Morgunblaðið - 12.01.2002, Blaðsíða 20
SUÐURNES
20 LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
UMFERÐARSLYS varð á Brekku-
stíg í Njarðvík um klukkan hálfátta í
gærmorgun.
Bifreið var ekið út af bifreiðastæði
í veg fyrir bifreið sem ekið var suður
Brekkustíg. Áreksturinn var all-
harður. Önnur bifreiðin lenti eftir
áreksturinn á þrem kyrrstæðum bif-
reiðum. Annar ökumaðurinn fékk
höfuðhögg þegar hann skall í fram-
rúðuna, en meiðsli hans voru ekki
talin alvarleg.
Slys á
Brekkustíg
Njarðvík
ÁKVEÐIÐ hefur verið formlega að
Árni Sigfússon, fyrrverandi borg-
arfulltrúi og borgarstjóri í Reykja-
vík, skipi efsta sæti lista sjálfstæð-
ismanna fyrir næstu
bæjarstjórnarkosningar í Reykja-
nesbæ og verði bæjarstjóraefni
sjálfstæðismanna. Jafnframt hefur
verið ákveðið að viðhafa uppstill-
ingu í önnur sæti listans.
Var tillaga um þetta samþykkt
einróma á fundi Fulltrúaráðs sjálf-
stæðisfélaganna í Reykjanesbæ í
fyrrakvöld. Nær 100 manns sátu
fundinn og var hann einn sá fjöl-
mennasti sem haldinn hefur verið
hjá fulltrúaráðinu í Reykjanesbæ,
að því er fram kemur í fréttatil-
kynningu frá ráðinu.
Kosin var uppstillingarnefnd sem
fær það hlutverk að leggja tillögur
um skipan framboðslistans fyrir
fulltrúaráðið 3. mars næstkomandi.
Tveir helstu forystumenn Sjálf-
stæðisflokksins í bæjarmálum í
Reykjanesbæ, Ellert Eiríksson
bæjarstjóri og Jónína Sanders, for-
maður bæjarráðs, hafa lýst því yfir
að þau muni hætta í vor. Björk
Guðjónsdóttir bæjarfulltrúi gefur
heldur ekki kost á sér og staðfesti
hún það við Morgunblaðið í gær.
Á fundi fulltrúaráðsins í fyrra-
kvöld kom fram að bæjarfulltrúarn-
ir Þorsteinn Erlingsson og Böðvar
Jónsson munu gefa kost á sér
áfram og að Steinþór Jónsson,
fyrsti varafulltrúi, mun einnig gefa
kost á sér til bæjarfulltrúastarfa.
Uppstilling
viðhöfð um
önnur sæti
Reykjanesbær
Árni Sigfússon verður
efstur á framboðslista
sjálfstæðismanna
FRÆÐSLUFUNDUR um vist-
vernd í verki verður haldinn í fund-
arsal Reykjanesbæjar í Kjarna,
Hafnargötu 57 í Keflavík næstkom-
andi mánudag kl. 17.30.
Reykjanesbær hefur unnið að um-
hverfisverkefninu Staðardagskrá 21
og hefur tekið upp samstarf við sam-
tökin Vistvernd í verki. Sigurborg
Hannesdóttir frá Landvernd mætir
á fundinn og leiðir áhugasamar fjöl-
skyldur af stað í verkefninu.
Fræðsla um vist-
vernd í verki
Reykjanesbær
MIKIÐ hefur verið að gera hjá poll-
unum á hafnarbakkanum í Sand-
gerði að undanförnu. Smábátarnir
komast ekki út vegna brælu og
mörg stærri skipin hafa einnig leg-
ið bundin við bryggju. Einungis
stærstu skipin hafa komist á veiðar.
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Annir hjá
pollunum
Sandgerði
LAGÐAR verða gangstéttir í mið-
kjarna Garðs á þessu ári, samtals
hálfur annar til tveir kílómetrar að
lengd. Þá verða þrjár götur mal-
bikaðar.
Drög verkfræðinga að fimm ára
áætlun um malbikun og klæðingu
gatna í Gerðahreppi og lagningu
gangstétta var lögð fyrir fund
hreppsnefndar í vikunni þar sem
fjárhagsáætlun þessa árs var til
lokaafgreiðslu. Fram kemur í
áætlun Verkfræðistofu Suðurnesja
að heildarkostnaður er áætlaður
160–180 milljónir.
„Allir hafa leyfi
til að vitkast“
Hreppsnefndin samþykkti að
fela Verkfræðistofu Suðurnesja að
gera útboðsgögn og í framhaldi af
því mun hreppsnefnd forgangs-
raða verkum. Hugmyndin er sú að
bjóða verkið út í heild á næstunni
og að leita eftir því að verktaki
fjármagni það til tíu ára.
Jafnframt var ákveðið að gera
ráð fyrir því að á þessu ári verði
gatan Fríholt malbikuð svo og
vegir að Fiskverkun HP og að
Minjasafni Slysavarnafélagsins
Landsbjargar. Aðaláherslan verði
þó lögð á að leggja gangstéttir í
miðkjarna sveitarfélagsins.
Í fjárhagsáætlun er gert ráð fyr-
ir rúmum 23 milljónum í gatna-
gerðarverkefnið. Samkvæmt upp-
lýsingum Sigurðar Jónssonar
sveitarstjóra er búist við að þeir
fjármunir dugi til að leggja 1,5 til
2 kílómetra af gangstéttum, auk
malbikunar umræddra gatna.
Aðgerðir í fráveitu-
málum undirbúnar
Í bókun H-lista sjálfstæðis-
manna og annarra frjálslyndra við
lokaafgreiðslu fjárhagsáætlunar
var meðal annars vakin athygli á
því að þrátt fyrir að Gerðahreppur
fengi á árinu 35 milljónir króna frá
Hitaveitu Suðurnesja þyrfti samt
sem áður að taka 30 milljóna
króna lán til þess að geta fram-
kvæmt þau verkefni sem íbúarnir
flokkuðu undir mannsæmandi að-
búnað, svo sem gatna- og gang-
stéttagerð. „Sérstaklega er
ánægjulegt að sjá komnar inn í
áætlunina tillögur okkar H-lista-
fólks frá í haust um gangstétta-
framkvæmdir, sem þá voru felldar
í hreppsnefnd. Allir hafa leyfi til
að vitkast.“
Að tillögu meirihluta hrepps-
nefndar var ákveðið að leggja 500
þúsund kr. til að gera skýrslu
vegna fráveitumála. Hins vegar
felldi meirihlutinn tillögu H-listans
um að leggja 1,5 milljón til áætl-
anagerðar um kostnað fráveitu-
mannvirkja. Fram kom í tillögu H-
listans að aðgerðir í fráveitumálum
muni kosta Gerðahrepp hundruð
milljóna og ekki sé gert ráð fyrir
nægu fjármagni til undirbúnings í
fjárhagsáætluninni.
Fjárhagsáætlunin var með
áorðnum breytingum samþykkt
með fjórum atkvæðum meirihlut-
ans en þrír fulltrúar minnihlutans
sátu hjá. Á fundinum kom fram
hjá fulltrúum H-listans að skuldir
Gerðahrepps væru komnar yfir
300 milljónir, fyrir utan verulegar
ábyrgðir, svo sem vegna Hafna-
samlags Suðurnesja. „Ljóst er að
reglulegar tekjur Gerðahrepps
nægja ekki til eðlilegs viðgangs í
sveitarfélaginu og verður því nýtt
fjármagn að koma til, svo sem frá
Hitaveitu Suðurnesja og þá meðan
það endist,“ segir ennfremur í
bókun listans.
Fimm ára áætlun um gatna- og gangstéttagerð í Gerðahreppi
Leggja 1,5 til 2 km
af gangstéttum í ár
Garður
SAMNINGUR um þátttöku Trygg-
ingastofnunar í meðferð húð-
sjúkdóma á göngudeildinni við Bláa
lónið hefur verið endurnýjaður.
Samningur var undirritaður í gær
af Karli Steinari Guðnasyni, for-
stjóra Tryggingastofnunar ríkisins,
og Grími Sæmundsen, stjórnarfor-
manni Bláa lónsins hf., að við-
stöddum Jóni Kristjánssyni heil-
brigðis- og tryggingaráðherra sem í
gær kynnti sér starfsemina.
Göngudeildin við Bláa lónið hóf
starfsemi sína árið 1994 og hlaut
deildin formlega viðurkenningu
heilbrigðisyfirvalda þremur árum
síðar. Þar fá psoriasis- og ex-
emsjúklingar meðferð við sjúkdóm-
um sínum. Deildinni hefur vaxið
fiskur um hrygg og auk innlendra
meðferðargesta sækja erlendir
gestir einnig meðferðina. Tæplega
30.000 meðferðir hafa verið veittar
innlendum sjúklingum og rúmlega
5.000 meðferðir erlendum meðferð-
argestum frá því deildin hóf starf-
semi sína.
Fjöldi veittra meðferða eykst ár
frá ári og nú eru um 5.000 Íslend-
ingar meðhöndlaðir þar og um
1.000 erlendir sjúklingar.Samning-
urinn sem undirritaður var í gær er
að mestu endurnýjun á fyrri samn-
ingi. Þó er með honum viðurkennd
hækkun á þjónustugjöldum fyrir
meðferð, að sögn Gríms Sæmund-
sen. Hann segir ánægjulegt að
Tryggingastofnun ætli að styðja
áfram við meðferðarþjónustu við
Bláa lónið.
Jón Kristjánsson heilbrigðis- og
tryggingaráðherra kynnti sér starf-
semina í gær. Grímur segir að deild-
in sé í bráðabirgðahúsnæði og kom-
inn tími til að byggja upp varanlega
aðstöðu. Ráðherra voru kynnt
áform um uppbyggingu starfsem-
innar og óskir Bláa lónsins um sam-
starf við heilbrigðisyfirvöld um það.
Morgunblaðið/Sverrir
F.v. Eðvarð Júlíusson, stjórnarformaður Bláa lónsins, Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingaráðherra,
Karl Steinar Guðnason, forstjóri Tryggingastofnunar, Grímur Sæmundsen, framkvæmdastjóri Bláa lónsins.
Endurnýjaður samningur um þátttöku ríkisins í meðferð
Ráðherra kynnt áform
um uppbyggingu
Bláa lónið
VARNARLIÐIÐ á Keflavíkurflug-
velli gerir ekki athugasemdir við
lagningu vegar fyrir Ósabotna við
Hafnir en vegurinn liggur um varn-
arsvæði. Kemur þetta fram í svari
varnarmálaskrifstofu utanríkisráðu-
neytisins við erindi Sandgerðisbæj-
ar.
Á undanförnum árum hefur verið
vaxandi áhugi á því á Suðurnesjum,
ekki síst hjá ferðaþjónustufólki, að
fá vegtengingu fyrir Ósabotna.
Vegur þar tengir Stafnes við
Hafnaveg en nú þegar liggur vegur
frá Sandgerði og út á Stafnes. Með
Ósabotnavegi myndast ný hringleið
á Reykjanesi þar sem eru merkir
staðir, eins og til dæmis Básar og
Hvalsneskirkja.
Ströndin milli Stafness og Hafna
er á varnarsvæði og þar var varn-
arliðið með starfsemi. Henni hefur
verið hætt og flestöll mannvirki
fjarlægð. Þá verða nýir öskuhaugar
Suðurnesjamanna og varnarliðsins
á Stafnesi. Það kallar á ákveðna
vegagerð auk þess sem urðunar-
svæðið verður leyst undan böndum
sem varnarsvæði.
Reist verði öryggisgirðing
Bæjarstjórn Sandgerðis óskaði
nýlega formlega eftir því að fá leyfi
til að leggja veg fyrir Ósabotna og
mun varnarliðið ekki gera athuga-
semdir við það að því skilyrði upp-
fylltu að öryggisgirðing verði reist
því að kostnaðarlausu.
Samband sveitarfélaga á Suður-
nesjum hefur óskað eftir því að
vegur um Ósabotna verði tekinn á
vegaáætlun. Guðjón Guðmundsson
framkvæmdastjóri segir að vegur
að nýja urðunarstaðnum þurfi að
koma fyrir árið 2003. Vegtengingin
um Ósabotna er hins vegar ekki
komin inn á áætlun.
Bæjarstjórn Sandgerðis hefur
falið bæjarstjóra að kynna málið
fyrir Vegagerðinni. Hún leggur
áherslu á að vegir á varnarsvæðinu
verði nýttir, þar sem hægt er að
koma því við, og að tekið verði tillit
til fornminja, gönguleiða og merki-
legra grjótgarða á svæðinu við
hönnun vegarins.
Ósabotna-
vegur sam-
þykktur
Sandgerði
Varnarliðið
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦