Morgunblaðið - 02.02.2002, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 02.02.2002, Blaðsíða 49
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2002 49 Heimsferðir opna þér leiðina til Ítalíu í sumar á hreint ótrúlegum kjörum og opna þér dyrnar að þessu stór- kostlega landi á verði sem hefur aldrei sést fyrr á Ís- landi. Vikulegt flug alla fimmtudaga til Verona, einnar fegurstu borgar Ítalíu, þar sem þú getur notið ótrúlegrar fegurðar hennar og sögu, dvalið við Gardavatn í magnaðri náttúrufegurð eða notið hinn- ar fögru strandar á Rimini við glæsilegan aðbúnað. Verona er í hjarta Ítalíu, frábærlega staðsett og héðan er örstutt til allra átta og þú velur úr glæsilegustu verslunum heimsins og listasöfnum og nýtur lífsins í þessu menningarhjarta Evrópu. Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Verð kr. 22.300 Gildir fyrir fyrstu 300 sætin sem bókuð eru til Verona í sumar. M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára. Skattar, kr. 2.950 fyrir fullorðinn, kr. 2.260 fyrir barn, ekki innifaldir. Verð kr. 24.800 Flugsæti fyrir fullorðinn, fargjald A. Takmarkað magn í hverju flugi í boði. Skattar kr. 2.950, ekki innifaldir. Beint flug. 300 sæti til Ítalíu í sumar frá 22.300* Toscana, Feneyjar, Róm, Flórens eða Pisa Frábært verð á flug og bíl og þú getur valið um ótrúlegan fjölda spennandi áfangastaða í aðeins nokkurra klukku- stunda akstursfjarlægð:  Flórens  Assisi  Verona  Feneyjar  Róm  Pisa  Lago di Garda  Lago di Como  Nice  Munchen  Zurich  Salzburg  Vín Beint flug alla fimmtudaga Brottför frá Keflavík kl. 17.30 Flug heim á þriðjudagsmorgnum Opið í dag frá kl. 13–16 Kynnstu fegurstu borg Ítalíu Kynntu þér Ítalíubækling Heimsferða BORGARFRÆÐASETUR boðar til ráðstefnu mánudaginn 4. febrúar kl. 13.15 – 16.30 í Hátíðarsal, Aðalbygg- ingu Háskóla Íslands um ríki, borg og sveitarfélög, stjórnskipuleg tengsl og samskipti. Páll Skúlason háskólarektor setur ráðstefnuna og ávarp flytja Davíð Oddsson forsætisráðherra og Ingi- björg Sólrún Gísladóttir borgar- stjóri. Frummælendur eru Stefán Ólafs- son, forstöðumaður Borgarfræða- seturs, sem fjallar um breytta bú- setu og breytt alþjóðlegt umhverfi borga, Sigurður Líndal prófessor sem ræðir ákvæði stjórnarskrárinn- ar um sjálfstæði sveitarfélaga, Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor ræðir staðbundin stjórnmál á Ís- landi – verkaskiptingu og virkni, Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður Sambands ísl. sveitarfélaga, fjallar um stöðu sveitarfélaganna og sam- skipti þeirra við ríkisvaldið, Björg Ágústsdóttir, bæjarstjóri í Grundar- firði ræðir um sambúð sveitarfélaga og ríkis og Sigfús Jónsson, landa- fræðingur og ráðgjafi hjá Nýsi hf. ræðir hvert sveitarfélögin á höfuð- borgarsvæðinu stefna. Í lokin verður pallborðsumræða frummælenda. Fundarstjóri er Jón Sigurðsson, bankastjóri NIB, stjórnarformaður Borgarfræðaset- urs. Ráðstefna um stjórnskipuleg tengsl Í TILEFNI af þriggja ára afmæli Talfrelsis verður hægt að fá þrjú Talfrelsishleðslukort á verði tveggja í verslunum Tals og hjá umboðsmönnum. Laugardaginn 2. febrúar greiða allir viðskiptavinir Tals einungis þrjár krónur fyrir hvert sent SMS-skeyti og þrjár krónur á mínútuna fyrir að hringja TAL í TAL. Hinn 7. febrúar verða Taltónleikar á skemmtistaðnum NASA með Jagúar og meðlimum úr XXX Rottweiler, segir í fréttatil- kynningu. Tilboð á afmæli Talfrelsis FERÐAFÉLAG Íslands verður með göngu sunnudaginn 3. febrúar á Sandfell–Selfjall og endað í skóg- ræktarreit FÍ í Heiðmörk. Gangan er um 4–5 tímar. Fararstjóri Sigurð- ur Kristjánsson. Verð kr. 1.000/1.300. Brottför frá BSÍ kl. 10.30. með viðkomu í Mörk- inni 6. Spurningaleikur FÍ hefur aft- ur göngu sína á www.fi.is, segir í fréttatilkynningu. Gengið á Sandfell–Selfjall TVEGGJA daga námskeið verður í trjá- og runnaklippingum í húsa- kynnum Garðyrkjuskóla ríkisins, Reykjum í Ölfusi, mánudaginn 11. febrúar og þriðjudaginn 12. febrúar kl. 9 – 15.30 báða dagana. Leiðbein- andi verður Kristinn H. Þorsteins- son garðyrkjustjóri. Fjallað verður um klippingar, svo sem limgerðisklippingar, grisjun trjáa og runna, vaxtarlag trjáa, klippingu berja- og skrautrunna, við- brögð trjáa og runna við klippingum og sagt frá helstu sjúkdómum, sem geta komið upp vegna klippinga. Skráning á námskeiðið fer fram á skrifstofu skólans eða á heimasíðu hans; www.reykir.is, segir í frétta- tilkynningu. Námskeið í trjáklippingum RÁÐSTEFNA um öryggisprófanir á tölvukerfum verður haldin mánu- daginn 11. febrúar kl. 13.30 á Hótel Loftleiðum. Ráðstefnugjald er kr. 3.500, ef fleiri en einn mæta frá sama fyrir- tæki greiða þeir kr. 2.000 á mann. Innifalið er ein prófun á tölvukerf- inu, aðgangur í eina viku til að nálg- ast mismunandi skýrslur, leiðbein- ingar varðandi ofangreinda prófun og ráðstefnugögn. Kaffi og veitingar verða á boðstólum. Skráning fer fram á heimasíðu Arcis ehf., www.arc.is, eða í síma, segir í frétta- tilkynningu. Ráðstefna um öryggisprófanir á tölvukerfum GIGTARFÉLAG Íslands er að hefja námskeið um liðagigt – iktsýki þar sem áhersla er lögð á þætti sem tengjast því að lifa með liðagigt – ikt- sýki. Námskeiðið er þrjú kvöld, einu sinni í viku og byrjar miðvikudaginn 13. febrúar kl. 20. Fjallað verður um sjúkdóminn, einkenni hans, meðferðarmöguleika og áhrif á daglegt líf, mikilvægi þjálf- unar, slökun, aðlögun að breyttum aðstæðum í tengslum við dagleg störf, tilfinningalega og samfélags- lega þætti. Leiðbeinendur á nám- skeiðinu verða Arnór Víkingsson gigtarsérfræðingur, Elín Jónsdóttir sjúkraþjálfari, Elsa Ingimarsdóttir iðjuþjálfi, og Svala Björgvinsdóttir félagsráðgjafi. Upplýsingar og skráning á nám- skeiðið er á skrifstofu Gigtarfélags Íslands, segir í fréttatilkynningu. Að lifa með ikt- sýki – liðagigt BSRB fagnar ákvörðun ríkisstjórn- arinnar að lækka komugjöld á heilsugæslustöðvar og tekur undir þá yfirlýsingu heilbrigðisráðherra að það sé mikilvægt heilbrigðispólitískt markmið að ná þessum gjöldum nið- ur. „BSRB hefur sýnt fram á, nú síð- ast í ítarlegri úttekt sem birt var skömmu fyrir síðustu áramót, að kostnaðarþátttaka sjúklinga hefur margfaldast á undangengnum ára- tug og er þetta farið að valda því að efnalítið fólk veigrar sér við því að leita læknis og nauðsynlegra lyfja vegna kostnaðar. BSRB hefur áður lagt til að efnt verði til samráðs við samtök launafólks um að vinda ofan af þessari þróun og finna leiðir til að efla heilbrigðisþjónustuna á grund- velli samhjálpar í stað rándýrra einkalausna og einkavæðingar,“ seg- ir í fréttatilkynningu. BSRB fagnar ákvörðun ríkis- stjórnarinnar HINN 30. janúar kl. 23.32 varð árekstur og slys á gatnamótum Sæ- brautar og Skeiðarvogs. Varð áreksturinn með þeim hætti að bif- reiðinni MG-050, sem er Skoda Fel- icia-fólksbifreið, var ekið austur Skeiðarvog og áfram áleiðis yfir gatnamót Sæbrautar, en í sömu mund var bifreiðinni AI-854, sem er rauð Subaru fólksbifreið, ekið suð- ur Sæbraut og inn á sömu gatna- mót. Á gatnamótum þessum er umferð stýrt með ljósum. Ekki er á þessari stundu vitað nákvæmlega hver litur ljósanna var gagnvart ökumönnum bifreiðanna. Eru því þeir sem geta gefið frekari upplýsingar beðnir að snúa sér til umferðardeildar lög- reglunnar í Reykjavík. Lýst eftir vitnum Góðar flugur Vegna mistaka við vinnslu upplýs- ingaramma með góðum ráðum um veiðiflugur í Daglegu lífi í gær varð hluti textans ólæsilegur. Morgun- blaðið biðst velvirðingar og bendir áhugasömum um ráð af því taginu á vefinn www.flugur.is. LEIÐRÉTT MÁLSTOFUR hagfræðisviðs eru haldnar í Seðlabanka Íslands, Sölv- hól, mánudaga kl. 15.30: Mánudaginn 4. febrúar: Lífeyris- kerfi á Norðurlöndunum og snemm- tekinn lífeyrir, frummælandi Tryggvi Þór Herbertsson. 18. febrúar: BIS-reglur, áhættu- stjórnun og íslenskir bankar, frum- mælendur, Guðmundur Magnússon og Saso Adnonov. 4. mars: Hvað bjóða bankarnir? – Bankaþjónusta á Norðurlöndunum, frummælandi, Ólafur Örn Klemens- son. 18. mars: Líkanagerð og gagna- greining við strjál viðskipti á verð- bréfamarkaði: Gögn frá VÞÍ, frum- mælandi Helgi Tómasson. 22. apríl: Peningamálastefnan, hag- ur atvinnugreina og rætur verðbólg- unnar, frummælandi, Gylfi Zoëga. 13. maí: Lítið, opið hagkerfi með innlend- um auðlindaskellum: Myntbandalag eða fljótandi gengi, frummælandi: Tór Einarsson. 3. júní: Nýtt mat á samspili gengis, launa og verðlags, frummælandi Guð- mundur Guðmundsson, segir í frétta- tilkynningu frá Seðlabankanum. Málstofur í Seðlabanka Íslands HÓLMSTEINSÚTGÁFAN hefur ákveðið að fresta fyrirhugaðri útgáfu vikublaðs, að því er fram kemur í fréttatilkynningu sem þeir Sigurður G. Guðjónsson og Hjálmar Blöndal undirrita fyrir hönd útgáfunnar. Þar kemur fram að frestunin sé tilkomin vegna samdráttar á íslensk- um auglýsingamarkaði. „Stjórn félagsins mun hins vegar endurskoða afstöðu sína ef og þegar ríkisstjórn Davíðs Oddssonar nær tökum á efnahagsvandanum hér á landi. Félagið þakkar þær baráttukveðj- ur sem bárust frá hundruð Íslend- inga vegna fyrirhugaðrar útgáfu vikublaðsins. Á næstunni verður heimasíða félagsins opnuð á slóðinni www.holmsteinn.is þar sem hægt verður að fylgjast með fréttum af fé- laginu,“ segir orðrétt í fréttatilkynn- ingunni. Fresta útgáfu vikublaðs NÁMSKEIÐ um grunnatriði í kynjafræði verður haldið hjá End- urmenntunarstofnun Háskóla Ís- lands frá 5. febrúar til 26. mars kl. 20.15–22.15. Verð kr. 14.000. Markmiðið er að kynna grunn- atriði kynjafræða og mikilvægi kynjavitundar í samfélagsumræðu og stefnumótun. Fjallað er um birtingarform og merkingu kyn- ferðis á nokkrum völdum sviðum, s.s. í fjölskyldulífi, atvinnulífi, menningu og tungumáli. Nám- skeiðið er öðrum þræði hópa- og verkefnavinna þar sem þátttakend- ur kryfja stöðu kynjanna eins og hún birtist okkur í þjóðfélagi og menningu samtímans. Þorgerður Einarsdóttir, lektor í kynjafræði við HÍ, og Irma Er- lingsdóttir, forstöðumaður Rann- sóknastofu í kvennafræðum við HÍ, hafa umsjón með námskeiðinu, segir í fréttatilkynningu. Kynjamyndir í samfélagi og menningu FYRIRLESTUR um meðvirkni verður haldinn þriðjudaginn 5. febr- úar kl. 19 í Heilsuhvoli, Flókagötu 65, Reykjavík. Fyrirlesari er Gitte Lassen. Fyrirlesturinn skýrir frá einkenn- um meðvirkni, hvaðan einkennin koma og hvað er til ráða. Fyrirlesturinn fer fram á ensku. Aðgangseyrir krónur 1.500. Fyrirlestur um meðvirkni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.