Morgunblaðið - 29.12.2001, Page 47
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2001 47
vináttu en þeirra höfum við ekki
kynnst. Okkur er á þessari stundu
efst í huga þakklæti fyrir þá sam-
fylgd sem dóttir okkar naut með
Fríðu, í leik, námi og starfi. Samfylgd
sem aldrei bar skugga á.
Sævari Leifssyni, eiginmanni
Fríðu, og börnunum þeirra, Birtu
Rún, Viktori og Leifi, sem og Vöku
Ýri, dóttur Sævars, vottum við okkar
dýpstu samúð. Þær eru áleitnar
spurningarnar sem hafa vaknað við
að fylgjast með öðrum eins örlögum
búnum ungri konu í blóma lífsins og
þeirri miklu þjáningu og sorg sem
eiginmaður hennar og þrjú lítil börn
þurfa að ganga í gegnum. Föður
Fríðu sem nú horfir á eftir yngstu
dóttur sinni og systkinum hennar
sendum við einnig innilegar samúð-
arkveðjur.
Megi Fríða Guðmundsdóttir hvíla í
friði.
Kristín Halla Jónsdóttir,
Sigurður B. Þorsteinsson.
Elsku vinkona.
Það er sárt að þurfa að kveðja þig í
dag. Við gömlu vinkonurnar úr
Garðabænum fylgdumst með þér og
fjölskyldu þinni úr fjarlægð síðustu
ár. Við vorum svo stoltar af þér þar
sem þú varst að klára nám í barna-
lækningum í Ameríku. Þú varst alltaf
dugnaðarforkur mikill og að eignast
þrjú börn samhliða krefjandi námi er
lýsandi fyrir hversu dugleg þú varst.
Við áttum margar góðar stundir
saman á æskuárum okkar og alltaf
var gaman að koma að Gimli og gista.
Var þá farið í andaglas, sagðar
draugasögur og jafnvel farið út um
miðja nótt, útí hraunið sem er í
kringum Gimli, og farið í felu- eða
njósnaleik. Já, við áttum margar góð-
ar stundir saman í þá gömlu góðu
daga.
En enginn veit sína ævina fyrr en
öll er og nú er komið að kveðjustund.
Við vottum eiginmanni þínum
Sævari, börnum ykkar, pabba þínum
og systkinum okkar dýpstu samúð,
megi Guð gefa þeim styrk til að tak-
ast á við sorgina og vaka yfir þeim á
þessum erfiðu tímum.
Guð geymi ykkur.
Af eilífðar ljósi bjarma ber,
sem brautina þungu greiðir.
Vort líf, sem svo stutt og stopult er,
það stefnir á æðri leiðir.
Og upphiminn fegri en augað sér,
mót öllum oss faðminn breiðir.
(Einar Benediktsson.)
Gömlu vinkonurnar úr Garða-
bænum,
Helga, Hildur og Hrönn.
Okkur langar í örfáum orðum að
minnast hennar Fríðu. Hún var ein-
staklega kraftmikil og dugleg kona.
Það sem hún tók sér fyrir hendur
gerði hún skipulega og vel.
Hún hefur verið í hestamennsk-
unni í Hafnarfirði í mörg ár og starf-
aði mikið að félagsmálum fyrir
Hestamannafélagið Sörla. Til dæmis
starfaði hún í unglingadeild, við reið-
námskeið og svo síðast en ekki síst
sem gjaldkeri íþróttadeildar á mikl-
um uppgangstímum þar. Hún stóð
sig frábærlega í því erilsama starfi. Á
þessum árum eignaðist Fríða börnin
sín þrjú og var að ljúka læknisnámi.
En allt þetta rann í gegn hjá henni
sem ekkert væri vegna þess hve hún
var ótrúlega skipulögð í öllu sem hún
tók sér fyrir hendur.
Það var alltaf gaman að fylgjast
með þeim Fríðu og Sævari. Sam-
heldnin hjá þeim hjónum var mjög
mikil. Þau fluttu til Bandaríkjanna
fyrir nokkrum árum þar sem Fríða
var að sérmennta sig í barnalækn-
ingum. Þar notuðu þau frítímann
mjög vel til ferðalaga um nýjar slóð-
ir. Þau keyptu búgarð og fluttu út til
sín bæði íslenska hesta og hund, því
áhugi Fríðu og natni við skepnur var
einstakur. Svo dró ský fyrir sólu.
Fríða greindist með illkynja sjúkdóm
fyrir u.þ.b. ári og fylgdumst við með
þessari hetjulegu baráttu hennar
fyrir lífinu. Einnig fylgdumst við með
baráttu Sævars á þessum erfiðu tím-
um og stóð hann sig frábærlega vel
og náði að halda börnunum ótrúlega
jákvæðum og hressum. Baráttu
Fríðu lauk nú rétt fyrir jól. Maður á
erfitt með að skilja, en vegir lífsins
eru órannsakanlegir. Fríða hefur
kennt okkur öllum sem hana þekkt-
um að með dugnaði og áræði er
margt hægt, en nú hefur hún kennt
okkur eitt enn, en það er að njóta og
þakka fyrir það sem maður á og hef-
ur.
Með þessum erindum úr Kraft-
akvæði eftir Hannes Hafstein kveðj-
um við þig, elsku Fríða okkar.
Svo var þinn óður endur
og enn fyrir skammri stund
söngstu svellin af vötnum,
sólbráð og Vor í lund.
Síðast sló hörpuhjartað
í hafísnum sterkast, mest.
Þar heyrði ég svan þinn syngja
í sárunum, kanski best.
Ekki er í hjarta hlátur,
þó hlægir mig nú að sjá
svanvænginn sárum gróa,
svífa yfir fjöllin blá.
Skaflinn var háll og harður
í Heljarbrekkunni efst –
þar sem eggjarnar enda
upploftið frjálsa hefst.
Elsku Sævar, Birta, Viktor, Leif-
ur, Vaka og aðrir ástvinir, megi Guð
veita ykkur styrk í þessari miklu
sorg.
Halldóra Hinriksdóttir og
Sigurður E. Ævarsson.
Í dag kveðjum við hana Fríðu vin-
konu okkar, hana Fríðu sem sýndi
okkur hvernig er hægt að gera ótrú-
lega margt á alltof stuttri ævi. Hún
sýndi okkur hvernig geislandi lífs-
gleði og bjartsýni breyta nótt í dag.
Og nú er ljós hennar slokknað en við
sem eftir lifum vitum að birta hennar
mun áfram lifa í minningum, í litlum
myndum sem verða svo stórbrotnar
þegar við lítum yfir farinn veg.
Við kynntumst strax í barnæsku
og fylgdumst að mestu að frá fyrstu
stund.
Fríða hafði þann sterka eiginleika
að draga til sín fólk eins og segull, og
með henni var bæði gott að hlæja og
gráta; bæði ljúft að tala og þegja.
Sem vinkona varð hún leiðtogi, því
framkvæmdagleði hennar var slík að
henni verður ekki lýst með orðum.
Þegar við vorum krakkar átti hún
það til að rjúka út að morgni dags og
moka snjó af tröppum, eða raka sam-
an laufi meðan allir aðrir sváfu. Hún
fékk okkur út í ótrúlegustu fram-
kvæmdir með áræðinu einu og ef
eitthvað fór úrskeiðis, var hún fyrst
til að sýna að allt var í lagi, sama
hversu fullkomlega okkur hafði tek-
ist að klúðra hlutunum.
Minningar frá bernskunni þegar
við lékum okkur við æskuheimili
Fríðu, Gimli á Álftanesi, eru svo
skýrar að það er ekki hægt annað en
efast um að þær geti orðið gleymsku
að bráð. Hraunið og grjótið, grasið
og gjóturnar koma í hugann eins og
gamlir vinir. Allar okkar frumraunir
og öll okkar leyndarmál vakna til lífs
þegar að kveðjustund er komið og
æskuárin birtast eitt af öðru í ein-
kennilegum ljóma.
Ég lagði upp í langferð
við ljóðsins djúpa haf,
ég vildi finna frelsi
og fyrir það ég drauma mína gaf.
Með bros í björtum augum
um breiðan lífsins veg
í leit að mínum myndum
til móts við nýja tíma rölti ég.
Frá heimi sem er horfinn
minn hugur fékk sinn mátt,
á lífsins vegi var ég
og vissi að ég fór í rétta átt.
(Kristján Hreinsson.)
Þegar kom að því hjá Fríðu að
sinna námi, var það gert af framtak-
semi og krafti. Og þá fóru saman á
undarlegan hátt snyrtimennska og
afkastageta.
Okkur vinkonum hennar varð það
snemma ljóst að Fríða virtist ekkert
hafa fyrir því að læra – hún bara gat
allt án þess að hafa fyrir því og til að
kóróna það, gerði hún allt betur en
við. Hún gat gert allt í einu, sat og
talaði í símann um leið og hún las bók
og hlustaði á útvarpsleikrit. Við átt-
um auðvitað erfitt með að skilja
þessa orku sem í henni kraumaði. Og
núna þegar okkur er ljóst að hún lifði
hratt og vel, finnum við svo greini-
lega fyrir því að líf hennar var alltof
stutt, orkunnar naut ekki við nema í
stutta stund. Hún kom að vísu mörgu
í verk, en söknuðurinn verður ekki
minni þótt við sættum okkur við að
lífsverk hennar hafi verið merkara
en margur vinnur á lengri ævi.
Þú ert í dagsins eldi
og á þig sólin skín,
þó ratir þú í raunir
þá rætist óskin þín.
Og áfram lífið líður,
þín leyndardómur bíður
en Guð er sá sem aldrei frá þér fer.
Á meðan ljósið logar
og lífið í þig togar
þá fljúga himins englar yfir þér.
Hann Guð hann mun þess gæta
þú getir sofið rótt,
hann lætur ljóssins engla
lýsa þér um nótt.
(Kristján Hreinsson.)
Við biðjum algóðan Guð að styrkja
Sævar og börnin og hjálpa þeim að
takast á við sorgina sem kom svo
snögglega og er þyngri en orð fá lýst.
Við kveðjum í dag hana Fríðu vin-
konu okkar, hana Fríðu sem sýndi
okkur hvernig er hægt að gera ótrú-
lega margt á alltof stuttri ævi.
Elsku Fríða...
Sigrún Kaja Eyfjörð
og Sigríður Roy Ólafsson.
Fallinn er frá góður
þjóðfélagsþegn og
mætur, Jóhann Helga-
son frá Hnausakoti í
Austurárdal í Miðfirði. Hann var ná-
granni okkar er bjuggum í Austur-
árdal upp úr þriðja tug síðustu aldar
og vel fram yfir miðja öld. Mikil vel-
vild og traust ríkti einatt milli bæj-
anna Hnausakots og Aðalbóls og má
segja að svo hafi staðið um þriggja
ættliða skeið þá áratugi sem þeir
bjuggu í Austurárdal.
Foreldrar Jóhanns voru Helgi
Jónsson frá Huppahlíð í Miðfirði og
Ólöf Jóhannsdóttir, borgfirskrar
ættar. Þau hófu búskap í Hnausakoti
vorið 1921 og bjuggu til ársins 1942
er Jóhann tók við búsforráðum
ásamt konu sinni Jóhönnu Dag-
björtu Jónsdóttur frá Skárastöðum.
Mér er enn í minni er ég kom fyrst að
Hnausakoti lítill snáði, sennilega upp
úr 1930. Þar voru hlýir húsráðendur
og að loknum veitingum fór Ólöf hús-
móðir með okkur krakkana inn í lítið
herbergi og setti nokkrar plötur á
grammófón. Þetta var mér nýr heim-
ur og sérstök upplifun. Þótti mér svo
ákaflega skemmtilegt að hlusta á
Norðmennina tvo syngja, þá Gellen
og Borström (eftir orðanna hljóðan),
að ég óskaði eftir endurtekningu sem
var fúslega orðið við. Þarna kom
JÓHANN
HELGASON
✝ Jóhann Helgasonvar fæddur á
Neðranúpi í Miðfirði
í V-Hún. 14. septem-
ber 1914. Hann and-
aðist á Landakots-
spítala 24. nóvember
síðastliðinn og fór
útför hans fram frá
Fella- og Hólakirkju
4. desember.
fram tónlistaráhugi
húsfreyjunnar sem
fylgdi áfram öllum
börnum þeirra hjóna
og síðar börnum Jó-
hanns og Jóhönnu er
komu upp níu mann-
vænlegum borgurum.
Þar er á ferð mikið
söngfólk og hafði Jó-
hann ómælda ánægju
af að syngja með börn-
um sínum við hin ýmsu
tækifæri. Jóhann var
ágætur bassamaður og
söng í ýmsum kórum í
héraðinu og naut sín vel. Sýndi það
glöggt áhuga hans á tónlist að hann
leitaði ungur tilsagnar í orgelleik hjá
Birni G. Björnssyni, organista á
Hvammstanga. Jóhann skrifaði
greinar í tímarit og var framsetning
hans skýr og málfar vandað. Fengur
var að þessum skrifum.
Jóhanni var annt um fjölskyldu
sína og heimili. Eftir að þau hjónin
fluttu til Reykjavíkur lagði hann sig
fram um að búa í haginn fyrir afkom-
endur sína svo að þeir gætu notið
þess að dvelja í Hnausakoti. Meðal
annars lagði hann í mikinn kostnað
til að fá rafmagn heim í hús. Þá þótti
honum ánægjuefni þegar lax fór að
ganga fram í Austurá ofan Kambs-
foss með tilkomu laxastigans.
Fjórðu ættliðirnir, börn okkar Jó-
hanns, hafa bundist vináttuböndum
og unnið saman í áratugi að mennta-
málum hér syðra. Það hlýtur að vera
okkur ánægjuefni að sjá næstu kyn-
slóð varðveita minningar úr dalnum
og vináttu.
Við hjónin kveðjum þennan heið-
ursmann og vottum aðstandendum
samúð við fráfall hans.
Aðalbjörn frá Aðalbóli.
Sérfræðingar
í blómaskreytingum
við öll tækifæri
Skólavörðustíg 12,
á horni Bergstaðastrætis,
sími 551 9090.
Minningarkort
Hjartaverndar
535 1825
Gíró- og greiðslukortaþjónusta
!
" #$
!
"#
%
& '
( &
'
)*
'
+''*
& , '
- ., /
& '*
*
0
12
34
%5
$
.+6
1*' '7
$
%
##"
&'
()
!
##
"*##
8
&
'
&
1 9''* )
'
:'.
1 9'
&*
101 9'
2
&
''*
& 1 9'
9
+
+:'
''*
*
0
'
'
%5&
(2882%5
;5 , $'+/
&
9
+
! +!
,
-
5 % 2
''* 5'$
'
02
''* )
"
' '
-02
''*
*
0