Morgunblaðið - 06.01.2002, Síða 19

Morgunblaðið - 06.01.2002, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. JANÚAR 2002 19 Nýr Corolla byggir á þeim gildum sem gerðu Corolla að mest selda bíl í heimi. Gæði hafa ávallt verið aðalsmerki Corolla og frá því er hvergi kvikað. Corolla hefur lægstu bilanatíðni bíla í sínum flokki og rekstrarkostnaður hans er meðal þess lægsta sem þekkist. Nýr Corolla uppfyllir ströngustu kröfur sem fjölskyldufólk gerir til öryggis bíla. Gerðu miklar kröfur til nýs Corolla - komdu og reynsluaktu strax í dag. Tilfinningin er góð. www.corolla.is Opið frá kl. 13-17 í dag, sunnudag. ...Í NÝJUM COROLLA ið öfugt.“ Á lokaspretti undirbúningsins fyrir einvígið við Short hefur Hannes samt nær eingöngu stúd- erað byrjanir, því það skiptir nán- ast öllu máli. Hann segir til dæmis sammerkt með bestu skákmönnum heimsins í gegnum tíðina, Kasp- arov, Karpov og Fischer, hve ótrú- lega góðir þeir hafi verið í byrj- unum. En hver telur þú að sé helsti styrkur þinn sem skákmanns? „Ég held að ég sé góður yfir lín- una; get verið góður bæði í flækj- um og stöðubaráttu.“ Hvert er markmið þitt í skák- inni? Hvað er raunhæft að þú náir langt að þínu mati? „Þetta er mjög erfið spurning. Markmiðið er náttúrlega að ná sem lengst en það er alltaf spurn- ing hvað er raunhæft. Ég hef velt því fyrir mér að flytja til útlanda því þar er meira að gerast og auðveldara að tefla við sterkari mótherja. En það er mikið mál að flytja, þannig að ég veit ekki hvort af því verður. Þeir menn sem hafa náð langt hafa oft verið með þjálfara; ég get til dæmis nefnt Frakkann Lautier, sem er stórt nafn í dag; þetta er strákur sem var á heimsmeistara- mótinu sem ég vann á sínum tíma, en hann hefur verið með marga þekkta menn til að hjálpa sér. Og þegar ég skoða listann yfir 100 bestu skákmenn heimsins finnst mér ég ekkert verri en margir þessir menn.“ En hvað með lokamarkmiðið; hvert langar þig að ná? „Við getum alveg sagt að mig langi að komast á lista yfir þá 15 bestu en það snýst bara um að vinna nógu mikið. Ég held satt að segja að ég geti miklu meira en ég hef gert. Ég þarf sennilega bara að vinna meira en hingað til.“ Hannes Hlífar hefur aldrei verið með þjálfara. Hann segir það hafa verið til umræðu innan Skáksam- bandsins að fá einhvern slíkan til landsins en slíkt sé kostnaðarsamt og ekki hafi orðið af því. Mátaði uppáhaldsskákmanninn Hefurðu átt þér einhverjar fyr- irmyndir við taflborðið, eða uppá- haldsskákmenn? „Já, Kasparov hefur verið í miklu uppáhaldi hjá mér. Karpov var það líka á sínum tíma, aðallega vegna þess hve gríðarlegur stöðu- skilningur hans er. Það eru ekki alltaf fléttur eða einhverjir flóknir leikir sem eru mest heillandi þegar komið er út í baráttuna þótt margir haldi það; oft eru þeir litlir leikir, peðleikir, sem enginn skilur nema hann sé kominn mjög langt.“ Hannes nefnir einnig Mikhail Gúrevítsj, rússneskan skákmann sem hafi verið í miklu uppáhaldi hjá sér lengi. „Það var dálítið fynd- ið að ég mætti honum svo 1994, þegar ég var 21 árs, og mátaði hann! Vann hann reyndar þá með 1½ vinningi í tveggja skáka ein- vígi. Ég man að Margeir Péturs- son nefndi þá við mig að það væri leiðinlegt að þurfa að vinna uppá- haldsskákmanninn sinn svona!“ Nær allur tími Hannesar Hlífars fer í að sinna skákinni, sem er bæði áhugamál hans og atvinna. „Ég les bækur og fer í bíó eins og aðrir en ég er ekki á kafi í neinu sérstöku öðru. Hugsanlega skrái ég mig í einhver námskeið í há- skólanum nú eftir áramótin því Reykjavíkurmótið í mars er það eina sem er að gerast á næstunni.“ Hann hefur ekki notað tímann svona áður, segist hafa verið mikið erlendis í janúar og febrúar síð- ustu ár við keppni, og ef menn séu ekki á landinu þýði lítið að skrá sig í nám. „Nú ætla ég hins vegar að reyna að dreifa huganum aðeins. Fyrst ég hef náð þeim áfanga að komast upp fyrir 2.600 stig get ég frekar valið mót en áður. Þegar maður tekur þátt í opnu móti og er lang- stigahæstur er hætta á að tapa stigum; þá er maður alltaf að tefla við menn sem eru miklu stigalægri og þeir eru ánægðir með jafntefli.“ Um einvígið við Short segir Hannes Hlífar að endingu að hann sé staðráðinn í að hafa gaman af verkefninu. „Það er allt annað að taka þátt í svona einvígi en að keppa í venjulegu móti. Sálfræði- þátturinn er miklu mikilvægari. Ég ætla að ganga til verks með því hugarfari að hafa gaman af þessu; ég á mun minni möguleika á sigri en Short því hann er mun reyndari en ég og hærri að stigum, en allt getur gerst.“ Eins og fyrr sagði verða skák- irnar sex á jafn mörgum dögum. Sú fyrsta hefst á þriðjudaginn kl. 17. „Þetta verður mjög erfitt. Hver skák getur tekið upp í 7-8 klukku- tíma. Þess vegna er um að gera að vera undirbúinn, bæði andlega og líkamlega. Ég hef einmitt æft vel að undanförnu, bæði lyft og hlaup- ið, til að vera vel á mig kominn lík- amlega.“ Skákmenn hljóta að þurfa að vera mjög þolinmóðir þegar þeir sitja jafnlengi að tafli og raun ber vitni? „Já, mjög þolinmóðir. Taugar keppenda eru stór hluti af skák- inni; sterkar taugar eru mjög góð- ur kostur fyrir skákmann. Sumir hafa líkt skák við hnefa- leika; menn verða að vera yfirveg- aðir þar eins og í boxinu. Í hita leiksins vilja keppendur stundum verða of æstir en það má alls ekki. Þegar ég byrjaði að tefla var ég oft mjög óþolinmóður en snemma var manni kennt gott ráð til að koma í veg fyrir fljótfærni við skákborðið; að sitja á höndunum á sér! Það getur komið sér mjög vel ef menn eiga það til að vera of bráðir! Það er nefnilega hægt að eyði- leggja góða skák með einum leik, ef maður er of óþolinmóður.“ skapti@mbl.is Nú kemstu í sólina eftir jólin á hreint ótrúlegu verði. Beint flug til Kanarí þann 17. janúar þar sem þú nýtur 25 stiga hita og veðurblíðu og getur fagnað nýju ári á þessum vinsæl- asta vetraráfangastað Evrópu við frábærar aðstæður. Þú bókar ferðina núna og tryggir þér síðustu sætin og 4 dögum fyrir brottför, hringjum við í þig og látum þig vita hvar þú gistir, og á meðan á dvölinni stendur nýtur þú þjónustu reyndra fararstjóra okkar allan tímann. Verð kr. 39.905 Verð fyrir manninn, m.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára, flug, gisting og skattar. 17. janúar, vikuferð. Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Verð kr. 49.950 Verð fyrir mann, m.v. 2 í íbúð, gisting, skattar. 17. janúar, vikuferð. Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800. Síðustu 26 sætin 1 eða 2 vikur Stökktu til Kanarí 17. janúar í viku frá kr. 39.905

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.