Morgunblaðið - 02.02.2002, Síða 24
HEILSA
24 LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
H E I L B R I G Ð S K Y N S E M I
LÝSI&LIÐAMÍN
Allra liða
bót
án A og D vítamína
Hvað er
Liðamín?
Liðamín inniheldur
amínósýruna
glúkósamín, sem er
hráefni til viðgerðar á
brjóski, og kondróítín
sem er eitt algengasta
byggingarefnið í
liðbrjóski.
Hvers vegna
lýsi?
Lýsið í Lýsi & Liðamíni
inniheldur a.m.k. 30% af
omega-3 fitusýrum.
Rannsóknir sem gerðar
hafa verið á liðagigt
benda til þess að við
reglubundna neyslu á
omega-3 fitusýrum dragi
úr einkennum eins og
stirðleika á morgnana,
verkjum og þreytu.
www.lysi.is
Y
D
D
A
/
SÍ
A
meistar inn. is
GULL ER GJÖFIN
Brunaslöngur
Eigum á lager 25 og 30 m
á hjóli og í skáp
Ármúla 21,
sími 533 2020
HEILSALA - SMÁSALA
Íbúðareigendur í Teigahverfi
Minnum á áður boðaðan kynningarfund vegna fyrirhugaðrar
stækkunar Grand Hótels Reykjavíkur í Sigtúni 38
í dag, laugardaginn 2. febrúar, kl. 14.00.
Hótelstjóri.
Systursonur minn er greindur með Tourette-
heilkenni sem lýsir sér í ákveðnum kækjum, til
dæmis kinkar hann stöðugt kolli og blikkar augum.
Hann gefur frá sér ýmiss konar hljóð, sem hann get-
ur víst ekki stjórnað sjálfur, eins og t.d. gelt. Hvers-
konar meðferð er hægt að nota við þessum kvilla?
SVAR ÞEGAR TALAÐ er um meðhöndl-un Tourette-heilkennis er ekki
beint talað um að lækna sjúkdóminn heldur frek-
ar að halda einkennum niðri og hjálpa ein-
staklingum að stýra einkennum sínum betur og
eiga auðveldar með að lifa með Tourette. Mun al-
gengara er að einkenni Tourette minnki með
aldrinum heldur en aukast. Helstu kenningar um
orsakir Tourette-heilkennis eru erfðafræðilegar
og lífeðlislegar og þar af leiðandi hefur lyfja-
meðferð mest verið beitt við einkennunum. Af
þeim lyfjum sem notuð hafa verið er lyfið Halop-
eridol algengast og það dregur úr einkennum hjá
70 og 80% þeirra sem fá lyfið. Hinsvegar er tölu-
vert um aukaverkanir af þessu lyfi og því eru að-
eins um 20–30% þeirra, sem fá þetta lyf, sem
þiggja það til lengri tíma. Á síðari árum hafa
fleiri lyf komið til sögunar sem hafa færri auka-
verkanir.
Ýmiss konar sálfræðilegar meðferðir hafa ver-
ið notaðar til að hjálpa einstaklingum með Tour-
ette. Þar má fyrst nefna aðferð sem gengur út á
að einstaklingur reynir kerfisbundið að fram-
kvæma sjálfráðar hreyfingar til að draga úr
ósjálfráðum hreyfingum (kækjum). Önnur aðferð
sem reynst hefur vel, er að reyna ekki að bæla
kækina heldur hreinlega reyna að framkvæma þá
til þess að á endanum að draga úr kækjum
Atferlismeðferð hefur töluvert verið notuð en
þó með mismunandi árangri. Af aðferðum atferl-
ismeðferðarinnar hefur þó slökun reynst best
eins og t.d að læra kerfisbundið að slaka á mis-
munandi vöðvum líkamans. Með góðri þjálfun
getur slökun orðið mjög gott tæki fyrir þá sem
þjást af Tourette. Kækir koma nefnilega frekar
fram við streitu- og kvíðamiklar aðstæður og
minna í slökun. Þar af leiðandi getur verið gott
fyrir einstakling með Tourette að geta unnið með
streitu og kvíða með kerfisbundinni slökun. Hér
hefur einnig reynst vel líka að kenna sjálfdá-
leiðslu. Rannsóknir hafa sýnt góðan árangur af
því að senda barn afsíðis þegar það gefur frá sér
ósjálfráð blótsyrði, sem getur verið eitt af ein-
kennum Tourette. Hér er þó mikilvægt að nota
aðferðina rétt.
Auk aðferða sem beitt er til að hafa áhrif á ein-
kennin sjálf, getur sálfræðileg meðferð og ráð-
gjöf nýst fólki með Tourette. Má nefna að hefð-
bundin sálfræðileg meðferð getur verið mikilvæg
til að takast á við alla þá erfiðleika sem fylgja því
að lifa með Tourette, sætta sig við aðstæður,
draga úr hræðslu, sektarkennd og takast á við
fordóma í samfélaginu. Fjölskyldumeðferð er góð
til að fræða aðstandendur um samskipti innan
fjölskyldunnar, hvernig á að bregðast við ein-
kennum og þeim vandamálum sem koma upp á
meðan á meðferð stendur. Mikilvægt er líka að
veita kennurum og öðrum að bregðast rétt við
kækjum og öðrum einkennum. Einnig er mik-
ilvægt að kennarar og aðrir sýni barni með Tour-
ette umburðarlyndi, samúð og skilning og hjálpi
því að byggja upp sjálfsvirðingu. Auk þess þarf
að takast á við önnur vandamál sem oft á tíðum
fylgja Tourette, eins og erfiðleikar í skóla, einelti
og aukaverkanir af völdum lyfja.
Að lokum má nefna að mikilvægt er að greina
Tourette-heilkenni snemma. Með því að grípa inn
í nógu snemma og fræða einstaklinginn, foreldra
og aðra sem koma að barninu um Tourette
minnka líkurnar á fordómum og öðrum neikvæð-
um áhrifum frá umhverfinu, sem ennfremur auka
möguleika barnsins á að takast á við það að vera
með Tourette.
Mikilvægt að sýna barni
með Tourette umburðarlyndi
Lesendur Morg-
unblaðsins geta
komið spurningum
varðandi sálfræði-,
félagsleg og vinnu-
tengd málefni til
sérfræðinga á vegum persona.is.
Senda skal tölvupóst á persona-
@persona.is og verður svarið
jafnframt birt á persona.is.
Með því að grípa inn í nógu
snemma og fræða einstakling-
inn, foreldra og aðra sem
koma að barninu um Tourette
minnka líkurnar á fordómum
og öðrum neikvæðum áhrifum
frá umhverfinu.
Höfundur er sálfræðingur.
eftir Björn Harðarson
KARLMENN, sem verða fyrir
áhrifum umhverfismengunar, eru
líklegri til að eignast drengi en
stúlkur samkvæmt niðurstöðum
bandarískrar könnunar, sem greint
var frá á heilsuvef BBC í vikunni.
Vísindamennirnir, sem gerðu
rannsóknina, skoðuðu mælingar úr
þremur rannsóknum á magni PCB í
líkömum karla, sem borðað höfðu
fisk úr Michigan-vatni. Rúmlega
57% af 208 börnum, sem þeir höfðu
getið, reyndust vera drengir.
PCB er eitt af mörgum mengun-
arefnum, sem er að finna í vatninu
og talið er að geti haft áhrif á æxl-
unarfæri manna í ljósi þess að sýnt
þykir að þau hafi slík áhrif í dýrum.
PCB er skylt klórlífrænum efnum
og er svonefnt pólíklórbífenýl-sam-
band.
Mengunarefni hafa
áhrif á tímgun manna
Prófessor Wilfried Karmaus
stjórnaði rannsókninni. „Við erum
ekki að halda því fram að það sé
slæmt að eignast drengi. Þeir eru
einfaldlega fleiri. Breyting á hlut-
fallinu milli drengja og stúlkna gef-
ur til kynna að mengunarefni í um-
hverfinu hafi áhrif á tímgun manna.“
Sýnt hefur verið fram á að PCB
geti valdið krabbameini í lifur og
nýrum og efnið hefur einnig verið
tengt röskun þroska heila barna í
móðurkviði og eftir fæðingu. Efnið
hefur nú verið bannað, en var áður
mikið notað í iðnaði til að smyrja og
kæla og lekur enn út í umhverfið úr
gömlum rafmagnstækjum. Efnið
brotnar seint niður í náttúrunni og
safnast fyrir í fitu, einkum kjöti og
feitum fiski.
Eiturefni í körlum auka lík-
ur á að þeir eignist drengi
Morgunblaðið/Kristján
Eiturefni, sem geta safnast saman í líkömum karla, virðist auka líkur á
að þeir geti drengi, að því er fram kemur í nýrri vísindarannsókn.