Morgunblaðið - 06.01.2002, Page 24
24 SUNNUDAGUR 6. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
AÐ LOKINNI jóla- ogáramótahátíð blasirveruleiki hversdags-lífsins nú við okkur áný, og líkast til verðum
við flest að viðurkenna að harla fátt
hefur breyst. Yfirdrátturinn í bank-
anum er að vísu heldur hærri,
buxnastrengirnir örlítið þrengri og
kominn einhver snertur af ofþreytu
í meltingarfærin, en annað virðist
svipað og áður. Gluggapósturinn
sem sofið hefur
vært í skúffum
og skáphillum er
farinn að bylta
sér, ergilegur
eftir lúrinn og af-
skiptaleysið.
Fráhvarfs-
einkenni gera
vart við sig.
Morgnarnir eru ískyggilega
snemma á ferð ef marka má klukk-
urnar og það er erfitt að sætta sig
við að þurfa aftur að fara að borða
morgunmat í myrkri, í stað þess að
njóta dagsbirtu og hádegisfrétta
með kornfleksinu. Morgunþættir
fjölmiðlanna virðast einkennilegt
næturgöltur ofvirkra athygl-
issjúklinga og auglýsingatímarnir
eru holir og tómir og hvergi kerta-
ljós, krans eða jólakúlu að sjá.
Það er ekki um að villast, þrátt
fyrir allar kæru kveðjurnar, sam-
vistirnar, faðmlögin og kertaljósin,
lífið heldur áfram eftir jól.
En þetta þýðir ekki að hátíðirnar
hafi ekki skipt máli. Góður dagur er
ekki verri fyrir það að hann lúti
nóttinni líkt og aðrir dagar og taki
enda. Þær góðu stundir sem við eig-
um með fjölskyldu okkar og vinum,
í sjaldgæfu skjóli fyrir leiðigjörnum
hráslaga hversdagsins, eru gjafir
sem við hljótum að fagna, gleðjast
yfir og geyma vel í minningunni.
Þær eru reyndar gjafir af því verð-
mæta og sjaldgæfa tagi sem gerir
okkur að betra og hjartahlýrra
fólki, jafnvel þótt það sé aðeins um
skamma stund. Það hjarta má al-
tént vera illa kalið sem ekki nær að
orna sér við gleðina í eftirvænting-
arfullum barnsaugum þegar klukk-
urnar hringja hátíðina inn, eða
fölskvalaust þakklæti roskins
manns fyrir það eitt að fá að upplifa
slíka stund einu sinni enn.
Jólin eru þannig ekki bara eitt-
hvað bjart, skrautlegt og skemmti-
legt sem leysir upp vetrardoðann og
skammdegismyrkrið um skeið. Þau
eru líka vin í eyðimörk keimlíkra og
tilbreytingarsnauðra daga. Örlítið
hlé þar sem við getum verið stikkfrí
úr hlutverkum okkar á leiksviði
hversdagsleikans og einbeitt okkur
að því um stund að vera bara pabbar
og mömmur, synir og dætur, bræður
og systur, afar og ömmur í öllum
þeim fjölbreytilegu blæbrigðum sem
þessi hlutverk bjóða upp á.
Eftir að árlegum endaspretti
neyslukapphlaupsins lýkur form-
lega, síðdegis á aðfangadag, hættum
við meira að segja að vera neytendur
um stund og erum sjálfum okkur
nóg. Það er svo ekki fyrr en um ára-
mótin að við erum minnt á hlutverk
okkar sem kjósendur, þótt upp á síð-
kastið virðist meira viðeigandi að
tala um þegna í því sambandi.
Um leið og ég leyfi mér að nota
þetta tækifæri til að óska lesendum
öllum heilla og friðar á nýbyrjuðu
ári hvet ég okkur öll til þess að
gleyma ekki of hratt þeim tilfinn-
ingum sem kviknuðu með okkur í
jólahléinu góða. Jafnframt skulum
við íhuga vel hvort það gildismat
sem við látum að jafnaði ráða för á
leiksviði veruleikans er í raun í sam-
ræmi við þær tilfinningar og þar
með eitthvað sem tilheyrir okkur
sjálfum eða aðeins hluti af leikbún-
ingnum sem okkur hefur verið
fenginn, ljósabúnaðinum sem svo
iðulega blindar okkur, eða þjónkun
við þá sem stjórna sýningunni og
láta eins og þeir eigi leikhúsið.
Jólin búin, sýningin
heldur áfram
HUGSAÐ
UPPHÁTT
Eftir
Sveinbjörn I.
Baldvinsson
tundra-
@vortex.is
Morgunblaðið/Andrés
www.yogastudio.is
Yoga Studio – Halur og sprund ehf.,
Auðbrekku 14, Kópavogi,
símar 544 5560 og 864 1445.
Umboðsaðili fyrir Custom
Craftworks nuddbekki og
Oshadhi ilmkjarnaolíur o.fl.
Jóga gegn kvíða með Ásmundi Gunnlaugssyni
hefst 8. janúar – Þri. og fim. kl. 20.00
4ra vikna námskeið, m.a. byggt á eigin reynslu Ásmundar, fyrir þá sem eiga við streitu,
kvíða og fælni að stríða og/eða eru að ganga í gegnum miklar breytingar í lífinu. Kenndar
verða leiðir til þess að slaka á og öðlast aukið frelsi og lífsgleði. Engin reynsla eða þekking
á jóga nauðsynleg. Ásmundur tekur fyrir þætti eins og jógaleikfimi (asana), öndun, slökun
og andleg lögmál sem stuðla að velgengni, jafnvægi og heilsu.
Traust námskeið frá árinu 1994 - byggt á reynslu (Sjá nánar á www.yogastudio.is)
Ásmundur
Anna
Jóga – breyttur lífsstíll með Önnu Hermannsdóttur
hefst 10. janúar – Þri. og fim. kl. 19.00
4ra vikna grunnnámskeið fyrir fólk á öllum aldri sem vilja læra eitthvað nýtt. Anna mun
leggja áherslu á jógastöður (asana) og öndunaræfingar sem hjálpa að losa um spennu auk
slökunar. Reynsla af jóga er ekki nauðsynleg.
Opnir jógatímar á vorönn — Hatha-yoga stöður, öndun og slökun.
Stundaskráin tekur gildi mánudaginn 7. janúar:
Mánudaga og miðvikudaga kl. 12.00, 16.25, 17.25 og 20.00.
Þriðjudaga og fimmtudaga kl. 17.00 og 18.00.
Föstudaga kl. 17.25 og laugardaga kl. 9.00.
Í opnum tímum leiðbeina kennarar Yoga Studio nemendum.
Kennslutími vorannar er 15 vikur og lýkur henni 4. maí.
Verð vorannar er kr. 21.900, 1 mánuður kr. 8.500 og stakur tími kr. 1.000.
Næsta jógakennaraþjálfun hefst helgina 1.-3. febrúar. Ásmundur heldur kynningarfund fyrir
áhugasama laugardaginn 19. janúar kl. 17 í Auðbrekku 14, Kópavogi.