dag, þegar við komum í heimsókn nú í desember slóstu á létta strengi, það var greini- legt að sálin var hraust þótt líkaminn væri orðinn þreyttur. Sem dæmi um húmorinn hjá þér er að þegar við Hugrún komum til að segja ykkur ömmu frá því að þið væruð að verða langafi og langamma sagðir þú: „Það var mikið!“ Það er líka einhvern veginn þann- ig að maður hugsar alltaf um afa og ömmu sem eitt, þau hafa alltaf verið saman og verða alltaf saman og manni finnst það bara sjálfsagt. Mér fannst það því svolítið skrýtið þegar Hafdís sagði mér frá því í haust, þeg- ar hún hafði sagt þér að amma væri að koma norður aftur og þú sagðir: „Mikið lifandis skelfingar er það gott.“ Einhvern veginn hafði maður aldrei hugsað um hvað ykkur þykir vænt hvoru um annað, mér fannst þetta bara sjálfsagt. En að sjálf- sögðu er það það ekki, mér þótti bara svo gott að heyra þetta. Minningarnar hrannast upp en ég mun geyma þær með mér og deila þeim með afkomendum mínum, segja þeim hversu stórkostlegur maður langafi þeirra var, því miður fékk hann ekki að lifa það. Elsku amma, hafðu það sem allra best, afi verður hjá þér. Rúnar. Frændi okkar, Frosti Gíslason frá Frostastöðum, er látinn, 75 ára að aldri. Þegar lát hans barst fórum við bræður að ræða kynni okkar af Frosta sem voru talsverð en við ól- umst upp í því húsi sem hann bjó í mestalla sína búskapartíð. Margt kom uppí hugann og minningar þyrl- uðust upp: Frosti komandi inn úr stórhríðum með hrímhvíta skaflana í augabrúnunum, þá var okkur skemmt, smalamennskur með til- heyrandi atgangi og heyskapurinn sem reyndi á þolrifin. Alltaf var gott að koma niður til Frosta og Nunnu. Þegar við vorum yngri fórum við til að sníkja kleinur en til að sníkja og rífast við Frosta þegar við urðum eldri. Þeim sem lítið þekktu hann gat sýnst hann svolítið neikvæður og hrjúfur en það var stutt í húmorinn og mest hafði hann gaman af að vera algjörlega á önd- verðum meiði við okkur – stundum þegar við buðum honum góðan dag- inn átti hann til að segja Nei. Honum þótti nóg um flækinginn og ferðalög- in á okkur efrihæðarbúum en við launuðum honum síðar lambið gráa þegar hann var sjálfur kominn á bíl og sá bíll var ekki alltaf heima. Frosti var mikill skepnumaður og fylgdist vel með bæði sínu búfé og annarra. Hann vissi alltaf hvar bú- peningurinn á Frostastöðum hélt sig í högum og þegar hann kom upp á efri hæðina til að kíkja á hitamælinn, sem hann gerði oft, gat hann þess jafnan ef hann hafði séð eitthvað af okkar fé eða hrossum. Við kveðjum Frosta frænda með söknuði og þakklæti. Heimili hans og Nunnu var fastur punktur í tilveru okkar og tilheyrði lífi okkar eins og sjálfsagður hlutur fannst okkur þá. Aldrei var amast við okkur og alltaf talað við okkur eins og fullorðna menn. Við og foreldrar okkar sendum Nunnu og fjölskyldunni allri okkar dýpstu samúðarkveðjur með blessun Guðs. Þorgeir og Teitur Sveinssynir. Það er rökkur og hljótt inni á sjúkrastofunni. Frosti liggur í rúm- inu, stilltur, æðrulaus.Við hjónin er- um komin til að kveðja hann og þakka honum fyrir langar og farsæl- ar samvistir sem aldrei bar skugga á. Fyrir vináttu og samhug á lífsins stundum. Við vitum öll að hverju dregur. Hann er sáttur við orðinn hlut og við erum fegin því að fá tæki- færi til að segja honum hversu vænt okkur þykir um hann og hversu mik- ils virði hann hefur verið okkur og börnunum okkar þann tíma sem við höfum verið samvistum. Nú þegar komið er að kveðju- stund rifjast upp myndir frá liðnum dögum. Það eru myndir hversdags- ins, myndir úr lífi og starfi í sveit. Það eru okkar minningar sem við eigum og getum yljað okkur við nú þegar Frosti hefur yfirgefið þetta jarðlíf. Við sjáum bóndann Frosta sem unir glaður við sitt heima á Frosta- stöðum og vildi helst hvergi annars staðar vera. Við sjáum hann og Nunnu sinna fénu sínu, gefa, brynna, sinna lambfé á sauðburði, öll þessi störf sem vinna þarf við sauðfé. Hann var með afbrigðum fjárglögg- ur, þekkti allar sínar ær með nafni og ættir þeirra marga liði aftur. Og það var svo notalegt að vinna með honum við féð, enginn asi eða hróp og köll, aðeins þessi hljóðláta nær- vera og virðing fyrir skepnunum sín- um. Við munum hann við heyskapinn, að slá og snúa og síðustu árin akandi hring eftir hring með rakstrarvélina. Aldrei hætt við hálfnað verk, heyinu þurfti að ná saman og það hafði al- gjöran forgang. Enginn hamagang- ur við vinnuna en alltaf þessi trausta nærvera. Það voru ekki höfð mörg orð um hlutina. Þetta voru verk sem þurfti að vinna og það voru góð verk. Þótt heyskapnum fylgdi oft erfiði var þeim hjónum alltaf gleðiefni ef vel verkuð taða náðist í hlöðu. Við munum hann á söngæfingum í kirkjukórnum og í messum. Alltaf mætti Frosti því hann hafði þá skoð- un að ef maður hafði tekið að sér eitt- hvert verk, hvort sem það nú var að syngja í kór eða annað, þá stóð mað- ur við það. Skylduræknin og trú- mennskan var honum í blóð borin. Við munum hann líka við eldhús- borðið, að spjalla, spyrja frétta, bjóða kaffi og með því. Þröngu húsa- kynnin hjá þeim Nunnu stóðu ekki í vegi fyrir að þau voru gestrisin með afbrigðum. Og það var svo notalegt andrúmsloft hjá þeim. Frosti jafnvel að lesa upphátt fyrir Nunnu sem sat við eitthvert handverk. Börnin okkar sóttu niður til Frosta og Nunnu um leið og þau komust hjálparlaust nið- ur stigann og jafnvel fyrr. Þar mætti þeim hlýtt og alúðlegt viðmót, nota- legt spjall og stundum góðlátleg stríðni, öðruvísi og dálítið gamaldags leikföng, ósjaldan nýsteikt kleina eða annað góðgæti í munn. Þau voru góðir nágrannar, Frosti og Nunna. Við lítum á það sem gæfu okkar að hafa átt þetta góða sambýlisfólk að í mörg ár. Slíkt er ekki sjálfsagt mál og fyrir það viljum við þakka. Við söknum allra heimsóknanna hans Frosta þegar hann gekk upp á efri hæðina og leit inn svona bara til að sjá okkur og vita hvernig við hefðum það. Það voru góðar heimsóknir og alveg ómissandi hluti hversdagsins á Frostastöðum. Við sendum Nunnu og allri fjöl- skyldunni okkar innilegustu samúð- arkveðjur og biðjum góðan guð að standa þeim við hlið á sorgartímum. Sara og Þórarinn, Frostastöðum. FROSTI GÍSLASON Frá okkur er farinn mikill maður. Hræði- legt slys varð til þess að hann var hrifinn burt frá okkur. Þegar fréttin barst brutust út ýmsar spurningar: Hvað ef …? Ég er full af sektarkennd. Ég veit að svo á ekki að vera, en hvernig get- ur það öðruvísi verið þegar sviplegt fráfall þitt ristir gat á hjartað mitt? Mér virðist sem ég hafi aldrei komið til þín og sagt þér að ég elsk- aði þig. Ég geri það. Mér finnst sem ég hafi svikist um að heimsækja þig. Fyrirgefðu mér? Ég var þó svo heppin að fá tæki- færi til að búa hjá þér og ömmu og upplifa það líf sem ávallt fylgdi heim- ili þínu, en misnotaði tækifærið. Mér finnst sem ég hafi farið á mis við svo margt gott sem þú gerðir og kenndir. Mér finnst sem ég skuldi þér. Þú veist ekki hvað ég var stolt þegar þið amma komuð til mín og Halldórs með óskir um að við yrðum SIGGEIR PÁLSSON ✝ Siggeir Pálssonfæddist á Baugs- stöðum í Stokkseyr- arhreppi 6. júlí 1925. Hann lést af slysför- um miðvikudaginn 12. desember síðast- liðinn og fór útför hans fram frá Gaul- verjabæjarkirkju 22. desember. ykkar arftakar á Baugsstöðum, en for- lögin komu því þannig fyrir að ekkert varð úr … og því sé ég enn eftir. Ég átti eftir að segja þér það. En ég met þínar skoðanir og skil. Mér fannst svo gaman að heyra um það að þið Siggi væruð að hefja aftur búskap á Baugsstöðum – ég vildi að þú hefðir getað verið hér hjá okkur lengur því að síðasti vetur var þér svo erfiður án kúnna. Ég vildi bara að ég hefði haft vit á því þá að koma oftar við og heimsækja ykkur ömmu. Ég vildi líka þakka þér fyrir heimsóknirnar hingað til okkar Halldórs á Lágafell; þínar skoðanir hafa alltaf skipt mig miklu og núna trúi ég að þú munir fylgjast með búskapnum hjá okkur; Guð veittu mér styrk til að standa undir væntingum. Ég held í þá von að almáttugur Guð hafi um þessi jól þurft á kunn- áttu þinni í kirkjunni að halda, til að hringja klukkum friðar fyrir mann- kynið. Ég veit að þú kemst á hásæti, betri mann er ekki hægt að finna … Takk fyrir samveruna, afi minn, ég mun ávallt sakna þín og bið þess að Drottinn gefi okkur hinum styrk til að takast á við komandi tíma án þín. Hvíl þú í friði. Ávallt þín Sæunn Þórarinsdóttir. MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/sendanda fylgi. Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð tak- markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Birting afmælis- og minningargreina

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.