Morgunblaðið - 02.02.2002, Page 37
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2002 37
SÖLUSÝNING
í dag, frá kl. 11-16
BLÁSALIR 22 - KÓPAVOGI
BESTI ÚTSÝNISSTAÐUR Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
ALLAR ÍBÚÐIR ERU MEÐ SUÐUR- OG VESTURÚTSÝNI
NÝ HÁGÆÐA HLJÓÐEINANGRUN - „EINBÝLI Í FJÖLBÝLI“
HÚSIÐ ER LAUST VIÐ MENGUN HITAVEITUVATNS
Til sölu nýjar, sérlega vandaðar og rúmgóðar 2ja, 3ja og 4ra herbergja
íbúðir í tólf hæða álklæddu fjölbýlishúsi. Aðeins fjórar íbúðir eru á hverri
hæð. Allt heitt vatn í húsinu er forhitað ferskvatn. Tvær fullkomnar lyftur
eru í húsinu og ná niður í kjallara og bílageymslu. Allar hurðir í íbúðunum
eru 90 cm breiðar. Íbúðirnar afhendast fullbúnar án gólfefna í maí 2002.
Verð á tveggja herbergja 80 fm íbúðum frá kr. 12,5 m.
Verð á þriggja herbergja 95 fm íbúðum frá kr. 13,5 m.
Verð á fjögurra herbergja 125 fm íbúðum frá kr. 17,5 m.
Arkitekt hússins er Orri Árnason.
Byggingaraðili er Byggingafélagið Viðar.
Teikningar og allar nánari upplýsingar á skrifstofunni.
Sölumenn okkar verða á staðnum í dag frá kl. 11-16
FASTEIGNASALA BRYNJÓLFS JÓNSSONAR EHF.
Sími 511 1555
EIGNIR ÓSKAST TIL KAUPS
ÁKVEÐNIR KAUPENDUR
2JA HERBERGJA ÍBÚÐ ÓSKAST
Höfum kaupanda að 2ja herbergja íbúð á 1. eða 2. hæð.
Svæði: Háaleiti, Fossvogur, Smáíbúðarhverfi eða Heimar.
3JA HERBERGJA ÍBÚÐIR ÓSKAST
Höfum kaupendur að 3ja herbergja íbúðum víðsvegar í Reykjavík og einnig á
Seltjarnarnesi.
GARÐABÆR
Gott raðhús í Garðabæ, gjarnan á einni hæð m. fjórum herbergjum og góðum
stofum óskast.
ÞINGHOLT
200-300 fm einbýlishús í Þingholtum óskast.
VESTURBORGIN
Fjársterkur kaupandi óskar eftir einbýlishúsi í Vesturborginni.
KOLBEINSSTAÐAMÝRI
Traustur kaupandi óskar eftir góðu raðhúsi eða parhúsi í Kolbeinsstaðamýri.
EINBÝLISHÚS Í GRAFARVOGI ÓSKAST
Traustur kaupandi óskar eftir 180-250 fm steinhúsi á einni hæð.
EINBÝLISHÚS Í SMÁÍBÚÐAHVERFI,
STIGAHLÍÐ EÐA FOSSVOGI ÓSKAST
Höfum trausta kaupendur að góðum einbýlis- og raðhúsum á þessum svæðum.
SÉRHÆÐIR ÓSKAST
120-160 fm sérhæðir óskast. Æskileg staðsetning: Vesturbær, Hlíðar, Þingholt,
Fossvogur eða Kringlusvæðið.
120-160 FM ÍBÚÐ Í LYFTUHÚSI ÓSKAST
Æskileg staðsetning: Klapparstígur, Skúlagata eða Kirkjusandur.
ATVINNUHÚSNÆÐI ÓSKAST
Höfum kaupendur að ýmis konar atvinnuhúsnæði, t.d. 100-200 fm skrifstofu- og
verslunarplássum. Einnig höfum við sterka fjárfesta sem óska eftir stórum
eignum sem eru í útleigu.
BYGGINGARLÓÐ Í REYKJAVÍK ÓSKAST
Traustur byggingameistari óskar eftir góðri byggingarlóð í Reykjavík.
„Lélegt“ hús á góðri lóð kemur einnig vel til greina.
ATHUGIÐ
Þetta er aðeins sýnishorn úr kaupendaskrá okkar.
Vegna líflegrar sölu í janúar vantar mun fleiri tegundir
af íbúðar- og atvinnuhúsnæði á söluskrá.
Skoðum og verðmetum samdægurs.
TÓNLIST þykir
standa vitsmunalega
jafnfætis öðrum háþró-
uðum táknkerfum
mannsins, stærðfræði
og tungumáli (móður-
máli). Hins vegar er
tónlistin mjög aðgengi-
leg öllum mönnum, en
skilningur í stærðfræði
og ritmáli byggist á
tengingu abstrakt
hljóð- og rittákna við
þekkt og viðurkennd
tákn og stærðir.
Það er stundum talað
um að ólæsi sé að
aukast, ekki bara hér á
Íslandi, heldur um allan
hinn vestræna heim. Á hverju ári má
reikna með að allt að 20% íslenskra
barna útskrifist úr grunnskólum
landsins með miður góða eða lélega
lestrarkunnáttu. Treglæsi og ólæsi
er gríðarlegur baggi á þeim einstak-
lingi sem býr við slíkan vanda. Læsi
er einmitt grundvallaratriði þessa
nýja samfélags upplýsinganna og
hraðans. Unglingur sem er haldinn
slíkum vanda hefur rembst eins og
rjúpan við staurinn við að komast í
gegnum grunnskólann og þurft að
hafa margfalt meira fyrir námi sínu
en flestir aðrir bekkjarfélaganna.
Oftar en ekki hefur uppskeran verið
snöggtum lakari en félaganna. Hann
mætir yfirleitt litlum skilningi og
ekki er sérlega auðvelt aðgengi til
sértækra úrræða innan kerfisins.
Lestrarörðugleikar
Rannsóknir sýna að um 20% ís-
lenskra barna eigi í lestrarörðugleik-
um og helmingur þeirra, eða 10%
barna, við verulega mikla lestrarörð-
ugleika að stríða sem auðveldlega
geta leitt til takmarkaðrar lestrar-
kunnáttu og lítils lesskilnings. Oft
fylgja líka erfiðleikar í stærðfræði.
Stundum stafa stærðfræðiörðugleik-
arnir beinlínis af takmörkuðum les-
skilningi (orðadæmi), en hafa ekkert
með tölulegan skilning að gera.
Ýmislegt hefur orðið til þess að
mér verður æ oftar hugsað til þess
hvort tengsl geti verið á milli læsis og
tónlistar, og hvort hægt sé að vinna
fyrirbyggjandi starf í leikskólunum
með tónlistarþjálfun barnanna.
Rannsóknir sýna að færni barns á
leikskólaaldri í rytma, rími og hljóð-
greiningu, auk ýmissa annarra þátta,
gefur vísbendingar um gengi læsis
síðar meir.
Þróunarverkefni í Kópasteini
Leikskólinn Kópasteinn vann þró-
unarverkefni í tónlistariðkun og fékk
á sínum tíma til þess styrk frá Þróun-
arsjóði leikskóla í menntamálaráðu-
neytinu. Börnin voru í tónmennta-
tímum einu sinni í viku og stóð hver
tími í allt að 60 mínútur. Börnin æfðu
hljóðgreiningu, greindu há og lág
hljóð, stutt og löng hljóð, sterk og
veik hljóð. Þau æfðu að klappa takt
og fjölbreytilegan rytma, bjuggu til
lítil lög og spunnu upp texta og lag-
línur. Þau æfðu söng og hreyfingar
eftir tónlist. Þegar skoðað var hvern-
ig til hefði tekist blandaðist engum
hugur um þær miklu framfarir sem
börnin höfðu tekið í tónmennt. Og
það sem meira var, börnin voru
miklu agaðri og þeim reyndist mjög
auðvelt að framfylgja settum fyrir-
mælum.
Eftir að hafa kynnt mér lestr-
arörðugleika í grunn-
skólum og skoðað
hvaða þættir það eru
sem virðast einkenna
slaka nemendur í lestri
hef ég leitt hugann að
því hvort það gæti
reynst fyrirbyggjandi
aðgerð að æfa mark-
visst leikskólabörnin í
grunnþáttum tónlistar,
hljóðgreiningu, takti og
rytma. Ef hljóðkerfis-
vitund barnanna er
aukin markvisst í leik-
skólunum með iðkun
tónmennta erum við þá
að fyrirbyggja hjá
börnunum síðari tíma
lestrarörðugleika? Þegar litið er til
hinnar háu prósentu lestrarörðug-
leika íslenskra barna má augljóst
vera, að hér er á ferðinni bæði brýnt
og spennandi rannsóknarverkefni.
Kópavogsbær státar af mjög góð-
um tónlistarskóla sem er víðkunnur
fyrir gott forskólastarf. Skólahljóm-
sveit Kópavogs er líka vel þekkt og
hefur farið víða. Báðar þessar stofn-
anir, Tónlistarskóli Kópavogs og
skólahljómsveit Kópavogs, byggjast
á traustum grunni í bæjarfélaginu og
njóta virðingar langt út fyrir bæjar-
mörkin.
Í leikskólaskor Kennaraháskóla
Íslands hefur tónmenntakennslan
tekið miklum breytingum og umtals-
verðum framförum frá því ég lauk
námi í Fósturskóla Íslands 1977 og
er það vel. Leikskólakennslufræðin
tekur til tónlistariðkunar og nem-
endur í leikskólaskor taka fjórar ein-
ingar í tónmenntum. Þannig eru leik-
skólakennarar vel í stakk búnir að
iðka tónmenntir í leikskólanum.
Kópavogur taki forystu
Það eru gríðarlegir hagsmunir í
veði ef við getum minnkað þann hóp
grunnskólanemenda sem á í lestr-
arörðugleikum. Sveitarfélögin ættu
að taka höndum saman og gera áætl-
un um stórlega eflingu tónmennta á
öllum skólastigum.
Hér mætti hugsa sér að koma á
samvinnu milli Tónlistarskóla Kópa-
vogs, leik- og grunnskólanna. Tón-
listarskólinn gæti lagt til handleiðslu,
stuðning og fræðslu til kennaranna.
Eða hitt, að tónlistarskólinn tæki að
sér tónmenntakennslu í leikskólun-
um.
Stórt og öflugt sveitarfélag eins og
Kópavogur á að vera leiðandi sveitar-
félag í slíku samstarfi milli þessara
skóla og ganga á undan með góðu
fordæmi.
Tónlist
fyrir alla
Jóhanna
Thorsteinson
Kópavogur
Hugsanlega mætti
koma á samvinnu milli
Tónlistarskóla Kópa-
vogs, segir Jóhanna
Thorsteinson, og leik-
og grunnskólanna.
Höfundur er leikskólastjóri og tekur
þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í
Kópavogi. www.johanna.is.
UNDANFARIN 8 ár hefur Mos-
fellsbæ verið stjórnað af meirihluta
skipuðum fólki af G lista (samsafn
vinstrimanna) og
framsóknarmönnum.
Vinstri meirihlutinn
hefur sýnt lítið að-
hald í rekstri bæj-
arins og aukið skuld-
ir um næstum 800
þúsund krónur hvern
einasta dag í valdatíð
sinni þrátt fyrir að
seldar hafi verið eignir í eigu bæj-
arsjóðs svo nemur hundruðum millj-
óna.
Við þessar erfiðu aðstæður er mik-
ilvægt fyrir Mosfellinga að til forystu
í bæjarstjórn veljist fólk, sem hefur
menntun og reynslu til þess að takast
á við að koma fjármálum bæjarins í
heilbrigt horf.
Haraldur Sverrisson á Hulduhól-
um hefur á yfirstandandi kjörtímabili
verið virkur í starfi bæjarstjórn-
arhóps sjálfstæðismanna. Hann er
viðskiptafræðingur og hefur auk þess
sótt sér framhaldsmenntun í fjár-
málum til Bandaríkjanna. Hann hef-
ur áralanga reynslu af stjórnun sem
rekstrarstjóri fjármálaráðuneytisins,
og hefur jafnframt verið virkur í fé-
lagsstarfi í Mosfellsbæ.
Ég tel að það sé mikill fengur fyrir
Mosfellinga að fá mann með menntun
og reynslu Haraldar til forystu í bæj-
arstjórn og vil hvetja alla sjálfstæð-
ismenn í Mosfellsbæ til þess að velja
Harald í fyrsta sæti bæjarstjórn-
arlistans.
Mosfellingar –
veljum Harald
Sverrisson
Frá Hákoni Björnssyni, sem situr í bæj-
arstjórn í Mosfellsbæ fyrir D-lista:
Hákon
Björnsson
UNDIRRITAÐUR, ásamt fé-
lögum mínum í Golfklúbbnum Kili,
hefur átt þess kost að kynnast Har-
aldi Sverrissyni og
hans ágætu vinnu-
brögðum á und-
anförnum árum, en
hann var formaður
Kjalar frá árinu
1996-2000. Á þessum
tíma hélt hann
styrkri hönd um
fjármál og faglega
stjórn klúbbsins. Hann gerði átak í
uppbyggingu klúbbstarfsins, eink-
um í unglinga- og félagsstarfi. Í dag
á Golfklúbburinn Kjölur innan sinna
raða afreksfólk í íþróttinni bæði í
fullorðins- og unglingaflokkum. Með
starfi sínu hefur Haraldur sýnt frá-
bæra leiðtogahæfileika og aflað sér
vinsælda meðal félaganna. Hann
hefur jafnframt sýnt festu og áræðni
í samningum við viðsemjendur
klúbbsins, svo sem bæjarfélagið,
golfsambandið og fleiri. Þekking
Haraldar á bæjarmálum, víðtæk
starfsreynsla hans og menntun í
fjármálum og stjórnsýslu, mun
verða það afl sem við þörfnumst til
framtíðar í okkar bæjarfélagi. Ég
hvet því alla að taka þátt í prófkjör-
inu hinn 9. febrúar nk. og kjósa Har-
ald Sverrisson í forystusæti sjálf-
stæðismanna í Mosfellsbæ.
Harald Sverris-
son í forystusæti
sjálfstæðis-
manna
í Mosfellsbæ
Frá Hilmari Sigurðssyni viðskiptafræðingi:
Hilmar
Sigurðsson
ÁSDÍS Ólafsdóttir er íþróttakenn-
ari að mennt og hefur getið sér gott
orð sem frábær kennari og uppal-
andi.
Ásdís hefur unnið
markvisst að heilsu-
eflingu og íþrótta-
málum og lagt hönd á
plóginn í nefndum
Kópavogs, ásamt því
að halda utan um
heilsuátak fullorð-
inna í bænum og
vinna að málefnum eldri borgara af
heilindum.
Íþróttakennarinn Ásdís berst fyrir
bættu umhverfi, heilbrigði og mann-
rækt og hefur látið til sín taka í þeim
efnum. Ásdís er heilsteypt, ákveðin
og fylgin sér. Það er enginn svikinn af
verkum Ásdísar Ólafsdóttur.
Kjósum konu sem gengur að verk-
um sínum og lýkur þeim.
Ásdísi
í bæjarstjórn!
Borghildur Þorgeirsdóttir hárgreiðslu-
meistari skrifar:
Borghildur
Þorgeirsdóttir
Stretchbuxur kr. 2.900
Konubuxur frá kr. 1.690
Dragtir, kjólar,
blússur og pils.
Ódýr náttfatnaður.
Brandtex fatnaður
Nýbýlavegi 12, sími 5544433