Morgunblaðið - 02.02.2002, Síða 18
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
18 LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Íslensku
þekkingarverðlaunin
Fjögur
fyrirtæki
tilnefnd
FYRIRTÆKIN Bakkavör, Íslensk
erfðagreining, Marel og Össur eru
tilnefnd til Íslensku þekking-
arverðlaunanna sem forseti Ís-
lands mun afhenda næstkomandi
fimmtudag á Íslenska þekking-
ardeginum sem Félag viðskipta-
fræðinga og hagfræðinga heldur í
Háskólanum í Reykjavík.
Þetta er í annað sinn sem Félag
viðskiptafræðinga og hagfræðinga
(FVH) veitir slík verðlaun. Að
þessu sinni eru þau veitt því fyr-
irtæki sem er talið skara fram úr í
því að breyta þekkingu í verð-
mæti.
Leitað var til félagsmanna FVH
auk forstjóra og framkvæmda-
stjóra 100 stærstu fyrirtækjanna á
Íslandi um tilnefningar. Fyrir-
tækin sem flestar tilnefningarnar
hlutu voru Bakkavör, Íslensk
erfðagreining, Marel og Össur.
Skipuð hefur verið sérstök dóm-
nefnd sem mun síðan skera úr um
hvert þessara fjögurra fyrirtækja
hlýtur Íslensku þekkingarverð-
launin.
Dómnefndin er skipuð dr. Run-
ólfi Smára Steinþórssyni dósent
við Viðskipta- og hagfræðideild
Háskóla Íslands, dr. Guðfinnu S.
Bjarnadóttur rektor Háskólans í
Reykjavík, Ragnari Þóri Guðgeirs-
syni framkvæmdastjóra KPMG
Ráðgjafar og Hafsteini Má Ein-
arssyni aðstoðarframkvæmda-
stjóra Gallup – IMG.
GENGIÐ hefur
verið frá starfs-
lokasamningi við
Þórarin V. Þórar-
insson, fyrrver-
andi forstjóra
Landssímans í
gær. Verðmæti
samningsins er
um 37 milljónir að
núvirði, sem Þórarinn fær greiddar á
rúmu tveimur og hálfu ári, að sögn
Friðriks Pálssonar, stjórnarfor-
manns Landssímans.
Samningaviðræður hafa tekið
nokkurn tíma en niðurstaðan fékkst í
gær. Í samningnum felst fullnaðar-
uppgjör á milli Þórarins og Símans,
að því er fram kemur í fréttatilkynn-
ingu.
Samningurinn byggist á ráðning-
arsamningi Þórarins frá 25. júní
1999 með síðari breytingum.
Samið um
starfslok
Afsökunar-
beiðni
Í VIÐSKIPTABLAÐI Morg-
unblaðsins sl. fimmtudag birt-
ist frétt um að hagnaður hefði
orðið af rekstri Odda hf. á Pat-
reksfirði þriðja árið í röð.
Með fréttinni birtist mynd af
skipi félagsins á strandstað.
Þessi myndbirting var að sjálf-
sögðu ekki við hæfi og biður
Morgunblaðið forráðamenn
Odda hf. afsökunar á henni.
VIÐRÆÐUM Baugs við Arcadia
um yfirtöku hefur verið slitið en
Baugur, sem á 20,1% hlut í Arc-
adia, hefur um nokkurra mánaða
skeið átt í viðræðum við stjórn
Arcadia um kaup á hlutabréfum
annarra hluthafa í félaginu í formi
yfirtökutilboðs. Stjórn Arcadia til-
kynnti kauphöllinni í London í gær
að ákveðið hefði verið að slíta við-
ræðum við Baug enda sjáist þess
ekki merki að Baugur geti fjár-
magnað yfirtöku á félaginu innan
viðunandi tímaramma.
Jón Ásgeir Jóhannesson, for-
stjóri Baugs, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að Baugur sé
vel á veg kominn með fjármögnun
tilboðsins en stjórn Arcadia hafi
ekki fundist hlutirnir ganga nógu
hratt fyrir sig. Hann segir Baug þó
ekki af baki dottinn og geti enn
lagt fram tilboð þrátt fyrir að slitn-
að hafi upp úr viðræðunum. „Við
höfum enn mikinn áhuga á Arcadia
og erum í sterkri stöðu sem
stærsti hluthafi í félaginu. Síðasta
mánuðinn höfum við einbeitt okkur
að fjármögnun kaupanna og höld-
um áfram okkar striki. Þetta
breytir í raun engu fyrir okkur því
við höfum fengið allar þær upplýs-
ingar sem við þurftum frá Arc-
adia.“
Stjórnin lagði hart að Baugi
Talsmaður Arcadia, Katie
Macdonald-Smith hjá Tulchan
Communications, segir þolinmæði
stjórnar Arcadia vera á þrotum.
„Viðræðurnar hafa staðið yfir í
Arcadia slítur við-
ræðum við Baug
Forstjóri Baugs
segir engu skipta
þótt slitnað hafi upp
úr viðræðunum
nokkra mánuði, a.m.k. þrjá mán-
uði, og þar sem ekkert tilboð hefur
verið gert ákvað stjórn Arcadia að
slíta þeim. Stjórnin hefur lagt hart
að Baugi að bjóða eitthvert ákveðið
verð í formlegu tilboði, sem hefur
verið fjármagnað að fullu. Það hafa
þeir ekki gert.“ Hún segir að ekki
sé reiknað með því að viðræðuslitin
hafi teljanleg áhrif á verð hluta-
bréfa í félaginu. Rekstur félagsins
hafi gengið vel og hagnaður félags-
ins á fyrri hluta fjárhagsárs þess
verið talsvert umfram væntingar
markaðarins.
Ekki staðið við gefin loforð
Á ft.com, heimasíðu Financial
Times, var í gær haft eftir fólki
sem kom nærri samningsgerð Arc-
adia og Baugs að Baugi hefði oftar
en ekki mistekist að standa við sett
tímamörk til að gera ákveðið tilboð
í bréfin í Arcadia og sýna fram á
að tekist hefði að fjármagna kaup-
in. Þegar Baugur hefði svo farið
fram á það í fyrradag að fresturinn
yrði enn lengdur um tvær til þrjár
vikur hefði stjórn Arcadia komið
saman og ákveðið að Baugi hefði
þegar verið veittur meira en næg-
ur frestur. Haft er eftir einum
heimildarmanna að þótt ýmsir
hefðu alltaf verið vantrúaðir á að
samningar tækjust hefði Arcadia
gert allt sem mögulegt var til að
aðstoða Baug í málinu og veitt fé-
laginu rúman tíma. Baugur hefði
hins vegar gefið loforð sem ekki
hafi verið staðið við. Haft er eftir
ráðgjáfum Baugs megn óánægja
ríki hjá Baugi með ákvörðun Arc-
adia og áfram yrði haldið að leita
leiða til að gera tilboð í bréfin í fé-
laginu. Segja ráðgjafarnir að
Baugur sé forviða á því að Arcadia
hafi slitið viðræðunum eftir að
Baugur hafi verið komin svo langt
áleiðis og verið nærri því að
tryggja fjármögnun kaupanna.
Getur gert tilboð hvenær sem er
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er ekkert sem meinar
Baugi að gera tilboð þrátt fyrir að
nú hafi slitnað upp úr. Reglur
bresku yfirtökunefndarinnar kveði
á um að hefði Baugur slitið viðræð-
unum og lýst því yfir að tilboð yrði
ekki gert þá hefði þurft að bíða
með tilboð í 6 mánuði þar á eftir.
Baugur sé hins vegar ekki bundinn
af þeim tímamörkum og geti boðið
í fyrirtækið hvenær sem verða vill.
Ekki er þó gert ráð fyrir að slíkt
tilboð yrði fjandsamlegt enda hefur
Baugur lýst yfir vilja til að gera
tilboðið á þeirri forsendu að stjórn
Arcadia mæli með því við hluthafa.
Slíkt er venja í Bretlandi þegar
gerð eru yfirtökutilboð, að stjórn
viðkomandi félags mæli með eða á
móti því að hluthafar selji eign-
arhlut sinn til tilboðsgjafa.
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
ÁKVEÐIÐ hefur verið að flytja
starfsemi Ako/Plastos hf. frá Ak-
ureyri til Reykjavíkur og hefur öllu
starfsfólki félagsins á Akureyri
verið sagt upp, eins og greint var
frá í Morgunblaðinu í gær.
Ako/Plastos varð til í lok árs
1998 þegar hafin var náin sam-
vinna fyrirtækjanna Ako-plasts á
Akureyri og Plastos-Umbúða í
Garðabæ í kjölfar þess að eigendur
Ako-plasts, Upphaf ehf., keyptu
75,68% hlut í Plastos-Umbúðum.
Með kaupunum var stefnt að því að
sameina fyrirtækin undir eina yf-
irstjórn og með verulegri hagræð-
ingu í rekstri átti að snúa tapi fyr-
irtækjanna í hagnað. Gerðu
áætlanir ráð fyrir að velta fyrir-
tækjanna yrði samtals 650 milljónir
króna á árinu 1999 og hlutdeild
þeirra af plastmarkaði yrði um
40%. Jafnframt átti að hefja und-
irbúning að skráningu sameinaðs
fyrirtækis á almennan hlutabréfa-
markað.
Ako-plast var á þessum tíma að
fullu í eigu Upphafs, sem er í eigu
þremenninganna Daníels Árnason-
ar, Eyþórs Jósefssonar og Jóhanns
Oddgeirssonar en höfðu átt og rek-
ið Ako-plast frá árinu 1991.
Plastos-Umbúðir var annað
tveggja fyrirtækja sem urðu til ár-
ið 1997 úr fyrirtækinu Plastos, sem
var frá upphafi í meirihlutaeigu
Odds Sigurðssonar og hans fjöl-
skyldu.
Framleiðslan flutt til Akureyrar
Í febrúar 1999, tveimur mánuð-
um eftir kaup Ako-plasts á Plast-
osi-Umbúðum, var tilkynnt að
framleiðsludeild Plastos-Umbúða í
Garðabæ yrði flutt til Akureyrar
en markaðsdeild fyrirtækisins
ásamt lager og dreifingu yrði að
mestum hluta áfram á höfuðborg-
arsvæðinu. Fyrirtækin tvö voru svo
formlega sameinuð í september
1999.
Meginástæða þess að fram-
leiðsluhluti starfseminnar var flutt-
ur til Akureyrar var sögð sú að
starfsmannavelta væri mikil á
höfuðborgarsvæðinu vegna þenslu
á vinnuarkaði. Reiknað var með að
starfsmenn Ako/Plastos yrðu um
70 talsins, þar af myndu 12–15
manns starfa við sölu og þjónustu á
höfuðborgarsvæðinu en 50–60
manns yrðu starfandi á Akureyri,
sem þýddi u.þ.b. 40–50 ný störf þar
í bæ. Var fyrirtækið af þessu tilefni
útnefnt fyrirtæki ársins 1999 á Ak-
ureyri af atvinnumálanefnd bæjar-
ins.
Ako/Plastos kom sér upp 3.800
fermetra húsnæði undir starfsem-
ina á Akueyri, m.a. annars með að-
stoð Akureyrarbæjar og Byggða-
stofnunar, en seldi 5.000 fermetra
húsnæði Plastos-Umbúða í Garða-
bæ og 1.800 fermetra húsnæði
Ako-plasts á Akureyri. Söluverð
eignanna var sagt notað til að
styrkja rekstur hins sameinaða fyr-
irtækis.
Þegar nýja framleiðsluhúsnæðið
á Akureyri var vígt í júníbyrjun
2000 voru starfsmenn liðlega 60
talsins, það af um 50 á Akureyri og
velta ársins var áætluð um 580
milljónir króna. Reksturinn var
áfram erfiður m.a. vegna ytri að-
stæðna og leita þurfti nýrra leiða.
Plastprent eignast meirihluta
Í nóvemberlok sama ár seldi
Upphaf ehf. 85,4% eignarhlut í
Ako/Plastosi til keppinautarins
Plastprents hf. í Reykjavík og fékk
greitt fyrir með hlutabréfum í því
síðarnefnda. Ekki lá þá fyrir hvort
fyrirtækin yrðu sameinuð eða
starfsemin flutt á einn stað en ljóst
var við kaupin að staða Ako/Plast-
os var orðin mjög slæm. Nam tap
félagsins á árinu 2000 250 millj-
ónum króna af um 500 milljóna
veltu en við sameininguna við
Plastos-Umbúðir hafði verið reikn-
að með því að reksturinn skilaði
hagnaði árið 2000.
Fór svo að þremur mánuðum
eftir kaup Plastprents fékk Ako/
Plastos heimild til að leita nauða-
samninga við lánardrottna sína.
Greidd voru 25% krafna og félag-
inu forðað frá gjaldþroti. Nú, tæpu
ári síðar hefur öllu starfsfólki Ako/
Plastos á Akureyri, sem nú eru 27
talsins, verið sagt upp störfum og
starfsemin, þ.ám. nýjar vélar og
tæki, verður flutt í húsnæði Plast-
prents í Reykjavík.
Plastprent hefur verið rekið með
tapi undanfarin ár og gera má ráð
fyrir að tap hafi orðið af árinu 2001
en gera má ráð fyrir því að fyr-
irtækið sitji nú nær eitt að fram-
leiðslu og sölu á plasti á Íslandi.
Framleiðslan á plasti
flutt til og frá Akureyri
Starfsfólki Ako/Plastos á Akureyri hefur verið sagt upp störfum og nýjar
vélar og tæki verða flutt frá Akureyri í húsnæði Plastprents í Reykjavík.
Stjórnend-
um Íslands-
síma fækk-
ar um þrjá
ÍSLANDSSÍMI hefur samið um
starfslok við þrjá af stjórnendum fé-
lagsins, Dagnýju Halldórsdóttur að-
stoðarforstjóra, Kristján Schram
markaðsstjóra og Karl Jóhann Jó-
hannsson gæðastjóra. Ennfremur
hafa sölusvið og markaðssvið félags-
ins verið sameinuð í eitt sölu- og
markaðssvið.
Dagný hefur starfað hjá Íslands-
síma um tveggja ára skeið. Hún mun
á næstu þremur mánuðum fylgja eftir
verkefnum sem hún hefur sinnt og
vera félaginu innan handar til apríl-
loka, að því er segir í tilkynningu til
VÞÍ. Kristján og Karl Jóhann koma
einnig til með ljúka verkefnum hjá fé-
laginu.
Óskar Magnússon, forstjóri Ís-
landssíma, segir starfslokasamn-
ingana vera samkomulag milli fyrir-
tækisins og starfsmannanna þriggja.
„Í lífi hvers fyrirtækis og í lífi hvers
einstaklings kemur að þeim tíma-
mörkum að menn vilja gera breyting-
ar. Það er svo í þessu tilfelli.“ Óskar
segir ekki ráðgert að ráða aðra í stað
þessara þriggja og að ekki séu uppi
hugmyndir um frekari starfsloka-
samninga af hálfu Íslandssíma.
Landspítali
semur við Grunn
LANDSPÍTALI – háskólasjúkrahús
og Grunnur hafa undirritað samning
um kaup og innleiðingu á Tímon fyr-
ir allar starfsstöðvar spítalans. Tím-
on er tíma- og viðverukerfi, sem
byggt er á tækni þar sem símkerfið
er nýtt til inn- og útstimplunar,
ásamt fullkomnu vefviðmóti þar sem
starfsmenn hafa yfirlit yfir vinnu
sína og yfirmenn fá nauðsynlegar
stjórnendaupplýsingar. Í fréttatil-
kynningu kemur fram að Tímon er
þegar í notkun hjá stórfyrirtækjum
eins og Eimskipi, Baugi og Skelj-
ungi, auk þess sem fjöldi annarra
fyrirtækja er með kerfið í skoðun
eða reynsluprófunum.