Morgunblaðið - 02.02.2002, Síða 14
AKUREYRI
14 LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Dansskóli
Jóhanns Gunnars
Danskennsla hefst miðvikudaginn 6. febrúar.
Innritun og skráning í síma 821 2903
Dansinn lengir lífið
SPARISJÓÐUR Ólafsfjarðar hef-
ur í Héraðsdómi Norðurlands
eystra verið dæmdur til að greiða
konu um 5,2 milljónir króna auk
dráttarvaxta sem og að greiða 750
þúsund krónur í málskostnað.
Konan skrifaði upp á trygginga-
víxil vegna yfirdráttarheimildar
bróður síns hjá Sparisjóði Ólafs-
fjarðar árið 1989 og var heimildin
þá 100 þúsund krónur. Var upp-
hæðin óbreytt til ársins 1995, en á
miðju því ári var hún hækkuð og
stóð í 500 þúsund krónum í lok þess
árs. Heimildin hækkað síðan jafnt
og þétt, var 1,5 milljónir í apríl
1996 og 3,3 milljónir í lok þessa árs.
Tvívegis var heimildin hækkuð árið
1997 og nam hún 3,7 milljónum
króna í lok ársins. Ástæða þess að
heimildin var hækkuð var sú að
greitt var út af tékkareikningnum
til að koma skuldbindingum reikn-
ingseigandans í skil, en hann var í
vanskilum við sparisjóðinn. Fram
kemur að maðurinn hóf atvinnu-
rekstur árið 1995 og var tékka-
reikningur hans í sparisjóðnum
nýttur í atvinnurekstri hans.
Lokað var á viðskipti við mann-
inn snemma árs 1999 og í kjölfarið
útfyllti sparisjóðsstjóri víxileyðu-
blaðið og gerði það að fullgildum
víxli að upphæð um 3,8 milljónir
króna. Lögmaður sparisjóðsins
sendi konunni innheimtubréf í
mars þetta ár og skoraði á hana að
greiða um 4 milljónir króna vegna
tékkareikningsskuldar og víxil-
ábyrgðar hennar á skuldinni.
Í dómi héraðsdóms kemur fram
að óumdeilt sé að sparisjóðurinn
hafi ekki fyrr en með umræddu
innheimtubréfi upplýst konuna um
stöðu yfirdráttarheimildarinnar og
tékkareikningsskuldarinnar, en 10
ár voru þá liðin frá því hún veitti
sjóðnum títtnefnd umboð með því
að rita nafn sitt á víxileyðublaðið. Í
dómnum kemur fram að það hafi
verið ósanngjarnt og andstætt
góðri viðskiptavenju að nýta hið
umþrætta umboð til útfyllingar
víxileyðublaðsins í mars 1999. Því
beri að víkja umboðsgerningunum
til hliðar í heild og af því leiði að
konan beri enga ábyrgð á skuld-
inni.
Áður hafði konan greitt spari-
sjóðnum rúmar 5,2 milljónir króna
samkvæmt dómi sem kveðinn var
upp í víxilmáli milli aðila sumarið
2000. Sparisjóðurinn hafði þá hafn-
að því að varnir kæmust að umfram
það sem gert væri ráð fyrir í lögum
um slík mál.
Freyr Ófeigsson dómsstjóri kvað
upp dóminn. Verjandi konunnar
var Sif Konráðsdóttir hrl. en Árni
Pálsson hrl. var verjandi Spari-
sjóðs Ólafsfjarðar.
Sparisjóður Ólafsfjarðar endurgreiði konu 5,2 milljónir króna
Útfylling víxileyðublaðs and-
stæð góðri viðskiptavenju
Ábyrgðin hækk-
aði úr 100 þús-
undum í 5 millj-
ónir án vitundar
konunnar
GALDRASTRÁKURINN Harry Potter hefur verið í
sviðsljósinu í Giljaskóla síðustu daga, en í skólanum
hafa verið þemadagar sem hafa snúist um þessa vin-
sælu sögupersónu meðal ungu kynslóðarinnar.
Þemadagarnir stóðu í þrjá daga og voru viðfangs-
efnin af ýmsum toga, boðið var upp á blaða- og
myndbandshóp, búninga- og brúðugerð, galdrajurtir
og söguritun, dýr og furðuverur, tafl og spil sem og
matargerð og sögupersónur úr bókum Harry Potter.
Í sælgætisgerðinni var mikið um að vera en meðal
þess sem börnin voru að útbúa þar má nefna epli í
álögum, galdrahatta, Nimbus 2000, Hogwarts-
skólakaramellur, kókosgaldrakúlur, Harry Potter
popp og Töfra, sem brögðuðust vel, en uppistaðan í
þeim er kartöflur.
Nemendur höfðu kost á að velja sér viðfangsefni
fyrir hvern dag og var því unnið í aldursblönduðum
hópum. Þannig gafst nemendur skólans færi á að
kynnast án tillits til aldurs, hinir yngri gátu lært af
þeim eldri sem jafnframt lærðu að bera ábyrgð.
Greinilegt var að nemendur nutu þess að breyta til,
hverfa frá hinum hefðbundna skólastarfi um hríð og
fást við annars konar viðfangsefni, en líf og fjör var
úti um allan skóla í gærmorgun þegar Morgunblaðið
fylgdist með öflugu starfi krakkanna.
Líf og fjör í Giljaskóla
Morgunblaðið/Kristján
Lifandi taflmenn á gangi Giljaskóla.
Harry Potter
á þemadögum
FÉLÖGUM í Samlaginu, listhúsi á
Akureyri, hefur verið boðið að vera
með á samsýningu sem opnuð verð-
ur í dag, laugardag, í Listasavn
Föroya í Færeyjum. Sýningin
stendur í þrjár vikur. Á sýningunni
verður sýnishorn af vinnu hvers og
eins, en öll verkin voru unnin á síð-
asta ári. Félagar í Samlaginu eru
Anna María Guðmann, Anna Sigríð-
ur Hróðmarsdóttir, Anne Kampp,
Einar Helgason, Guðmundur Ár-
mann Sigurjónsson, Guðrún H.
Bjarnadóttir, Hrefna Harðardóttir,
H. Halldóra Helgadóttir, Jónborg
Sigurðardóttir, Ragnheiður Sigurð-
ardóttir, Rósa K. Júlíusdóttir, Sig-
ríður Ágústsdóttir, Sigurveig Sig-
urðardóttir og Sveinbjörg Hall-
grímsdóttir.
Samlagsfélagar
sýna í Færeyjum
SIGURÐUR Bergsteinsson forn-
leifafræðingur flytur fyrirlestur um
minjar og landslag í Minjasafninu á
Akureyri á sunnudag, 3. febrúar kl.
14.30.
Fyrirlestur Sigurðar fjallar um
fornminjar almennt, en þó sérstak-
lega í Eyjafirði. Hann mun velta fyr-
ir sér verðmætamati á fornminjum
og nauðsyn á friðun þeirra og kynn-
ingu.
Minjasafnið er opið alla sunnu-
daga frá kl. 14.00-16.00 og virka daga
eftir samkomulagi.
Minjar
og landslag
STEFÁN Snævarr mun halda fyrir-
lestur á vegum kennaradeildar Há-
skólans á Akureyri mánudaginn 4.
febrúar um gagnrýna þjóðernis-
stefnu. Fyrirlesturinn verður haldinn
í stofu 24 í húsi skólans við Þingvalla-
stræti og hefst kl. 16.15.
Stefán mun kynna hugmyndir sín-
ar um „gagnrýna þjóðernisstefnu“.
Rétt eins og hin gagnrýna skynsem-
ishyggja Karls Poppers er gagnrýnin
þjóðernisstefna gagnrýnin í þeim
skilningi að hún þekkir sínar eigin
takmarkanir, þjóðernisstefna getur
aldrei orðið altæk hugmyndafræði
sem öllu má fórna fyrir. Til eru tilvik
þar sem þjóðréttindi verða að víkja
fyrir einstaklingsrétti. Gagnrýnin
þjóðernisstefna er líka sjálfsgagnrýn-
in í þeim skilningi að fylgjendur henn-
ar eru gagnrýnir á eigin þjóð rétt eins
og spámenn Ísraels forðum tíð. Gagn-
rýnin þjóðernisstefna er bæði „ídeal“
og „ídealtýpa“, hún er sem sagt hug-
sjón og jafnframt hreinræktuð útgáfa
af hneigðum hjá ýmsum þjóðernis-
sinnum. Stefán mun nota verulegan
hluta lestursins til að svara vinsælli
gagnrýni á þjóðernisstefnu, segir í
fréttatilkynningu.
Gagnrýnin
þjóðernis-
stefna
VEGNA veðurs hefur tónleikum
með perlum frá Vín og Broadway,
sem halda átti í Laugarborg í Eyja-
firði í dag, verið frestað til föstudags-
ins 15. febrúar kl. 20.30.
Þeir miðar sem þegar hafa verið
seldir gilda þá, en þeir sem vilja geta
fengið þá endurgreidda í Pennanum-
Bókvali.
Tónleikum
frestað