Morgunblaðið - 02.02.2002, Qupperneq 30
30 LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Hallgrímur B. Geirsson.
Styrmir Gunnarsson.
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjórar:
Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
N
OKKRIR ungir sjálf-
stæðismenn innan
Heimdallar og Sam-
bands ungra sjálf-
stæðismanna áttu
upptökin að því í upphafi seinasta
árs að reynt yrði að fá Björn Bjarna-
son menntamálaráðherra til að söðla
um og taka að sér að leiða framboðs-
lista Sjálfstæðisflokksins í komandi
borgarstjórnarkosningum. Björn
brást vel við erindi ungliðanna og
útilokaði ekkert. Þar með hófst löng
atburðarás, þrungin óvissu um hvort
einn af áhrifamestu forystumönnum
Sjálfstæðisflokksins tæki áskorun-
inni. Björn lýsti svo endanlegri
ákvörðun sinni á kjördæmisþingi
sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík um
seinustu helgi.
Hugmyndin vaknaði fyrir ári
,,Það var fyrst talað um þetta við
mig snemma á síðasta ári en þá
komu og ræddu við mig ungir menn í
Sjálfstæðisflokknum. Meðal þeirra
sem gengu fram fyrir skjöldu og
lýstu eindregnum stuðningi við
þessa hugmynd var Sigurður Kári
Kristjánsson, þáverandi formaður
SUS. Þar með var trúnaðarmaður
innan flokksins, formaður SUS, bú-
inn að taka þetta mál upp á flokks-
vettvangi og upp á sína arma,“ segir
Björn.
,,Hugmyndin vaknaði fyrir um
það bil ári. Ég veit ekki nákvæmlega
hvernig það bar að en það spannst
umræða um hvort ekki væri rétt að
Björn íhugaði þetta rækilega. Þarna
voru ýmsir stuðningsmenn hans á
ferðinni, sem töldu hann vera sterk-
asta kost Sjálfstæðisflokksins ef
vinna ætti borgina aftur. Ég varð
strax þeirrar skoðunar að það væri
rétt mat,“ segir Sigurður Kári.
,,Ég átti ekki hugmyndina en mér
leist prýðilega á hana frá byrjun,“
segir Hannes Hólm-
steinn Gissurarson, pró-
fessor og áhrifamaður í
röðum sjálfstæðis-
manna. ,Ég get ekki
einu sinni sagt, að ég
hafi fylgt henni sjálfur
eftir. Það voru ungu
mennirnir í Heimdalli og
SUS sem það gerðu. Mér fannst
þetta vera ágæt hugmynd hjá þeim
og að Björn væri sigurstranglegast-
ur allra okkar frambjóðenda,“ segir
Hannes.
Fréttin fer í loftið
Fyrstu fréttir af hugsanlegu fram-
boði Björns birtust í pistli Hrafns
Jökulssonar blaðamanns á vefsíðu
Pressunnar 20. febrúar. Alkunna er
að ungliðar í Sjálfstæðisflokknum,
sem hvöttu Björn til framboðs, létu
fregnir af málinu berast út í útgáfu-
boði hjá Hannesi Hólmsteini og það-
an ,,rataði fréttin“ inn á vefmiðil
Hrafns.
Björn staðfesti svo í fréttaviðtöl-
um að við hann hefði verið rætt.
Hann segir að í framhaldi af þessu
hafi hugmyndin þróast stig af stigi í
opinberum umræðum. ,,Það hafa að
sjálfsögðu ýmsir komið að máli við
mig á þessum langa tíma og lýst yfir
stuðningi sínum eða efasemdum eins
og gengur. Ég leyfði hugmyndinni
að fljúga og leit svo á að annaðhvort
myndi hún lifa eða deyja,“ segir
hann. ,,Ég vissi ekki heldur um
hvaða tímasetningar væri að ræða.
Stundum hafa prófkjör Sjálfstæðis-
flokksins verið haldin á haustin og
stundum á þessum árstíma en það
eru aðrir sem taka þær ákvarðanir,“
segir Björn.
Fagnaði nýjum
liðsmönnum
Margir biðu spenntir viðbragða
Ingu Jónu Þórðardóttur, oddvita
sjálfstæðismanna í borgarstjórn, við
fréttum af hugsanlegu framboði
Björns. Inga Jóna segist í samtali við
Morgunblaðið geta áréttað þau sjón-
armið sín sem fram komu í viðtali við
hana í Morgunblaðinu 24. febrúar
2001. Sagðist hún fagna öllum þeim
sem legðu borgarstjórnarflokki
sjálfstæðismanna lið í baráttunni
gegn R-listanum. ,,Það sem skiptir
mestu máli er að okkur takist að
stilla upp sigurstranglegum lista því
að framtíðarhagsmunir Reykvíkinga
krefjast þess að það verði stjórnar-
skipti í Reykjavík á næsta vori,“
sagði hún í fréttinni.
Ýmsir túlkuðu ummæli Björns
strax á þann veg að hann væri tilbú-
inn að bjóða sig fram og jafnframt
voru viðbrögð Ingu Jónu talin gefa
til kynna að hún væri reiðubúin að
standa upp fyrir Birni. Inga Jóna
vísar hins vegar til þess að í ítarlegu
viðtali við Morgunblaðið 3. mars á
síðasta ári hafi hún lýst því yfir að
hún hefði engar fyrirætlanir um ann-
að en að fylgja starfi sínu eftir af full-
um þunga. ,,Mér var falið leiðtoga-
hlutverk í okkar hópi við
upphaf kjörtímabilsins
og tók að mér að stýra
stjórnarandstöðu í borg-
inni. Ég hef hugsað mér
að vinna það verk til enda
ásamt félögum mínum og
tilgátur um pólitískt and-
lát mitt eiga ekki við rök
að styðjast,“ sagði hún í viðtalinu.
Umræða hófst fyrir tæpu ári inn-
an Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðis-
félaganna í Reykjavík, um hvaða að-
ferðir ætti að hafa við val á
framboðslista vegna komandi kosn-
inga. Var öllum möguleikum velt
upp, að sögn Margeirs Péturssonar,
formanns stjórnarinnar. Sú umræða
hélt áfram að meira eða minna leyti
allt sl. ár án ákveðinnar niðurstöðu.
,,Menn voru almennt sáttir við að
vera seint á ferðinni með prófkjör að
þessu sinni,“ segir Margeir.
Inga Jóna bendir á að hún hafi
ítrekað sagt að sér litist vel á að hald-
ið yrði leiðtogaprófkjör, sem mikið
var rætt innan flokksins, þótt að-
stæður hafi svo valdið því að hún
komst að þeirri niðurstöðu í seinustu
viku, að af því yrði meiri
leiða þessi mál til lykta í pró
,,Umræðan hélt áfram
voru í reglulegu sambandi
og biðu þess sem verða v
borgarstjórnarhópsins, en
fram hefur komið í máli Bjö
hann ekki efna til harðra át
flokksins,“ segir Sigurður
sögn hans voru skiptar sko
an flokksins um hvort h
væri að stilla upp á fram
flokksins eða halda opið pró
Sjálfstæðismenn telja
mikils að vinna að end
meirihlutann í Reykjavík
hafa tapað borgarstjórna
um tvö kjörtímabil í röð. Áh
innan flokksins hafa veri
skoðunar að nauðsynlegt v
þrautreyndan baráttuman
togasætið, sem væri búinn
festa getu sína og árangur
málum á landsvísu. Ekki v
hjá því litið að Ingibjör
Gísladóttir borgarstjóri er
ugur stjórnmálamaður o
áunnið sér margra ára reyn
landsmálapólitík sem borg
um. Hún hafi í reynd náð
sér svipaða pólitíska stöðu
arstjórar Sjálfstæðisflokk
haft í gegnum tíðina. Geg
leiðtoga þurfi sjálfstæðis
tefla þrautreyndum stj
manni.
Viðkvæm staða
Ekki þarf lengi að kynna
vexti innan Sjálfstæðisflok
að komast að raun um að
menn innan flokksins hafi
skipti haft af framboðshugl
Björns Bjarnasonar og að
um að framboð hans sé s
æðstu mönnum í valdakjarn
ins eigi við haldlítil rök að
Vegna persónulegra tengsl
manna og frambjóðenda
augum uppi að afskipti t.d
Davíðs Oddssonar formann
ins eða annarra æðstu áhr
á hvorn veginn sem er hef
um líkindum hleypt öllu
brand.
Björn segist ekki hafa rá
við Davíð Oddsson, forsætis
og formann Sjálfstæðis
vegna hugleiðinga sinna
ári. Að lokum yrði þetta
tekin yrði ákvörðun um af f
og ekki eðlilegt að blanda
inum inn í aðdraganda þes
hálfu. ,,Hann [Davíð] hefur
gefið mjög eindregnar yfir
viðtölum á þeim tíma sem
frá því að hugmyndin kom
hann vildi helst að ég yr
menntamálaráðherra,“ seg
,,Ég veit það fyrir víst að
eru í forystu flokksins hél
lega að sér höndum í þe
vegna þess að þegar þe
kemur upp er hún mjög
fyrir flokksforystuna,“ seg
ur Kári. Hann bendir m.
sínu til stuðnings að Inga
Ungir sjálfstæðismenn áttu frumkvæði að því að fá
Forystan
hélt að sér
höndum
Ungliðar í Sjálfstæðisflokknum stungu upp á því
við Björn Bjarnason í upphafi síðasta árs að hann
leiddi borgarstjórnarlista flokksins í kosningun-
um í vor. Forystumenn flokksins höfðu ekki af-
skipti af framboðshugleiðingum Björns vegna við-
kvæmrar stöðu í forystusveitinni. Ómar
Friðriksson ræddi við sjálfstæðismenn um fram-
boðsmálin og aðdragandann að ákvörðun Björns.
Björn Bjarnason tilkyn
flokksins í borgarstjó
Ákvörðun um
ráðherrastöðu
þegar fram-
boðslisti er
ákveðinn
BANDARÍKIN OG
PALESTÍNUMENN
Bandaríkjamenn eru að forherðast íyfirlýsingum sínum gagnvart Pal-estínumönnum og leiðtoga þeirra,
Yasser Arafat. Á meðan Arafat, sem sit-
ur í herkví í bænum Ramallah og horfir í
fallbyssuhvofta ísraelskra skriðdreka í
hundrað metra fjarlægð frá húsi sínu, er
skammaður blóðugum skömmum fyrir að
hemja ekki palestínska hryðjuverka-
menn og hafa ætlað að smygla vopnum
inn á hernámssvæðin, Vesturbakkann og
Gaza, eru Bandaríkjamenn ákaflega
tregir til að gagnrýna óverjandi fram-
göngu Ísraela gagnvart Palestínumönn-
um. Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísr-
aels, tekst vart að hreyfa við Banda-
ríkjamönnum með glórulausum yfirlýs-
ingum á borð við orð hans í fyrradag þess
efnis að hann sjái eftir því að hafa ekki
látið myrða Arafat fyrir tveimur áratug-
um þegar Ísraelar réðust inn í Líbanon
til að hrekja Frelsissamtök Palestínu
brott þaðan.
Allt frá því að Sharon notaði líkingu
við friðþægingu Hitlers í München árið
1938 til að vara Bandaríkjamenn við því í
byrjun október að semja við arabaríki á
kostnað Ísraels í þeirri viðleitni að skapa
samstöðu í baráttunni gegn hryðjuverk-
um eftir árásina á Bandaríkin 11. sept-
ember virðist stjórn Bush hafa verið að
herðast í afstöðu sinni til Palestínu-
manna. Hversu langt Bandaríkjamenn
eru reiðubúnir að ganga kom fram þegar
Bush lýsti yfir því fyrir viku að Banda-
ríkjastjórn íhugaði að grípa til refsiað-
gerða gegn heimastjórn Palestínu-
manna. Sharon vill að Bandaríkjamenn
gangi lengra og í viðtali, sem birtist í
gær, kvaðst hann ætla að skora á Bush að
slíta öllum samskiptum við Arafat.
Eftir yfirlýsingum Bandaríkjamanna
að dæma mætti ætla að Palestínumenn
væru í hlutverki kúgara Ísraela. Það er
hins vegar öðru nær. Ísraelar gera það
sem þeim sýnist á svæðum Palestínu-
manna og láta sér mótmæli umheimsins
sem vind um eyru þjóta. Þeir jafna íbúð-
arhús við jörðu, eyðileggja stjórnarbygg-
ingar og skóla, rústa skrifstofur og
svefnskála palestínskra öryggissveita,
myrða meinta hryðjuverkamenn og pal-
estínska leiðtoga án dóms og laga og
hefta ferðafrelsi. Mörg hundruð palest-
ínskir borgarar hafa verið drepnir. Ara-
fat er ekki einn í herkví, heldur allir Pal-
estínumenn á Vesturbakkanum og Gaza.
Til þess að framfylgja þessari stefnu
sinni, sem seint yrði kennd við mannúð,
njóta Ísraelar ríkulegrar aðstoðar
Bandaríkjamanna. Í vikunni fyrir áramót
samþykkti Bandaríkjaþing erlenda að-
stoð fyrir næsta ár og eru Ísraelum ætl-
aðar 2,7 milljarðar dollara (rúmlega 270
milljarðar króna) eða rúmlega 17% af
heildarupphæðinni, sem Bandaríkja-
menn ætla í aðstoð við erlend ríki. Þar
bætast við 2,5 milljarðar dollara (rúm-
lega 250 milljarðar króna), sem eyrna-
merkt eru Ísraelum á fjárlögum Banda-
ríkjanna til varnarmála, lán, sem gefin
hafa verið eftir, og ýmsar aðrar sporslur.
80% fjárins, sem kemur af fjárlögunum
til varnarmála, eru reyndar háð því skil-
yrði að þau verði notuð í Bandaríkjunum.
Fyrir vikið geta Ísraelar beitt vopnum af
nýjustu gerð, Apache-þyrlum og F-16-
orrustuþotum, í aðgerðum sínum gegn
Palestínumönnum. Hernám Ísraela á
Palestínumönnum hefur staðið í 35 ár og
annar hver maður á hernámssvæðunum
er atvinnulaus og býr við fátækt. Engu að
síður er linnulaust hamrað á þeim óhæfu-
verkum, sem Palestínumenn fremja, en á
sama tíma eru linnulaus mannréttinda-
brot Ísraela nánast látin óátalin.
Þessi afstaða Bandaríkjamanna er ill-
skiljanleg. Þeir eru eina þjóðin í heimi,
sem hefur möguleika á að stilla til friðar í
Mið-Austurlöndum. Þeir búa yfir bæði
hervaldi og fjármunum til þess að knýja
fram frið. Pólitísk áhrif Ísraelsmanna í
Bandaríkjunum mega ekki verða til þess
að koma í veg fyrir að þeir beiti þessu afli
í þágu friðar. En til þess þurfa þeir líka
að njóta trausts beggja aðila. Þeir eru að
glata því trausti, sem þeir höfðu áunnið
sér meðal Palestínumanna.
MENNTUN ER EKKI UPP Á PUNT
Tillögur Verslunarmannafélags Reykja-víkur um breytingar á skólakerfi lands-
ins hafa vakið verulega athygli undanfarna
daga. VR fól Hagfræðistofnun að reikna út
þjóðhagslegan ávinning þess að útskrifa
nemendur árinu fyrr en nú er gert. Kann-
aðar voru þrjár leiðir: að börn hefji nám
fimm ára í stað sex ára, að hvert skólaár
verði lengt, en þeim fækkað um eitt á móti,
annaðhvort í grunnskóla eða framhaldsskóla.
Niðurstöður Hagfræðistofnunar eru þær að
auka megi þjóðartekjur um allt að 157 millj-
arða á næstu árum með þessum aðgerðum.
Miðað við þessar tölur felst greinilega
töluverður fjárhagslegur ávinningur í
breytingum sem þessum. En þegar rætt
er um börn og menntun þeirra þarf fleira
að koma til, til þess að slíkar breytingar
séu skynsamlegar. Skólakerfið þarf fyrst
og fremst að henta nemendunum sjálfum.
VR benti einmitt á að með breytingum
sem þessum myndi kaupmáttur aukast
sem nemur lengingu starfsævinnar, og
breytingin myndi stuðla að auknu jafnrétti
og lífsgæðum, þar sem þau aukast með
hærra menntunarstigi. VR benti jafn-
framt á að með þessum breytingum
myndu íslensk ungmenni ljúka framhalds-
námi á sama tíma og jafnaldrar þeirra í
öðrum OECD-ríkjum, sem væri mikilvægt
fyrir samkeppnishæfni þeirra á alþjóðleg-
um vinnumarkaði.
Það er merkilegt að VR skuli taka af
skarið í umræðu um íslenskt skólakerfi og
nálgun þess við viðfangsefnið verður að
teljast nokkuð nýstárleg. Félagið bendir á
að menntamál séu orðin hluti af kjaramál-
um og má vel taka undir það sjónarmið.
Menntun og uppbygging skynsamlegs
menntakerfis er miklu stærra og mikil-
vægara mál en oft hefur verið álitið hér-
lendis. Þetta bendir Kári Stefánsson, for-
stjóri Íslenskrar erfðagreiningar, meðal
annars á fyrir stuttu í Morgunblaðinu.
Hann segir: „Mér finnst ískyggilegt hvað
við höfum verið kærulaus þegar kemur að
fjárfestingu í okkar skólakerfi.“ VR hefur
greinilega gert sér grein fyrir því að
menntun er ekki upp á punt, heldur mikil-
væg fjárfesting sem skiptir verulegu máli
fyrir þjóðarhag.
Hugmyndum VR um að útskrifa börn
ári fyrr en nú er gert, hefur þó ekki alls
staðar verið tekið vel. Bent hefur verið á
að með breytingum sem þessum skerðist
þau mikilvægu tengsl sem íslensk ung-
menni hafa nú við atvinnulífið og verið sé
að ræna börn barnæskunni með því að
skikka þau til að hefja nám of snemma.
Þessi sjónarmið eru góð og gild en því má
þó ekki gleyma í þessari umræðu að lengd
íslenska skólaársins miðast ennþá við
löngu horfna menningu – þátttöku barna
og unglinga í sauðburði á vorin og í rétt-
um á haustin. Með tillögum sínum hefur
VR stigið mikilvægt skref í að færa um-
ræðu um menntamál hérlendis nær nú-
tímanum, og á hrós skilið fyrir það.