Morgunblaðið - 02.02.2002, Page 11
Í LJÓSI góðrar afkomu Knatt-
spyrnusambands Íslands og líkum á
auknum tekjum vegna Evrópukeppn-
innar í knattspyrnu sem hefst næsta
haust hefur vaknað sú spurning hvort
KSÍ gæti tekið þátt í að fjármagna
kostnað vegna sjónvarpsútsendinga
frá HM í sumar. „Ef það væri hlut-
verk okkar,“ segir Eggert Magnús-
son, formaður Knattspyrnusambands
Íslands, „myndum við eflaust gera
það. Við álítum hins vegar að það sé
ekki hlutverk KSÍ. Okkar umbjóð-
endur, sem eru félögin sjálf, yrðu vart
hrifnir af því ef það kæmi í hlut KSÍ
að borga fyrir sjónvarpsréttinn.“
Aðspurður segist Eggert hafa trú á
því að sýnt verði frá keppninni. „Ég
verð þá einfaldlega að éta hattinn
minn þegar þar að kemur. En ég held
þó ekki að til þess muni koma.“
Eggert segist telja að hagsmunir
okkar og Alþjóða knattspyrnusam-
bandsins fari saman. „Og ég held líka
að það séu hagsmunir sjónvarpsrétt-
arfyrirtækisins og allra sem að þessu
koma að sem flest lönd verði tilgreind
sem sýnendur. Ég held að upphæðin
sem verið er að tala um í sambandi við
okkur sé ekki það stór að menn hljóti
að finna leið svo sýnt verði hér. Þeir
sem eiga sýningarréttinn eru að selja
stórum fyrirtækjum eins og Europay,
Coca Cola og Adidas auglýsingar og
það er þeirra hagur að sem flestir
horfi á keppnina. Ef það verður ekki
getur það haft áhrif á næstu samn-
ingagerð.“
Ekki hlutverk
KSÍ að taka
þátt í kostnaði
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2002 11
SHI Guangsheng, utanríkisviðskipta-
og efnahagsmálaráðherra Kína verð-
ur í opinberri heimsókn hér á landi
dagana 2.-5. febrúar.
Í fjarveru Halldórs Ásgrímssonar
utanríkisráðherra mun ráðherrann
eiga fund með Valgerði Sverrisdóttur
iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Á
fundi sínum munu ráðherrarnir ræða
samstarf Íslands og Kína á sviði við-
skipta, s.s. á sviði sjávarútvegs og
jarðhita. Jafnframt mun ráðherrann
þiggja hádegisverð í boði Geirs H.
Haarde fjármálaráðherra.
Ráðherrann mun taka þátt í morg-
unverðarfundi með hagsmunaaðilum
úr viðskiptalífinu mánudaginn 4. febr-
úar kl. 8.00 í Sunnusal Hótel Sögu.
Hann flytur ávarp á fundinum og
svarar fyrirspurnum fundarmanna
um viðskipti landanna. Jafnframt
mun kínverski ráðherrann kynna sér
starfsemi Orkuveitu Reykjavíkur á
Nesjavöllum og starfsemi fiskvinnslu
Granda hf., heimsækja safn Árna
Magnússonar og verslunarmiðstöð-
ina Smáralind, segir í fréttatilkynn-
ingu frá utanríkisráðuneytinu.
Efnahags-
málaráð-
herra Kína
í opinberri
heimsókn
♦ ♦ ♦
SÓLVEIG Pétursdóttir dóms-
málaráðherra opnaði í gær nýjan
vef, www.lagabirting.is, sem
geymir Lögbirtingablað og
Stjórnartíðindi auk EES-
samningsins á Netinu, notendum
að kostnaðarlausu. Lögbirting-
arblað og Stjórnartíðindi munu
eftir sem áður koma út í prent-
aðri útgáfu, enda er rafræna út-
gáfan hugsuð sem hrein auka-
þjónusta.
Á lagabirting.is verða öll lög,
reglugerðir og alþjóðasamningar
sem birta ber í Stjórnartíðindum
birt á Netinu og mun almenn-
ingur því eiga aðgang að nýjum
réttarreglum á Netinu um leið og
þær öðlast gildi.
Í Lögbirtingarblaði er að finna
ýmsar opinberar tilkynningar og
ákvarðanir sem birta ber opin-
berlega samkvæmt lögum, s.s. op-
inberar stefnur, kröfulýsingar og
auglýsingar sem varða þrotabú.
Sólveig Pétursdóttir segir að birt-
ingu gagnanna fylgi mikið hag-
ræði fyrir þá sem þurfa að fylgj-
ast með þessum upplýsingum.
Farið var af stað með gerð
vefjarins samkvæmt tillögum
nefndar á vegum dómsmálaráðu-
neytisins, sem Eygló Halldórs-
dóttir, ritstjóri Stjórnartíðinda,
og Benedikt Bogason, héraðsdóm-
ari og formaður refsiréttar-
nefndar, sátu í.
Unnt er að fara beint inn á síð-
ur Lögbirtingablaðs á slóðinni
www.logbirtingablad.is og sömu-
leiðis á Stjórnartíðindi á slóðinni
www.stjornartidindi.is
Morgunblaðið/Sverrir
Frá opnun vefjarins lagabirting.is. F.v. Björn Þór Jónsson hugbún-
aðarráðgjafi, Yngvi Óskarsson, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra,
Eygló Halldórsdóttir, ritstjóri Stjórnartíðinda, Benedikt Bogason, for-
maður refsiréttarnefndar, og Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráðherra.
Lögbirtingablað og Stjórn-
artíðindi komin á Netið