Morgunblaðið - 29.12.2001, Qupperneq 31
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2001 31
HRUN efnahagslífsins í Argentínu,
þrátt fyrir ítrekaða fjárhagsaðstoð,
gæti leitt til þess að umtalsverðar
breytingar verði á því hvernig Al-
þjóðagjaldeyrissjóðurinn, IMF,
bregst við fjármálakreppu í þróun-
arríkjum, að sögn embættismanna
og sérfræðinga.
Þótt IMF hafi gefið í skyn að
sjóðurinn kunni að koma Argentínu
til aðstoðar kunna langtímaáhrif
kreppunnar að leiða til þess, að erf-
iðara verði fyrir ríkisstjórnir að fá
aðstoð sjóðsins ef þær fylgja óhagg-
anlegri gjaldmiðilsstefnu á borð við
tengingu argentínska pesóans við
Bandaríkjadollarann, að sögn hag-
fræðinga.
Vandræði Argentínumanna hafa
kveikt aukinn áhuga á því, að settur
verði á stofn einskonar alþjóðlegur
gjaldþrotaréttur sem komið geti
ríkisstjórnum, sem eiga í erfiðleik-
um, til aðstoðar við skuldbreytingar
áður en botninn dettur úr efnahags-
lífinu. En um leið kunna Alþjóða-
gjaldeyrissjóðurinn og stuðnings-
menn hans, þ. á m.
Bandaríkjamenn, að verða fljótari
til að kippa að sér höndum en ella,
ef ríkisstjórn vill halda fast við efna-
hags- eða fjármálastefnu sem virð-
ist ekki ganga upp til lengri tíma lit-
ið.
„Að vissu leyti er við okkur að
sakast, að við skyldum halda áfram
að lána þeim peninga á meðan þeir
héldu áfram stefnu sem í rauninni
var gjaldþrota,“ sagði Peter Morici,
hagfræðingur við efnahagshugveit-
una Economic Strategy Institue.
„Við höfum vitað nú í nokkurn tíma
að það væri engin leið út.“
Fulltrúi IMF, sem ekki vildi láta
nafns síns getið, viðurkenndi að
kreppan í Argentínu hefði vakið
umræður innan stofnunarinnar um
það, hvenær sjóðurinn ætti að
gagnrýna opinberlega ríkisstjórnir
sem ættu í erfiðleikum. „Ef við
ljóstrum upp er hætta á að ástand-
ið, sem við erum að reyna að bæta
úr, versni. Ef við segjum ekkert
eigum við á hættu að vera sökuð um
að hafa staðið aðgerðarlaus hjá þeg-
ar lestin fór út af sporinu,“ sagði
embættismaðurinn. „Þetta er
spurning sem ekki er auðvelt að
svara.“
Margir hagfræðingar telja, að
argentínskum embættismönnum,
fremur en IMF, sé um að kenna
hvernig komið er. Erlendar skuldir
Argentínu nema nú um 132 millj-
örðum Bandaríkjadollara, og um
síðustu helgi tilkynnti nýr forseti
landsins, Alfredo Rodriguez Saa, að
öllum afborgunum og vaxta-
greiðslum af þeim yrði frestað.
IMF, sem 183 ríki eiga aðild að,
sá Argentínustjórn fyrir neyðarlán-
um, alls að upphæð 22 milljarðar
dollara. En sjóðurinn neitaði að
reiða af hendi 1,2 milljarða greiðslu
nú í desember, sem Argentínumenn
fóru fram á, á þeim forsendum að
ríkisstjórnin hefði ekki fylgt skil-
málunum sem fylgdu lánunum.
Fyrir tíu árum ákváðu Argent-
ínumenn að stemma stigu við óða-
verðbólgu í landinu með því að festa
gengi gjaldmiðilsins, pesóans, jafnt
gengi Bandaríkjadollarans. Verð-
bólgan hjaðnaði, en stjórnin missti
getuna til að bregðast við efnahags-
samdrætti með því að lækka vexti
eða prenta fleiri pesóa. Eftir því
sem dollarinn hefur styrkst undan-
farin ár hafa argentínskar útflutn-
ingsvörur glatað samkeppnishæfni,
efnahagurinn versnað og atvinnu-
leysi aukist óðfluga.
Á sama tíma hefur ríkissjóður og
fylkjastjórnir í landinu safnað mikl-
um skuldum til þess að geta staðið
straum af opinberum framkvæmd-
um og greitt laun opinberra starfs-
manna og eftirlaun. Peningaskort-
urinn hefur neytt stjórnvöld til að
taka milljarða dollara að láni á al-
þjóðlegum fjármálamörkuðum.
Þegar samdráttur varð í efnahags-
lífinu minnkuðu tekjur ríkisstjóðs,
vextir snarhækkuðu og stjórnin gat
ekki staðið við greiðsluloforð sín
nema með því að leita á náðir IMF.
Ein hefðbundin leið til að bregð-
ast við þeim vanda sem nú steðjar
að Argentínumönnum er að fella
gengi gjaldmiðilsins, en slíkt eykur
útflutning og ýtir þannig undir hag-
vöxt. En tenging pesóans við doll-
arann hefur skotið djúpum rótum í
argentínsku efnahagslífi. Flestir
Argentínumenn fá greidd laun í
pesóum, en skuldir þeirra eru tald-
ar í dollurum. Verði gengi pesóans
fellt munu skuldir stóraukast og
fjöldi gjaldþrota margfaldast.
Kreppan í Arg-
entínu kann að
hafa áhrif á
stefnu IMF
Reuters
Nýr forseti Argentínu, Adolfo Rodriguez Saa, ávarpar starfsfólk
skrifstofu Sambands launþegasamtaka í Buenos Aires.
Washington. The Los Angeles Times.
RÍKISSTJÓRN Argentínu mun
reyna að leysa samfélagskreppuna
í landinu áður en farið verður að
greiða gífurlegar skuldir ríkissjóðs
og semja við Alþjóðagjaldeyrissjóð-
inn (IMF), sagði Adolfo Rodriguez
Saa, nýr forseti landsins, á fimmtu-
dagskvöldið. „Við höfum útskýrt
fyrir IMF að fyrst verði að takast á
við samfélagsneyðina, því bregðast
verður við félagslegri útskúfun og
atvinnuleysi,“ sagði Rodriguez Saa.
Hann hét því ennfremur að rík-
isstjórn sín myndi innleiða nýja
tíma. „Við verðum að koma á gegn-
særri, agaðri stjórn. Allir embætt-
ismenn, sem grunaðir verða um
spillingu eða misgjörðir, verða taf-
arlaust reknir úr embætti,“ sagði
forsetinn við sjónvarpsstöðina Am-
erica.
Rodriguez Saa tók við forseta-
embættinu fyrir tæpri viku, eftir að
mannskæðar óeirðir og fjöldamót-
mæli bundu endi á forsetatíð fyr-
irrennara hans, Fernandos de la
Rua. Rodriguez Saa lét það verða
eitt sitt fyrsta verk að lýsa því yfir
að öllum greiðslum á erlendum
skuldum ríkissjóðs, sem alls nema
um 132 milljörðum Bandaríkjadoll-
ara, yrði frestað. Þegar forsetinn
tilkynnti þinginu um þetta sl.
sunnudag risu þingmenn á fætur,
fögnuðu með lófataki og kyrjuðu:
„Argentína! Argentína!“
Rodriguez Saa kvaðst hafa beðið
næstæðsta ráðamann IMF, Anne
Krueger, um „skilning“ í kjölfar
ákvörðunarinnar um að afborgun-
um og vaxtagreiðslum af lánunum
yrði frestað. Fulltrúar IMF og
Argentínu munu hittast í næsta
mánuði, að því er forsetinn greindi
frá, en ekki hefur verið ákveðin
dagsetning fyrir fundinn.
Á miðvikudag tilkynnti svo Rodr-
iguez Saa að tekinn yrði í notkun
nýr gjaldmiðill í Argentínu, svo-
nefndur argentínó, sem notaður
skyldi jafnhliða núverandi gjald-
miðli, pesóanum, og Bandaríkja-
dollurum. Gengi pesóans hefur ver-
ið fast jafnt gengi dollarans síðan
1991, en í fyrradag féll gengi pesó-
ans gagnvart dollaranum á svarta-
markaðinum í 1,30.
Gengi pesóans var bundið við
gengi dollarans til þess að stemma
stigu við óðaverðbólgu, en fjár-
málaskýrendur hafa sagt, að þessi
binding sé meginástæða efnahags-
kreppunnar í Argentínu núna, en
samdráttur hefur verið í efnahags-
lífi landsins í 43 mánuði. Eina leiðin
til þess að komast hjá gengisfell-
ingu pesóans eða dollaravæðingu –
að nota einvörðungu dollara í efna-
hagslífinu – var að taka í notkun
argentínóinn, sagði Rodgriguez
Saa.
Almenningur óttast og efast
Almenningur í Argentínu lét í
ljósi ótta og efasemdir um fyrirætl-
anir stjórnvalda um að prenta nýj-
an gjaldmiðil. „Þetta er lygi. Þetta
eru peningar sem ekkert er á bak
við,“ sagði Claudio Valdez, fertugur
tölvunarfræðingur. „Ég er mjög
áhyggjufullur og hef ekki hugmynd
um hvað mun gerast.“
Gengi pesóans fór lækkandi á
svartamarkaðinum í miðborg Buen-
os Aires á fimmtudaginn, þegar
fólk fór að kaupa dollara. Þá var
verð dollarans komið í 1,3 til 1,35
pesóa, en í síðustu viku kostaði
dollarinn á sama stað á bilinu 1,02
til 1,05 pesóa. Þessi viðskipti eru
ólögleg vegna bindingar gengis
pesóans við gengi dollarans.
Stjórnvöld hafa sagst ekki munu
hrófla við bindingu gengis pesóans
við gengi dollarans. Nýi gjaldmið-
illinn verði notaður til að greiða op-
inber laun, eftirlaun, skuldir og til
að kaupa birgðir fyrir hið opinbera.
Ekki verður hægt að skipta nýja
gjaldmiðlinum í aðra gjaldmiðla, en
gengi hans á að ákvarðast af mark-
aðinum.
Síðan í byrjun desember hafa
verið ströng takmörk á því hversu
mikið Argentínumenn geta tekið út
af bankareikningum sínum, og get-
ur upphæðin ekki farið yfir þúsund
pesóa á mánuði. Ekki er ljóst hvort
inneignum á reikningum verður
breytt í nýja gjaldmiðilinn.
„Ég held að þeir breyti ekki inn-
eigninni,“ sagði Mabel Rodriguez,
67 ára fyrrverandi lögfræðingur.
„Hvernig má það vera að svona sé
komið fyrir okkur?“ sagði hún
einnig. „Argentína er svo ríkt land.
Við höfum allt hvað eina … en við
höfum líka Argentínumenn.“
Þriðjungur íbúa Argentínu, sem
alls eru um 36 milljónir, býr við fá-
tækt, og atvinnuleysi er 18,3%. „Ég
skammast mín,“ sagði Fabian Mad-
ariaga, fertugur fyrrverandi
ávaxtasali, er hélt á 20 mánaða syni
sínum – einu fjögurra barna sinna
– og var að betla peninga í miðborg
Buenos Aires. „Það hvarflaði aldrei
að mér að svona myndi fara í þessu
landi.“
Bandaríkjamenn vara við
óstöðugleika
Bandaríska utanríkisráðuneytið
varaði við því í vikunni, að til frek-
ari óeirða kunni að koma í Argent-
ínu. Lög og regla hefðu að mestu
komist á að nýju, eftir að bráða-
birgðastjórnin, er tók við af de la
Rua, afnam neyðarástandslög sem
hann setti í síðustu viku eftir
tveggja daga mannskæðar óeirðir
um allt land. Engu að síður mætti
búast við „óstöðugleika“ fram að
kosningum, er boðaðar hafa verið í
mars næstkomandi.
Reuters
Þessi gjaldeyrissala í miðborg Buenos Aires var lokuð, þar eð argentínsk stjórnvöld hafa fyrirskipað að gjald-
eyrissölur og verðbréfamarkaðir skuli lokaðir uns nýjar efnahagsráðstafanir verða að veruleika.
Hyggst tak-
ast á við sam-
félagskrepp-
una fyrst
Buenos Aires, Washington. AFP, Washington Post.
Nýr forseti Argentínu biður IMF um að sýna „skilning“ á frestun afborgana erlendra lána