Morgunblaðið - 29.12.2001, Page 43
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2001 43
Fornsagnagetraun Morgunblaðsins birtist í blaðinu
sunnudaginn 30. desember og byggist hún á spurning-
um úr köflum og kvæðum íslenskra fornbókmennta.
Verðlaun
Höfundar Njálu eftir Jón Karl Helgason. Bókinni fylgir margmiðlunardiskurinn Vefur
Darraðar með texta eins elsta handrits Njálu og fjölda ljóða og myndskreytinga sem
sprottið hafa af sögunni. Bókin er tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2001.
Útgefandi Mál og menning.
Þóra – baráttusaga, bindi I og II, eftir Ragnheiði Jónsdóttur. Spennandi og grípandi
ástar- og veruleikasaga, merkileg lýsing á íslensku þjóðfélagi á fyrri hluta 20. aldar,
ekki síst á lífi og aðstæðum kvenna. Útgefandi Salka.
Sólskinsrútan er hrein í kvöld eftir Sigfús Bjartmarsson. Ferðasaga um bakgarða Suð-
ur-Ameríku. Bókin er tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2001.
Útgefandi Bjartur.
l
ll
lll
meistar inn. is
GULL ER GJÖFIN
AROMATHERAPY
er markviss meðhöndl-
un á ilmkjarnaolíum,
undir eftirliti fag-
manns, til að viðhalda
og bæta líkamlega og
andlega heilsu og koma
í veg fyrir að einstak-
lingurinn veikist. Orðið
er samansett úr aroma
sem þýðir ilmur eða
góð lykt og therapy
sem þýðir meðferð.
Aroma vísar til ilm-
kjarnaolíunnar sem
notuð er við meðferð,
en meðferð getur verið
mjög mismunandi og
þarf að sérsníða fyrir
hvern einstakling. Auk þess á aroma-
therapy að vera stunduð af sér-
menntuðu fagfólki sem starfið kann.
Skyldi aromatherapy vera eitt-
hvað nýtt? Nei alls ekki, aroma-
therapy hefur í raun fylgt mannkyn-
inu frá fyrstu dögum annaðhvort
nafnlaus eða verið kölluð lækningar.
Elstu heimildir eru yfir 10000 ára
gamlar hellamyndir í Frakklandi og
á Spáni. Þær myndir sýna notkun á
jurtum bæði í trúarlegum og lækn-
andi tilgangi. Með nútíma fornleifa-
fræði hefur verið unnt að greina
jurtaolíur á smurðum líkum faraóa
sem sýnir okkur að um 4500 árum
f.Kr. kunnu menn að vinna olíur úr
jurtum, þær sömu og notaðar eru í
dag. Má þar nefna negul, muskat,
kanel og sedrusvið. Vinnsluaðferð-
irnar voru aðrar en afurðin sú sama.
Muna ekki allir eftir því að hafa
heyrt eða lesið um gjafir þær sem
konungar færðu Jesú í Betlehem
forðum daga: gull, reykelsi og
myrru? Ég velti því oft fyrir mér sem
barn hvað myrra væri. Vissi að gull
var málmur. Taldi mig vita að reyk-
elsi væri einungis brennt og frekar
ómerkileg gjöf handa
Jesúbarninu. Í dag veit
ég, og nú þú lesandi
góður, að myrra er jurt
sem ber latneska heitið
commiphora myrrhaog
reykelsi heitir bos-
wellia carterii. Úr báð-
um þessum jurtum
voru og eru enn í dag
gerðar olíur sem mikið
eru notaðar í aromat-
herapy. Gjafir sem
sæma konungum! Í
Biblíunni er í fjölmörg-
um tilfellum minnst á
notkun á ilmandi olíum.
Hins vegar varð notkun
á ilmkjarnaolíum ekki
almenn fyrr en eftir að manni nokkr-
um, Avicenna að nafni, tókst um 1000
e.Kr að fullgera kælibúnað á eiming-
artæknina. Áður hafði vinnsluferlið
verið mjög dýrt og ilmkjarnaolíur því
ekki fyrir almenning. Til eru fjöl-
margar heimildir um notkun á ilm-
kjarnaolíum í lækningaskyni fyrr á
öldum en of langt mál væri að rekja
þær hér.
Það var franski efnafræðingurinn
René Maurice Gattefosse sem festi
nafnið aromatherapy í sessi og flokk-
aði fagið sem sjálfstæða, einstaka
einingu innan náttúrulækninga.
Gattefosse varð fyrir slysi í efna-
verksmiðju þar sem hann brenndist
illa á hendi en læknaðist með hjálp
lavenderolíu á styttri tíma en áður
þekktist án þess að varanlegur skaði
hlytist af. Upp frá því hóf hann að
skrá þekktar ilmkjarnaolíur og kort-
leggja innihald þeirra svo og virkni,
sérstaklega virkni þeirra á sár og
húðvandamál. Gattefosse hafði mikla
reynslu úr heimsstyrjöldinni fyrri,
þeirri reynslu og niðurstöðum rann-
sókna lýsir hann í bók sinni Aroma-
thérapie frá 1928. Hann hefur rétti-
lega verið kallaður faðir hinnar
endurreistu aromatherapy.
Hins vegar var það austurríski líf-
efna- og snyrtifræðingurinn madam
Marguerite Maury sem kom fram
með aðferð þá sem mest er notuð í
aromatherapy í dag og er sú aðferð
kennd í Englandi, Bandaríkjunum,
Ástralíu, Noregi, Þýskalandi og víð-
ar. Madam Maury hafði hvorki
möguleika né leyfi til að ávísa ilm-
kjarnaolíum til innvortis notkunar,
því var það að hún þróaði sérstaka
nuddaðferð til að koma ilmkjarnaolí-
unum í blóðrás líkamans. Henni var
kunnugt um hve örsmá mólikúl ilm-
kjarnarolíunnar eru og að hún sogast
gegnum húðina. Til eru fjölmargar
rannsóknir þessu til staðfestingar.
Nudd er algengust aðferða í aroma-
therapy-meðferð, aðrar aðferðir eru
t.d blöndun í bað, notkun krema og
olía til áburðar, skolun, vættar grisj-
ur og innöndun. Enginn ætti að nota
ilmkjarnaolíur innvortis án samráðs
við lækni.
En hvað skyldi svo ilmkjarnaolía
eiginlega vera? Einfaldasta svarið er
ef til vill jurtavökvi. Það er mismun-
andi hvað fólki finnst vera ilmur, því
ilmur hefur jákvæða merkingu.
Sumum finnst vera hrein og klár
ólykt af mörgum olíum og oft er ég
sammála. Margur kann að spyrja af
hverju er talað um olíu þegar jurta-
vökvinn er ekki feitur eins og olía?
Ég get einungis svarað því til að hér
er leiðinlegur misskilningur á ferð og
verður hann tæplega hrakinn til föð-
urhúsanna héðan af. Á ensku er talað
um „essential oils“ og á Norðurlönd-
um „eterisk olje“. Hins vegar er
jurtavökvanum, þ.e. ilmkjarnaolí-
unni, yfirleitt blandað fyrir notkun í
feitar olíur og má þar nefna þrúgu-
kjarnaolíu, avocadoolíu, calendulaol-
íu og hypericumolíu allt eftir þörfum
einstaklingsins sem blönduna ætlar
að nota.
Ilmkjarnaolíur geta verið unnar úr
öllum hlutum jurtar, allt frá krónu-
blöðum niður í rót. Tvær vinnsluað-
ferðir eru viðurkenndar í dag, í
fyrsta lagi er gufueiming og í öðru
lagi pressun. Pressun er notuð til að
vinna ilmkjarnaolíu úr sítrusávöxt-
um, t.d sítrónur og appelsínur, og er
þá börkurinn pressaður. Einnig er
hægt að eima blöð appelsínutrésins
og fá ilmkjarnaolíu þannig, en það
væri allt önnur vara með allt annað
innihald og þar af leiðandi önnur
áhrif. Ilmkjarnaolíur teljast ekki
hreinar eða ekta ef búið er að breyta
þeim, blanda saman við þær auka-
efnum eða þynna út. Því miður er
mikið um lélegar, ódýrar og óekta
ilmkjarnaolíur á markaði um heim
allan og þær ber að varast. Leitið því
ráða hjá fagfólki áður en kaup eru
gerð.
Allt frá því að Gattefosse skrifaði
bók sína árið 1928 hefur margt verið
ritað og rannsakað um aromatherpy
og vil ég hvetja sem flesta til að
kynna sér efnið. Hér er á ferðinni
mikið af fróðleik sem vert er að
kynnast. Aromatherapy er komin til
að vera og það er mín skoðun að hún
eigi erindi til allra, ekki bara úti í
heimi heldur á Íslandi líka.
Hvað er ilmolíumeðferð?
Þorsteinn
Guðmundsson
Ilmolíumeðferð
Ilmolíumeðferð hefur í
raun fylgt mannkyninu
frá fyrstu dögum, segir
Þorsteinn Guðmunds-
son, annaðhvort nafn-
laus eða verið kölluð
lækningar.
Höfundur er starfandi
aromatherapisti.