Morgunblaðið - 02.02.2002, Síða 6
FRÉTTIR
6 LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
FRIÐRIK Pálsson, stjórnar-
formaður Símans, afhenti í gær
ríkisstjórn Íslands málverk eftir
Kristínu Jónsdóttur af Hannesi
Hafstein ráðherra til varðveislu í
Þjóðmenningarhúsinu, en verkið
hefur verið í eigu fyrirtækisins.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
tók við málverkinu við hátíðlega
athöfn í Þjóðmenningarhúsinu að
viðstaddri stjórn Símans og Ósk-
ari Jósefssyni forstjóra fyrirtæk-
isins auk stjórnar Þjóðmenning-
arhússins, forstöðumanns þess,
Guðmundar Magnússonar og
Sturlu Böðvarssyni samgönguráð-
herra sem flutti ávarp.
Forsætisráðherra færði for-
ráðamönnum og stjórn Símans
þakkir fyrir hönd ríkisstjórn-
arinnar og sagði verkið eiga afar
vel heima í Þjóðmenningarhúsinu,
einu merkasta og fegursta húsi
landsins. „Einhvern tíma heyrði
ég að húsið hefði kostað ígildi
hálfra fjárlaganna þegar það var
byggt. Þetta er vitanlega rífleg
fjárhæð, en skyldi menn einhvern
tíma hafa látið sig dreyma um
það þegar deilan um Símann stóð
sem hæst að hann yrði í framtíð-
inni svo mikils virði að rætt yrði
um hvort hann ætti að kosta 40
eða 100 milljarða. Svo hefur Sím-
inn vaxið og dafnað,“ sagði Dav-
íð.
Stofa Hannesar
Hafstein
Ákveðið var að gefa Þjóðmenn-
ingarhúsinu málverkið eftir
Kristínu Jónsdóttur í tilefni þess
að í gær voru 98 ár liðin frá því
Hannes Hafstein tók við embætti
ráðherra á Íslandi. Kristín málaði
verkið fyrir Símann á fyrri hluta
síðustu aldar. Í Þjóðmenning-
arhúsinu eru tvær stofur kenndar
við einstaklinga, Hannes Hafstein
ráðherra og Jón Sigurðsson for-
seta. Í stofu Jóns hangir málverk
af honum og nú er einnig komið
málverk af Hannesi í stofunni
sem nefnd er eftir honum. Í stofu
Hannesar er að finna ýmsa muni
úr einkalífi hans og frá ferli hans
sem stjórnmálamanns og skálds.
Við afhendingu málverksins
reifaði Friðrik Pálsson mikil-
vægan þátt Hannesar Hafstein í
að leggja grunn að stofnun
Landssímans í ráðherratíð sinni,
en Hannes beitti sér fyrir því að
lagður yrði sæsími til Íslands, frá
Hjaltlandi til Þórshafnar og það-
an til Seyðisfjarðar og Reykjavík-
ur. Þessi ákvörðun var fyrsta
meiri háttar ákvörðun íslensks
ráðherra, en um hana höfðu
spunnist miklar pólitískar deilur
þar sem stjórnarandstaðan vildi
loftskeytasamband til landsins.
Þrátt fyrir mótmæli var tillaga
Hannesar samþykkt á Alþingi og
sæsíminn vígður á Seyðisfirði 25.
ágúst 1906 og í Reykjavík 29.
september sama ár.
Morgunblaðið/Þorkell
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra og Friðrik Pálsson, stjórnarformaður Símans, hlýða á þakkarorð Davíðs
Oddssonar forætisráðherra vegna málverkagjafar Símans til ríkisstjórnarinnar.
Síminn
gefur mál-
verk af
Hannesi
Hafstein
FRUMVARP til laga um stofnun hlutafélags um
Rafmagnsveitu ríkisins, RARIK, var kynnt í rík-
isstjórn í gær, en samkvæmt frumvarpinu er gert
ráð fyrir að stofnfundur hlutafélagsins verði hald-
inn eigi síðar en 1. september í haust og að hluta-
félagið taki til starfa eigi síðar en um næstu ára-
mót og yfirtaki þá allar eignir, réttindi, skuldir og
skuldbindingar Rafmagnsveitna ríkisins.
„Við viljum með þessu breyta rekstrarforminu
frá því sem nú er. Í hlutafélagsformi má ætla, að
reksturinn verði sveigjanlegri. Ábyrgð ríkissjóðs
á rekstri fyrirtækisins takmarkast við hlutafjár-
eign og ábyrgð stjórnenda eykst,“ segir Valgerður
Sverrisdóttir, viðskipta- og iðnaðarráðherra.
Hún segir einnig að með því að reka Rafmagns-
veiturnar í hlutafélagsformi megi ætla að fjárfest-
ingar og nýjungar í rekstri verði auðveldari í
framkvæmd og fjárhagsleg uppbygging fyrirtæk-
isins sem hlutafélags stuðli að aukinni hagræðingu
og hagkvæmni í rekstri.
Fram kemur að með því að breyta rekstrar-
formi Rafmagnsveitna ríkisins, svo sem frumvarp-
ið gerir ráð fyrir, er jafnframt opnað fyrir þann
möguleika, að aðrar orkuveitur geti gengið inn í
hlutafélagið og orðið hluthafar í því.
Samkvæmt ársreikningi RARIK fyrir árið 2000
voru langtímaskuldir fyrirtækisins rúmlega þrír
milljarðar króna, um 1,4 milljarðar króna vegna
lífeyrisskuldbindinga og um 1,6 milljarðar króna
hjá Norræna fjárfestingarbankanum. Auk þess er
að finna í fjáraukalögum vegna ársins 2001 heim-
ild til aukinnar lántöku um 780 milljónir kr. Geng-
ið er út frá því að hlutafélagið taki við þessum
skuldbindingum og að breyting á rekstrarformi
hreyfi ekki við ríkisábyrgðum á lántökum fram að
stofnun hlutafélagsins.
Þá kemur fram að í gildi sé samningur milli
RARIK og ríkisvaldsins um arðgreiðslur en ljóst
sé að taka þurfi þann samning upp í tengslum við
breytingu á rekstrarforminu og fyrirhugaðar
skattgreiðslur orkufyrirtækja í umhverfi nýrra
raforkulaga.
Gjald á raforkuvinnslu til almenningsnota
Jafnframt kemur fram að í dreifikerfi RARIK
séu óarðbærar rekstrareiningar sem fyrirtækið
hafi borið kostnað af, en þeim kostnaði hafi í tví-
gang á síðustu fimmtán árum verið mætt með yf-
irtöku ríkissjóðs á hluta af skuldum fyrirtækisins.
Liggur fyrir samkomulg iðnaðarráðherra og
fjármálaráðherra í tengslum við ný raforkulög þar
sem lagt er til að kostnaði vegna þessara óarð-
bæru eininga verði mætt með gjaldi á raforku-
vinnslu til almenningsnota.
Frumvarp um að RARIK
verði gert að hlutafélagi
REYKJAVÍKURLISTINN hefur
stuðning um 51% kjósenda í Reykja-
vík og Sjálfstæðisflokkurinn um 45%
ef marka má niðurstöðu skoðana-
könnunar Gallup um fylgi listanna í
Reykjavík en þetta er svipuð útkoma
og var um síðustu áramót. Stuðning-
ur við lista Frjálslynda flokksins
undir forystu Ólafs Magnússonar
mældist 3%.
Ef litið er til fylgis flokkanna á
landsvísu kemur fram að fylgi við
Samfylkinguna og Sjálfstæðisflokk-
inn eykst en fylgi VG minnkar. Sam-
fylkingin fær 20%, en var með 18%
og VG fær einnig 20% en var 24% í
síðustu könnun. Fylgi Sjálfstæðis-
flokksins eykst úr 40% í 42%. Fylgi
Framsóknarflokksins stendur í stað
og er hann með 14% eins og í síðustu
könnun og sama gildir um Frjáls-
lynda flokkinn að hann er með sama
fylgi og í síðustu könnun eða 3%.
Könnunin er símakönnun sem fór
fram 2.–29. janúar. Úrtakið var 2.196
manns á landinu öllu á aldrinum 18–
75 ára og var svarhlutfall 70%. Um
20% voru ekki viss og 6% sögðust
skila auðu eða kjósa ekki.
R-listi með
51% og D-listi
með 45%
STJÓRN Íbúðalánasjóðs hefur sam-
þykkt að verða við beiðni félagsmála-
ráðherra um að afturkalla fyrri
vaxtaákvörðun stjórnar. Er þessi
beiðni komin fram með hliðsjón af
aðgerðum ríkisstjórnarinnar og að-
ila vinnumarkaðarins til að ná niður
verðbólgu. Vextir verði þannig um
sinn þeir sömu og þeir voru í árslok
2001.
Þær vaxtabreytingar sem tóku
gildi um áramót fólu í sér að vextir til
viðbótarlána hækkuðu úr 5,7% í
5,92%. Vextir á almennum leiguíbúð-
um hækkuðu úr 4,9% í 5,49% og lán
til meiriháttar endurbóta á húsnæði
hækkuðu úr 5,7% í 6,12%.
Í tilkynningu frá sjóðnum segir að
þessi ákvörðun sé tekin í trausti þess
að Íbúðalánasjóði verði bætt vaxta-
tapið með framlögum úr ríkissjóði.
Þá samþykkti stjórn Íbúðalánasjóðs
að taka vexti sjóðsins til endurskoð-
unar fyrir 1. júní 2002. Ekki er talið
að ákvörðun þessi hafi áhrif á þegar
birtar áætlanir sjóðsins um útboð
húsnæðisbréfa á árinu 2002.
Íbúðalánasjóður
Vaxtahækk-
un dregin
til baka
Stjórnmálaflokkarnir sem aðild
eiga að Reykjavíkurlistanum
afgreiða á fundum í dag sam-
starfsyfirlýsingu flokkanna
vegna sameiginlegs framboðs í
Reykjavík við borgarstjórnar-
kosningarnar í vor.
Jafnframt er þess vænst að
fundirnir taki ákvörðun um það
hvernig hver flokkur um sig
muni standa að vali sinna full-
trúa á sameiginlegan lista, en
ekki var hægt að fá upplýsingar
um það í gær hvaða aðferðum
yrði beitt í þeim efnum.
Fundur í Framsóknarflokkn-
um í Reykjavík hefst klukkan
10 fyrir hádegi á Grand hótel,
Vinstri hreyfingin – grænt
framboð er með fund í Iðnaðar-
mannahúsinu við Hallveigar-
stíg kl. 13 og Samfylkingin
fundar á Hótel Sögu klukkan
13.30.
Reykjavíkurlistinn
Samstarfs-
yfirlýsing af-
greidd í dag
♦ ♦ ♦
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti á
fundi sínum í gærmorgun að
styrkja Handknattleikssamband Ís-
lands um 15 milljónir króna vegna
þátttöku A-landsliðs karla í Evr-
ópukeppninni í Svíþjóð. Fyrirtæki
og einstaklingar hafa einnig brugð-
ist mjög vel við og höfðu safnast um
11 milljónir króna í gærkvöld en
haldið verður áfram um helgina. Þá
hafa mörg sveitarfélög einnig til-
kynnt að þau hyggist styrkja HSÍ.
Björn Bjarnason, mennta-
málaráðherra, sagðist í samtali við
Morgunblaðið hafa flutt tillögu í
þessum efnum í ríkisstjórninni
vegna glæsilegrar frammistöðu ís-
lenska landsliðsins í Svíþjóð og hún
hefði verið samþykkt. Hann hefði í
framhaldinu rætt við Guðmund
Ingvarsson, formann HSÍ, og til-
kynnt honum þetta og flutt honum
kveðjur ríkisstjórnarinnar og
heillaóskir til landsliðsins.
Björn sagðist einnig hafa kynnt
hugmyndir um að sérstakur stuðn-
ingur kæmi úr afrekssjóði ÍSÍ þeg-
ar hópar eins og landsliðið í hand-
bolta næðu svona glæsilegum
árangri. Þeir ættu ekki síður að
eiga kost á afreksstyrkjum en ein-
stakir íþróttamenn.
Fyrirtæki og einstaklingar hafa
tekið vel í áskorun um að efna til
samskota til þess að styrkja HSÍ og
höfðu um átta milljónir safnast í
fyrirtækjasöfnun á Rás 2 í gær-
kvöld og vel á þriðju milljón til við-
bótar hafði safnast meðal ein-
staklinga, en þá fer söfnunin þannig
fram að hringt er í síma 907-2800
og skuldfærast þá 800 krónur af
símareikningi viðkomandi.
Það er sama hvar gripið er niður,
alls staðar er áhuginn á handbolt-
anum þessa dagana. Bjarni Magn-
ússon, hreppstjóri í Grímsey, segir
mikinn áhuga vera í eynni fyrir
Evrópumótinu í Svíþjóð. „Hér hafa
menn komið saman þar sem sjón-
vörpin eru stærri og
nýrri til þess að horfa
á leikina. Þeir sem
hafa óskapast yfir
íþróttaglápi hafa
raunar horft á þetta
líka og sýnt okkur
hinum mikinn skiln-
ing. Menn hafa verið
að tala um það að
koma fyrir sjónvarpi í
félagsheimilinu Múla
þannig að allir hér í
eynni geti safnast
saman og horft á leik-
inn við Svía. Mér þyk-
ir ekki ólíklegt að af
því verði. Það er varla
rætt um neitt annað
en handbolta þegar
menn hittast hér, að
minnsta kosti byrja
og enda öll samtöl á
honum.
Mér finnst hafa orð-
ið gerbylting á íslenska liðinu og þá
sérstaklega vörnin og hraðaupp-
hlaupin. Við erum með helmingi
fleiri mörk en Svíar í hraðaupp-
hlaupum en þó eiga þeir að heita
sérfræðingar í þeim.“
Framlög streyma til HSÍ vegna árangurs íslenska landsliðsins í handbolta
Aron Kristjánsson lætur að sér kveða
í leik við Júgóslava á EM.
15 milljónir frá
stjórnvöldum
AP