Morgunblaðið - 12.01.2002, Page 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
14 LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ALLT að 6.000 manns í Kópa-
vogi eru án heimilislæknis að
sögn Höllu Halldórsdóttur
bæjarfulltrúa. Bæjarstjórn
samþykkti á þriðjudag að
beina þeim tilmælum til heil-
brigðis- og tryggingamála-
ráðherra og fjármálaráðherra
að tryggja stofn- og rekstr-
arfé til þriðju heilsugæslu-
stöðvarinnar í Kópavogi á
þessu ári.
Halla, sem situr í stjórn
Heilsugæslu Kópavogs og í
bæjarstjórn fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn, flutti tillöguna
ásamt Birnu Bjarnadóttur
bæjarfulltrúa Kópavogslist-
ans. Segir Halla ástæðu til-
lögunnar vera mikinn heim-
ilislæknaskort í
bæjarfélaginu en lengi hafi
verið stefnt að því að koma
þriðju heilsugæslustöðinni á
legg sem yrði í Salahverfi.
„Við erum að pressa á heil-
brigðisráðuneytið um að það
verði farið í útboð á þessari
heilsugæslustöð og fyrir jól
stóð til að senda út auglýs-
ingu um að óska eftir húsnæði
fyrir hana. Síðan var það
stoppað.“ Halla segir erfitt að
segja nákvæmlega til um
hvað olli þessari stöðvun.
„Mér var sagt að það væri
verið að bíða eftir grænu ljósi
frá fjármálaráðuneytinu enda
verður þetta samstarfsverk-
efni milli þessara tveggja
ráðuneyta.“
Aðeins 11 læknastöður
Heilsugæslustöðvarnar
tvær, sem fyrir eru í Kópa-
vogi, eru í Smáranum og mið-
bænum og segir Halla að á
bæjarstjórnarfundinum hafi
verið rætt um að óska að auki
eftir nýju húsnæði fyrir mið-
bæjarsvæðið þar sem hús-
næði heilsugæslustöðvarinn-
ar þar sé orðið lélegt.
Hún segir brýnasta heim-
ilislæknavandamálið á höfuð-
borgarsvæðinu vera í Kópa-
vogi. „Við erum orðin 24.300 í
dag og við erum ekki með
nema 11 stöður af læknum
þannig að það er ansi lítið.
Það er talað um að allt að
6.000 manns séu án heimilis-
læknis í bænum. Í haust var
rætt um 3.000 manns en þeim
fer stöðugt fjölgandi og sér-
staklega eftir að heilsugæslu-
stöðin í Mjódd sagði upp öll-
um Kópavogsbúum. Því var
það samþykkt hjá okkur um
jólin að við myndum gera það
sama við sjúklinga sem væru
með lögheimili annars staðar
en í Kópavogi.“
Halla reiknar með að þegar
sé búið að segja þessum ein-
staklingum upp en segir ekki
fyrirliggjandi hversu marga
sé um að ræða. „Það er ekki
einu sinni helmingurinn af
þessu. Þetta gætu verið um
2.000 manns.“
Að sögn Höllu hefur lækna-
skorturinn leitt til þess að
fólk hefur sótt annað eftir
læknaþjónustu. „Mér er sagt
að fólk þurfi að bíða í marga
daga og allt upp í tvær vikur
og þá endar með því að það
fer á læknavaktina. Svo gæti
ég trúað því að ágangur á sér-
fræðinga sé farinn að verða
meiri. En læknavaktin á ekki
að þjóna sem heilsugæslustöð
því þar er fólk bæði að borga
mun hærri gjöld en ella og
svo er þjónustan allt öðru-
vísi.“
Sex þúsund án
heimilislæknis
Kópavogur
SVIÐSSTJÓRI skipulags- og
byggingarmála er hinn nýi
titill Salvarar Jónsdóttur sem
fluttist til landsins frá Banda-
ríkjunum fyrir rúmri viku
eftir tólf ára dvöl þar í landi.
Þar menntaði hún sig í skipu-
lagsfræðum eftir nám í
landafræði hér heima og hef-
ur starfað við háskólann í
Wisconsin frá því hún lauk
námi 1997.
Hún segir tengslin við Ís-
land þó aldrei hafa rofnað á
þessu tímabili.
„Þegar við hjónin fórum
utan 1990 til náms vorum við
með tvö ung börn. Mér fannst
því óskapleg mikilvægt, sér-
staklega barnanna vegna, að
halda tengslum við Ísland. Af
þessum sökum kom ég alltaf
heim öll sumur allt til ársins
1997 og vann á Skipulagi rík-
isins en þar hafði ég starfað
frá árinu 1986 áður en ég fór
til Bandaríkjanna. Þetta var
töluvert átak að rífa sig alltaf
upp á hverju sumri en ég er
afskaplega þakklát fyrir það
núna.“
Hið nýja starf Salvarar er
ekki það fyrsta sem hún
gegnir á vegum Reykjavík-
urborgar. „Allan tímann sem
ég var í Háskólanum vann ég
á Árbæjarsafni og meðal ann-
ars að húsakönnunum sem
voru lagðar til grundvallar í
vinnunni hjá Borgarskipu-
lagi. Ég hafði töluverðan
áhuga á þessum málum og
lokaverkefnin mín í BS nám-
inu og framhaldsnáminu
snerust um sögu og þróun
Reykjavíkurborgar. Árið
1986 endaði ég mín störf á
Árbæjarsafni en þá var ég
búin að vinna í þessum húsa-
könnunum og fannst kannski
að hlutirnir gerðust í skipu-
laginu og þar gæti maður
haft meiri áhrif.“
Margt spennandi að
gerast í skipulagsmálum
Það þarf því ekki að koma
á óvart að skipulagsfræðin
hafi orðið fyrir valinu hjá Sal-
vöru þegar hún fór utan til
mennta. 1997 lauk hún námi
og hóf störf við háskólann í
Wisconsin þar sem vinna
hennar var tvískipt. „Annars
vegar hef ég verið í rann-
sóknarstörfum með prófess-
or William Cronon sem kom
hingað til lands í fyrra en
hans aðalrannsóknarefni er
hvernig viðhorf til umhverf-
isins og ekki síst hins byggða
umhverfis mótast. Hins vegar
var ég með lektorsstöðu.
Reyndar er það svolítið vill-
andi af því að ég var ekki að
kenna heldur var ég hjá
þeirri stofnun háskólans sem
á að vera tengiliður háskól-
ans við fólkið í landinu. Há-
skólinn leggur þannig til fólk
sem sveitarstjórnarmenn og
borgarar hafa beinan aðgang
að.“
Segir Salvör það hafa verið
ákaflega gefandi að vera
þannig í nánum tengslum við
það sem raunverulega var að
gerast í samfélaginu utan við
háskólann.
Hún segir það því hafa ver-
ið talsvert erfiða ákvörðun að
yfirgefa þetta starf og vini í
Wisconsin og koma heim. „En
það er margt mjög spennandi
að gerast í skipulagsmálum
hér heima um þessar mundir
og Reykjavíkurborg er ört
vaxandi borg. Þess vegna
kveikti þetta starf óneit-
anlega í mér og á sama tíma
var það spennandi út frá per-
sónulegu sjónarmiði að fá
tækifæri til að flytja heim.“
Tökumst á um skipulags-
mál með orðum
En hvaða mál eru það sem
brenna heitast á nýjum yf-
irmanni skipulagsmála í
Reykjavík?
„Mér finnst þátttaka al-
mennings í skipulagi mjög
mikilvæg enda hef ég unnið
töluvert við það. Þessi þátt-
taka verður aldrei nema fólk
hafi upplýsingar um skipu-
lagsmál og það verður að
þekkja ákvörðunarferilinn.
Þess vegna verður hann að
vera opinn og fólki verður að
vera ljóst hvað liggur að baki
hinum og þessum landnotk-
unarákvörðunum. Land-
notkun er alltaf pólitísk og
hún er það úti um allan heim.
Við þekkjum að fólk er í
stríði út af landskikum en
sem betur fer erum við ekki
að berjast hér þó að við tök-
umst á um skipulagsmálin
með orðum. Einmitt þess
vegna er mikilvægt að fólki
sé ljóst hvað það er sem leiðir
til þeirra ákvarðana sem
teknar eru í skipulags-
málum.“
Hún segir samstarf sveitar-
félaganna ekki síður mik-
ilvægt. „Sveitarfélagamörk
eru einungis lína á blaði og
við förum yfir þau daglega
þannig að það er gífurlega
mikilvægt að við vinnum vel
saman. Svæðisskipulag höf-
uðborgarsvæðisins er stórt
skref í þá átt,“ segir hún og
bætir því við að síðasta tæki-
færi til að gera athugasemdir
við það skipulag sé á mánu-
dag.
„Ef það væri eitthvert
gæluverkefni sem ég ætti að
nefna þá er mér afskaplega
hjartfólgið samstarf mennta-
stofnana og sveitarfélaga.
Það helgast að sjálfsögðu af
því að ég kem úr þannig um-
hverfi. Þannig að ég horfi til
þess að hafa gott samstarf við
Háskólann og mennta-
yfirvöld.“
Sameiginleg afgreiðsla
í bígerð
Salvör segir að búast megi
við ákveðnum breytingum
með sameiningunni. „Við
vonumst að minnsta kosti til
þess að geta sett upp sameig-
inlega afgreiðslu þannig að
það mun koma að því að það
verði breytingar á því og von-
andi hagræðing. Hins vegar
verðum við að leggja áherslu
á að við erum fyrst og fremst
að þjóna borgurunum.“
Reykjavík Opinn ákvörðunar-
ferill mikilvægur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nýráðinn sviðsstjóri skipulags- og byggingamála
í Reykjavík, Salvör Jónsdóttir.
Þátttaka almennings í skipulags-
málum, samstarf sveitarfélaga og
tengsl við menntastofnanir er meðal
þess sem brennur á Salvöru Jóns-
dóttur, nýjum yfirmanni skipulags-
mála í Reykjavík. Hún tók við starf-
inu eftir að embætti skipulagsmála
og byggingafulltrúa voru sameinuð.
MEÐ breytingunum var embætti skipulagsstjóra Reykja-
víkur lagt niður og í hans stað kemur skipulagsfulltrúi sem
er jafnhliða byggingafulltrúa í nýja skipuritinu. Sameig-
inlega yfir þessu er svo hið nýja embætti Salvarar. Dag-
legur rekstur, fjármál og umsýsla verður áfram í höndum
skrifstofustjóra en auk þess kemur inn nýtt embætti,
borgararkitekt, sem fyrrverandi skipulagsstjóri, Þorvald-
ur S. Þorvaldsson, hefur verið skipaður í.
Ekki er búið að ráða í störf skipulagsfulltrúa og skrif-
stofustjóra en byggingafulltrúi er eftir sem áður Magnús
Sædal.
Nýtt skipurit
BÆJARSTJÓRN Garðabæj-
ar hefur samþykkt samhljóða
að beina því til dómsmálaráð-
herra að Garðabær verði sér-
stakt lögregluumdæmi. Hefur
innbrotum í bænum fjölgað úr
22 árið 1997 í 91 árið 2001.
Í greinargerð með tillög-
unni, sem fulltrúar meirihlut-
ans í bæjarstjórn lögðu fram,
segir að Garðabær virðist vera
eina sveitarfélagið af sambæri-
legri stærð sem ekki njóti
slíkrar stöðu. Íbúar bæjarins
séu nú um 8.500 og fari fjölg-
andi.
Lögregluumdæmið í Hafn-
arfirði þjónar Garðbæingum
og er með sérstaka lögreglu-
varðstofu í bænum. Þrátt fyrir
það hefur innbrotum og
skemmdarverkum stöðugt
fjölgað undanfarin ár í bæjar-
félaginu. Árið 1997 voru inn-
brot 22 talsins, árið 1998 voru
þau 51, árið 1999 voru þau 64,
árið 2000 voru þau 61 og í fyrra
voru innbrot 91 talsins. Hið
sama hefur verið að gerast í
Hafnarfirði þar sem aukningin
er úr 88 innbrotum árið 1997 í
207 árið 2001. „Hér er um um-
talsverða aukningu að ræða
sem ógnar öryggi íbúanna í
bæjarfélaginu og sporna verð-
ur við,“ segir í greinargerðinni.
Óskað eftir lögreglu-
vakt um helgar
Í tillögunni sem samþykkt
var eru lagðar fram þrjár leiðir
til að takast á við vandann.
„Mestu máli skiptir að dóms-
málaráðherra geri Garðabæ að
sjálfstæðu lögregluumdæmi
sem hefur skýra ábyrgð gagn-
vart bæjarbúum,“ segir í
greinargerðinni. Þá hvetur
bæjarstjórnin sýslumanns-
embættið í Hafnarfirði til að
taka þegar í stað upp helgar-
vakt á lögregluvarðstofunni í
Garðabæ en sem stendur er
einungis vakt á virkum dögum.
Loks er í samþykktinni ósk-
að eftir samstarfi við lögregl-
una til að vekja athygli íbúa
sveitarfélagsins á mikilvægi
nágrannavakta. Segir í grein-
argerðinni að með því yrði at-
hygli íbúanna vakin á hvaða
áhrif þeir sjálfir geta haft til að
draga úr innbrotum. Fælist
nágrannavaktin í því að bæj-
arbúar fylgdust vel með
mannaferðum við næstu hús í
fjarveru íbúanna en áður hefur
verið farið í slík átaksverkefni í
bænum, meðal annars í sam-
vinnu við Skátafélagið Vífil.
Bærinn verði sérstakt
lögregluumdæmi
Garðabær
Morgunblaðið/Ásdís
Bæjarstjórn vill að vakt verði á lögregluvarðstofunni í Garðabæ um helgar.