Morgunblaðið - 02.02.2002, Qupperneq 4
VÍTISENGLARNIR nítján sem
komu til landsins með flugi frá Kaup-
mannahöfn á fimmtudag og fimmtu-
dagskvöld voru ekki fyrstu vítis-
englarnir sem komið hafa til landsins.
Á blaðamannafundi, sem haldinn
var í húsakynnum ríkislögreglustjóra
í gær, var upplýst að lögregla hér á
landi hefur um nokkurt skeið fylgst
með hópum vítisengla frá Danmörku
en talið er víst að þeir hafi áhuga á að
færa glæpastarfsemi sína hingað til
lands. Þá hefur lögregla áður fengið
vísbendingar um áhuga samtakanna
á að hefja starfsemi á Íslandi.
Meðal þeirra sem heimsótt hafa
landið er Jørgen „Jønke“ Nielsen,
sem er einn helsti foringi Vítisengla í
Danmörku og gjarnan talsmaður
þeirra út á við. Hann er talinn einn af
upphafsmönnum samtakanna í Dan-
mörku en sjálfur hefur hann hlotið
dóma fyrir ofbeldisglæpi. Skv. upp-
lýsingum frá danska ríkislögreglu-
stjóranum myrti hann foringja í
danska vélhjólaklúbbnum „Bullshit“ í
upphafi 9. áratugarins en upp frá því
fór vegur Vítisengla í Danmörku vax-
andi.
Ellefu af þeim nítján vítisenglum
sem komu til landsins í vikunni kom-
ust hins vegar ekki lengra en í Leifs-
stöð þar sem þeim var neitað um leyfi
til að fara inn í landið af sýslumann-
inum á Keflavíkurflugvelli. Fóru þeir
í lögreglufylgd til Kaupmannahafnar
í gærmorgun.
Í gær úrskurðaði Útlendingaeftir-
litið að vítisenglunum átta, sem var
heimiluð landganga, væri ekki heimilt
að dvelja á landinu. Voru þeir hand-
teknir fyrir hádegi og er ætlunin að
flytja þá til Kaupmannahafnar með
morgunfluginu til Kaupmannahafnar
í dag.
Skipulagður glæpahópur
Haraldur Johannessen ríkislög-
reglustjóri sagði á blaðamannafundi í
gær að lögregla liti svo á að Vítisengl-
ar væru skipulagður glæpahópur.
Reyndu aðrir meðlimir í Vítisenglum
eða svipuðum samtökum að koma til
landsins, mættu þeir búast við svip-
uðum aðgerðum.
„Við erum að reyna að koma í veg
fyrir afbrot og koma í veg fyrir að af-
brotamenn eða afbrotahópar skapi
sér einhvers konar svigrúm hér á
landi til þess að stunda afbrotastarf-
semi. Við getum ekki beðið eftir því
og horft á það aðgerðalausir að þeir
komi sér hér fyrir og byrji sína brota-
starfsemi og reynt að grípa þá inn í.
Reynslan sýnir að þá er það of seint,“
sagði Haraldur.
Úrskurður Útlendingaeftirlitsins
um að vítisenglunum væri óheimilt að
dvelja á landinu byggist á lögum um
eftirlit með útlendingum en þar eru
gefnar víðtækar heimildir til að neita
útlendingum um landvist. Þar segir
að hægt sé að meina útlendingum
landgöngu ef ætla má að þeir séu
hingað komnir til starfa eða athafna,
sem eru ólöglegar, ósæmilegar eða
hættulegar hagsmunum ríkisins eða
almennings. Einnig ef högum þeirra
er þannig háttað að ætla megi að vist
þeirra megi teljast hættuleg eða
bagaleg hagsmunum ríkis eða al-
mennings.
Upplýsingar bárust frá dönsku
lögreglunni fyrir nokkru að Vítisengl-
ar hygðust ná fótfestu hér á landi í
gegnum vélhjólaklúbbinn Fáfni.
Danska lögreglan komst á snoðir um
þetta við rannsókn á sakamáli í Dan-
mörku en Haraldur vildi ekki að öðru
leyti tjá sig um þennan þátt rann-
sóknarinnar.
Þá væri vitað að vítisenglar hefðu
áður heimsótt félaga í Fáfni sem hafa
verið undir stöðugu eftirliti lögreglu
síðustu daga. Aðspurður sagði Har-
aldur að ekki væri útilokað að þeir
yrðu kallaðir til yfirheyrslu. Aðsetur
vélhjólaklúbbsins Fáfnis er í Grinda-
vík en meðlimir félagsins munu vera
búsettir á höfuðborgarsvæðinu.
Í síðustu viku lét danska lögreglan
ríkislögreglustjóra vita af því að hóp-
ur vítisengla væri væntanlegur til
landsins. Á þriðjudag kom sérfræð-
ingur frá dönsku lögreglunni til
landsins og aðstoðaði hann lögreglu
hér á landi m.a. við að þekkja vítis-
englana úr hópi farþega. Sérfræðing-
urinn var á hinn bóginn ekki sýnileg-
ur þegar vítisenglarnir voru stöðvaðir
á Keflavíkurflugvelli. Vegna öryggis
hans var hann hvorki nafngreindur
né viðstaddur á blaðamannafundin-
um.
Eins og fyrr segir var átta vítis-
englum hleypt inn í landið en ellefu
meinuð landanga þegar í stað. Jó-
hann R. Benediktsson, sýslumaður á
Keflavíkurflugvelli, sagði að ellefu-
menningarnir hefðu allir hlotið þunga
dóma. Hinir voru ekki með eins alvar-
legan sakarferil og því taldi embættið
öruggara að hleypa þeim inn í landið
og bíða úrskurðar Útlendingaeftir-
litsins. „Sú staðreynd liggur á borð-
inu að þeir eru allir meðlimir í þessum
samtökum Vítisengla og afbrotaferill
þessara manna er ærið skrautlegur
svo ekki sé meira sagt. Þeir hafa verið
dæmdir fyrir morð, manndrápstil-
raunir, mannrán, fíkniefnasmygl,
slagsmál og ýmiss konar annað of-
beldi. Þannig að þetta var allsvaka-
legur hópur sem þarna var saman
kominn. Það er rétt að það komi líka
fram, að þessir menn höfðu uppi hót-
anir,“ sagði Jóhann. „Þeir sögðust
myndu koma aftur í stærri hópum og
þeir myndu koma á morgun og næsta
dag og þar næsta dag.“ Lögreglan
hefði hins vegar nægt úthald til að
halda slíkum mönnum frá landinu.
Ellefumenningunum var haldið á
svokölluðu „transit-svæði“ flugstöðv-
arinnar og sagði Jóhann að á köflum
hefði verið afskaplega mikil spenna í
loftinu. Ekki kom þó til átaka en lög-
regla var við öllu búin.
Margir vítisenglanna voru í mitt-
isjökkum sem voru merktir samtök-
unum. Skv. upplýsingum frá ríkislög-
reglustjóra voru tveir með merkið
„filthy-few“ á jökkunum en aðeins
þeir sem hafa myrt fyrir Vítisengla
munu bera slíkt merki. Filthy-few
gæti t.d. þýtt hinir óþverralegu.
Lögregla fylgdist grannt með þeim
átta sem var hleypt inn í landið og fór
ekki leynt með að þeir væru undir eft-
irliti. Reyndu vítisenglarnir að hrista
lögreglu af sér en án árangurs.
Jón H. Snorrason, saksóknari og
yfirmaður efnahagsbrotadeildar rík-
islögreglustjóra, sagði að sannað
þætti að starfsemi Vítisengla gengi
eingöngu út á skipulagða glæpastarf-
semi og að þeir hygðust ná fótfestu
hér á landi. „Við teljum að við séum
að mæta hér upphafsskrefunum. Það
reynir mjög á að við höldum þessari
baráttu áfram því útbreiðslu hafa
þeir ekki náð og það er markmiðið að
halda þessari baráttu áfram.“ Lög-
regla hefði fengið upplýsingar um að
Vítisenglar hefðu óskað eftir sam-
starfi við fleiri hópa mótorhjóla-
manna hér á landi en aðrir hópar en
Fáfnir hefðu rekið vítisenglana af
höndum sér.
Stefán Eiríksson, skrifstofustjóri
dómsmálaráðuneytisins, sagði ís-
lensk stjórnvöld ætla að beita öllum
tiltækum ráðum gegn skipulagðri
glæpastarfsemi, þar á meðal starf-
semi af þeim toga sem „við höfum
verið að fylgjast með undanfarna tvo
daga“. Málið ætti sér langan aðdrag-
anda. „Við höfum vitað af því lengi að
það væri raunveruleg hætta á því að
þessi tegund af glæpastarfsemi
myndi breiðast út hér á landi.“
Skemma fyrir
mótorhjólamönnum
Í samtali við Morgunblaðið sagði
Sverrir Þór Einarsson, talsmaður
Fáfnis, að vítisenglarnir sem komu
hingað tilheyri klúbbi Vítisengla í
Kaupmannahöfn og nágrenni. Um sé
að ræða vinaklúbb Fáfnis. Því fari
fjarri að þeir hafi ætlað að koma á fót
glæpastarfsemi hérlendis.
„Við áttum pantað með Ævintýra-
ferðum á morgun [í dag] upp á Lang-
jökul, Gullfoss og Geysi og Bláa lónið
og þetta hefðbundna. Við vorum á
leiðinni í snjósleðaferð þannig að það
var bara um skemmtiferð að ræða.
Enda ef menn kæmu í glæpsamleg-
um tilgangi væru þeir í jakkafötum
með skjalatösku og myndu læðast í
gegnum Færeyjar til Íslands. Þeir
myndu ekki byrja á því að merkja
sig.“ Sverrir segir hópinn hafa ætlað
að vera hér fram yfir helgina. Það sé
opinbert markmið Fáfnis að gerast
meðlimir í Vítisenglunum og búið sé
að sækja um inngöngu. Heimsókn
dönsku vítisenglanna hafi ekki verið
formlega liður í innlimun Fáfnis í
samtökin ytra en vissulega væru öll
samskipti liður í því.
Hann segir fjarri því að Vítisengl-
arnir séu glæpasamtök og mótmælir
málflutningi lögreglu þar um. Sam-
tök vítisengla hefðu sem slík aldrei
verið dæmd fyrir glæp en hins vegar
hafi einstakir meðlimir komist upp á
kant við lögin og það sama ætti við
um meðlimi Fáfnis.
Í fréttatilkynningu frá stjórn Bif-
hjólasamtaka Lýðveldisins, Snigla,
segir að samtökin vilji koma því á
framfæri að samtökin séu á engan
hátt viðriðin vítisengla eða komu
þeirra hingað til lands og að Vítis-
englar séu þau samtök manna sem
mest hafi skemmt fyrir mótorhjóla-
fólki úti um allan heim.
Vísbendingar um áhuga 1997
Áhugi Vítisengla á Íslandi er ekki
nýr af nálinni.
Árið 1997 bárust lögreglunni í
Reykjavík upplýsingar sem sýndu
fram á samband nektarstaða á Ís-
landi við kanadísk fyrirtæki í eigu
Vítisengla þar í landi og var fjallað ít-
arlega um málið í Morgunblaðinu.
Þrír nektardansstaðir voru starf-
ræktir á Íslandi á þessum tíma og
kemur fram að tveir af þeim hafi
fengið dansmeyjar sendar í gegnum
umboðsskrifstofu sem tengdist vítis-
englum. Í annari grein, sem birtist
mánuði síðar, segir að margar fata-
fellnanna sem hingað komu hafi verið
á sakaskrá og notið verndar Vítis-
englanna.
Þeir lögreglumenn, sem rætt var
við vegna greinarinnar, töldu ekki að
Vítisenglarnir væru farnir að setjast
að hérlendis. Hins vegar hefðu komið
fram vísbendingar um að þeir hefðu
áhuga á Íslandi. Dæmi um þetta væru
gögn, sem danska lögreglan fann við
húsleit hjá Vítisenglum í Hróars-
keldu, sem sýndu að danskir vítis-
englar litu á Ísland sem umráðasvæði
sitt. Kom fram í þessum gögnum að
framtíðarmarkmið samtakanna væri
að skipta Evrópu upp í þrjú svæði og
stofna deildir víðast hvar, þar á meðal
hérlendis.
Of seint að grípa til aðgerða þegar Vítisenglar hafa náð hér fótfestu
Vítisenglar hafa áður
sýnt áhuga á Íslandi
Morgunblaðið/Sverrir
Lögreglumenn tóku á móti vítisenglunum við komuna til Keflavíkurflugvallar á fimmtudagskvöld.
Morgunblaðið/Júlíus
Böðvar Bragason, lögreglustjóri í Reykjavík, Jóhann R. Benediktsson, sýslumaður á Keflavíkurflugvelli, Har-
aldur Johannessen ríkislögreglustjóri, Stefán Eiríksson, skrifstofustjóri dómsmálaráðuneytisins, og Jón H.
Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra, á blaðamannafundi í gær.
„ÞAÐ er breið samstaða um það í íslenska stjórnkerf-
inu, að berjast með öllum tiltækum ráðum gegn skipu-
lagðri glæpastarfsemi, þ.á m. starfsemi sem þrífst inn-
an samtakanna Vítisengla,“ segir Sólveig Pétursdóttir
dómsmálaráðherra, spurð um viðbrögð hennar við því
hvernig tekið var á málum vítisengla við komu þeirra
hingað til lands á fimmtudag.
„Aðgerðir lögreglu voru vel skipulagðar og vel
heppnaðar. Að þeim komu fyrst og fremst embætti rík-
islögreglustjóra og embætti sýslumannsins á Keflavík-
urflugvelli, en þeir nutu aðstoðar lögreglumanna frá
Reykjavík, Hafnarfirði, Kópavogi og Keflavík. Það hef-
ur verið samstarf við dómsmálaráðuneytið vegna ým-
issa lagalegra atriði er snúa að framkvæmd Schengen-
samningsins og laga um eftirlit með útlendingum. Þessi
aðgerð undirstrikar mikilvægi alþjóðlegrar samvinnu,
en upplýsingar um komu þessa hóps komu frá lögreglu-
yfirvöldum á Norðurlöndum. Við höfum fylgst mjög ná-
ið með þróun þessara mála á undanförnum árum sér-
staklega á Norðulöndunum, t.d. á vettvangi Norræna
ráðherraráðsins. Schengen-samstarfið hefur einnig
skilað okkur mjög öflugri lögreglusamvinnu og í
tengslum við það, höfum við m.a. gert samstarfssamn-
ing við Europol og höfum aðkomu að vinnu Evrópusam-
bandins að vörnum gegn skipulagðri brotastarfsemi.“
Sólveig segir það samdóma álit manna á Norður-
löndum, að ef ekki er brugðist hart við þegar í upphafi,
nái samtök á borð við Vítisengla að skjóta rótum og erf-
itt sé að uppræta þau þegar þau hafa náð fótfestu. „Með
hliðsjón af því eru aðgerðir íslenskra yfirvalda
ákveðnar og skýrar, vel yfirvegaðar og vel und-
irbúnar,“ segir Sólveig.
Mikilvægi alþjóðlegs samstarfs
FRÉTTIR
4 LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ