Morgunblaðið - 02.02.2002, Blaðsíða 1
27. TBL. 90. ÁRG. LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 2. FEBRÚAR 2002
EFTIR tveggja daga átök í Paktía-
héraði í Afganistan datt allt í dúna-
logn í gær þegar hermenn stríðs-
herrans Padsha Khans fengu
skyndilega nóg af bardögum vegna
hungurs, þreytu og kulda. Þegar
snjónum tók að kyngja niður á víg-
vellinum biðu þeir ekki boðanna og
héldu heim til að komast í hlýjuna.
Nokkrir hermanna Khans voru
teknir til fanga og norpa hér í garði
lögreglustöðvar í bænum Gardez.
AP
Kuldaboli stillti til friðar
GEORGE W. Bush Bandaríkjafor-
seti ítrekaði í gær fullyrðingar sínar
um að Norður-Kóreumenn, Íranar
og Írakar væru að reyna að koma
sér upp gereyðingarvopnum. Varaði
Bush við því að Bandaríkjamenn
myndu fylgjast grannt með tilraun-
um þeirra í þá veru og sagði að „öll-
um möguleikum yrði haldið opnum“
varðandi það hvernig verja mætti
bandarísku þjóðina og bandamenn
hennar fyrir árásum af hálfu
ríkjanna þriggja.
Forsetinn gaf ennfremur til
kynna að Bandaríkjastjórn myndi
hugsanlega grípa til aðgerða áður
en langt um liði. „Við förum hyggi-
legar og varfærnar leiðir að mark-
miði okkar, en reynum að ná því.
Tíminn vinnur gegn okkur meðan
þessar þjóðir þróa fullkomin vopn,“
sagði Bush.
Stjórnvöld í Norður-Kóreu tóku í
gær undir gagnrýni Írana og Íraka
á Bush, sem kallaði ríkin þrjú „öxul
hins illa“ í stefnuræðu sinni á þriðju-
dag.
Í yfirlýsingu frá norður-kóreska
utanríkisráðuneytinu segir að um-
mæli Bush jafnist nánast á við
„stríðsyfirlýsingu“ og að Norður-
Kóreumenn séu tilbúnir að berjast.
Segir þar ennfremur að hryðjuverk-
in í Bandaríkjunum 11. september
og hneykslismál á borð við gjaldþrot
Enron-orkufyrirtækisins megi „al-
gjörlega skrifa á reikning einhliða
og hrokafullrar utanríkisstefnu,
pólitísks vanþroska og siðferðilegr-
ar holdsveiki Bush-stjórnarinnar“.
Ræða um „öxul hins illa“ gagnrýnd
Bush áréttar
viðvaranir
Seoul, Washington. AFP.
Geta ekki vænst/20
FORSETI herráðs Ísraels, Shaul
Mofaz, sagði í gær að varaliðsmenn
kynnu að verða reknir ef þeir
óhlýðnuðust fyrirmælum um að
taka þátt í aðgerðum hersins á
svæðum Palestínumanna. Hópur
varaliðsmanna, sem hefur neitað að
taka þátt í aðgerðunum, fékk á hinn
bóginn óvæntan stuðning fyrrver-
andi yfirmanns ísraelsku leyniþjón-
ustunnar Shin Beth. Hann sagði að
aðgerðirnar væru ólöglegar og her-
menn varaliðsins hefðu því rétt til
að óhlýðnast fyrirmælum hersins.
52 varaliðsmenn tilkynntu 25.
janúar að þeir myndu neita að taka
þátt í „kúgun“ á Palestínumönnum.
Forseti herráðsins sagði að þeir
yrðu fyrst leystir frá störfum um
tíma og síðan reknir úr varaliðinu
ef ástæða þætti til. Ef andófið
reyndist af pólitískum rótum runnið
yrði þeim veitt harðari refsing.
„Jafnvel þótt þeir verði reknir
verður þeim gert að sinna öðrum
verkefnum,“ sagði hann. „Svo fremi
sem fyrirmæli hersins eru lögleg,
og ég get fullvissað ykkur um að
svo er, ber varaliðinu skylda til að
hlýða þeim vegna þess að öryggi
landsins er í veði.“
Ami Ayalon, fyrrverandi yfir-
maður Shin Beth, kvaðst á hinn
bóginn hafa „mikla samúð“ með
varaliðsmönnunum og bætti við að
hermenn ættu ekki að hlýðnast fyr-
irmælum sem væru „freklega ólög-
leg“. „Ég tel að of fáir hermenn
óhlýðnist slíkum fyrirmælum. Til
að mynda eru fyrirmæli um að
skjóta óvopnuð ungmenni freklega
ólögleg. Ég hef áhyggjur af því
hversu mörg palestínsk börn hafa
verið verið skotin.“
Bush rjúfi tengslin við Arafat
Ariel Sharon, forsætisráðherra
Ísraels, kvaðst í gær ætla að fara
þess á leit við George W. Bush
Bandaríkjaforseta á fundi þeirra í
Washington í næstu viku að hann
ryfi tengsl Bandaríkjastjórnar við
Yasser Arafat, leiðtoga Palestínu-
manna. Ísraelar hafa haldið Arafat í
herkví í Ramallah á Vesturbakk-
anum í tæpa tvo mánuði og Sharon
sagði að ef til vill yrði gripið til fleiri
refsiaðgera gegn honum. Hann yrði
þó hvorki ráðinn af dögum né hrak-
inn frá palestínsku sjálfstjórnar-
svæðunum.
Sharon ræddi við háttsetta pal-
estínska embættismenn í Jerúsal-
em í gær í fyrsta sinn frá því að
hann komst til valda í mars og sagði
þeim að reynt yrði áfram að knýja
Arafat til að skera upp herör gegn
hryðjuverkamönnum.
Hótar að
reka vara-
liðsmenn
Jerúsalem. AFP, AP.
Ísraelar deila um hvort
aðgerðir hersins séu löglegar
Pakistan
Óvissa
um örlög
blaða-
mannsins
Karachi. AFP.
MISVÍSANDI fréttir bárust í gær-
kvöldi af örlögum bandaríska blaða-
mannsins Daniels Pearls, sem ísl-
ömsk öfgasamtök rændu í borginni
Karachi í Pakistan fyrir tíu dögum.
Wall Street Journal kvaðst hafa
fengið óstaðfestar upplýsingar um að
samtökin hefðu tekið Pearl af lífi en
að sögn lögreglunnar í Karachi var
krafist lausnargjalds fyrir blaða-
manninn.
Pearl starfaði fyrir Wall Street
Journal, sem kvaðst hafa fengið
tölvupóst þar sem skýrt hefði verið
frá því að mannræningjarnir hefðu
staðið við hótun sína um að taka
blaðamanninn af lífi. Blaðið kvaðst þó
vona að þessar upplýsingar væru
rangar.
Lögreglan í Karachi sagði hins
vegar að óþekktur maður hefði
hringt á skrifstofu bandaríska ræð-
ismannsins í Karachi og krafist
tveggja milljóna dala, andvirði rúmra
200 milljóna króna, í lausnargjald.
Ræðismaðurinn hefði fengið þriggja
daga frest til að greiða lausnargjald-
ið. Maðurinn hefði einnig krafist þess
að fyrrverandi sendiherra talibana í
Pakistan, sem er í haldi Bandaríkja-
manna, yrði látinn laus.
Lögreglan kvaðst ekki hafa
ástæðu til að ætla að um gabb væri
að ræða.
George W. Bush Bandaríkjaforseti
sagði að stjórn sín gerði allt sem á
valdi hennar stæði til að bjarga
blaðamanninum.
450 BARNA og fullorðinna er enn
saknað í Lagos eftir sprengingar í
vopnabúri Nígeríuhers á sunnu-
dagskvöld. A.m.k. 700 manns fórust
þá í miklum troðningi sem varð þeg-
ar fólk flúði í ofboði. Nígeríumenn
skoða hér myndir af börnum sem
flúðu og hafa ekki enn fundist.
Ringulreið ríkir í Lagos og fleiri
borgum Nígeríu vegna verkfalls
lögreglumanna sem krefjast launa-
hækkana. Stjórn landsins lýsti verk-
fallinu sem „uppreisn“ í gærkvöldi
og sendi hermenn á staði þar sem
hætta er talin á óeirðum.
Reuters
Flóttafólks enn leitað í Lagos