Morgunblaðið - 02.02.2002, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 02.02.2002, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2002 53 DAGBÓK STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake Afmælisbörn dagsins: Þú ert jarðbundinn, kraft- mikill og áræðinn og getur verið bæði frumlegur og fág- aður. Nýja árið verður kraft- mesta ár sem þú hefur upp- lifað í rúman áratug. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú ert að velta fyrir þér flutn- ingum eða breytingum í vinnu. Vertu óhræddur við nýjar hugmyndir. Þær geta orðið að raunveruleika. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú ert að velta afkomu þinni fyrir þér. Í framhaldi af því ferðu að velta fyrir þér til- gangi lífsins. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Á undanförnum árum hefurðu verið að læra að sleppa tök- unum og nú bíður þín alger- lega nýtt upphaf. Þú sérð að þú þarft að laga þig að breytt- um aðstæðum. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Krabbinn getur verið nokkuð íhaldssamur. Þér getur þótt erfitt að sleppa tökunum en það er nauðsynlegt á þessu tímabili í lífi þínu. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þú ert ánægður með líf þitt þegar á heildina er litið. Þú veltir því hins vegar fyrir þér hvort lífssýn þín sé nógu inni- haldsrík og hvort hún muni veita þér lífsfyllingu. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Ef þú lítur til baka til síðustu tíu ára sérðu að margar af óskum þínum hafa ræst. Við gerum okkur sjaldnast grein fyrir því þegar draumar okkar verða að raunveruleika. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú ert vel gefinn og þig þyrst- ir í lærdóm. Þú veist að marg- ar hugmyndir og sjónarmið hafa aldrei náð eyrum þínum. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú hefur sennilega minna milli handanna vegna minni tekna maka þíns. Þetta er tímabund- ið ástand. Fyrr en varir munu hlutirnir færast til fyrra horfs. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þú ert kraftmeiri en þú hefur verið undanfarin ár og það getur leitt til spennu í nánustu samböndum þínum. Það er hins vegar hægara sagt en gert að koma andanum aftur í lampann. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú hefur alltaf stefnt einarð- lega að markmiðum þínum. Ef þú leggur þig fram er ekki langt í að þú náir takmarki þínu. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Mörg ykkar hafa af einhverj- um ástæðum tekið á sig aukna ábyrgð á börnum. Lítið ekki á þetta sem kvöð heldur sem tækifæri til að sýna ást ykkar og stuðning. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Það liggur vel fyrir þér að gera meiriháttar breytingar eða lagfæringar á heimilinu. Það er kominn tími til að þú komir þér upp varanlegum dvalarstað. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. VATNSBERI Árnað heilla 90ÁRA afmæli. Á morg-un sunnudaginn 3. febrúar er níræður Elías Valgeirsson, fyrrverandi starfsmaður RARIK, Dal- braut 27, Reykjavík. Elías tekur á móti frændfólki og vinum sunnudaginn 10. febr- úar kl. 15 í Odfellow-húsinu í Vonarstræti. Elías afþakkar gjafir en biður þá sem vilja gleðja hann að styðja samtök hjartveikra barna. 50 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 2. febr- úar, er fimmtugur Sigur- björn Bárðarson hestamað- ur, Vatnsendabletti 57, Kópavogi. Eiginkona hans er Fríða H. Steinarsdóttir. Í tilefni þessa taka þau á móti ættingjum og vinum í Fé- lagsheimili Fáks í kvöld milli kl. 18 og 20. 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4. a3 Bb7 5. Rc3 d5 6. Bg5 Be7 7. Da4+ Dd7 8. Dc2 dxc4 9. e3 Bxf3 10. gxf3 b5 11. a4 c6 12. Bxf6 Bxf6 13. axb5 cxb5 14. De4 0–0 15. f4 Hc8 16. Bh3 Rc6 17. Rxb5 Hab8 18. Rc3 Hxb2 19. 0–0 Hb3 20. Re2 Re7 21. Hfc1 g6 22. Ha6 Hb6 23. Ha5 a6 24. Rc3 Dd6 25. Dc2 Dd8 26. Re4 Rd5 27. Hc5 Hxc5 28. Rxc5 c3 29. Da4 Be7 30. Bg2 Bxc5 31. dxc5 Hb2 32. f5 gxf5 33. c6 Dg5 34. h4 Dg6 35. Kh1 Rxe3 36. Hg1 Rg4 37. c7 Rxf2+ 38. Kh2 Rg4+ 39. Kh1 Df6 40. c8=D+ Kg7 41. Dxg4+ fxg4 42. Hf1 Dxh4+ 43. Kg1 Dg3 Staðan kom upp í A-flokki Corus mótsins í Wijk aan Zee. Jeroen Pik- et (2.659) hafði hvítt gegn Alexander Khalifman (2.688) og tókst þeim fyrr- nefnda að bjarga sér á æv- intýralegan hátt. 44. Hxf7+! Kxf7 45. Dd7+ Kf8 46. Dd8+ Kf7 47. Dd7+ Kf6 48. Dd8+ Kf5 49. Df8+ Ke5 50. Dc5+ Kf4 51. Dc7+ e5 52. Dc4+ Kg5 53. Dg8+ Kf6 54. Df8+ Ke6 55. De8+ Kd6 56. Dc6+ Ke7 57. Dc7+ Kf6 58. Dd8+ Kf5 59. Dc8+ Kg6 og jafntefli samið enda kemst svarti kóngurinn ekki úr þráskák hvíts. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. ÞEGAR þrír litir hafa verið nefndir til sögunnar hefur sögn í þeim fjórða alltaf þann tilgang að krefja í geim. Kannski er slemma inni í myndinni, en stundum þarf einfaldlega meiri tíma til að velja besta geimið. Settu þig í spor norðurs og veldu sögn í stöðunni hér að neðan: Norður ♠ K74 ♥ 2 ♦ DG863 ♣ÁK108 Vestur Norður Austur Suður -- 1 tígull Pass 1 hjarta Pass 2 lauf Pass 2 spaðar * Pass 2 grönd Pass 3 lauf Pass ??? Hver er sögnin? Með tveimur spöðum er suður að tryggja að geim verði spilað, en hvað vakir fyrir honum með þremur laufum á eftir? Suður er tæplega spenntur fyrir slemmu, því þá myndi hann velja meira afgerandi sögn – sökkva til dæmis í fjögur lauf. Hann er því að biðja um frekari upplýsingar. Norður hefur þegar sýnt 5-4 í láglitunum og fyrir- stöðu í spaða. Með tvíspil í hjarta eða jafnvel stakt mannspil kæmi til greina að segja þrjú hjörtu, en aldrei með einspil. Þrír tíglar hljóma ekki vel, því liturinn er ekkert sérstakur, svo val- ið stendur á milli þess að segja þrjú grönd eða þrjá spaða. Með þremur gröndum ætti norður að eiga tvöfalda fyrirstöðu í spaða, en þrír spaðar myndu láta í ljós efa- semdir um spaðavörnina í gröndum. Það er því örugg- lega besta sögnin: Norður ♠ K74 ♥ 2 ♦ DG863 ♣ÁK108 Vestur Austur ♠ ÁG92 ♠ D10853 ♥ D98 ♥ G643 ♦ 752 ♦ Á10 ♣642 ♣53 Suður ♠ 6 ♥ ÁK1075 ♦ K94 ♣DG97 Suður mun ekki láta sér detta í hug að segja þrjú grönd við þremur spöðum og leiða spilið upp í fimm lauf eða fimm tígla. Sem er hin rétta niðurstaða. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson Ljósmynd/Sissa BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 14. júlí sl. í Garðakirkju af sr. Bjarna Karlssyni Margrét Yrsa Richter og Þórir Stein- þórsson.  Bestu þakkir færi ég þeim fjölmörgu, sem heiðruðu mig með heimsóknum, gjöfum og sím- tölum í tilefni 85 ára afmælis míns 15. janúar sl. Guð geymi ykkur öll. Elísabet Þórhallsdóttir, Garðvangi, Garði. Vakin er athygli á að skilafrestur vegna könnunar fulltrúaráðsins er til miðvikudagsins 6. febrúar. Fulltrúaráðsmenn eru vinsamlega beðnir að koma tilnefningum á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í Valhöll eða póstlegga þær fyrir þann tíma. Tökum þátt í að setja saman sterkan og sigurstranglegan lista sjálfstæðismanna í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Stjórnin. Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík Guðrún Arnalds, símar 896 2396 og 551 8439 Andartak í erli dagsins Tími til að vera, hlaða batteríin, styrkja líkamann, auka sveigjanleikann og úthaldið og létta á hjartanu. Mánudaga og miðvikudaga kl. 17.30-18.40 v/Háaleitisbraut. Jóga - hreyfing - líföndun - hugleiðsla EINKATÍMAR: HOMOPATÍA - NUDD - LÍFÖNDUN LJÓÐABROT LILJAN Liljan mín með laufin smá, litarfögur, en eigi há, vært þér vindar rugga; en þér mun vera í þeli kalt, því þarna stóðstu sumarið allt sólarlaus í skugga. Lindin er svo langt þér frá, létt mun ekki vökva að ná á klettahillu kaldri. En því viltu vaxa hér, hvar vatns og hita skortur er, því sólin sér þig aldri? - - - Sigurður Breiðfjörð MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynning- ar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrir- vara fyrir sunnudagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistil- kynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og síma- númer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréf- síma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík ATVINNA mbl.is            
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.