Morgunblaðið - 06.01.2002, Side 52

Morgunblaðið - 06.01.2002, Side 52
DAGBÓK 52 SUNNUDAGUR 6. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. HINN 30. des. birtist bréf í Velvakanda frá konu með undirskriftinni: „Ein hneyksluð“, þar sem hún lét í ljósi skoðun sína á ís- lensku kvikmyndunum sem sjónvarpið bauð lands- mönnum upp á yfir jólahá- tíðina. Þegar konan ritar bréf sitt var þó þriðja myndin eigi komin í dags- ljósið, þ.e. Myrkrahöfðing- inn sem sýnd var að kvöldi 29. des. En myndirnar sem fyrrnefnd kona ræðir um voru: Englar alheimsins og 101 Reykjavík. Ég vil setja Engla al- heimsins á annan stall en hinar tvær. Þar er saga á bak við sem byggð er á raunveruleika þótt ýmis at- vik séu sett á svið. Þráður myndarinnar snýst um varnarleysi þess einstak- lings sem er að einhverju leyti öðruvísi en fjöldinn. Aftur á móti sá ég ekkert við myndina 101 Reykjavík annað en sora og svall sem er ekki til uppbyggingar fyrir neinn og ég spyr: Ef þetta er hið raunverulega næturlíf í Reykjavík er þjóðin virkilega sátt við að svona auglýsingar séu sendar úr landi? Og síðan á Kvikmyndasjóður Íslands og fleiri aðilar, sem búa yf- ir einhverju fjármagni, að styrkja ósómann. Það olli mér vangavelt- um á sínum tíma, þegar þessi mynd var frumsýnd, hvað fólk var varkárt að tjá sig um gildi hennar eða fagurfræðilega útkomu. En nú skil ég það betur. Fólk er hrætt við að rífa niður íslenskt framtak á sviði „sköpunar og lista“. En ég spyr: Er hægt að finna eitthvað listrænt við myndina 101 Reykjavík? Söguþráðurinn mjög veik- ur og sjaldan minnt á hann, aðeins dregin fram mesta lágkúra mannsins. Myrkrahöfðinginn er byggður á sögu sem finna má í fornsögunum – ef ég skil rétt – en greinilegt er að handritshöfundur og leikstjóri hafa sérstakt yndi af klámfengnum sen- um og kynferðislegri vald- níðslu á konum og öðru of- beldi. Því læra börnin málið... Varla opnar maður fyrir fréttatíma fjölmiðlanna svo ekki sér greint frá kæru- málum á hendur körlum í þessu landi fyrir nauðgun á ungum konum og börnum. Hingað til hafa dómar í slíkum málum verið ótrú- lega vægir. Það þykir stærri glæpur að brjótast inn og stela dauðum hlut- um úr búðarglugga, en að ráðast á sér minnimáttar – oft börn, eða barnungar stúlkur og fremja á þeim svo svívirðilegan glæp að aldrei grær um heilt. Eru framleiðendur ís- lenskra kvikmynda að koma því inn hjá með- bræðrum sínum að það sé allt í lagi að haga sér þann- ig? Þó finna megi víða í fornsögum okkar illa með- ferð á fólki, sé ég ekki að það verði börnum okkar til góðs að horfa á slíkt svið- sett, en auk þess, sýnt á friðarhátíð okkar, jólunum. En víða er pottur brotinn Ég horfði á þátt á Stöð 2 einn morguninn nú rétt fyrir jólin undir heitinu: Femin. Ég hef ekki aðgang að stöðinni að öllu jöfnu, svo þetta var nýtt fyrir mér. Þar voru tvær ungar og fallegar konur að ræðast við, stjórnandi þáttarins hafði fengið í heimsókn kynlífsfræðing sem hafði með sér eins konar hjálp- artæki fyrir ástarlífið. Hún lýsti því fagmann- lega hvernig tækið gæti komið að gagni og hvatti foreldra til að kaupa tölvu- leiki eða annað fyrir börnin sem þau gætu gleymt sér við á meðan foreldrarnir færu saman í rúmið og væru reglulega góð við hvort annað. Af þessu mátti sjá að henni fannst að kynlífs- þorsti foreldranna ætti að sitja í fyrirrúmi fyrir þörf- um barnanna, ekki ástæða til að bíða til kvöldsins eftir að börnin væru sofnuð. Hvernig fóru þau að, afi og amma, þegar engin kyn- lífsfræðsla var í þessu landi? Samt tókst þeim að auka kyn sitt. Er þessi hvöt ekki leng- ur innbyggð og meðfædd hjá fólki eins og hjá öllum dýrum? Er ástæða til hvatningar á þessu sviði? Nei, ég vil meina að allt þetta klámfengna efni auki á meinta glæpi og sora og sé ljótur stimpill á þeim einstaklingum og öðrum sem bera þetta á borð fyrir annað fólk. Þar á meðal er sjónvarpið okkar. María K. Einarsdóttir. Dýrahald Nero er týndur SVARTUR fress hefur ekki snúið til síns heima frá því á aðfangadag. Hann er kolsvartur, geltur, gæfur og var með rauða ól með endurskinsmerki. Hann býr á Grettisgötu 81, 101 Rvík. og hlýðir nafninu Nero. Eyrnamerking: R0148. Fundarlaunum heitið. Vinsamlega hafið samband við Írisi eða Þröst í síma: 891 7441 eða 561 6666. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is Jólamyndir í sjónvarpi Víkverji skrifar... UNUN hefur verið að fylgjastmeð Eiði Smára Guðjohnsen, knattspyrnumanninum frábæra sem leikur með úrvalsdeildarliðinu Chelsea í Englandi, undanfarna mán- uði. Víkverji man þegar Eiður Smári sló í gegn í íslensku úrvalsdeildinni með Val, aðeins 15 ára, fyrir nærri áratug og finnst þó ekki langt síðan. Víkverja finnst líka stutt síðan Eiður Smári kom hingað heim og lék með KR hluta úr sumri, allt of þungur eft- ir langvarandi og erfið meiðsli, en staðráðinn í því að ná sér aftur á strik. Óhætt er að segja að það hafi tekist, jafnvel á enn glæsilegri hátt en nokkurn óraði fyrir. Og Víkverji er viss um að Eiður Smári á eftir að vinna enn stærri sigra á knatt- spyrnuvöllum Evrópu en hann hefur þegar gert. x x x VÍKVERJA finnst Örn Arnarsonsundmaður bera titilinn íþrótta- maður ársins 2001 með sóma, eins og fram kom síðasta sunnudag, en verð- ur jafnframt að lýsa því yfir að tvær kempur aðrar hefðu verið vel að titl- inum komnar vegna afreka sinna á árinu; handboltamaðurinn Ólafur Stefánsson, sem fór beinlínis á kost- um með Magdeburg í Þýskalandi og varð bæði landsmeistari með félaginu og Evrópumeistari félagsliða, og áð- urnefndur Eiður Smári, sem vakið hefur einna mesta athygli allra leik- manna í ensku úrvalsdeildinni það sem af er vetri, hvorki meira né minna. x x x STUNDUM hefur Víkverji heyrtþví fleygt, m.a. að þessu sinni, að annaðhvort Ólafur eða Eiður hefðu átt að verða fyrir valinu frekar en Örn í þetta skipti af þeirri ástæðu að þeir hefðu lifibrauð af því að leika í bestu deildum heims, hvor í sinni grein. Örn væri hins vegar áhuga- maður. Þetta eru fáránleg rök því það hvort íþróttamaður lifir af íþrótt sinni eða ekki á nákvæmlega ekki að skipta neinu máli. Það vakti reiði ýmissa á sínum tíma, og Víkverja er það enn í fersku minni, þegar Ásgeir Sigurvinsson var kjörinn íþróttamaður ársins í annað skipti, 1984 – ekki síst vegna þess að hann hafði lifibrauð sitt af því að leika knattspyrnu með erlendu félagsliði. Ásgeir varð að vísu vestur-þýskur meistari með félagi sínu þetta ár og var valinn besti leikmaður þýsku 1. deildarinnar, sem þá var ein allra besta deild heimsins. Og þetta er vafalítið það lengsta sem nokkur ís- lenskur knattspyrnumaður hefur nokkru sinni náð! Áhugamaðurinn Bjarni Friðriksson varð þriðji í júdó á Ólympíuleikunum í Los Angeles sama ár, en varð að sætta sig við ann- að sætið í kjöri íþróttafréttamanna og það sárnaði mörgum. Víkverji ætlar ekki að dæma um hvor átti titilinn frekar skilið enda skiptir það ekki máli nú, en báðir voru þeir frábærir íþróttamenn. Þetta dæmi sannar enn einu sinni þann mikla vanda sem íþróttafrétta- menn standa frammi fyrir í þessu ár- lega kjöri sínu, en Víkverja finnst það alltaf jákvæðara þegar valið er erfitt og menn eru ósammála um niður- stöðuna en þegar einhver einn er nánast sjálfkjörinn. Sé deilt um valið og margir koma til greina þykir Vík- verja það vera til vitnis um betri frammistöðu íslenskra íþróttamanna. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 LÁRÉTT: 1 ung hryssa, 8 deilur, 9 kvendýrið, 10 málmur, 11 dútla, 13 hafna, 15 sorg- ar, 18 klaufdýr, 21 tikk, 22 barði, 23 stéttar, 24 mannkostir. LÓÐRÉTT: 2 dugnaðurinn, 3 áreita, 4 gyðja, 5 snáði, 6 skinn, 7 elska, 12 úrskurð, 14 bók- stafur, 15 kjöt, 16 beiskt bragð, 17 stíf, 18 rengdi, 19 háski, 20 kvenmanns- nafn. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 gubba, 4 fölsk, 7 tolla, 8 nebbi, 9 lús, 11 nýra, 13 satt, 14 fullt, 15 svöl, 17 ósum, 20 ætt, 22 ganar, 23 álf- ar, 24 mærin, 25 narra. Lóðrétt: 1 gætin, 2 bolur, 3 aðal, 4 fans, 5 labba, 6 Krist, 10 útlit, 12 afl, 13 stó, 15 sogum, 16 ösnur, 18 sófar, 19 merla, 20 æran, 21 tákn. K r o s s g á t a Skipin Reykjavíkurhöfn: Sel- foss kemur í dag, Lat- ana fer í dag. Northern Liftnes kemur á morg- un. Hafnarfjarðarhöfn: Sel- foss kemur til Straums- víkur á morgun. Mark- ús J. kemur í dag. Mannamót Aflagrandi 40. Á morg- un kl. 9 vinnustofa og leikfimi, kl 13 vinnu- stofa, kl. 14 spiluð vist. Árskógar 4. Á morgun kl. 9 opin handavinnu- stofan, kl. 10.15 leikfimi, kl. 11 boccia, kl. 13.30- 16.30 opin smíðastofan/ útskurður, kl. 13.30 fé- lagsvist, kl. 16 myndlist. Allar upplýsingar í síma 535-2700. Bólstaðarhlíð 43. Á morgun kl. 9-16 handa- vinna, kl. 9-12 búta- saumur, kl. 10-17 fóta- aðgerð, kl. 10 samverustund, kl. 13.30- 14.30 söngur við píanó- ið, kl. 13-16 bútasaum- ur. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið Hlaðhömrum verður lokað til 8 janúar. Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist í Gullsmára 13 á mánu- dag kl. 20.30. Fótaað- gerðastofan opin frá kl. 10. Skrifstofan Gull- smára 9 er opin á morg- un kl. 16.30-18, s. 554 1226. Félagsstarf aldraðra, Lönguhlíð 3. Á morgun kl. 8 böðun, kl. 9 fótaað- gerð og myndlist, kl. 9.30 hjúkrunarfræðing- ur á staðnum, kl. 10 verslunin opin, kl. 11.10 leikfimi, kl. 13 föndur og handavinna, kl. 13.30 enska framhald. Félagsstarf aldraðra, Dalbraut 18-20. Á morgun kl. 9 böðun og hárgreiðslustofan opin. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ. Mán. 7. jan. kl. 11.15 og kl. 12.15 leikfimi. Mið. 9. jan. kl. 15 í Kirkjuhvoli kynn- ingardagur á tóm- stundastarfinu á vetr- arönn, skráning í hópa- starf, sem byrjar 14. janúar. Fimmt. 10. jan. félagsvist á Álftanesi, kl. 19.30 Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50. Dagskráin í Hraunseli hefst aftur á morgun mánudag 7. jan. með pútti í Bæjarútgerð kl 10-11.30 og félagsvist kl 13.30. Á þriðjudag verð- ur handavinna og brids kl. 13.30. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Kaffistofan opin virka daga frá kl. 10-13. Kaffi, blöðin og matur í hádegi. Sunnu- dagur 6. janúar dans- leikur Ásgarður Glæsibæ kl. 20. Caprí- tríó leikur fyrir dansi. Mánudagur 7. janúar, brids kl. 13. Dans- kennsla Sigvalda kl. 19 framhald og kl. 20.30 byrjendur. Þriðjudagur 8. janúar. Þorvaldur Lúðvíksson lögfræðing- ur til viðtals á skrif- stofu FEB kl. 10-12, panta þarf tíma. Skák kl. 13. Alkort spilað kl. 13.30. Göngu-Hrólfar fara á miðvikudag í létta göngu frá Hlemmi kl. 9.45. Línudans- kennsla Sigvalda kl. 19.15. Baldvin Tryggva- son verður til viðtals um fjármál og leiðbein- ingar um þau mál á skrifstofu FEB mánu- daginn 14. janúar nk., panta þarf tíma. Silf- urlínan er opin á mánu- dögum og miðvikudög- um frá kl. 10-12. f.h. í síma 588-2111. Skrif- stofa félagsins er flutt að Faxafeni 12 sama símanúmer og áður. Félagsstarfið er áfram í Ásgarði Glæsibæ. Upp- lýsingar á skrifstofu FEB kl. 10-16. í síma 588-2111. Félagsstarfið, Hæðar- garði 31. Opið alla sunnudaga frá kl. 14-16 blöðin og kaffi. Á morg- un kl. 9-16.30 opin vinnustofa, handavinna og föndur, kl. 9-13 hár- greiðsla, kl. 14 fé- lagsvist. Gerðuberg, félagsstarf. Á morgun verða vinnu- stofur opnar, m.a. tréútskurður umsjón Hjálmar Th. Ingimund- arson, frá hádegi spila- salur opinn, kóræfing hjá Gerðubergskórnum kl. 15. Veitingar í veit- ingabúð. Kl. 15.30 al- mennur dans hjá Sig- valda, allir velkomnir. Upplýsingar um starf- semina á staðnum og í síma 575-7720. Gjábakki, Fannborg 8. Á morgun er handa- vinnustofan opin, leið- beinandi á staðnum frá kl. 9, kl. 13 lomber. Hraunbær 105. Á morgun kl. 9 perlu- saumur, postulínsmálun og kortagerð, kl. 10 bænastund, kl. 13 hár- greiðsla. Hvassaleiti 56–58. Á morgun kl. 9 böðun og föndur, kl. 10 boccia, kl. 13 frjáls spilamennska. Kl. 13.30 gönguferð, fótsnyrting. Norðurbrún 1. Á morg- un kl. 10 ganga, kl. 9 fótaaðgerð. Vesturgata 7. Dagskrá hefst sem hér segir: Boccia 7. janúar kl. 10, bútasaumur 8. janúar kl. 9.15, myndlist 9. janúar kl. 9.15, postulín 9. janúar kl. 9.15, sund 9. janúar kl. 8.25, kór- æfing 10. janúar kl. 13. Fimmtudaginn 10. jan- úar verður helgistund. Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson, dóm- kirkjuprestur. Kór fé- lagsstarfs aldraðra und- ir stjórn, Sigurbjargar Petru Hólmgrímsdóttur. Vitatorg. Á morgun kl. 9 smíði og hárgreiðsla, kl. 9.30 bókband, búta- saumur og morgun- stund, kl. 10 fótaaðgerð- ir og sund, kl. 13 handmennt, gler- bræðsla, leikfimi og spilað. Gullsmárabrids. Eldri borgarar spila brids í Gullsmára 13 alla mánu- og fimmtudaga. Skrán- ing kl. 12.45. Spila- mennska hefst kl. 13. Bridsdeild FEBK í Gullsmára. Sjálfsbjörg, félagsheim- ilið Hátúni 12. Á morg- un kl. 19 brids, tví- menningur. Kristniboðsfélag karla. Fundur verður í Kristniboðssalnum, Háaleitisbraut 58-60, mánudagskvöldið 7. jan. kl. 20. Lesnar verða jólakveðjur frá kristni- boðunum. Allir karl- menn velkomnir. Sinawik heldur fund í Súlnasal HótelsSögu þriðjudaginn 8. janúar kl. 20. Ræðumaður Ágústa Andersen hómó- pati. Kristniboðssambandið þiggur með þökkum alls konar notuð frímerki, innlend og útlend, ný og gömul, klippt af með spássíu í kring eða um- slagið í heilu lagi (best þannig). Útlend smá- mynt kemur einnig að notum. Móttaka í húsi KFUM & K, Holtavegi 28, Rvík og hjá Jóni Oddgeiri Guðmunds- syni, Glerárgötu 1, Ak- ureyri. Minningarkort Styrktarfélag krabba- meinssjúkra barna. Minningarkort eru af- greidd í síma 588-7555 og 588-7559 á skrif- stofutíma. Gíró- og kreditkortaþjónusta. Minningarkort, Félags eldri borgara, Selfossi, eru afgreidd á skrifstof- unni Grænumörk 5 mið- vikudaga kl. 13-15. Einnig hjá Guðmundi Geir í Grænumörk 5, sími 482-1134, og versl- unni Íris í Miðgarði. Slysavarnafélagið Landsbjörg, Stangarhyl 1, 110 Reykjavík. S. 570 5900. Fax: 570 5901. Netfang: slysavarna- felagid@landsbjorg.is Minningarkort Rauða kross Íslands eru seld í sölubúðum kvennadeild- ar RRKÍ á sjúkrahús- um og á skrifstofu Reykjavíkurdeildar, Fákafeni 11, s. 568- 8188. Minningarkort Hvíta- bandsins fást í Kirkju- húsinu, Laugavegi 31, s. 562-1581 og hjá Krist- ínu Gísladóttur, s. 551- 7193 og Elínu Snorra- dóttur, s. 561-5622. Minningarkort Sjúkra- liðafélags Íslands eru send frá skrifstofunni, Grensásvegi 16, Reykja- vík. Opið virka daga kl. 9-17. S. 553-9494. Í dag er sunnudagur 6. janúar, 6. dagur ársins 2002. Þrettándinn. Orð dagsins: Óvitur maður sýnir náunga sínum fyrirlitningu, en hygginn maður þegir. (Orðskv. 11, 12.)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.