Morgunblaðið - 02.02.2002, Blaðsíða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2002 9
Allir fylgihlutir fyrir dömu og herra
Mikið úrval af samkvæmisfatnaði
Efnalaug og fataleiga Garðabæjar
Opið alla daga frá kl. 10-18, laugardaga frá kl. 10-14.
Garðatorgi 3, sími 565 6680
Glæsilegir
brúðarkjólar
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Stórkostleg lækkun
20% viðbótarafsláttur
af öllu
Stærðir 36-52
Opið virka daga frá kl. 10.00–18.00, laugardaga frá kl. 10.00–15.00.
Ný sending frá
Neðst við Dunhaga, sími 562 2230
Langur laugardagur
opið frá kl. 10-16
opi› í dag frá 10-16
allt a› 50% afsláttur
Útsalan er hafin
Stór PAS sending
komin í Bæjarlind
Hlægilegt verð á
útsölunni í Eddufelli
Örfá pláss laus sumarið 2002 í sumarbúðum erlendis
fyrir 11 ára, unglingaskiptum fyrir 12-13 ára, unglingabúðum
fyrir 14-15 ára og í ungliðastarfi fyrir 16-17 ára og 18 ára.
Nánari upplýsingar veita
Guðrún Jónasdóttir í síma 694 3844
og Arna Gunnarsdóttir í símum 554 6815/898 6815.
Eins er enn laust starf fyrir fararstjóra
til að fara erlendis með hópum í sumar.
Upplýsingar veita Halla Jónsdóttir
í síma 551 4078 og Fríða Agnarsdóttir í síma 866 8246.
Við bendum einnig á heimasíðu félagsins www.cisv.is þar
sem nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð er að finna.
Alþjóðlegar sumarbúðir barna á Íslandi,
pósthólf 8002, 128 Reykjavík.
Alþjóðlegar
sumarbúðir barna
Pantið núna Kays sumarfötin
Argos vörurnar
Panduro föndrið
B. Magnússon
Austurhrauni 3, Gbæ/Hf. 555 2866
Nýjar vörur í versluninni
ÚTSALAN
ER Í FULLUM
GANGI
Laugavegi 4, sími 551 4473
Póstsendum
15%
AUKAAFSLÁTTUREnn meiri
verðlækkun
40%
viðbótarafslá
ttur við kass
a
FJÓRIR hálendisvegir verða í svo-
kölluðu grunnneti samgöngukerfis
landsmanna. Eru það Sprengisands-
leið, Kjalvegur, Fjallabaksleið nyrðri
og vegurinn um Kaldadal.
Gert er ráð fyrir að hálendisveg-
irnir verði byggðir betur upp frá því
sem nú er. Með því yrði unnt að halda
þeim opnum stærri hluta ársins.
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra segist vilja leggja áherslu á að
hálendisvegirnir séu áfram fyrst og
fremst ferðamannaleiðir. Það þýði
verulega uppbyggingu og endurbæt-
ur veganna og smíði brúa. Segir hann
þessa uppbyggingu þurfa að gerast
af varkárni og ekki megi raska um-
hverfi leiðanna. Með endurbyggingu
hálendisveganna segir hann því
verða unnt að aka þá á öllum venju-
legum bílum.
Samgönguráðherra leggur
áherslu á að hér sé um langtímaverk-
efni að ræða sem skipt yrði í áfanga.
Þeir áfangar yrðu teknir upp í tillögu
til þingsályktunar um samgöngu-
áætlun sem hann segist gera ráð fyr-
ir að leggja fyrir Alþingi næsta
haust. Sturla Böðvarsson segir að
þótt umferð ferðamanna verði trú-
lega ráðandi á hálendisvegunum
megi samt búast við því að þeir sem
eigi erindi milli Norður- og Suður-
lands gætu nýtt sér betri veg um
Sprengisand eða Kjöl þegar þar að
kemur.
Hálendis-
vegir verði
byggðir upp
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest
þriggja mánaða fangelsisdóm Hér-
aðsdóms Reykjavíkur yfir karlmanni
á fimmtugsaldri, sem fundinn var
sekur um kynferðisbrot gegn þá 11
ára stúlku í desember 2000. Ákærði
var fundinn sekur um að hafa þuklað
á stúlkunni á svefnlofti í skála Úti-
vistar í Básum og hlaut þriggja mán-
aða skilorðsbundið fangelsi og var
jafnframt dæmdur til að greiða
henni 250 þúsund krónur í miska-
bætur.
Fyrir Hæstarétti krafðist ákærði
aðallega að dómur héraðsdóms yrði
ómerktur og málinu vísað heim í hér-
að en til vara krafðist hann sýknu.
Ómerkingarkrafan var byggð á því
að skýrslutaka af stúlkunni í Barna-
húsi hefði ekki verið í samræmi við
meginreglur réttarfars. Að mati
Hæstaréttar var talið að ekkert hefði
komið fram sem benti til annars en
að umrætt þinghald í héraði og
skýrslutaka hefði verið í fullu sam-
ræmi við ákvæði laga um meðferð
opinberra mála og reglur settar
samkvæmt þeim.
Dóminn kváðu upp hæstaréttar-
dómararnir Guðrún Erlendsdóttir,
Garðar Gíslason, Haraldur Henrys-
son, Hrafn Bragason og Pétur Kr.
Hafstein. Verjandi ákærða var Sig-
urður Georgsson hrl. og saksóknari
Sigríður Jósefsdóttir fyrir hönd rík-
issaksóknara.
Í fangelsi í 3
mánuði fyrir
kynferðisbrot
gegn barni
LEIT lögreglunnar í Reykjavík að
karlmanni sem veittist að níu ára
dreng við Eiðistorg á miðvikudag og
rændi af honum 500 krónum hefur
ekki borið árangur.
Að sögn lögreglunnar voru engin
vitni að atvikinu en leit að mann-
inum er haldið áfram. Við árásina
féll drengurinn á jörðina og hlaut
áverka á olnboga. Á slysadeild vakn-
aði grunur lækna um beinbrot og
var drengurinn settur í gifs og leyft
að fara heim samdægurs.
Drengurinn var staddur við
nyrðri dyr Eiðistorgs þegar aðvíf-
andi karlmaður spurði hann um pen-
inga. Í kjölfarið ýtti maðurinn við
drengnum, sem var á línuskautum
svo hann datt og meiddist á olnboga.
Maðurinn seildist í vasa drengsins
þar sem hann lá á jörðinni og rændi
af honum 500 krónum. Málið sætir
áframhaldandi rannsókn hjá lög-
reglunni.
Réðst á níu ára dreng
Árásar-
maðurinn
ófundinn
♦ ♦ ♦