Morgunblaðið - 02.02.2002, Page 28
LEIRLISTARFÉLAGIÐ varð 20
ára á síðasta ári og í tilefni þess hef-
ur það lagt undir sig báða aðalsali
Listasafns Kópavogs. Nefnir gjörn-
inginn Tvískipt, sem á að vísa til
skilgreiningar á list notagildis og
vinnu með frjáls form, en verk úr
báðum flokkum eru á sýningunni
eins og vísað er til í kynningarriti.
Margt kemur upp í hugann við
skoðun sýningarinnar, þá helst að
hún er algjörlega einskipt hvað kyn
áhrærir, því að síst af öllu er um ein-
hverja sérgrein kvenna að ræða líti
maður til listgeirans í alþjóðlegu
samhengi. Tvískipt er hún að vissu
marki, en hins vegar er hætta á að
hér séu ekki allir sammála um út-
lagninguna. Hefðbundnir hlutir
notagildis geta nefnilega jafnt verið
ferskir og nýtískulegir sem hinir
frjálsu, sem geta allt eins verið
margþvæld alþjóðleg upptugga, skil-
greiningin því að vissu marki misvís-
andi. Enginn er frjáls undan neinu
oki þótt hann vinni í hlutum sem
ekki hafa notagildi, þá þarf sjálft
notagildið ekki að rýra listgildið né
gera hlutina úrelta, passé. Öllu frek-
ar er útfærslan meginveigurinn til
úrslita í báðum tilvikum og því mis-
vísandi að leggja út í jafn afmarkaða
flokkun, setja rautt strik á milli.
Margþætt er hún svo tvímælalaust í
ljósi vinnubragðanna og tilrauna
með hin aðskiljanlegustu efni, áferð
og glerunga og hér er kvennaskar-
inn á réttu róli.
Annað sem sækir á við skoðun
sýningarinnar, er hin galopna upp-
setning, sem á einn veg er hefðbund-
inn kækur, rótföst íhaldsemi um at-
hafnir á íslenzkum sýningavett-
vangi, á annan veg hálfrar aldar
gömul arfleifð, eða á kannski heldur
að orða það; tugga. Lokar fyrir alla
nálgun og eintal við skoðandann,
samfara því að á hann sækja áreiti
úr öllum áttum, um leið er ekki leng-
ur um sýningu margra einstaklinga
með sífellt nýjar og ferskar opinber-
anir í næsta nágrenni, heldur eins
konar allsherjar innsetningu og hóp-
efli múgsins.
Einhvern veginn eru hlutirnir svo
langt í burtu og um leið rýrir það
slagkraft þess sem til sýnis er, hvort
sem frjáls eða hagnýt listsköpun á í
hlut. Ótrúlega tilbreytingarlaust og
lýjandi að koma á sýningar þar sem
uppsetning og tilhögun þeirra í rým-
inu er eins og sniðið eftir algildri
formúlu. Til að forða misskilningi er
þetta fullgild aðferð í sjálfu sér, en
hér skortir hugarflug og sveigjan-
leika, flexibilitet, sem lögð er svo
mikil áhersla á í útlandinu t.d. með
lokuðum básum og skilrúmum, sem
skapa forvitni og eftirvæntingu.
Sem fastagestur á listiðnaðarsöfn og
sýningar á listhönnun víða um heim
getur skrifari trútt um talað.
Nýir tímar fæða eðlilega af sér ný
og breytileg viðhorf, þannig eru við-
horfin í dag nokkuð önnur en á sjö-
unda og áttunda áratugnum er list-
iðnaðarfólkið sprengdi af sér öll
hefðbundin höft, allt slíkt nýtt og
ferskt og gaman að lifa. En síðan
hefur þetta flætt um heiminn og orð-
ið að íhaldssömu og stöðluðu skóla-
fagi, loks tuggu (klisju) líkt og margt
í núlistum dagsins. Menn hafa því
víða fallið frá þessari aðgreiningu og
leggja meir upp úr formrænum
sköpunarkraftinum og ferskleikan-
um í vinnubrögðunum, ekki lengur
nóg að víkja af hefðbundinni leið til
að vera moderne, post moderne, eða
post post post moderne. Á sýningum
erlendis sér maður frábærilega fína
og ferska hluti þar sem listamenn-
inir ganga út frá eldri, jafnvel þús-
unda ára arfleifð, og þó últra nú-
tímalega. Þá er eins og
velli og kraumi í jarðbund-
inni sköpunargleði.
Á þessum tímamótum
er mikilvægt að líta yfir
farinn veg, einnig að
hvetja til opinnar og
vægðarlausrar umræðu
um stöðu leirlistar á Ís-
landi, og þá óheillaþróun
sem átt hefur sér stað
varðandi menntunar-
möguleika í faginu eins og
réttilega er ýjað að í for-
mála nefnds kynningar-
rits. Inn á þá sálma fer ég
minna hér en meira í vett-
vangsskrifi fljótlega, en
mikil raun er að horfa upp
á það að við skulum helst
taka upp það lakasta í þró-
uninni meðal stórþjóða
ytra. Gleymum sérstöðu
okkar, að við stöndum enn
á byrjunarreit og að þess-
ir tveir áratugir eru í raun
einungis tvö upphafsskref
á langri vegferð arfleifðar
sem aðrar þjóðir hafa að
baki.
Vissulega hefur mikið
áunnist, sem sýningin er
til vitnis um og margur
formfagur gripurinn mæt-
ir auganu. Af hæfileika-
fólki höfum við feikinóg, en í þessu
þjóðfélagi grunnfærni og sýndar-
mennsku eiga ósviknir og handfastir
hlutir ekki upp á pallborðið sem
stendur.
Hef fjallað um svo margt hliðstætt
á sýningunni í tímans rás, að litla
þýðingu hefur að fara út í skilgrein-
ingu á framlagi einstakra, flöt upp-
setningin gerir rýnendum líka erfitt
um vik, hið einfalda og formhreina
hefur þó vinninginn sem fyrri dag-
inn. Geri þó tvískipta (!) undantekn-
ingu sem er framlag Önnu S. Hróð-
marsdóttur og Auðbjargar Berg-
sveinsdóttur, sem komu mér á óvart
fyrir lífræna mótun.
Vert að vekja sérstaka athygli á
hinu eigulega riti sem gefið hefur
verið út í tilefni sýningarinnar, hefði
þó að ósekju mátt vera stærra og ít-
arlegra.
Loks tek ég hattinn ofan fyrir ís-
lenzkri leirlist, félaginu og hinum
staðföstu og vösku konum.
Margskipt
MYNDLIST
Listasafn Kópavogs –
Gerðarsafn
Opið alla daga frá 11–17. Lokað mánu-
daga. Til 3. febrúar. Aðgangur 300 krón-
ur. Rit um Leirlistarfélagið 500 kr.
LEIRLIST
LEIRLISTARFÉLAGIÐ
Bragi Ásgeirsson
Auðbjörg Bergsveinsdóttir,
Skora með grasi, handmótaður
steinleir með grasi.
Anna Sigríður Hróðmarsdóttir, Hnallþóra,
postulín, rennt og mótað.
LISTIR
28 LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Miðasala er í síma 575 7999 og 800 6434 á milli kl. 9 og 17 virka daga
og á slóðinni www.midasala.is,
en einnig má leggja inn pantanir á símsvara 551 5766.
kynnir
Arriaga-strengjakvartettinn
frá Brussel
á Sunnudags-matinée 3. febrúar kl. 16:00
Á efnisskrá eru verk eftir Arriaga,
Borodin og Debussy
GLAÐVÆRÐ Í
HAFNARBORG!
Tónleikar Tríós Reykjavíkur ásamt Sigrúnu
Hjálmtýsdóttur og Bergþóri Pálssyni hafa slegið í
gegn fyrir frábæran flutning, glens og gaman.
Vegna gífurlegrar aðsóknar verða þeir endurteknir
aftur á sunnudagskvöld, 3. febrúar, kl. 20.
Missið ekki af
þessari einstöku skemmtun!
Miðasala í síma 555 0080 frá kl. 11-17 í Hafnarborg
ANNA Hallin myndlistarmaður frá
Svíþjóð fjallar um eigin verk í LHÍ,
Laugarnesi, á mánudag kl. 12.30.
Anna vinnur með marga miðla og
sækir hugmyndir sínar oftast í heim
örvera, vísindaskáldskapar, pípu-
lagna og annarra tengsla.
Hún er menntuð í Svíþjóð og
Bandaríkjunum en er nú búsett á Ís-
landi og stundakennari við LHÍ.
Malin Zimm arkitekt og kennari
við Arkitektaskólann í Stokkhólmi
flytur fyrirlestur í LHÍ, Skipholti 1,
á miðvikudag kl. 12.30. Fyrirlestur-
inn nefnist „Fagurfræðilegi sátta-
semjarinn“. Kynning á arkitektúr.
Námskeið
Námskeið í módelteikningu hefst
11. febrúar. Lögð er áhersla á stöðu,
hlutföll og líkamsbyggingu. Kennari
Hafdís Ólafsdóttir myndlistarmað-
ur.
Myndvinnsla II Photoshop hefst
11. febrúar og er grunnþekking á
Photoshop nauðsynleg. Kennari er
Höskuldur Harri Gylfason myndlist-
armaður og grafískur hönnuður.
Námskeið í raddbeitingu hefst á
þriðjudag. Kennari er Þórey Sig-
þórsdóttir leikkona.
Fyrirlestrar
og nám-
skeið LHÍ
Listasafn Kópavogs
– Gerðarsafn
Sýningu Leirlistarfélagsins, Tví-
skipt, lýkur á sunnudag. Sýningin er
haldin í tilefni af 20 ára afmæli Leir-
listarfélagsins.
Gallerí Skuggi,
Hverfisgötu 39
Sýningum Orra Jónssonar og
Rögnu Hermannsdóttur lýkur á
sunnudag. Orri sýnir ljósmyndir úr
íslenskum eyðibýlum sem vakið hafa
mikla athygli og Ragna sýnir Vofur í
klefa.
Gallerí Skuggi er opið frá 13 til 17
alla daga nema mánudaga.
Sýningu lýkur
GRADUALE nobili, sem er stúlkna-
kór í Langholtskirkju heldur tón-
leika í Borgarneskirkju á morgun,
sunnudag, kl. 16. Á efnisskránni
verða íslensk og erlend verk sem
flest eru samin af núlifandi tónskáld-
um og nokkrir kórfélaga syngja ein-
söng.
Kórinn var stofnaður haustið
2000. Kórinn er skipaður 24 stúlkum
á aldrinum 17 – 24 ára, völdum úr
hópi þeirra sem sungið hafa með
Gradualekór Langholtskirkju.
Allir kórfélagar hafa stundað tón-
listarnám og margir stefna á að hafa
tónlist að ævistarfi. Stjórnandi kórs-
ins er Jón Stefánsson.
Graduale nobili
í Borgarnesi
mbl.isFRÉTTIR
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦