Morgunblaðið - 02.02.2002, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 02.02.2002, Blaðsíða 35
með trúfrelsi að gera. Ef ákvörðun yrði tekin um að fella niður þann hluta sem rennur til Háskólasjóðs vegna fólks utan trúfélaga gerist það eitt að þær um 70 milljónir króna sem eru lögbundin framlög til sjóðsins vegna sóknargjalda á árinu 2002 rynnu í þess stað í ríkissjóð. Einstak- lingur utan trúfélaga yrði í engu bættur. Álögur á hann lækka ekki, hann er eins settur, því ekki er um það að ræða að gjaldið sé sérstaklega eyrnamerkt í skattheimtu einstak- linga, eins og ljóst má vera, því ein- staklingar sem greiða engan tekju- skatt leggja ekki inn fyrir sóknar- gjaldi. Einstaklingar spara því ekki þótt þeir segi sig úr trúfélögum, það eru engin gjöld til að losna undan. Til samanburðar má hins vegar nefna að þeir sem eru á aldrinum 16–70 ára greiða á hverju ári um 5.000 króna nefskatt í Framkvæmdasjóð aldraðra óháð tekjum, með ákveðinni lág- markstekjumiðun þó. Þá er einnig ólíklegt að niðurfelling um 70 milljóna króna til Háskólasjóðs leiði til lækk- unar tekjuskattshlutfalls á almenn- ing. Frumvarpið er þannig fallið um sjálft sig. Hins vegar mætti ræða mismunun á fjárveitingum hins opinbera til þjóð- kirkjunnar og annarra trúfélaga, en það er efni í aðra umræðu og aðra grein. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2002 35 UM þessar mundir er verið að auglýsa til- lögu að nýju aðalskipu- lagi fyrir Kópavog. Til- lagan er til sýnis hjá Bæjarskipulagi Kópa- vogs og í Smáralind. Þar eru í bígerð ýmsar athyglisverðar breyt- ingar, s.s. bryggju- hverfi á Kársnesi, breytt skipulag í Vatns- endahverfi o.fl. Tillag- an er þó e.t.v. forvitni- legust fyrir þá sem eru að flytja í Salahverfi, sem er nýjasta hverfið í bænum, þar sem lesa má út úr aðalskipulaginu hvað á eftir að framkvæma í megindráttum í nýju hverfunum. Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út 7. febrúar. Nú standa yfir framkvæmdir við sundlaug og íþróttahús í grennd við Salaskóla. Áætlað er að sundlaugin verði tekin í notkun á fyrri hluta næsta árs. Íþróttahúsið verður sam- byggt við sundlaugina og verður það steypt upp um leið. Ef allt gengur að óskum má reikna með að íþróttahús- ið verði tekið í notkun árið 2004. Þetta verður hið glæsilegasta mannvirki. Eftir rúma tvo mánuði verður lok- ið við leikskóla við Rjúpnasali. Ákveðið hefur verið að bjóða út rekstur leikskólans. Á sl. ári voru hafnar framkvæmdir við götur og holræsi í 1. áfanga kirkjugarðs í Leir- dal, sem kemur vestan Fífuhvamms- vegar á móts við Salaskóla. Um er að ræða samvinnuverkefni Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma og hlut- aðeigandi sveitarfélaga. Stefnt er að því að 1. áfangi kirkjugarðsins verði graftækur árið 2004. Framkvæmdir á döfinni Sl. haust var tekinn í notkun 1. áfangi Salaskóla. Fyrirhugað er að framkvæmdir við næsta áfanga hefj- ist af fullum krafti í vor. Í sumar verður lokið við að malbika götur í hverfinu. Þá verður einnig lokið að mestu við gangstéttir í vesturhluta hverfisins og helstu göngustíga. Hafinn er undirbún- ingur framkvæmda við Arnarnesveg í Leirdal. Hér er um að ræða þjóðveg, sem enn er ekki kominn á vegáætl- un, en bæjaryfirvöld hafa óskað eftir samn- ingi um flýtingu fram- kvæmda gegn greiðslu fjármagnskostnaðar. Vonandi gengur það eftir og gæti þá jafnvel orðið af framkvæmdum í sumar. Að mínu mati er nauðsynlegt að fá þessa vegteng- ingu sem fyrst. Um leið og hún er komin verður unnt að aka Fífu- hvammsveg að Arnarnesvegi og það- an beint upp í Vatnsenda í stað þess að hafa gegnumumferð um Salaveg eins og er í dag. Það er af sem áður var að fólk sætti sig við að bíða jafnvel árum saman eftir endanlegum frágangi nýrra íbúðarhverfa. Þeir sem eru að byggja sér hús í nýjum hverfum í dag leggja mikið upp úr því að ganga frá lóðunum sínum sem fyrst. Það hlýtur því að vera metnaðarmál bæjaryfir- valda að kappkosta að ljúka sem fyrst frágangi við götur og á opnum svæðum bæjarins. Framkvæmdir í Salahverfi Halla Halldórsdóttir Höfundur er bæjarfulltrúi í Kópa- vogi og gefur kost á sér í 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. Kópavogur Tillagan er þó e.t.v. for- vitnilegust fyrir þá sem eru að flytja í Sala- hverfi, segir Halla Hall- dórsdóttir, nýjasta hverfið í bænum. Prófkjör Prófkjör eru nú fyrirhuguð til undirbúnings sveitarstjórnarkosningum sem fram fara hinn 25. maí næstkomandi. Af því tilefni birtir Morgun- blaðið hér greinar frambjóðenda og stuðningsmanna. Greinarnar eru ennfremur birtar á mbl.is. UNDANFARIN ár hefur verið lögð mikil áhersla á leikskólamál í Kópavogi. Byggðir hafa verið þrír leikskólar og sá fjórði tekur til starfa nú í apríl. Bærinn hefur yfirtekið rekstur á einkareknum leikskóla og einn af eldri leikskól- um bæjarins hefur ver- ið stækkaður. Leik- skólarými á vegum bæjarins voru um 1000 um áramótin 1997-1998 en þegar Rjúpnasalir taka til starfa í apríl n.k. þá verða leikskóla- rými í Kópavogi 1570. Fjölgun leikskólarýma verður því 57% á aðeins fjórum árum. Fullyrða má að í engu sveitarfélagi hefur orðið eins mikil uppbygging og fjölgun leikskólarýma miðað við fólksfjölda eins og í Kópavogi á þessu kjörtíma- bili. Uppbygging Meirihlutinn í Kópavogi, sjálfstæð- ismenn og framsóknarmenn, setti á stefnuskrá sína í upphafi þessa kjör- tímabils að öllum tveggja ára börnum og eldri byðist leikskóladvöl árið 2002. Þessu markmiði er nú að verða náð því nú eru aðeins örfá tveggja ára börn á biðlista og öllum eldri börnum hefur verið boðin leikskóladvöl. Þeir leikskólar sem hafa tekið til starfa á þessu kjörtímabili á vegum Kópavogsbæjar eru Núpur, Urðar- hóll, Fífusalir og Álfatún. Auk þess var lokið við stækkun Efstahjalla í desember 2001. Bygging leikskólans við Rjúpnasali er langt komin og gert er ráð fyrir að hann taki til starfa í apríl 2002. Jafnframt eru starfandi þrír einka- reknir leikskólar í bænum, Ylur, Undraland og Kjarrið sem tók til starfa á síðasta ári. Bæjarsjóður hef- ur greitt stofnkostnað á hvert rými í einkareknum skólum og einnig rekstrarstyrki með hverju barni. Hlutfall barna á aldrinum 2-5 ára úr Kópavogi sem eru á leikskólum er um 97%. Þegar lokið verður við að taka börn inn í Álfatún og Fífusali verða vætanlega engin börn, tveggja ára og eldri á biðlista. Þegar Rjúpnasalir verða tekn- ir í notkun er því ekki ólíklegt að einnig verði farið að taka inn eitt- hvað yngri börn. Faglegt starf Þrátt fyrir að mikið hafi verið lagt í upp- byggingu og fjölgun leikskólarýma farið fram úr björtustu von- um er ekki síður nauð- synlegt að styðja vel við innra starf leikskól- anna. Þegar unnið er að leikskólamálum gerir maður sér bet- ur grein fyrir mikilvægi hins faglega starfs þeirra. Í leikskólum Kópavogs fer fram að mörgu leyti mikið braut- ryðjendastarf. Unnin hefur verið upp sérstök námskrá leikskóla Kópavogs og hefur hún vakið verðskuldaða at- hygli. Námskráin er rammanámskrá sem allir leikskólar Kópavogs byggja sína skólanámskrá á. Nokkrir leik- skólar hafa nú þegar lokið við gerð glæsilegra skólanámskráa og hinir eru komnir vel á veg. Þá má nefna að í leikskólum Kópavogs er unnið eftir samræmdri umhverfisstefnu, sem m.a. hefur hlotið viðurkenningu um- hverfisnefndar, og stefna í jafnrétt- ismálum er í vinnslu. Viðamikil áætl- un er um fræðslu leikskólakennara og annars starfsfólks unnin í sam- vinnu við nágrannasveitarfélög. Þá eru fjölbreytt þróunar- og nýbreytni- verkefni í gangi í hinum ýmsu leik- skólum. Kópavogsbær hefur átt því láni að fagna að til leikskóla Kópavogs hefur ráðist mjög hæft starfsfólk sem hefur mikla þekkingu og metnað fyrir leik- skólastarfinu og leikskólauppeldinu. Þeir sem vinna að leikskólauppeldi í Kópavogi sækja hugmyndir til kenn- inga og rita ýmissa heimspekinga og uppeldisfrömuða. Hver leikskóli fær nú annað árið í röð ákveðna fjármuni sem þeir verja til fræðslu og símennt- unar starfsfólksins. Faglegt starf í leikskólum Kópavogs hefur verið til mikillar fyrirmyndar en það er ekki síst að þakka því frábæra starfsfólki sem starfar á leikskólunum og á leik- skólaskrifstofunni. Breyttur dvalartími Á undanförnum árum hefur stöð- ugt aukist að foreldrar sæki um heils- dagsdvöl eða átta tíma vistun á leik- skóla fyrir börn sín. Nú stefnir í það að margir leikskólar eru að verða ein- setnir og er það mikil breyting frá því sem áður var þegar flestir sóttu um fjögurra tíma dvöl fyrir börn sín. Til að geta sinnt þessum óskum foreldra hefur þurft að fjölga leikskólarýmum mun meira en ef leikskólarnir væru enn tvísetnir. Kópavogur hefur því ekki aðeins þurft að fjölga leikskóla- rýmum vegna fólksfjölgunar í bæn- um heldur einnig vegna lengri dval- artíma hjá hverju barni. Með þessari miklu fjölgun leikskólarýma sýnir meirihluti bæjarstjórnar Kópavogs hug sinn í leikskólamálum í verki og lítur á það sem skyldu sína að upp- fylla þarfir íbúanna. Leikskólarýmum fjölgar um tæp 60% Sigurrós Þorgrímsdóttir Kópavogur Margir leikskólar, segir Sigurrós Þor- grímsdóttir, eru að verða einsetnir. Höfundur er bæjarfulltrúi og formaður leikskólanefndar. The Skincare, kremlínan frá Shiseido gerir við og viðheldur innri lögum húðarinnar og virkar sem fyrirbyggjandi fyrir allar húðgerðir einnig fyrir viðkvæma húð. Nú býður Shiseido þér pakka sem blæs nýju lífi í öll lög húðarinnar*. · The Skincare Night Essential Moisturizer 75 ml. Næturkrem sem endurbyggir húðina og eykur viðnám hennar. · The Skincare Eye Revitalizer 15 ml. Augnkrem sem grynnkar fínar línur og frískar allt augnsvæðið. · The Skincare Multi-Energizing Cream 10 ml. S.O.S krem sem endurnærir og kemur jafnvægi á húðina, má nota í styttri eða lengri tíma. · The Skincare Gentle Cleansing Soap 8 gr. Sápa sem hreinsar húðina án þess að þurrka hana. Allt þetta í fallegri Shiseido tösku á aðeins 5.950 kr. Viðhaltu unglegu útliti langt inn í framtíðina með The Skincare. Útsölustaðir: Hygea Kringlunni, Hygea Laugavegi 23, Sigurboginn Laugavegi 80, Gallerý Förðun Keflavík, Jara Akureyri, Hygea Smáralind, Debenhams, Bylgjan Hamraborg Kópavogi. *Á meðan birgðir endast. HEILSUHRINGURINN VILT ÞÚ FRÆÐAST? Tímarit um holla næringu og heilbrigða lífshætti. Áskriftarsími 568 9933 Síðumúla 27 • 108 Rvík Veffang: http:www.simnet.is/heilsuhringurinn/ KVEN- SÍÐBUXUR 3 SKÁLMALENGDIR Bláu húsin við Fákafen. Sími 553 0100. Opið virka daga 10-18, laugardaga 10-16.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.