Morgunblaðið - 06.01.2002, Side 39

Morgunblaðið - 06.01.2002, Side 39
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. JANÚAR 2002 39 Blómastofa Friðfinns, Suðurlandsbraut 10, sími 553 1099, fax 568 4499. Opið til kl. 19 öll kvöld Kransar • Krossar • Kistuskreytingar Inger Steinsson, útfararstjóri, s. 691 0919 Ólafur Ö. Pétursson, útfararstjóri, s. 896 6544 Bárugötu 4, 101 Reykjavík. S. 551 7080 Vönduð og persónuleg þjónusta. þeim stað sem þú ert á, bara öðru- vísi. Það besta sem þú gafst mér þó er að hafa einfaldlega verið til og verið þú sjálfur. Það yljar mér um hjartarætur að hugsa til allra góðu stundanna sem við áttum saman. Góðu minningarnar eru svo margar að af nógu er að taka. Eins og alltaf þegar þú komst heim á Lindó, hress og kátur og tókst mig, litlu systur, á háhest þannig að ég sá inn um gluggann á borðstofunni. Þar til nú síðari ár þegar þú, Birna, Stella og Krummi komuð í sveitina til okkar Emma í heyskap, á kjötkveðjuhátíð, í pallagerð eða einfaldlega til að hittast og njóta þess að vera til, saman. Það mun vanta mikið þegar þessi hópur kemur saman í framtíð- inni, það mun vanta þinn stórbrotna persónuleika og hlátrasköllin þín, elsku bróðir. Síðastliðin tuttugu ár var alltaf pakki undir jólatrénu frá þér og Birnu til fjölskyldunnar, með jóla- namminu sem vakti alltaf mikla hrifningu og bragðaðist alltaf jafn vel. Pakkinn var líka undir trénu þetta árið og það var vægast sagt tilfinningaþrungið að opna pakkann frá þér í þetta skiptið, vitandi það að geta ekki hringt í þig og þakkað þér. Elsku bróðir, þín er sárt saknað. En ég hef trú á því að þú kíkir niður til okkar í gegnum skýin bara til að athuga hvort allt sé ekki eins og það eigi að vera. Það er ekki slæmt að vita af engli eins og þér vakandi yfir sér. Elsku Steini, það var yndislegt að fá að hafa þig þessi ár sem þú varst hérna hjá okkur. Takk fyrir allt sem þú gafst mér, Emma og krökkun- um. Minningin um þig mun lifa með okkur. Guð blessi þig og verndi. Elsku Birna, Árni, Jóhanna, Bidda, Ásdís og Sigga. Guð gefi ykkur og fjölskyldum ykkar styrk á þessum erfiðu tímum. Aðalheiður Sigríður og fjölskylda. Hér í Sundahöfn er upphaf og endir hinna ýmsu ferða og hafði vinnufélagi okkar Steingrímur farið margar ferðir út og inn af svæðinu og um svæðið, en hann var bifreið- arstjóri hjá Eimskip um árabil og ekki hefði nokkrum manni dottið í hug að hann færi héðan í sína hinstu ferð, að kvöldi 21. desember, þá fór hann heim að loknum vinnudegi, en hann andaðist aðfaranótt aðfanga- dags jóla. Steini, eins og hann var kallaður, hóf störf fyrst hjá Eimskip um mitt ár 1953 og hafði því við dánardægur sitt starfað nær hálfa öld hjá félag- inu og var því öllu eldra starfsfólki hér að góðu kunnur. Ég held að ég segi eins og er að við, sem höfum þekkt Steina í tugi ára, gjörsamlega „frusum“ er við heyrðum andláts- fregn hans sem kom svo skyndilega og óvænt. Persónuleiki hans hafði áunnið sér sess í hjörtum þess fólks er starfað hefur skemur hjá félaginu sem og okkar eldri, en létt lund og vinalegt bros voru einkenni hans. Á öllum þessum árum hafði hann unnið alla almenna verkamanna- vinnu, en síðustu áratugi var hann bifreiðarstjóri á rútu félagsins, ásamt hliðvörslustörfum og hafa bifreiðar þær er voru í umsjá hans, borið vott um snyrtimennsku hans. Þegar sól reis í austri, mættum við til vinnu og var handaband ásamt „góðan daginn“ ein af sið- venjum hans, áður en sest var við kaffibollann og þegar sól settist í vestri og lauk degi, var annað handaband með orðunum „takk fyr- ir daginn“ frá honum. Nú er degi lokið í lífi Steingríms H. Steingrímssonar og hann lagstur til hinstu hvíldar og viljum við því, þakka honum fyrir daginn, en í lífi sínu vann hann ósvikið dagsverk og mun fá laun sín greidd úr hendi Hans er öllu ræður. Við starfsfélag- ar hans í Vörslu Eimskips sendum eiginkonu hans, börnum og barna- börnum og öðrum ættingjum okkar innilegustu samúðarkveðjur með orðunum að Steingrímur verður aldrei gleymdur, en hans ávallt minnst. Sigurjón Símonarson. Okkur langar að minnast vinnu- félaga okkar, hans Steina. Fregnin um andlát hans kom eins og þruma úr heiðskíru lofti. Hver hefði gert ráð fyrir því að þegar við kvödd- umst og óskuðum hvert öðru gleði- legra jóla á föstudaginn yrði það okkar síðasta kveðja. Steini okkar, eins og við kölluðum hann gjarnan, var einstaklega vel gerður maður og væri það gott ef fleiri hefðu hans kosti til að bera. Hann var ekki margmáll en það sem hann sagði var sagt að vel hugsuðu máli og hann bar ekki sínar áhyggj- ur á torg en var ávallt tilbúinn að hlusta á raunir annarra ef til hans var leitað. Ekki var langt í brosið hjá Steina og gat hann svo auðveld- lega séð broslegu hliðarnar á mál- unum og jafnvel hjá sjálfum sér en það er nú ekki á allra færi. Steini hafði mjög góða nærveru og var eins og honum fylgdi hlýja hvar sem hann fór, víst verður skrítið að hafa ekki Steina til að veifa til þegar við förum heim. Við viljum votta Birnu konu hans og börnum þeirra samúð okkar. Megi guð og gæfan fylgja þeim. Fyrir hönd stelpnanna í mötu- neyti Eimskips, Sundaskála. Klara Geirs. Steini er dáinn. Vinahópurinn er sleginn við þessa sorgarfregn á að- fangadag. Jólagleðin verður trega- blandin. Steini og Birna, hans góða kona, aldrei fjarri huganum. Minningarnar eru eins og regn- boginn, enginn veit hvar hann byrj- ar eða hvar hann endar. Steini var eins og regnboginn, hár, litríkur og eftirtektarverður, og svo … allt í einu horfinn, hljóðlaust og óvænt. Hann var með hærri mönnum, og stundum var gantast með það að há- ið í nafninu hans stæði fyrir „hái“. Það var mikið gantast í kringum Steina og alltaf stutt í hláturinn þar sem hann var annars vegar. Steini í partíi eftir ballferð fyrir áratugum, þröng á þingi, margir sitja á gólfinu, fæturnir á Steina ná yfir stofugólfið, þeir eru svo langir. Steini og Birna á Fólksvagninum, sem kallaður var Kaffivagninn og notaður til fólks- flutninga, sérstaklega eftir böll. Þetta er á meðal fyrstu minning- anna. Síðan eru liðin mörg ár með laxveiðum, sumarbústaðaferðum, matarboðum og utanlandsferðum. Við erum þakklát fyrir þessi ár traustrar vináttu og samvinnu. Núna erum við sérstaklega þakk- lát fyrir allar samverustundirnar á síðasta ári. Ein minning frá liðnu sumri stendur ljóslifandi fyrir hugskots- sjónum; Steini í stafni vélarvana báts á ánni Thames í Englandi. Báts sem stefnir beint inn í skóg, Steini reiðubúinn að takast á við fornar eikur og tignarlegan grátvíði. Verð- ur að játa sig sigraðan, forðar sér með brotnar greinar á öxlunum, glaðbeittur og hlæjandi, eins og hans er von og vísa. Steini að draga fánann að húni í sumarbústaðnum í september. Steini og Birna í hlut- verki gestgjafanna síðast í október. Örlát, hlý og þægileg. Fólk sem stjanar við gesti sína. Á kveðjustundum gerast vinir stundum væmnir, en Steina líkaði hvorki bull né væmni, við virðum það. Við vottum Birnu, börnunum og fjölskyldum þeirra okkar dýpstu samúð. Blessuð sé minning Stein- gríms H. Steingrímssonar. Vinirnir í V-8. Við trúðum því varla þegar okkur veiðifélögunum barst sú frétt að Steini væri látinn. Það verður ekki fyllt það skarð í veiðihópnum sem hann skilur eftir sig. Veiðfélagarnir hans Steina hafa haldið hópinn í yfir 30 ár. Í þessum ferðum var hann maðurinn sem sá um að allir hlutir væru á hreinu. Það var alltaf hægt að stóla á Steina. Við höfðum haft það fyrir reglu hin síðari ár að taka upp á myndband einn sólarhring úr þessum veiðiferðum okkar. Það var í haustbyrjun er við veiðifélagar komum saman til að horfa á veiði- ferðina frá sl. sumri. Steini gat ekki verið með okkur þar sem hann var staddur erlendis. Sú hugmynd kom upp í hópnum að veita verðlaun fyr- ir bestu frammistöðu í hverri veið- ferð. Menn voru á einu máli, að lok- inni sýningu myndbandsins, um að Steini hefði borið sigur úr býtum því hann fór á kostum í síðustu veiðiferð. Hlaut hann fyrstur manna verlaunagripinn, Gedduna. Þá óraði okkur ekki fyrir því að þetta ætti eftir að vera síðasta veiðiferðin þar sem Steini yrði með okkur. Þær eru margar sögurnar úr ferðunum ógleymanlegar sem við geymum á okkar hátt í minningunni. Nú vitum við að Steini hittir fyrrverandi veiði- félaga sinn Magnús og þeir eiga ef- laust eftir að vera með okkur í öllum þeim veiðiferðum sem ófarnar eru. Við sendum Birnu og hennar fjöl- skyldu okkar innilegustu samúðar- kveðjur og biðjum Guð um að styrkja þau á þessari sorgarstundu. Veiðifélagarnir Guðmundur, Jóhann, Björn Smári, Pétur og Páll Sævar. EIGI minningargrein að birtast á útfarardegi (eða í sunnudagsblaði ef útför er á mánudegi), er skilafrestur sem hér segir: Í sunnudags- og þriðjudagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. Í miðviku- dags-, fimmtudags-, föstudags- og laugardagsblað þarf greinin að ber- ast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins til- tekna skilafrests. Skilafrestur minningargreina                                         ! "        # $   %&&      ! "    #$ #"# !  % " &"   !'   #$"  (             ! ! "  #   $                %"& '(' '$ ('   %"& ' '$ )**  %"& ' '$ '#+ %"& '  $ +'+' '$  + %,)**!   $ % -'+ +'  $ )**!  ,+' '$ ( +'  ,                                            !      "  # $        ! " #$    $     % &  !'        ( $" )$         *+&      & &  & & & '                                      !         "  #  $!    ! %&!''!  !!   "  #  $ # %%&& %$ %"  ' & (%%&&  !!     !" %#%!%&& !  $  !" )!#*% # %&& +  + " +  +  + ,                                  !"  #$% &'(")'* ++ ,  )  * ++- .' , /  +- 0( , 1(, +! 2& , !3 ! 11,! 111,*

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.