Morgunblaðið - 02.02.2002, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 02.02.2002, Blaðsíða 15
SUÐURNES MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2002 15 YFIR 21 þúsund ökumenn óku á yfir 100 kílómetra hraða í desember við mælistöð Vegagerðarinnar á Reykja- nesbraut á Strandarheiði. Þar af fór á sjöunda hundrað á meira en 120 kílómetra hraða á klukkustund. Í mörgum tilvikum var einnig hættu- lega stutt bil á milli bíla. Vegagerðin hefur sett upp tækja- búnað til að greina umferð á nokkr- um stöðum út frá höfuðborginni, meðal annars á Reykjanesbraut á Strandarheiði. Gögnin fara um síma- línu inn á tölvukerfi Vegagerðarinn- ar og er hluti þeirra birtur á heima- síðu stofnunarinnar; dreifing hraða og bil á milli ökutækja. Samkvæmt upplýsingum Gunnars Linnets, forstöðumanns tölvudeildar Vegagerðarinnar, fóru tæplega 200 þúsund bílar um mælistaðinn á Strandarheiði í desember. Flestir voru á bilinu 80 til 100 kílómetrum á klukkustund, eða tæplega 140 þús- und ökumenn. Alls voru 21.414 öku- menn á yfir 100 kílómetra hraða, það er að segja 10 kílómetrum yfir lög- leyfðum hámarkshraða eða þaðan af meira. Eru það tæplega 11% þeirra sem óku brautina í mánuðinum. Tæplega 4000 ökumenn voru á yfir 110 kílómetra hraða, þar af 663 á yfir 120 kílómetrum. Of stutt bil á milli bíla Einnig kemur í ljós að of stutt bil er á milli margra bíla. Þannig voru tvær sekúndur eða minna á milli ríf- lega 49 þúsund bíla sem fóru um mælistað Vegagerðarinnar á Strand- arheiði í desember. Samsvarar þetta því að um 25% þeirra bíla sem fóru þarna um hafi verið ekið innan við 100 metrum frá næsta bíl á undan, ef miðað er við 100 kílómetra hraða að jafnaði. Minna en tvær sekúndur eru tald- ar sannarlega allt of stuttur tími til að bregðast við óvæntum atvikum. Samkvæmt upplýsingum Umferðar- ráðs er gjarnan miðað við að þrjár sekúndur séu lágmarksbil á milli bíla. Morgunblaðið/Ásdís Á sjöunda hundrað á yfir 120 km hraða Reykjanesbraut FJÁRHAGSAÐSTOÐ Reykjanes- bæjar til einstaklinga jókst um lið- lega 10 milljónir á síðasta ári, eða um 64%. Ástæðan er að sögn félags- málastjórans vaxandi atvinnuleysi og sú staðreynd að kaupmáttur þeirra lægst launuðu helst ekki í hendur við aðra þróun á vinnumark- aði. Reykjanesbær greiddi 27,3 millj- ónir sem fjárhagsaðstoð til einstak- linga á árinu 2001. Er það mikil aukning frá árunum á undan þegar greiðslurnar námu 17 til 21 milljón á ári. Greiðslurnar eru orðnar svipað- ar og þær voru á árunum 1994 til 1997. Hjördís Árnadóttir félagsmála- stjóri segir að í þessum tölum komi greinilega fram að góðærið sé búið og hvað þrengingarnar í þjóðfélag- inu séu fljótar að segja til sín hjá þeim sem minnst mega sín. Hún segir að þegar harðnar á dalnum á vinnumarkaðnum missi það fólk fyrst vinnuna sem búi við skerta vinnugetu af ýmsum ástæð- um. Einnig vekur hún athygli á því að einstæðar mæður með tvö eða fleiri lítil börn virðist heldur ekki vera talinn ákjósanlegur starfskraft- ur. Þá segir hún að hluti láglauna- fólks lendi undir viðmiðunarmörkum fjölskyldu- og félagsþjónustunnar, kaupmáttur þeirra haldist ekki í hendur við aðra þróun á vinnumark- aðnum. Fjölskyldu- og félagsþjónustan fékk aukafjárveitingu til að standa undir aukinni fjárhagsaðstoð á síð- asta ári. Hún fær 20 milljónir til að standa undir þessari þjónustu í ár og telur Hjördís að með sama áfram- haldi dugi það skammt og á það hafi verið bent. Fjárhagsaðstoð eykst um 64% Reykjanesbær                  !"##      REYKJANESBÆR tekur ekki þátt í stofnun rannsóknasjóðs stúdenta en býður háskólastúdentum aðstoð við verkefni sem tengjast og nýtast svæðinu. Stúdentaráð Háskóla Íslands beitti sér fyrir stofnun sérstaks styrktarsjóðs, Þekking í þágu þjóð- ar, sem veita mun stúdentum við Há- skóla Íslands styrki til þess að vinna að rannsóknum víðs vegar um land- ið. Tíu sveitarfélög tóku þátt í stofn- un sjóðsins og leggja fram 200 þús- und hvert á móti framlagi frá Byggðastofnun. Sandgerðisbær og Grindavíkurbær eru meðal stofn- enda. Þegar markaðs- og atvinnuráð Reykjanesbæjar fór að huga að mál- inu kom í ljós að Stúdentaráð hefði fengið nægilega mörg sveitarfélög til liðs við sig og að ekki væri grundvöll- ur fyrir samstarfi við Reykjanesbæ. Ráðið vildi eigi að síður vinna í þessum anda. „Við ákváðum að fela framkvæmdastjóra að hafa samband við alla nemendur á háskólastigi sem búsettir eru í Reykjanesbæ og bjóða þeim aðstoð við að vinna verkefni sem tengjast svæðinu. Það er mik- ilvægt að nýta þá þekkingu sem þau búa yfir og ég veit að það er einnig gott fyrir nemendurna að eiga hauk í horni við vinnslu verkefna,“ segir Kjartan Már Kjartansson, formaður markaðs- og atvinnuráðs. Hann seg- ir að skrifstofan geti aðstoðað nem- endurna við upplýsingaöflun, veitt þeim ráðgjöf eða útvegað samstarfs- fyrirtæki, svo dæmi séu tekin. Bjóða há- skólanem- um aðstoð Reykjanesbær FÉLAGAR á Suðurnesjum í Ætt- fræðifélaginu hittast á Bókasafni Reykjanesbæjar nk. mánudagskvöld klukkan 20. Allir sem hafa áhuga á ættfræði eru velkomnir, að því er fram kemur í frétt frá Bókasafninu. Nánari upplýsingar veitir Einar Ingimundarson. Ættfræðingar hittast Keflavík ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.