Morgunblaðið - 06.01.2002, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. JANÚAR 2002 33
gífurlega áherzlu á þessar kosningar og velja
fólk til framboðs út frá öðrum sjónarhornum en
þeim, sem ráða ferðinni í prófkjörum.
Ef umræður meðal trúnaðarmanna Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík falla í þennan far-
veg má gera ráð fyrir að hugsanlegt framboð
Björns Bjarnasonar menntamálaráðherra komi
til alvarlegrar umræðu. Það liggur nokkuð ljóst
fyrir í fyrsta lagi að menntamálaráðherra gefur
ekki kost á sér í prófkjöri en í öðru lagi að ef til
hans yrði leitað mundi hann íhuga stöðu sína
vandlega. Ráðherrann á dýpri rætur en flestir
aðrir í Sjálfstæðisflokknum og af margvíslegum
ástæðum vekur hann upp sterkar tilfinningar í
brjósti stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins.
Það mundi því ýmislegt fara af stað í Sjálfstæð-
isflokknum í höfuðborginni kæmi hann til sög-
unnar.
Smátt og smátt hefur Ingu Jónu Þórðardótt-
ur tekizt að koma tveimur málum í gegn, sem
meginbaráttumálum Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík, þ.e. skuldastöðu borgarinnar og
skipulagsmálum, sérstaklega varðandi Geld-
inganes. Það hefur verið athyglisvert að fylgj-
ast með því, að borgarstjóri hefur átt fullt í
fangi með að verjast gagnrýni oddvita sjálf-
stæðismanna vegna skuldastöðu borgarinnar.
Hins vegar hefur sjálfstæðismönnum ekki
tekizt að kveikja umtalsverða elda meðal al-
mennra kjósenda í kringum þessi tvö mál og er
þó Geldinganesið líklegra til þess. Jafnframt er
augljóst, að sjálfstæðismenn í borgarstjórn
hafa náð umtalsverðum árangri í því að draga
málefni Línu.Nets fram í dagsljósið.
Umræður um þessi málefni hafa leitt til þess
að talsmenn Reykjavíkurlistans hafa lent í vörn
– en það hefur hins vegar ekki dugað til.
Dagvistarmálin eru áreiðanlega langvið-
kvæmasta málið fyrir Reykjavíkurlistann. Þar
var miklu lofað og framan af trúðu þeir, sem
mestra hagsmuna eiga að gæta, að þau loforð
yrðu efnd. En það er alveg sama hvaða talnaflóð
birtist um þetta efni. Veruleikinn, sem ungir
foreldrar um alla borg fást við, þegar þeir reyna
að koma ungum börnum sínum á leikskóla, talar
sínu máli. Frammi fyrir þeim veruleika hlustar
þetta fólk ekki á tölur. Það krefst lausnar. Og
þess vegna eru dagvistarmálin þau málefni, sem
líklegust eru til að skapa Reykjavíkurlistanum
mikla erfiðleika í kosningabaráttunni.
Landsmál og
sveitarstjórn-
arkosningar
Að svo miklu leyti,
sem staðan í lands-
málum hefur áhrif á
kosningar til sveitar-
stjórna, getur hún
verkað á ýmsan veg
um þessar mundir. Staða Sjálfstæðisflokksins á
landsvísu er mjög sterk miðað við skoðanakann-
anir. Almennt talað ætti það að verða sjálfstæð-
ismönnum mikill stuðningur í kosningabarátt-
unni.
Það er út af fyrir sig athyglisvert að erf-
iðleikar í efnahagsmálum á síðasta ári hafa haft
takmörkuð áhrif, ef nokkur, á gengi Sjálfstæð-
isflokksins í skoðanakönnunum. Ef skýrar vís-
bendingar verða komnar fram síðustu vikur
fyrir kosningarnar í vor um betri tíð, minnkandi
verðbólgu, lægri vexti o.s.frv. mun það efla
kosningabaráttu Sjálfstæðisflokksins. Ef hins
vegar harðnar á dalnum fram eftir árinu getur
það valdið frambjóðendum Sjálfstæðisflokksins
í sveitarstjórnarkosningum erfiðleikum.
Þessi mynd getur orðið flóknari fyrir Reykja-
víkurlistann. Höfuðborgin á aðild að Lands-
virkjun. Þetta fyrirtæki í eigu ríkis og Reykja-
víkurborgar hyggur á miklar
virkjanaframkvæmdir á Austurlandi. Þeir
flokkar sem standa að Reykjavíkurlistanum eru
alls ekki samstiga um það mál á landsvísu.
Spurningin er, hvernig sá skoðanamunur verk-
ar innan Reykjavíkurlistans, þegar líður á vet-
urinn og vorið, ef líkur aukast á því að af virkj-
uninni verði. Ætla vinstrigrænir að standa að
virkjuninni, sem aðilar að Reykjavíkurlistan-
um, eða gera þeir kröfu til að borgin beiti áhrif-
um sínum innan Landsvirkjunar á annan veg?
Það er auðvitað ljóst, að framsóknarmenn í
Reykjavík munu standa fast með virkjunar-
framkvæmdum, þar á meðal fulltrúar Fram-
sóknarflokksins í borgarstjórn. Þetta stóra mál
getur valdið miklum usla innan Reykjavíkur-
listans, ekki sízt vegna þess, að vel má vera að
beinn atbeini borgarinnar þurfi að koma til í
tengslum við fjármögnun framkvæmdanna.
Gera má ráð fyrir að talsmenn Reykjavíkurlist-
ans verði spurðir um þetta í kosningabaráttunni
og þá reynir á hæfni borgarstjóra að halda liði
sínu saman.
Það verður erfitt vegna þess, að samþykki
fulltrúar vinstrigrænna með þögninni þann at-
beina Reykjavíkurborgar sem til þarf verður
andstaða vinstrigrænna á landsvísu ekki trú-
verðug. Leggist vinstrigrænir innan Reykjavík-
urlistans gegn stuðningi borgarinnar við virkj-
unarframkvæmdir verða komnir slíkir brestir í
samstarfið að erfitt verður að sjá hvernig það
getur haldið til lengdar. Kárahnjúkavirkjun
getur því orðið örlagavaldur margra á vettvangi
stjórnmálanna.
Sveitarstjórnarmál vekja almennt litlar um-
ræður milli kosninga. Það er til marks um tak-
markaðan áhuga fólks á að taka þátt í sveit-
arstjórnarmálum, að þegar skilað var inn
framboðum í prófkjöri sjálfstæðismanna vegna
bæjarstjórnarkosninga í Kópavogi, kom í ljós,
að engir nýir frambjóðendur komu fram. Þeir
sem sendu inn framboð voru allir hinir sömu og
setið höfðu sem bæjarfulltrúar eða varabæjar-
fulltrúar á því kjörtímabili sem er að líða.
Þessi þróun er líka augljós í borgarstjórn
Reykjavíkur. Þeir eru ekki margir, sem gefa
kost á sér til slíkra starfa. Enda verður að segja
þá sögu eins og hún er að í borgarstjórninni eru
ekki margir borgarfulltrúar, sem vekja athygli
fyrir öflugan eða áhugaverðan málflutning. Vís-
bendingar um þetta má líka sjá í landsmála-
pólitík. Og það er alvarlegt umhugsunarefni
lýðræðisins vegna.
Morgunblaðið/RAX
Dagvistarmálin eru
áreiðanlega lang-
viðkvæmasta málið
fyrir Reykjavík-
urlistann. Þar var
miklu lofað og fram-
an af trúðu þeir,
sem mestra hags-
muna eiga að gæta,
að þau loforð yrðu
efnd. En það er al-
veg sama hvaða
talnaflóð birtist um
þetta efni. Veruleik-
inn, sem ungir for-
eldrar um alla borg
fást við, þegar þeir
reyna að koma ung-
um börnum sínum á
leikskóla, talar sínu
máli. Frammi fyrir
þeim veruleika
hlustar þetta fólk
ekki á tölur. Það
krefst lausnar.
Laugardagur 5. janúar
Gott er að geta leitað skjóls þegar rignir í borginni.