Morgunblaðið - 06.01.2002, Side 27
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. JANÚAR 2002 27
EINN þeirra einstaklinga sem
settu hvað mestan svip á mannlífið
á síðustu öld var hinn óvenju fjöl-
hæfi lista- og lífsnautnamaður
Guðmundur Einarsson frá Miðdal.
Eftir hann liggur fjöldi högg- og
veggmynda, sem m.a. prýða mið-
borgina, olíu- og vatnslitamálverk,
glerlistaverk og leirmunir, svo
nokkuð sé nefnt. Aukinheldur var
maðurinn frumkvöðull um almenna
líkamsrækt og útivist. Ekki síst
fjallgöngur og jöklaferðir með
ánægju og yndisauka að leiðarljósi.
Þá var Guðmundur orðlögð aflakló
með stöng og skotvopn og ekki má
gleyma eðalbókum sem eftir hann
liggja. Fjallamenn er í öllu falli vel
skrifuð og falleg bók, prýdd ljós-
myndum og myndum af málverk-
um, einkum vatnslitaverkum, ef
minnið svíkur ekki.
Hún var og er öllum
hvatning til kynna við
umhverfi sitt og opnar
augu manna fyrir feg-
urð óbyggðanna og
gildi fjallamennsku.
Í heimildarmynd-
inni Maður eigi ein-
hamur skapar Valdi-
mar Leifsson
kvikmyndagerðarmað-
ur viðamikla yfirsýn
um lífshlaup einstaks
manns, bæði fróðlega
og upplýsandi. Að
minnsta kosti fyrir
stærstan hluta þjóðar-
innar sem aldurs síns vegna veit
lítil deili á þessum þjóðsagna-
kennda listamanni, sem fæddist
um miðjan áratug 19. aldar og féll
frá 1963. Valdimar púslar saman
gömlum ljósmyndum úr lífi lista-
mannsins og fjölskyldu hans; kvik-
myndum, gömlum og nýjum, og
viðtölum við samtíðarmenn hans
og afkomendur. Í ljós kemur að
Guðmundur var byrjaður að kvik-
mynda fyrir miðja síðustu öld og
brot úr nokkrum mynda hans
vekja sannarlega von um að fá að
sjá meira af slíku.
Guðmundur var
ekki aðeins litríkur
listamaður og nátt-
úruunnandi, einkalíf
hans þótti harla
óvenjulegt og var
mikið milli tannanna á
samborgurum hans,
bæði hjúskaparstaða
og ekki síður tengslin
við Þýskaland og
Þriðja ríkið. Á tímum
síðari heimsstyrjald-
arinnar var það nán-
ast sama og að vera
hallur undir nasis-
mann að hafa hlotið
menntun, starfað og
kvongast í Þýskalandi. Um þessi
vandasömu, veraldlegu efni og lit-
ríku ástarsögu, sem aðra lífsþætti,
er fjallað á hreinskilinn hátt. Sem
skilur alltént við þann sem tak-
markað veit um athyglisvert og yf-
irhöfuð mikilfenglegt lífshlaup
ósvikins hæfileikamanns sáttan og
fróðari. Fyrir hugskotssjónum
áhorfandans stendur svipmikill
maður sem skaraði fram úr á flest-
um sviðum, ósvikinn aflamaður í
lífsins ólgusjó.
Fjöllistamaður
SJÓNVARP
Heimildarmynd
Kvikmyndagerð, taka, klipping: Valdimar
Leifsson. Handrit: Bryndís Kristjánsdóttir
og Valdimar Leifsson. Tónlist: Björn Thor-
oddsen, Gunnar Þórðarson, Vivaldi,
Strauss, o.fl. Þulur: Sigurgeir Frið-
þjófsson. Lífsmynd 2001. Sjónvarpið, á
jólum 2001.
MAÐUR EIGI EINHAMUR – LÍF OG LIST
GUÐMUNDAR FRÁ MIÐDAL
Sæbjörn Valdimarsson
Guðmundur
Einarsson
GRUNNSKÓLANEMENDUR
Fyrir samræmdu prófin í 10. bekk
Einnig flestar námsgreinar í framhaldsskólum
Íslenska - stærðfræði - enska - danska
Nemendaþjónustan sf. sími 557 9233
namsadstod.is
Námsaðstoð
Alltaf á þriðjudögum
VERKIN Haust-
vísa eftir Jón
Nordal og Maður
lifandi eftir Kar-
ólínu Eiríksdótt-
ur hafa verið til-
nefnd til
Tónlistarverð-
launa Norður-
landaráðs.
Haustvísa er
samin fyrir klar-
inettu og hljómsveit, fyrir Einar
Jóhannesson klarinettuleikara, en
Maður lifandi er óperuleikur, sem
Karólína samdi í samvinnu við
Árna Ibsen og Messíönu Tómas-
dóttur. Verkið er byggt á miðalda-
leiknum Everym-
an.
Tilkynnt verð-
ur í sumarbyrjun
hvaða tónverk frá
Norðurlöndum
hreppir verðlaun-
in, en þau verða
afhent í tengslum
við afmæli Norð-
urlandaráðs í
haust. Það er nor-
ræna tónlistarnefndin Nomus,
sem hefur veg og vanda af veit-
ingu þessara verðlauna, sem falla
annaðhvert ár í hlut tónskálds og
tónverks, en hitt árið í hlut flytj-
enda tónlistar.
Maður lifandi og
Haustvísa tilnefnd
Karólína
Eiríksdóttir
Jón
Nordal
PATRICK Neate, rithöfundur sem
fáir kannast við, hlaut í gær Whit-
bread-verðlaunin í flokki skáldsagna.
Sagan, „Twelve Bar Blues“, er ein-
ungis önnur skáldsaga Neate sem áð-
ur vann fyrir sér sem plötusnúður á
skemmtistöðum. En auk Neate voru
tilnefndir til verðlaunanna vel þekktir
höfundar á borð við V. S. Naipaul,
nóbelsverðlaunaskáldið Ian McEwan,
Salman Rushdie, Beryl Bainbridge,
Nadime Gordimer, Andrew Miller og
Marina Warner.
„Þetta er virkilegt sjokk,“ sagði
Neate í viðtali við dagblaðið Daily
Telegraph. „Þegar ég var í háskóla
sátum við oft og drukkum lélegt viskí
og áttum í tilgerðarlegum samræðum
um nýjustu skáldsögu Ian McEwan.
Sú hugmynd að ég hafi síðan borið
sigur úr býtum á kostnað hans er
virkilega vandræðaleg. Það er stór-
kostlegt að sigra, því það er ekki hægt
að neita því að ég, sem er allsendis
óþekktur, var að keppa á móti mjög
þekktum höfundum. Þetta er stór-
skrýtið.“
„Twelve Bar Blues“ fjallar um sögu
svertingjatónlistar, menningarsveifl-
una í New Orleans í kringum alda-
mótin 1900 og afrískar rætur hennar
öld fyrr. Sagan fór að mestu framhjá
breskum bókmenntagagnrýnendum,
en hún mun nú keppa við fjórar aðrar
bækur um titilinn Whitbread-bók árs-
ins. Þær eru „Something Like a
House“ eftir Sid Smith sem var valin
besta frumverk höfundar, „Selkirk
Island“ eftir Diana Souhami sem sigr-
aði í flokki ævisagna og „Bunny“ eftir
Selima Hill sem bar sigur úr býtum í
flokki ljóðabóka.
Eitthvað hefur flokkunin á bók
Neate þá misfarist í breskum bóka-
búðum, að sögn höfundarins. „Ég fer
stundum inn í bókabúð og spyr eftir
Twelve Bar Blues og þá er mér sagt
að leita að henni undir svörtum rithöf-
undum. Það er stórskrýtið því að ég
er hvítur miðstéttardrengur frá
Putney.“
Óþekktur höf-
undur hlýtur
Whitbread-
verðlaunin
Taska
aðeins 750 kr.
NETVERSLUN Á mbl.is