Morgunblaðið - 06.01.2002, Qupperneq 16
16 SUNNUDAGUR 6. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Í SKÁKHEIMINUM er stund-um gantast með það að í þannmund sem Bobby Fischerdrap eitraða peðið á Hannes
tveir og lokaði biskupinn inni, í
endatafli fyrstu skákarinnar við
Boris Spassky í „einvígi aldarinn-
ar“ í Reykjavík 1972, hafi heyrst
barnsgrátur á fæðingardeild Land-
spítalans í Reykjavík; Hannes Hlíf-
ar Stefánsson hafi þá komið í
heiminn og örlög hans verið ráðin!
Sagan er eiginlega of góð til að
falla í gleymskunnar dá en sann-
leikurinn er sá að Hannes Hlífar
fæddist 18. júlí 1972, daginn sem
fjórða skák Fischers og Spassky
fór fram í Laugardalshöll þannig
að ef til vill má segja að frásögnin
sé innan skekkjumarka.
Yfir 2.600 stiga múrinn
Hannes Hlífar er nú eini íslenski
atvinnumaðurinn í skák og á nýj-
asta styrkleikalista alþjóðaskák-
sambandsins, sem birtur var á
föstudag, fer hann í fyrsta skipti
yfir 2.600 stig. Er nú í 89. sæti
heimslistans með 2.604 stig. Jó-
hann Hjartarson hafði einn Íslend-
inga náð þessu marki áður, en
hann er skráður með 2.633 stig á
heimslista FIDA og er þar í 57.
sæti. Jóhann er hins vegar „óvirk-
ur“ eins og skákmenn tala um;
hann er hættur keppni, en menn
missa þrátt fyrir það ekki stigin.
Breski stórmeistarinn Nigel
Short er sem stendur í 28. sæti
FIDE-listans með 2.663 stig, en
hann er væntanlegur til landsins í
dag til sex skáka einvígis við
Hannes Hlífar sem hefst á þriðju-
daginn. Það fer fram í Ráðhúsi
Reykjavíkur og er haldið í tilefni
10 ára afmælis taflfélagsins Hellis.
Hannes Hlífar hefur teflt á 1. borði
fyrir félagið undanfarið og náð
prýðilegum árangri á alþjóðlegum
vettvangi.
Til gamans má geta þess að um
miðjan mánuðinn hefst einvígi
tveggja Úkraínumanna, þeirra Iv-
antsjúk og Ponomariov, um heims-
meistaratitil FIDE en á liðnu
hausti náði Hannes Hlífar 1½ vinn-
ingi úr tveimur skákum gegn þess-
um köppum.
Ponomariov er aðeins 18 ára „og
framtíðarheimsmeistari, það er
ekki nokkur spurning“, segir
Hannes Hlífar, sem þekkir skák-
manninn vel. „Ég tefldi við hann
fyrir nokkrum árum og vann
reyndar, en hann er mjög góður.
Ponomariov varð yngsti stórmeist-
ari í heimi, aðeins 14 ára.“
Mikilvægt
„Það er mjög gott fyrir mig sem
skákmann að fá að tefla við svona
sterkan andstæðing. Þegar maður
er kominn þetta langt er oft erfitt
að fá að tefla við sterka andstæð-
inga; þá er maður yfirleitt að tefla
í opnum mótum og oftast við veik-
ari andstæðinga. En til þess að
skákmanni fari fram er honum
nauðsynlegt að tefla við sterkari
menn en hann er sjálfur,“ sagði
Hannes Hlífar við blaðamann
Morgunblaðsins.
„Einvígi, eins og þetta við Short,
er algengt í Evrópu, til dæmis í
Hollandi og Frakklandi, en því
miður sjaldgæft hér; að bestu
skákmenn viðkomandi lands tefli
einvígi við einhverja stórlaxa.
Þetta er því mjög af hinu góða.“
Hannes Hlífar segir það ætíð
töluverðan áfanga fyrir skákmann
að komast yfir 2.600 stig. „Þetta er
ákveðinn þröskuldur og ég er að-
eins annar Íslendingurinn sem næ
áfanganum. Þetta er stórt mark-
mið og nú er ég kominn á lista yfir
100 bestu skákmenn heimsins.“
Til að geta fengið reglulega boð
á mót erlendis telur Hannes Hlífar
sig þurfa að ná um það bil 2.670
stigum, en á nýja listanum eru ein-
ungis 25 skákmenn sem hafa náð
því. „Við á Íslandi erum ekki í al-
faraleið þannig að það er frekar
erfitt fyrir mig að fá boð á sterk
mót; mótshaldarar fá frekar Rússa
eða einhverja sem eru nær og því
ódýrara að fá.“ Eftir því sem stig-
unum fjölgar eykst hins vegar
möguleikinn á boðum og Hannes
Hlífar hefur þegar sett sér nýtt
markmið:
„Ég varð stórmeistari 1993, þá
tvítugur. Segja má að það hafi ver-
ið fyrsti stóri áfangi minn á ferl-
inum; að ná 2.600 stigum er næsti
stóri áfangi og það verður enn erf-
iðara að hækka að stigum í fram-
haldi af því en áður, en næst stefni
ég að því að komast á lista yfir 50
bestu skákmenn heims.“
Hann reiknar með að þurfa að
ná 2.635 stigum til þess að þessi
draumur rætist.
„Á næstunni einbeiti ég mér
fyrst og fremst að því að reyna að
halda þeim stigum sem ég er með.
Ég get ekki farið að gera kröfur
um meira fyrr en ég hef haldið
þessum styrkleika í einhvern tíma.
Ég hef oft rokkað svolítið upp og
niður, en á síðustu mótum hefur
gengið verið stöðugt.
Ég held að aðalmálið núna sé að
Eitrað
peð á
Hannes
tveir
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Hannes Hlífar Stefánsson hefur setið til borðs með
kóngum, drottningum og öðru stórmenni og búið
sig undir einvígi við breska stórmeistarann Nigel
Short sem hefst á þriðjudag. Skapti Hallgrímsson
settist andspænis íslenska atvinnumanninum við
eldhúsborðið á heimili hans og hafði hvítt.