Morgunblaðið - 02.02.2002, Qupperneq 36
UMRÆÐAN
36 LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
NÚ FER að styttast
í að gengið verði til
bæjarstjórnarkosn-
inga. Þá munu kjós-
endur velja það fólk
sem það treystir til að
fara með stjórn mála í
viðkomandi sveitarfé-
lagi og jafnframt gefa
þeim einkunn, sem
stjórnað hafa síðastlið-
in fjögur ár.
Stjórnarskipti urðu í
Kópavogi árið 1990,
þegar sjálfstæðis- og
framsóknarmenn
mynduðu meirihluta og
hafa starfað saman frá
þeim tíma. Rétt er að fara stuttlega
yfir stöðu mála í Kópavogsbæ, eins
og hún er í dag.
Rekstrarkostnaður, sem hlutfall af
skatttekjum, er sá lægsti sem þekk-
ist meðal stærri sveitarfélaga í land-
inu en hlutfallið hefur verið á bilinu
62 til 66% á undanförnum árum.
Bæjarsjóður hefur þar af leiðandi
verið rekinn með góðum tekjuaf-
gangi undanfarin ár, sem hefur gert
okkur Kópavogsbúum kleift að ráð-
ast í nauðsynlegar framkvæmdir í
hinum ýmsu málaflokkum.
Grunnskólar
Grunnskólar Kópavogsbæjar voru
einsetnir árið 1997 og síðan hafa
grunnskólar verið byggðir upp í nýju
hverfunum, samhliða uppbyggingu
þeirra. Þá hafa eldri skólar verið
stækkaðir vegna aukinna rýmisþarfa
fyrir dagvist, stjórnsýslu o.fl. Alls
eru átta starfandi grunnskólar í
Kópavogsbæ í dag.
Leikskólar
Árið 1990 var mikill skortur á leik-
skólaplássum í Kópavogi. Á síðustu
12 árum hafa verið byggðir 8 nýir
leikskólar og alls eru 15 leikskólar
starfandi á vegum bæjarins og þrír
eru einkareknir, en styrktir af bæj-
arsjóði. Sá nýjasti tekur til starfa í
apríl næstkomandi í Salahverfi. Í dag
er staðan þannig að biðlistar fyrir
börn tveggja ára og eldri eru úr sög-
unni. Fyrir 10 árum eða svo voru oft
tvö börn um hvert pláss, þ.e.a.s. fyrir
og eftir hádegi, en nú er það mun al-
gengara að vistun barna er lengri og
þar af leiðandi hefur
verið enn frekari þörf
fyrir fleiri pláss.
Endurnýjun
gamalla gatna
Endurnýjun gömlu
gatnanna hófst uppúr
1990 og hefur staðið
nær óslitið síðan. End-
urbyggðir hafa verið
um 18 kílómetrar gatna
og er kostnaðurinn á
núvirði farinn að nálg-
ast tvo milljarða króna.
Kópavogsbraut (aust-
urhluti) og Digranes-
heiði/Skálaheiði eru í
vinnslu og verður lokið við endurnýj-
un þeirra snemma sumars. Þá er ein-
ungis eftir stuttar götur, sem má
ljúka á þessu ári. Nú í dag er Kópa-
vogsbær með nýjasta og besta gatna-
kerfi stærri bæjarfélaganna. Öðru
vísi mér áður brá.
Íþrótta- og æskulýðsmál
Á síðasta áratug hefur orðið bylt-
ing í aðstöðu fyrir íþrótta- og æsku-
lýðsmál. Lokið var byggingu íþrótta-
hússins við Digranes, nýtt íþróttahús
byggt í Kópavogsdal, knattspyrnu-
vellir gerðir í Kópavogs- og Foss-
vogsdal, aðstaða fyrir frjálsíþrótta-
fólk í Kópavogsdal, stuðningur við
Reiðskemmu hestamannafélagsins
Gusts í Glaðheimum, þrír tennisvellir
í Kópavogsdal, aðstoð við Skotfélag
Kópavogs í Digranesi, uppbygging
golfaðstöðu á Vífilsstaðatúni fyrir
golfklúbb Kópavogs og Garðabæjar,
svo eitthvað sé nefnt. Þá er verið að
byggja fjölnotaíþróttahús í Kópa-
vogsdal, sem tekið verður í notkun í
apríl nk. Einnig er í byggingu sund-
laug og íþróttahús í Salahverfi. Þess-
ar nýjustu fjárfestingar munu kosta
a.m.k. 1,5 milljarða króna.
Á síðastliðnum fimm árum hafa
verið byggðar tvær félagsmiðstöðvar
fyrir eldri borgara með mjög öflugri
starfsemi, þ.e.a.s. í Gjábakka og Gull-
smára. Áhersla hefur verið lögð á að
vinna með fólki og að aldraðir taki
sjálfir sem virkastan þátt í starfsem-
inni og það módel sem notað hefur
verið í Kópavogi hafa önnur sveitar-
félög tekið sér til fyrirmyndar.
Það má ekki gleyma að Kópavogs-
bær er með skattfrjálsan afslátt fast-
eignaskatts fyrir 67 ára og eldri upp
á 32.500 kr. fyrir árið 2002.
Umhverfismál
– miklir áfangar
Fyrir tveimur árum var Skerja-
fjarðarveita, sem var samstarfsverk-
efni Kópavogs, Garðabæjar, Sel-
tjarnarness og Reykjavíkurborgar,
tekin í notkun og þar með losnuðu
Kópavogsbúar við afrennsli skolps í
Fossvog og Kópavog. Nú er verið að
leggja lokahönd á hreinsun voganna
með gerð Vesturvararveitu en hún
leiðir síðustu skolplagnirnar í
Skerjafjarðarveitu. Kostnaður við
allar þessar framkvæmdir nemur um
600 milljónum króna.
Gerð göngustíga og frágangur op-
inna svæða í nýjum hverfum hefur
gengið samhliða uppbyggingu þeirra
og verið er að endurbyggja eldri
göngustíga ásamt lýsingu.
Þá er gerð staðardagskrár fyrir
Kópavog á lokastigi.
Menningarmál
Segja má að það hafi orðið bylting í
menningarmálum í Kópavogi á und-
anförnum árum. Listasafn Gerðar
Helgadóttur var opnað 1994. Tónlist-
arhús Kópavogs (Salurinn og Tón-
listarskóli Kópavogs) árið 2000 og
núna í apríl er áætlað að taka í notk-
un nýtt húsnæði fyrir bókasafn og
náttúrufræðistofu. Menningarlíf hef-
ur staðið með miklum blóma í kjöl-
farið á bættri aðstöðu og heimsfræg-
ir listamenn hafa heiðrað Salinn með
því að spila og syngja þar.
Kópavogsbær hefur tekið ákveðna
forystu í ýmsum málaflokkum bæj-
armála. Miðstöð verslunar og þjón-
ustu hefur færst í Kópavog með til-
komu Smáralindar og fleiri öflugra
fyrirtækja. Bærinn er vel staðsettur
og tengdur – stutt til allra átta. Það
má því segja með sanni að það er gott
að búa í Kópavogi.
Það er gott að
búa í Kópavogi
Gunnar I. Birgisson
Kópavogur
Kópavogsbær, segir
Gunnar I. Birgisson,
hefur tekið ákveðna for-
ystu í ýmsum mála-
flokkum bæjarmála.
Höfundur er formaður bæjarráðs
Kópavogs, alþingismaður og tekur
þátt í prófkjöri sjálfstæðismanna
í Kópavogi.
VAXANDI bæ er afar mikilvægt
að skipulag og nýting bæjarlands
gefi bæjarbúum og atvinnulífi kost á
hentugum byggingarlóðum og opn-
um svæðum fyrir þær fjölbreyttu at-
hafnir og starfsemi sem nútíma sam-
félagi er eðlileg nauðsyn. Bjóða þarf
lóðir fyrir margs konar byggingar í
íbúðarhverfum, blönduðum hverfum
með verslun og þjónustu svo og at-
vinnusvæðum iðnaðar og verktaka.
Gera þarf ráð fyrir ræktun og fegr-
un, hjólreiða-, göngu- og reiðstígum,
fjölbreyttum útivistar- og íþrótta-
svæðum fyrir alla aldurshópa. Kópa-
vogur hefur fylgt þessari stefnu og
verið í fararbroddi.
Að undanförnu hefur Bæjarskipu-
lag Kópavogs unnið að þróun hug-
mynda um bryggjuhverfi á utan-
verðu Kársnesi. Undirrituð hefur átt
mikinn og ánægjulegan þátt í þessu
verkefni. Það mun skapa bæjarbúum
í fjölmennasta kaupstað landsins
góða aðstöðu til að stunda siglinga-
íþróttir og fjölbreytta útivist við
ströndina og sjóinn. Nýtt skipulag
verður skapað til enduruppbygging-
ar, þar sem gömul iðnaðarhverfi hafa
staðið, sem hæfir væntingum bæj-
arbúa og það býður heim nýrri þjón-
ustu og afþreyingaraðstöðu.
Auka þarf þéttbýlisskógrækt í
Kópavogi og ræktun í bæjarlandinu.
Ásýnd bæjarins verður hlýlegri og
fallegri. Ásamt hjólreiða- og göngu-
stígum verður bæjarbúum á öllum
aldri gefinn kostur á þátttöku í hollu
og mannbætandi rækt-
unarstarfi og fjöl-
breyttri útivist á öllum
árstímum.
Nýsköpun
í atvinnumálum
Skapa þarf hvers
konar atvinnustarfsemi,
hentug athafnasvæði og
styðja við nýsköpun og
þróunarstarf fyrirtækja
í Kópavogi. Brýnt er að
haga skipulagi þannig
að ef fyrirtæki þurfa að
stækka eða endurnýja
húsnæði bjóðist þeim
lóðir í bænum okkar.
Skipulag bæjarlandsins
verður að svara væntingum og fram-
tíðarþörfum íbúa og fyrirtækja.
Skólar
Alls ekki má skorta á tilskilda
kennslu í öllum greinum, s.s. íþrótt-
um, þ.m.t. sundi fyrir öll börn á
grunnskólaaldri. Í því skyni að skól-
ar geti brugðist við þörfum ólíkra
einstaklinga með fjölbreyttu náms-
efni og skólastarfi þarf ákvörðunar-
vald að fylgja ábyrgð skólastjórn-
enda innan ramma fjárveitinga til
starfseminnar.
Hjarta hvers bæjarfélags slær
með börnum þess og æskufólki. Að
framtíð þess þarf að hlúa því á því
standa enn fleiri freistingar og gylli-
boð en nokkru sinni fyrr. Vel hefur
verið staðið að upp-
byggingu iþróttaað-
stöðu í bæjarfélaginu á
undanförnum árum og
er nú í byggingu full-
komin íþrótta- og
sundaðstaða í Sala-
hverfi og fjölnota
íþróttahús í Smáran-
um fyrir t.d. knatt-
spyrnu, frjálsar íþrótt-
ir, íþróttir aldraðra og
sýningaaðstöðu. Sett
hafa verið markmið og
mótuð stefna í þessum
mikilvæga málaflokki.
Kópavogur á að vera
besti íþróttabær
landsins hvað varðar
aðstöðu til iðkunar allra almennings-
og keppnisíþrótta og fjölbreyttrar
íþrótta- og tómstundastarfsemi.
Málefni aldraðra
Hvert samfélag með sjálfsvirð-
ingu leggur sóma sinn í að skapa
þeim sem eldri eru þægindi og
áhyggjulaust ævikvöld. Bærinn hef-
ur staðið fyrir byggingu hentugra
íbúða með þjónustu og tómstunda-
starfsemi fyrir aldraða en ekki er
síður mikilvægt hlutverk bæjaryfir-
valda að veita aðstoð og hjúkrun við
aldraða á heimilum þeirra og að lykt-
um að hafa frumkvæði um byggingu
nægjanlegs hjúkrunarrýmis fyrir
aldraða sjúka. Ástæða er til þess að
Kópavogsbær sækist eftir því að
taka að sér rekstur heilsugæslunnar
í Kópavogi og samhæfi fullkomlega
starfsemi hennar og félagsþjónustu
bæjarins við aldraða. Tilraunaverk-
efni Hornafjarðarbæjar sýnir að
þannig má ná miklu betri árangri en
með þeirri verkaskiptingu sem nú er
milli ríkis og bæjarfélaga í þessum
málum. Með þessu verður betri
þjónusta og jafnvel með minni kostn-
aði.
Öll bæjarmál eru fjölskyldumál
því þau snerta fólkið í bænum. Kópa-
vogur er fjölskylduvænn bær með
góðu skipulagi, þróttmiklu atvinnu-
lífi, góðu leikskólastarfi, aðstöðu til
almennrar þátttöku í íþrótta- og
tómstundastarfi og góðri þjónustu
við aldraða bæjarbúa.
Kópavogsbúar, ég óska eftir
stuðningi ykkar í þriðja sæti fram-
boðslistans í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins laugardaginn 9. febrúar og
að þið veitið mér möguleika til að
vinna áfram að þessum málum.
Góður bær verður betri
Margrét
Björnsdóttir
Kópavogur
Öll bæjarmál eru
fjölskyldumál, segir
Margrét Björnsdóttir,
því þau snerta fólkið
í bænum.
Höfundur er varabæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi og
sækist eftir 3. sæti í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins.
FYRIR nokkrum
árum hefði verið auð-
velt að fullyrða að
kennsla í grunnskólum
hefði ekki tekið mikl-
um breytingum frá ár-
dögum iðnbyltingar-
innar. Þó má segja að
aðbúnaður ýmiss kon-
ar hafi batnað og nem-
endum jafnvel fækkað
eilítið í bekkjum en
námsgreinar og meg-
inkennsluaðferðir,
tafla og krít, hafi að
mestu verið þær
sömu.
Á tímum upplýs-
inga- og tölvutækni
stendur skólinn frammi fyrir bylt-
ingu sem mun og hefur þegar haft
mikil áhrif á líf fólks. Upplýsingar
berast hraðar milli manna, lands-
hluta og heimshluta.
Innleiðing upplýsingatækni í
skólastarfið kallar á nýjar og
breyttar áherslur, ný viðmið og
nýjar spurningar koma eflaust til
með að vakna. Nemendur standa
frammi fyrir nýjum viðfangsefnum
og þurfa nú leiðsögn í upplýsinga-
leit. Efla þarf gagnrýna hugsun
nemenda því ógrynnin öll af upp-
lýsingum streyma til þeirra í gegn-
um veraldarvefinn, efni sem þau
þurfa að læra að flokka, nýta sér og
draga ályktanir af.
Óhætt er að fullyrða að Hafn-
arfjarðarbær hafi verið í forystu
við innleiðingu nýrrar tækni í op-
inberum rekstri og þá ekki síst í
skólastarfinu með eflingu tækja-
búnaðar og hugvits.
Rannsóknir er sýndu
fram á gildi samstarfs
heimila og skóla og sá
möguleiki að nýta
upplýsingatæknina til
að þjónusta skólasam-
félagið urðu kveikjan
að þróunarverkefni
sem hófst snemma árs
1999. Verkefnið miðaði
að því að auðvelda
samskipti og upplýs-
ingamiðlun milli fjöl-
skyldna og skólans
með því að nota sér-
hannaða veflausn, svo-
kallað Skólatorg, fyrir
skólasamfélagið.
Undirritaður kom sumarið 2000
inn í verkefnið sem fulltrúi upplýs-
ingamála Hafnarfjarðarbæjar.
Skólatorgið er sérhannað vefút-
gáfukerfi fyrir grunnskóla ásamt
fróðlegum upplýsingavef fyrir alla
þá er koma að skólamálum. Allir
grunnskólar í landinu fengu torgið
að gjöf frá Tæknivali og var það
þegar í stað tekið í notkun í Öldu-
túnsskóla í Hafnarfirði. Í kjölfarið
hófust kynningar í öðrum skólum
bæjarins á nytsemi og hagnýti
Skólatorgsins.
Skólatorgið féll beint inn í UTA-
verkefni bæjarins, upplýsingatækni
fyrir alla, sem er samstarfsverkefni
bæjarfélagsins með Opnum kerfum
hf., Skýrr hf. og Vyre Reykjavík.
Fleiri fyrirtæki komu þar einnig að
eins og t.d. IceCom.
Eflaust er hægt að velta því fyrir
sér hvort skólarnir og heimilin séu
tilbúin að koma sér upp rafrænu
samskiptakerfi. Því er erfitt að
svara. Hins vegar er ljóst að mikill
fjöldi foreldra hefur gott aðgengi
að tölvu með öllum nauðsynlegum
eiginleikum til slíkra samskipta,
annaðhvort í vinnu eða á heimili.
Því á ekkert að standa í vegi fyrir
pappírslausum og „umhverfisvæn-
um“ samskiptum.
Til þess að hægt væri að setja
upplýsingatæknina í forgang inni í
skólunum var ljóst að endurnýja
þyrfti tækjabúnað skólanna. Á
haustdögum 2001 fengu grunnskól-
ar Hafnarfjarðar afhent alls hátt á
annað hundrað tölva ásamt fylgi-
hlutum, s.s. prenturum og hugbún-
aði. Enn fremur var unnið að um-
fangsmiklum tölvutengingum í
tveimur grunnskólum til að tryggja
sem mest notagildi tölvanna. Þá
var einnig, á vegum UTA-verkefn-
isins, farið af stað með upplýsinga-
tæknivæðingu félagsmiðstöðvanna
með því að útvega tölvur fyrir ung-
lingana í allar félagsmiðstöðvar. Þá
mun tölvubúnaður í nýju bókasafni
styðja þessa þróun enn frekar en
þar verður miðstöð upplýsinga-
tækni í Hafnarfirði.
Breytingar á skólastarfi eru yf-
irleitt tímafrekt verkefni. Upplýs-
ingasamfélagið kallar þó á hraðari
breytingar í skólastarfi en áður
hafa tíðkast. Áreiti samfélagsins
krefst nýrrar hugmyndafræði og
þess að kennarar og aðrir sem að
skólanum koma noti upplýsinga-
tæknina á markvissan hátt í störf-
um sínum. Sérstök ástæða er því til
þess að hvetja nemendur, kennara
og foreldra til að gefa gaum að
þessum nýjungum og kynna sér
hagræðið sem í þeim felst.
Ljóst er að Hafnarfjarðarbær
hefur með góðri skipulagningu og
framtíðarsýn tekið forystu á sviði
rafrænna samskipta við viðskipta-
menn sína. Tölvusamskiptin eru
góð viðbót í samskiptum heimila og
skóla og nú er lag að nýta tækifær-
in til fullnustu.
Upplýsinga-
tækni í
forgang
Leifur S.
Garðarsson
Hafnarfjörður
Innleiðing upplýsinga-
tækni í skólastarfið,
segir Leifur S. Garð-
arsson, kallar á nýjar
og breyttar áherslur.
Höfundur er aðstoðarskólastjóri og
sækist eftir 4.–6. sæti í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði.