Morgunblaðið - 06.01.2002, Qupperneq 18
18 SUNNUDAGUR 6. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
fjóra öfluga andstæðinga; fyrst
landa sinn Jonathan Speelman
5½:4½, þá Hvít-Rússann Boris
Gelfand 5:3, vorið 1992 var Anatolíj
Karpov lagður að velli 6:4 í Linares
á Spáni og loks sigraði hann Jan
Timman í hreinu einvígi um að
skora á heimsmeistarann Kasp-
arov, 7½:5½.
Það var einkum sigur Shorts á
Karpov 1992 sem vakti mikla at-
hygli en Karpov hafði fram að því
aldrei tapaði einvígi fyrir öðrum en
Kasparov.
Vorið 1993 staðfesti Short svo
styrk sinn með því að verða efstur
ásamt Valeri Salov með 6 vinninga
af 9 mögulegum á ægisterku móti í
Amsterdam; varð þar fyrir ofan
bæði Karpov og Kasparov.
Haustið 1993 var heimsmeist-
araeinvígi hans við Garríj Kasp-
arov svo á dagskrá og heimaborg
Shorts, Manchester, varð fyrir vali
Alþjóðaskáksambandsins, FIDE,
sem keppnisstaður. Keppendunum
tveimur þótti verðlaunaféð hins
vegar lægra en þeir töldu við-
unandi, og hófst þá atburðarás sem
leiddi til þess að Kasparov og
Short kusu að tefla einvígið undir
merkjum nýstofnaðra samtaka at-
vinnuskákmanna, PCA.
FIDE brást við með því að halda
heimsmeistaraeinvígi FIDE milli
Jans Timmans og Anatolíjs Kar-
povs og ljóst varð að skákheim-
urinn sæti uppi með tvo skákmenn
sem gerðu tilkall til þess að vera
kallaðir heimsmeistarar.
Hugmyndaauðgi
Veðbankar gáfu líkurnar einn á
Nigel David Short er fæddur 1. júní
1965. Hann var undrabarn í skák
og er langþekktasti skákmaður sem
Bretar hafa nokkru sinni eignast.
Short kom fyrst við skáksögu Ís-
lendinga svo eftir væri tekið árið
1977 þegar hann var meðal þátttak-
enda á heimsmeistaramóti sveina í
Cagnes sur mer í Frakklandi, þeg-
ar Jón L. Árnason varð heims-
meistari í sveinaflokki, en á meðal
keppenda á mótinu var einnig Gar-
ríj Kasparov.
Yngsti stórmeistarinn
Short varð yngsti stórmeistari
heimsins í skák 1984. Hann tefldi
fyrst á Íslandi vorið 1985 á al-
þjóðlegu móti í Vestmannaeyjum.
Short hafnaði í 4.–5. sæti en nokkr-
um vikum síðar lá leiðin til Biel í
Sviss þar sem hann tryggði sér
þátttökurétt í áskorendamóti sem
fram fór í Belfort í Frakklandi síð-
ar um haustið.
Árið 1986 varð Short einn efstur
á hinu sterka stórmeistaramóti í
Wijk aan Zee, 1987 endurtók hann
það afrek og kom svo til Íslands
öðru sinni og tefldi á IBM-mótinu í
febrúar 1987. Það mót byrjaði hann
með því að vinna sex fyrstu skák-
irnar og þegar upp var staðið var
hann einn efstur með 8 vinninga af
11 mögulegum.
Um svipað leyti var farið að tala
um hann sem verðandi áskoranda
Kasparovs. Hann komst þó lítt
áleiðis í áskorendaeinvígjunum
1988 og 1989 en í áskorendaeinvígj-
unum sem hófust tveim árum síðar,
í ársbyrjun 1991 og lauk í árs-
byrjun 1993, lagði hann að velli
móti fjórum að Short ynni Kasp-
arov og Short virtist fullur sjálfs-
trausts þegar baráttan byrjaði í
London í september 1993. Hann
hafnaði jafnteflistilboði Kasparovs í
fyrstu skákinni þótt hann væri með
svart og auk þess í tímahraki en
varð að játa sig sigraðan að lokum.
Kasparov náði miklu forskoti strax
í byrjun og vann að lokum 12½:7½.
Engu að síður sýndi Short oft
glæsileg tilþrif í einvíginu og tefldi
margar skákirnar af mikilli hug-
myndaauðgi. Æ síðan hefur verið
mikil togstreita milli FIDE og
Garríjs Kasparovs um hinn rétt-
mæta heimsmeistara en margt
bendir nú til þess að keppnin um
titilinn verði brátt á einni hendi,
þ.e. hjá FIDE eins og fyrrum.
Haustið 2000 tapaði Kasparov
fyrir Valdimir Kramnik í heims-
meistaraeinvígi fyrirtækisins
Braingames en Kramnik hafði ekki
unnið sér rétt til að skora á Kasp-
arov með hefðbundnum hætti og
réttur Kasparovs til að velja sér
andstæðinga að eigin geðþótta hef-
ur verið dreginn mjög í efa. Inn í
þetta hafa dregist deilur um um-
hugsunartíma keppenda en til-
hneigingin hefur verið sú að stytta
hann mjög. FIDE hefur fjórum
sinnum frá árinu 1997 haldið
heimsmeistaramót með útslátt-
arfyrirkomulagi og hinn 16. janúar
nk. hefja Úkraínumennirnir Ivant-
sjúk og Ponomariov einvígi um
heimsmeistaratitil FIDE, vænt-
anlega í Höll verkalýðsins í
Moskvu þar sem Karpov og Kasp-
arov háðu sitt fyrsta einvígi 1984 til
1985 sem stóð í rúmlega fimm mán-
uði.
Short náði lengst í þessari
keppni 1997 en féll út í fjögurra
manna úrslitum fyrir landa sínum
Mikhael Adams.
Persónulegur stíll
Nigel Short hefur unnið fjölmörg
sterk mót á undanförnum árum.
Snemma varð ljóst að hæfileikar
hans við skákborðið voru miklir.
Hann þykir sterkur kóngspeðs-
maður en stíll hans er býsna per-
sónulegur og hann vílar ekki fyrir
sér að taka í þjónustu sína gömul
og gleymd afbrigði.
Vert er að geta þess að Nigel
Short var nýlega sæmdur bresku
MBE-orðunni fyrir framlag sitt til
skáklistarinnar.
Undrabarnið
Short
Nigel Short, til vinstri, og Garríj Kasparov eigast við í einvígi um heimsmeistaratitilinn í London 1993.
Reuters
NÝR COROLLA - TILFINNINGIN ER GÓÐ
Við fögnum því að nýr Corolla hefur sig til flugs og bjóðum til stórsýningar um helgina. Auk stjörnu
sýningarinnar, hins nýja Corolla, verður margt að sjá og skoða. Óvæntar uppákomur, flugkeppni, flugvélamatur,
flugfreyjur og flugþjónar. Taktu flugið og komdu á frumsýningu á nýjum Corolla um helgina.
Stórsýning alla helgina á Nýbýlavegi, Selfossi, Akureyri og í Reykjanesbæ.
TAKTU FLUGIÐ...
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
15
32
9
0
1/
20
02