Morgunblaðið - 29.12.2001, Page 58

Morgunblaðið - 29.12.2001, Page 58
DAGBÓK 58 LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Víkverji skrifar... VEÐRÁTTAN hér á Fróni ersannarlega margslungið fyrir- bæri, eins og landsmenn hafa svo ótal sinnum fengið að kynnast. Þær tugþúsundir borgarbúa sem skemmtu sér hið besta á Laugaveg- inum og miðborginni í yndislegu veðri á Þorláksmessu hafa sennilega ekki haft hugmyndaflug til að spá fyrir um þá ofankomu sem síðan fylgdi í kjölfarið og tryggði lands- mönnum flestum hvít og köld jól. Ef- laust eru margir þessum stakka- skiptum fegnir, enda rigning og hiti eitthvað sem fæstir tengja jólahátíð- inni. En Víkverji, sem býr vestarlega í vesturbæ Reykjavíkur, þar sem alla jafna er afar snjólétt, getur ekki að því gert þótt hann sakni strax hlýj- unnar þar sem hann er nýkominn inn úr kuldanum eftir strit og puð við snjómokstur og tilheyrandi. Það er meira hvað blíðviðrið getur spillt okkur Íslendingum, sem auðvitað eigum að geta vænst hverju sem er í veðri og vindum, hvenær sem er. x x x EITT af því sem fylgir svoóvæntri ofankomu er snjó- mokstur á vegum borgarinnar. Það er heilt fyrirbæri út af fyrir sig. Norskur kunningi Víkverja er einn þeirra sem fyrir enga muni getur skilið aðferðafræði gatnamálastjóra þegar að snjómokstrinum kemur og líkir honum helst við skemmdarverk, þótt þar kunni raunar að vera full- mikið í lagt. Málið er nefnilega að Norðmaðurinn skilur ekki að starfs- mönnum borgarinnar leyfist að aka á trukkum sínum og ryðja snjó af göt- unum og skilja mikla hauga beggja megin þeirra án nokkurs tillits til innkeyrslna að húsum ellegar gang- stíga. Norðmaðurinn, sem býr í Þingholtunum, verður gjarnan í snjóatíð að verja dágóðum tíma í snjómokstur til þess að koma bíl sín- um úr innkeyrslunni þegar snjó- ruðningstæki borgarinnar hafa gert honum þann leik að mynda múr fyrir framan hana. Sami maður hefur séð aumur á öldruðum nágrönnum sín- um sem eru nánast sem í gíslingu eftir hreinsunaraðgerðir borgar- starfsmanna, enda hafa þeir enga möguleika á að moka sjálfir svo stóra skafla sem aukinheldur breytast í frosti í rammgerð björg svo aðeins fullhraust fólk eða þá öflugar vinnu- vélar fá þar eitthvað að gert. Þessi erlendi vinur Víkverja hef- ur búið hér á landi í nokkur ár, en hefur mikla reynslu af miklu meira fannfergi en hér þekkist frá heima- landi sínu. Hann undrast satt að segja vinnubrögð borgaryfirvalda þegar að snjóruðningi kemur, finnst þau ómarkviss og tilviljanakennd. Og það sem verra er; oft og tíðum finnst honum sem verr sé af stað farið en heima setið, ekki síst þegar íbúa við götur bíður mikil vinna við snjómokstur og björgunaraðgerðir eftir að götur þeirra hafa verið „ruddar“ af starfsmönnum borgar- innar. x x x VÍKVERJI veltir því fyrir sérhvort ekki séu til aðrar aðferðir og björgulegri til þess að bregðast við fannferginu á strætum borgar- landsins. Auðvitað vinna borgar- starfsmenn borgarinnar gott verk við að halda götunum auðum svo borgarbúar komist leiðar sinnar, en meðalhófs verður þó að gæta í þeim aðgerðum eins og öðrum svo venju- legir borgarar hljóti ekki ómælt erf- iði og skaða af öllu saman. Er þar til of mikils mælst? 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 LÁRÉTT: 1 ákafa, 4 valin, 7 ill- mennin, 8 málms, 9 at- gervi, 11 vítt, 13 óska, 14 dögg, 15 kauptún, 17 sá, 20 kærleikur, 22 stirð- leiki, 23 játa, 24 mögu- leika, 25 lasta. LÓÐRÉTT: 1 þreifar á, 2 erfiðum, 3 yfirsjón, 4 lítið skip, 5 sjávardýr, 6 nirfilsháttur, 10 sælu, 12 dugur, 13 fiskur, 15 fisk, 16 úr- komu, 18 líkamshlutann, 19 fugl, 20 atlaga, 21 skaði. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 skaddaðir, 8 kopar, 9 geril, 10 kýr, 11 farga, 13 aurar, 15 svalt, 18 ósatt, 21 rok, 22 miðla, 23 ábata, 24 hamslausa. Lóðrétt: 2 Kýpur, 3 dýrka, 4 angra, 5 iðrar, 6 skóf, 7 hlýr, 12 gil, 14 uns, 15 sumt, 16 auðga, 17 trafs, 18 ókáta, 19 afans, 20 tían. K r o s s g á t a FREKJAN og tillitsleysið hér í umferðinni er hræði- legt. Ég er ein af þeim fáu sem held mig við löglegan hraða og það gengur nú ekki þrautalaust fyrir sig. Oft er talað um unga fólkið í umferðinni, en mín reynsla er sú að það sé skárri ökumenn en mið- aldra karlmenn sem eru að kafna úr frekju og karl- rembu. Þeir þola sumir ekki að sjá konur undir stýri. Þeir flauta og blikka ljósum óspart. Sumir þeir sem á jeppum aka álíta sig stóra karla í umferðinni en eru ósköp litlir þegar þeir hoppa ofan úr drekunum sínum. Ég varð fyrir því í sumar þegar ég stoppaði við rautt ljós að keyrt var aftan á mig. Ökumaðurinn réðst að mér og ætlaði að berja mig. Hann jós yfir mig skömmum og svívirð- ingum og sagði að kerling- ar kynnu ekki að keyra. Ef það að kunna að keyra er að fara yfir á rauðu ljósi veitti ekki af því að láta slíka ökumenn taka prófið upp aftur. Þeir sem missa prófið ættu að þurfa að hafa mikið fyrir því að fá það aftur, það kenndi þeim kannski að meta bílprófið sitt betur. Það er dauðans alvara að aka bíl og öll viljum við komast heil heim aftur. En til þess að svo megi verða verðum við að fara að hugsa eins og þroskaðar manneskjur. Ég vil að lokum skora á umferðaryfirvöld, trygg- ingafélög og aðra sem láta sig þessi málefni varða að stórauka forvarnir því að tillitssamir og kurteisir ökumenn eru gulli betri. Ökukona. Tapað/fundið Bíllyklakippa týndist BÍLLYKLAKIPPA með fjarstýringu týndist trú- lega á horni Hverfisgötu og Smiðjustígs eftir hádegi sl. fimmtudag. Skilvís finn- andi hafi samband í síma 587 8058 eða 565 8327. Kerra og kerrupoki í óskilum KERRA og kerrupoki eru í óskilum í Fellahverfi. Upplýsingar í síma 557 9834. Dýrahald Týna er týnd TÝNA sem er svört og hvít læða týndist frá Álfatúni í Kópavogi 22. desember. Hún er eyrnamerkt 01G251 en ólarlaus. Þeir sem hafa orðið hennar var- ir hafi samband í síma 554 1993. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is Dauðans alvara 1. d4 d5 2. Bg5 c6 3. Rf3 Bf5 4. c4 dxc4 5. Rc3 h6 6. Bh4 b5 7. e4 Bh7 8. a4 b4 9. Bxc4 g5 Skáklíf í London hefur á undanförnum árum ekki verið jafn þróttmikið og forðum daga. Heyrst hefur að nú eigi að gera bragarbót á. Fyrir stuttu var haldið meistaramót borgarinnar. Julian Hodgson (2.589) hafði hvítt gegn Oleg Kirsanov (2.378). 10. Re5! e6 11. Bxe6! bxc3 12. Bxf7+ Ke7 13. Db3 Dc8 14. Bh5 De6 15. Db4+ Dd6 16. Db7+ Rd7 17. Rxc6+ Dxc6 18. Dxc6 Rgf6 19. Bf3 cxb2 20. Hb1 Hb8 21. Bg3 Hb6 22. Dc2 g4 23. a5 He6 24. d5 Bxe4 25. Bxe4 Hxe4+ 26. Kf1 Kf7 27. Dxb2 Bc5 28. h3 Hhe8 29. hxg4 Rxg4 30. Db5 Rgf6 31. Hxh6 Bd4 32. d6 Kg7 33. Dg5+ Kf7 34. Dg6+ Ke6 og svartur gafst upp. Skák.is og Skák- samband Íslands standa sameiginlega að kosningu skákmanns og skákkonu ársins 2001. Stjórn SÍ hefur tilnefnt fimm skákmenn í hvorum flokki. Kosningin fer fram á Skák.is og stendur öllum til boða að taka þátt. Nánari upplýsingar er að finna á skak.is en frestur til kjósa rennur út um áramót. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. Með morgunkaffinu Láttu ekki svona, Knútur. Aðalsteinn kom sjálfur með drykkinn. Skipin Reykjavíkurhöfn: Trinket kemur í dag, Olga og Otto fara í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Ík- an Serong fór í gær. Mannamót Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið Hlaðhömrum verður lok- að til 8. janúar. Óskum öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50. Áramótadansleikurinn verður í kvöld, laug- ardaginn 29. des. kl. 20.30. Caprí tríó leikur fyrir dansi. Ásadans og happ- drætti. Línudans verður miðvikudaginn 2. jan. kl 11. Nýir þátttakendur velkomnir. Dagskráin í Hraunseli hefst aftur mánudaginn 7. jan. Gerðuberg, félagsstarf. Miðvikudaginn 2. janúar er opið frá 9–16.30, m.a. spilamennska. Fimmtu- daginn 3. janúar verður áramótaguðsþjónusta í Bústaðakirkju kl. 14 á vegum Ellimálaráðs Reykjavíkurprófasts- dæma og Bústaðasókn- ar, mæting í Gerðubergi kl. 13.15. Að messu lok- inni verður ekið um borgina ljósum prýdda. Skráning hafin. Starfs- fólk óskar öllum þátttak- endum og samstarfs- aðilum gleðilegs ár og friðar með þakklæti fyrir stuðning og samstarf á árinu sem er að líða. Hlökkum til nýja ársins. Gjábakki, Fannborg 8. Kynningardagur verður fimmtudaginn 3. janúar kl. 14. Skráning á nám- skeið fer fram á sama tíma. Fólk er hvatt til að mæta og kynna sér þá starfsemi sem fyr- irhuguð er til vors og koma með tilllögur. Vitatorg. Starfsemi fé- lagsmiðstöðvarinnar hefst fimmtudaginn 3. janúar. Mánudaginn 7. janúar hefjast öll nám- skeið. Skráning og upp- lýsingar í síma 561-0300. Gigtarfélagið. Leikfimi alla daga vikunnar. Létt leikfimi, bakleikfimi karla, vefjagigtarhópar, jóga, vatnsþjálfun. Einn ókeypis prufutími fyrir þá sem vilja. Nánari uppl. á skrifstofu GÍ, s. 530 3600. Stuðningsfundir fyrr- verandi reykingafólks. Fólk sem sótt hefur námskeið til að hætta reykingum í Heilsustofn- un NLFÍ í Hveragerði, fundur í Gerðubergi á þriðjud. kl. 17.30. GA-fundir spilafíkla, kl. 18.15 á mánudögum í Seltjarnarneskirkju (kjallara), kl. 20.30 á fimmtudögum í fræðslu- deild SÁÁ Síðumúla 3–5 og í Kirkju Óháða safn- aðarins við Háteigsveg á laugardögum kl. 10.30. Samtök þolenda kyn- ferðislegs ofbeldis, fundir mánudaga kl. 20 á Sólvallagötu 12, Reykjavík. Stuðst er við 12 spora kerfi AA- samtakanna. Breiðfirðingafélagið Jólatrésskemmtun Breiðfirðingafélagsins er í dag, laugardaginn 29. des., og hefst kl. 14.30 í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14. Mætum vel og stundvíslega. Kristniboðssambandið þiggur með þökkum alls konar notuð frímerki, innlend og útlend, ný og gömul, klippt af með spássíu í kring eða um- slagið í heilu lagi (best þannig). Útlend smá- mynt kemur einnig að notum. Móttaka í húsi KFUM&K, Holtavegi 28, Rvík, og hjá Jóni Oddgeiri Guðmunds- syni, Glerárgötu 1, Ak- ureyri. Minningarkort Minningarkort Hjarta- verndar fást á eft- irtöldum stöðum í Reykjavík: Skrifstofu Hjartaverndar, Lág- múla 9, s. 535-1825. Gíró og greiðslukort. Dval- arheimili aldraðra Lönguhlíð, Garðs apó- tek, Sogavegi 108, Ár- bæjar apótek, Hraunbæ 102a, Bókbær í Glæsibæ, Álfheimum 74, Kirkjuhúsið, Laugavegi 31, Bókabúðin Grímsbæ v/ Bústaðaveg, Bóka- búðin Embla, Völvufelli 21, Bókabúð Graf- arvogs, Hverafold 1–3. Minningarkort Hjarta- verndar fást á eft- irtöldum stöðum á Vest- urlandi: Akranes: Hagræði hf., Borgarnes: Dalbrún, Brákabraut 3. Grundarfjörður: Hrann- arbúð sf., Hrannarstíg 5. Stykkishólmur: Hjá Sesselju Pálsd., Silf- urgötu 36. Ísafjörður: Póstur og sími, Að- alstræti 18. Stranda- sýsla: Ásdís Guð- mundsd. Laugarholti, Brú. Minningarkort Hjarta- verndar fást á eftirtöld- um stöðum á Austur- landi: Egilsstaðir: Gallery Ugla, Miðvangi 5. Eskifjörður: Póstur og sími, Strandgötu 55. Höfn: Vilborg Einars- dóttir, Hafnarbraut 37. Minningarkort Hjarta- verndar fást á eft- irtöldum stöðum á Norðurlandi: Ólafs- fjörður: Blóm og gjafa- vörur, Aðalgötu 7. Hvammstangi: Versl- unin Hlín, Hvamms- tangabraut 28. Ak- ureyri: Bókabúð Jónasar, Hafnarstræti 108, Möppudýrin, Sunnuhlíð 12c. Mý- vatnssveit: Pósthúsið í Reykjahlíð. Húsavík: Blómasetrið, Héðins- braut 1, Raufarhöfn: Hjá Jónu Ósk Pétursdóttur, Ásgötu 5. Minningarkort Hjarta- verndar fást á eft- irtöldum stöðum á Suð- urlandi: Vestmannaeyjar: Apó- tek Vestmannaeyja, Vestmannabraut 24. Sel- foss: Selfoss apótek, Kjarninn. Minningarkort Hjarta- verndar fást á eft- irtöldum stöðum á Reykjanesi: Kópavogur: Kópavogs apótek, Hamraborg 11. Hafn- arfjörður: Lyfja, Set- bergi. Sparisjóðurinn, Strandgötu 8–10, Kefla- vík: Apótek Keflavíkur, Suðurgötu 2, Lands- bankinn, Hafnargötu 55– 57. Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúkl- inga fást á eftirtöldum stöðum á Austfjörðum: Á Seyðisfirði: hjá Birgi Hallvarðssyni, Botnahlíð 14, s. 472-1173. Á Nes- kaupstað: í blómabúðinni Laufskálanum, Kristín Brynjarsdóttir, Nesgötu 5, s. 477-1212. Á Egils- stöðum: í Blómabæ, Mið- vangi, s. 471-2230. Á Reyðarfirði: hjá Grétu Friðriksd., Brekkugötu 13, s. 474-1177. Á Eski- firði: hjá Aðalheiði Ingi- mundard., Bleikárshlíð 57, s. 476-1223. Á Fá- skrúðsfirði: hjá Maríu Óskarsd., Hlíðargötu 26, s. 475-1273. Á Horna- firði: hjá Sigurgeir Helgasyni, Hólabraut 1a, s. 478-1653. Styrktarfélag krabba- meinssjúkra barna. Minningarkort eru af- greidd í síma 588-7555 og 588-7559 á skrifstofu- tíma. Gíró- og kred- itkortaþjónusta. Samtök lungnasjúk- linga. Minningarkort eru afgreidd á skrifstofu félagsins á Suðurgötu 10 (bakhúsi), 2. hæð, s. 552- 2154. Skrifstofan er opin miðvikud. og föstud. kl. 16–18 en utan skrifstofu- tíma er símsvari. Einnig er hægt að hringja í síma 861-6880 og 586-1088. Gíró- og kred- itkortaþjónusta. Minningarkort MS- félags Íslands eru seld á skrifstofu félagsins, Sléttuvegi 5, 103 Rvk. Skrifstofan er opin mán.–fim. kl. 10–15. Sími 568-8620. Bréfs. 568- 8621. Tölvupóstur ms@msfelag.is. FAAS, Félag aðstand- enda alzheim- ersjúklinga. Minning- arkort eru afgreidd alla daga í s. 533-1088 eða í bréfs. 533-1086. Heilavernd. Minning- arkort fást á eftirtöldum stöðum: í síma 588-9220 (gíró), Holtsapóteki, Vesturbæjarapóteki, Hafnarfjarðarapóteki, Keflavíkurapóteki og hjá Gunnhildi Elíasdóttur, Ísafirði. Parkinsonsamtökin. Minningarkort Park- insonsamtakanna á Ís- landi eru afgreidd í síma 552-4440 kl. 13–17. Eftir kl. 17 s. 698-4426 Jón, 552-2862 Óskar eða 563- 5304 Nína. Í dag er laugardagur 29. desem- ber, 363. dagur ársins 2001. Tóm- asmessa. Orð dagsins: Allir boðar þínir og bylgjur gengu yfir mig. Ég hugsaði: Ég er burt rekinn frá augum þínum. (Jónas 2, 4.–5.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.