Morgunblaðið - 12.01.2002, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 12.01.2002, Qupperneq 34
LISTIR 34 LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ G reint var frá því á síð- um þessa blaðs í vik- unni að ráðherra- skipuð nefnd um aukinn hlut kvenna í stjórnmálum hefði beint þeim til- mælum til allra stjórnmálaafla á Íslandi, sem hyggjast bjóða fram lista í sveitarstjórnarkosning- unum í vor, að fyrsta og annað sætið verði skipað af karli og konu. Í bréfi nefndarinnar til stjórna stjórnmálaflokkanna segir meðal annars að nú sé hlutur kvenna í sveitarstjórnum aðeins 28,2% og að það sé í þágu jafnréttis og lýð- ræðis að hlutfall kynjanna verði jafnara, enda hafi karlar og kon- ur að mörgu leyti ólíkan bak- grunn, upp- eldi og reynslu. Hér skal því alls ekki mótmælt að ákjósanlegt sé að konum fjölgi í sveitarstjórnum – og raunar einnig á Alþingi. Hins vegar má draga í efa að mark- miðinu um jafnari hlut kynjanna verði best náð með því að flokk- arnir taki ákvörðun um að raða körlum og konum til skiptis í sæti á framboðslistum sínum. Slíkt fyrirkomulag hefur verið kallað fléttulisti, það er að segja að veljist kona í fyrsta sæti verði karl í öðru og svo framvegis. Sömuleiðis skipi kona annað sæti ef karl er í því fyrsta. Samfylkingin er eini stjórn- málaflokkurinn sem hefur form- lega hvatt til fléttulista, en lands- fundur flokksins sl. haust beindi þeirri áskorun til kjördæmisráða og flokksfélaga að við skipan framboðslista við næstu alþing- iskosningar yrði sú aðferð notuð. Í viðtölum við frammámenn innan flokksins kemur þó fram að skoðanir eru skiptar um ágæti þessa fyrirkomulags. Fram- kvæmdastjóri flokksins, Björg- vin G. Sigurðsson, bendir t.d. á að framkvæmdin geti orðið snú- in, ekki síst þegar nokkrir flokk- ar standa saman að framboði eins og víða hefur tíðkast í sveit- arstjórnarkosningum. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, al- þingismaður Samfylkingarinnar, varð ennfremur til að gagnrýna það á landsfundinum að þessi til- laga kæmi fram nú, þegar konur hefðu loksins náð jöfnum hlut innan þingflokksins. Fléttulistarnir byggjast á hug- myndinni um jákvæða mis- munun, það er að segja að bæta eigi stöðu minnihlutahópa með því að velja fulltrúa þeirra í vinnu eða til ábyrgðarstarfa umfram fulltrúa þess hóps sem ráðandi er á viðkomandi sviði, ef báðir eru jafnhæfir. Undirrituð hefur að vissu marki skilning á þessu sjón- armiði, að því gefnu að skilyrðinu um jafnt hæfi sé fylgt, enda er þá strangt til tekið ekki um mis- munun að ræða. Það er svo sem ekkert undarlegt að einhverjum hafi þótt fýsilegt að reyna þessa aðferð til að ryðja konum og öðr- um minnihlutahópum braut þar sem fyrirstaðan var mikil, til dæmis með því að beita kynja- kvótum í stjórnmálum. En meinbaugirnir á þessari reglu eru þó gríðarlegir og taka ávinningnum af henni langt fram. Fyrir það fyrsta má telja gagn- rýnisatriðin sem fyrr voru nefnd. Framkvæmdin getur reynst erfið og ýmis vafamál geta komið upp, auk þess sem flest bendir til að þetta fyrirkomulag sé einfaldlega tímaskekkja, að minnsta kosti í íslensku samfélagi. Ennþá veiga- meiri mótrök eru þó að prinsipp- ið á bak við jákvæða mismunun – og birtingarmyndir hennar eins og kynjakvóta á framboðslistum – byggist á aðgreiningu manna eftir ytri einkennum á borð við kynferði og litarhátt. Ein- staklingurinn og verðleikar hans eru ekki lengur í fyrirrúmi og hætta er á að misrétti viðhaldist í breyttri mynd, í stað þess að því verði eytt. Eða er eitthvað skárra að hvítur karlmaður líði fyrir kynferði sitt og litarhátt en svört kona? Þar fyrir utan er umdeilanlegt að jákvæð mismunun komi virki- lega þeim hópum til góða sem hún á að þjóna. Jafnvel má færa rök fyrir því að hún geti skerpt enn frekar línurnar á milli kynja, þjóðernis- og trúarhópa, þar eð hún byggist á aðgreiningu þeirra. Með jákvæðri mismunun við mannaráðningar og kynjakvót- um í stjórnmálum og stjórnsýslu er raunverulega verið að gefa konum (og öðrum minni- hlutahópum) þau skilaboð að þær geti ekki komist til metorða á eigin verðleikum, heldur þurfi til þess sérstaka aðstoð. Það eru svo sannarlega ekki skilaboðin sem ungar stúlkur þurfa á að halda! Það er jafnframt óþolandi fyrir konur í ábyrgðarstöðum að þurfa að sitja undir dylgjum um að þær hafi einungis komist þangað í krafti sérstakra ívilnana gagn- vart „veikara kyninu“. En slík viðhorf eru því miður ansi út- breidd og eru síst til þess fallin að bæta stöðu kvenna. Eins má nefna að „smá- skammtalækningar“ á borð við jákvæða mismunun eru hættu- legar að því leyti að þær skapa falskt öryggi. Með tímanum geta þær ef til vill komið því til leiðar að hlutfall kynjanna jafnist til dæmis í sveitarstjórnum og á Al- þingi, en þær ráðast ekki að rót- um vandans. Nær væri að graf- ast fyrir um orsakir þess að konur eru tregari til að gefa kost á sér til stjórnmálastarfa og hljóta síður brautargengi í próf- kjörum, og beina kröftunum síð- an að því að hrinda þeim hindr- unum úr vegi. Sú sem þetta skrifar telur því að hugmyndir um fléttulista í kosningum séu skref afturábak en ekki áfram. Forystumönnum stjórnmálaflokkanna verður að treysta til að átta sig á mikilvægi þess að jafnrétti ríki í reynd og tryggja að konur innan vébanda þeirra verði metnar að verð- leikum. Og ef þeir bregðast er það í valdi okkar borgaranna að veita þeim ráðningu í kjörklef- anum. Konur eru nú einu sinni helmingur kjósenda! Skref aft- ur á bak Með jákvæðri mismunun við manna- ráðningar og kynjakvótum í stjórn- málum er raunverulega verið að gefa konum þau skilaboð að þær geti ekki komist til metorða á eigin verðleikum. VIÐHORF Eftir Aðalheiði Ingu Þorsteins- dóttur aith@mbl.is VEFURINN Sagnaarfur Evrópu – europeoftales.net – var opnaður í Norræna húsinu af Haraldi Guð- bergssyni við athöfn á fimmtudag. Vefurinn er samstarfsverkefni Frakklands, Finnlands, Íslands, Ítalíu og Skotlands um miðlun þjóð- sagna á margmiðlunarformi. Norræna húsið hafði umsjón með íslenska hluta vefsins og verkefn- isstjóri var Jón Karl Helgason. Uppistaða íslenska hluta vefsins er kynning á Þrymskviðu með teikningum eftir Harald Guðbergs- son og Bjarna Hinriksson. Evrópuverkefnið Menning 2000 styrkir verkefnið en alls koma að því stofnanir frá fimm Evr- ópulöndum undir forystu finnska Gallen – Kallela-safnsins en sam- starfsaðilar Norræna hússins hér á landi eru Þjóðminjasafn Íslands og Menntamálaráðuneytið. Sagna- arfurinn á Netinu Jón Karl Helgason kynnir vef- inn Sagnaarfur Evrópu. Morgunblaðið/Árni Sæberg LJÓSMYNDASÝNINGIN Eyðibýli eftir Orra Jónsson verður opnuð í Galleríi Skugga í dag, laugardag, kl. 16. Verkin vann Orri á árunum 1999 til 2001, og er um að ræða litmyndir teknar inni í eyðibýlum á ólíkum stöðum á landinu. Í myndum Orra er fönguð fegurð hins hnignandi og gleymda, en einn- ig fortíðar og sögu yfirgefinna sveitabýla á fáförnum stöðum. Myndefnið sem birtist m.a. í flagn- andi veggjum, eldhússkápum með fuglshreiðrum, og leifum fornrar málningar á þiljuðum veggjum, verður ljósmyndaranum viðfangs- efni ríkrar fagurfræðilegrar miðlun- ar.Orri Jónsson hefur haldið þrjár einkasýningar og tekið þátt í fjöl- mörgum samstarfsverkefnum. Menningarborgarsjóður styrkti eyðibýlaverkefni Orra árið 2001. Bókverk á veggjum Klefans Í klefa Gallerís Skugga sýnir Ragna Hermannsdóttir myndlistar- maður bókverkin Vofur, Gular rósir og Lífsháski. Þar gefur að líta þrjár bækur með tölvuunnum myndum og textum, sem límdar eru beint á veggi Klefans. Ragna hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýn- ingum, bæði hér heima og erlendis. Sýningarnar standa til 3. febrúar. Gallerí Skuggi er opið frá kl. 13-17 alla daga nema mánudaga. Ein ljósmynda Orra Jónssonar. Fegurð hins hnignandi fönguð í ljósmynd DANSKA leikskáldið Line Knut- zon (f. 1964) hefur á undanförnum áratug fest sig í sessi sem eitt vin- sælasta samtímaleikskáld Danmerk- ur og hafa verk hennar verið þýdd og leikin á Norðurlöndunum sem og víðar í Evrópu. Hennar fyrsta verk, Splinten i hjertet (Fleinninn í hjart- anu), var frumsýnt í Danmörku 1991 og síðar sýnt í sjónvarpi. Sviðsverk hennar eru orðin fimm talsins en að auki hefur hún skrifað leikrit fyrir útvarp. Verk hennar eru margverð- launuð í heimalandinu. Fyrsta leik- verk sitt skrifaði Line Knutzon í leik- smiðju styrktri af dönskum leikhúsum og má það vera til marks um þann góða árangur sem slík starfsemi getur gefið af sér og ís- lenskum leikhúsum til eftirbreytni. Í leikskránni sem LR gefur út, og hefur m.a. að geyma allan leiktext- ann bæði á frummáli og í íslenskri þýðingu, segir að Line hafi vakið at- hygli fyrir dásamlega súrrealískan húmor og víst er að það á við um það verk sem var frumsýnt og húmorinn skilar sér vel í fínni þýðingu Þórarins Eldjárns. Fyrst er nú að fæðast seg- ir frá sex persónum sem allar búa í sama fjölbýlishúsinu og tengjast í rás verksins á ýmsan máta. Persón- urnar eiga það allar sameiginlegt að vera að leita að hamingjunni og Line Knutzon hefur sagt að aðalþema verka sinna sé „að gera fólk ham- ingjusamt“. Enda lýkur leikritinu á því að þrjú pör hafa náð saman og gleðin skín af hverju andliti. Að því leyti er verkið skemmtileg tilbreyt- ing frá öllum þeim leikritum eftir unga höfunda sem komið hafa fram á undanförnum árum í vestrænum leikhúsheimi og eru kennd við „blauta tusku í andlitið“ (in your face-leikrit). Benedikt Erlingsson leikstjóri velur sýningunni stíl farsa og fárán- leika, ýkir og skerpir alla drætti per- sónanna, sem hæfir verkinu vel, enda persónurnar flestar „á mörk- unum“ hvað varðar skapgerð og háttalag. Benedikt er með góðan hóp gamanleikara í öllum hlutverkum og áttu allir leikararnir frábæra spretti og oft á tíðum kostulegan samleik. Sigrún Edda Björnsdóttir og Harpa Arnardóttir voru stórkostlegar sem systurnar Sissa og Pissa og gervi þeirra oft á tíðum óborganlega fynd- in. Sama má segja um Þór Tulinius í hlutverki hins þjáða Viktors; hann var frábær jafnt í mígreniköstunum sem í sínum súrrealísku einræðum. Gunnar Hansson náði vel að túlka ráðvillta töffarann Axel og Halldór Gylfason var hæfilega tempraður í hlutverki hins trausta en grátgjarna Volgeirs. Sóley Elíasdóttir lék Dúllu af hæfilegu ráðleysi en þarf að fara að taka raddbeitingu sína til endur- skoðunar. Kannski má þó segja að hér hafi hávært sífrið hæft ágætlega. Aðalkostur þessarar bráð- skemmtilegu sýningar var þó góður samleikur leikhópsins og hversu vel hópnum tekst að miðla húmor text- ans. Það var líka frábært að sjá hvað hægt er að gera skemmtilegt leikhús með einföldum sviðsbúnaði og lítilli umgjörð. Leikmynd Stígs Steinþórs- sonar var mjög snjöll í einfaldleika sínum og lýsing Kára Gíslasonar var ætíð hugvitssamleg og setti skemmtilegan blæ á sýninguna. Tón- listina valdi leikhópurinn sjálfur og jók hún á allan hátt á áhrifamátt verksins, ekki síst rúsínan í pylsu- endanum. Jakob Tryggvason sá um hljóð af miklu öryggi. Allir ættu að geta skemmt sér vel á þessari sýningu, sem er reglulegur gleðigjafi í hinu sívíkjandi skamm- degi og bregst ekki þeim vonum sem bundnar eru við nýbreytni á Nýju sviði Borgarleikhússins. Danskur gleðigjafi LEIKLIST Leikfélag Reykjavíkur Höfundur: Line Knutzon. Íslensk þýðing: Þórarinn Eldjárn. Leikstjóri: Benedikt Erl- ingsson. Leikarar: Gunnar Hansson, Hall- dór Gylfason, Harpa Arnardóttir, Sigrún Edda Björnsdóttir, Sóley Elíasdóttir og Þór Tulinius. Leikmynd og búningar: Stíg- ur Steinþórsson. Lýsing: Kári Gíslason. Hljóð: Jakob Tryggvason. Nýja sviðið Borgarleikhúsinu, 11. janúar. FYRST ER AÐ FÆÐAST Morgunblaðið/Þorkell „Allir ættu að geta skemmt sér,“ segir í leikdómi. Soffía Auður Birgisdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.