Morgunblaðið - 02.02.2002, Side 56
56 LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 6, 8 og 10.40. Vit 334. B.i. 14. Sýnd kl. 3.45, 5.45, 8 og 10.15. B.i 12 ára. Vit 339.
1/2
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 8 og 10.20. Vit 319
Sýnd í Lúxus VIP kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16.
Sjóðheitasta mynd ársins er komin.
Tom Cruise + Penelope Cruz=Heitasta parið í dag.
Ásamt ofurskutlunni, Cameron Diaz.
Myndin er hlaðin frábærri tónlist
en Sigur Rós á þrjú lög í myndinni. Frá leikstjóra Jerry Maguire.
KEVIN SPACEY JEFF BRIDGES
Sýnd kl. 8.30 og 10.20. Vit 333. B.i. 14 ára
Strik.is
RAdioX
1/2
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 2 og 4 . Ísl. tal. Vit 320
1/2
Kvikmyndir.com
strik.is
Sýnd kl. 4. Ísl tal. Vit 325
Sýnd kl. 4. Enskt. tal. Vit 307
1/2
RadíóX
1/2
Kvikmyndir.is
SV MBL
Sýnd kl. 8 og 10.20. Vit 327
Sýnd kl. 1.45, 3.50 og 5.55.
Vit 328
HJ MBL
ÓHT Rás 2 DV
Ó.H.T Rás2
Sýnd kl. 2. Ísl. tal. Vit 292
HK DV
Hann er gæddur þeim hæfileika að geta séð
fortíðina, að geta spáð fyrir um framtíðina og að geta
látið hæfileika sína öðrum í te.
FRUMSÝNING
Byggt á sögu Stephen King
HJ MBLÓHT Rás 2DV
Frá leikstjóra Sea
of Love kemur
fyrsta
spennumynd
ársins. Með
töffaranum, John
Travolta
(Swordfish,
Face/Off), Teri Polo
(Meet the
Parents), Vince
Vaughn (The Cell,
Swingers) og
Steve Buscemi
(Armageddon,
The Big Lebowski).
Sýnd kl. 6.
Edduverðlaun6
Sýnd kl. 8 og 10. B.i 14 ára
ÞÞ Strik.is
ÓHT Rás 2
HL Mbl
Ó.H.T Rás2
Ó.H.T Rás2
Strik.is
Strik.is
HK DV
Kvikmyndir.com
SG. DV
HL:. MBL
Sýnd kl. 5.30 og 8.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. B.i 14.Sýnd kl. 6, 8, 10 og 12.
Sjóðheitasta mynd ársins er komin.
Tom Cruise + Penelope Cruz=Heitasta parið í dag.
Ásamt ofurskutlunni, Cameron Diaz.
Myndin er hlaðin frábærri tónlist
en Sigur Rós á þrjú lög í myndinni. Frá leikstjóra Jerry Maguire.
RAdioX
SG DV
FRUMSÝNING
1/2
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 1 og 3. ísl tal
1/2
Kvikmyndir.com
strik.is
1/2
Kvikmyndir.is
Sýnd sd kl. 1.45. Enskt tal. Sýnd kl. 10.30.
Sýnd kl. 1, 3 og 5.
Le Clerc förðunarvörurnar eru einstakar hvað efnisinnihald varðar,
en það er einkum hrísgrjónasterkja og hrísgrjónapúður.
Le Clerc, franskar förðunarvörur
Kynning í Lyfju,
Smáralind, sunnudaginn
3. febrúar frá kl. 14—18.
PA R I S 18 81
Árshátíðarförðun í boði.
Flottur kaupauki ef keyptir eru tveir
hlutir í Le Clerc.
ÞAÐ VORU drottningar tvær
sem stigu á svið í Íslensku óperunni
á fimmtudagskvöldið, ein íslensk og
ein bresk. Þetta voru orð hins fyrr-
nefnda og engin ástæða til að rengja
þau.
Íslenska drottningin var að sjálf-
sögðu Páll „okkar“ Óskar, sem þótti
tilefnið greinilega ærið því hann
kom fram íklæddur beinhvítum
samkvæmisklæðnaði. Með honum
lék þýski hörpuleikarinn Monika
Abendtroth, hægri hönd hans á plöt-
unni Ef ég sofna ekki í nótt. Studd
strengjakvartett léku þau og sungu
gamlar perlur sem Páll Óskar hefur
gert að sínum, í bland við lög af um-
ræddri plötu sem er án efa ein sú
allra besta sem kom út á síðasta ári
en hefur þó af einhverjum óskiljan-
legum orsökum farið glæpsamlega
lítið fyrir. Palli er öryggið uppmálað
þegar hann stendur á sviði og aðal
hans, hin einlæga virðing fyrir tón-
listinni, skein greinilega í gegn þetta
fimmtudagskvöld. Skemmtikraftur
af guðs náð.
Breska drottningin sem á eftir
fylgdi – aðalnúmmer kvöldsins Marc
Almond – sýndi einnig og sannaði að
hann er ekki síður skemmtikraftur
en tónlistarmaður. Almond býður
ekki upp á neina hefðbundna nost-
algíu popptónleika, enda heldur eng-
inn hefðbundinn uppgjafa „eitís“-
poppari. Hann býður upp á sýningu,
fjölbreytta efnisskipta söngdagskrá,
þar sem aðalið er kröftugur en um
leið nærgætinn flutningur, leikræn
túlkun og náið samband við áhorf-
endur. Sparleg hljóðfæraskipan –
vélrænn og kuldalegur grunnur
mýktur upp með lífrænum píanó- og
gítarleik, miðast að því að söngrödd
Almond fái sem best notið sín en
eins og heyra má á nýju plötunni
Stranger Things þá hefur hún aldrei
verið betri.
Eins og hann viðurkenndi sjálfur
og var duglegur að minna áhorfend-
ur á þá er söngröddin án efa jafnan
betur á sig kominn en umrædda
kvöldstund og kenndi hann um
ferska og þurra Íslandsloftinu sem
hann sagði hafa komið raddböndun-
um í opna skjöldu. En hann lét sig
hafa það – ætlaði sko ekki að klikka
á dæminu eftir að hafa þvælst alla
þessa vegalengd – í sönnum anda
Marlene Dietrich að eigin sögn.
Byrjunin var heldur brösug. Gló-
kollurinn Almond steig á sviðið
íklæddur skósíðum leðurfrakka (en
ekki hvað?) og söng lagið „Come
Out“ eftir íslenska þríeykið Jóhann
Jóhannsson, Sigtrygg Baldursson
og Sjón. Flutningurinn leið svolítið
fyrir byrjunarörðugleikana. Almond
tvístígandi við að reyna að átta sig á
aðstæðum og samspil hins vél- og líf-
ræna undirleiks lét fremur óþægi-
lega í eyrum. En um leið og Almond
hafði fundið fjölina, hneppt frá sér
leðrinu og samruni véla og manna
varð fullkominn varð ekki aftur snú-
ið. Eftir að hafa lokið við magnaða
rafræna blöndu af lögum af
Stranger Things og eldri perlum
varð undirleikurinn enn þá ber-
strípaðri og Almond brá sér í kabar-
ettgírinn sem hann hefur svo lengi
daðrað við. Þá fengu leikrænu til-
burðirnir líka notið sín fyrir alvöru,
t.a.m. í yndislega kómískum flutn-
ingi á „Jackie“ Jacques Brel. Einnig
var gaman að heyra Almond syngja
gamlan Berlínar-óð Lou Reed
„Caroline Says“ með sínu nefi en
þar sýndi hann vel hversu lunkinn
hann er við að gera lög annarra að
sínum.
Innkoma íslensku listamannanna
lánaðist og með miklum ágætum en
Jóhann Jóhannsson útsetti sérstak-
lega fyrir tónleikana þrjú lög af
Stranger Things fyrir strengi og pí-
anó. Sara Guðmundsdóttir átti og
góða innkomu er hún söng á móti Al-
mond í tveimur laganna.
Eftir dágott uppklapp var síðan
komið að rúsínunni í pylsuendanum,
sem flestir í salnum voru handvissir
um að ættu reyndar eftir að verða
tvær. Það ætlaði allt að ganga af
göflunum þegar drottningarnar
tvær efndu loforð sitt og sungu dú-
ettinn „Something’s Gotten Hold of
My Heart“. Og þótt lúnar raddirnar
næðu kannski ekki alveg hæstu
hæðunum skipti það engu því þær
voru í svo góðu gríni – og áhorf-
endur líka. Lokalagið var síðan vit-
anlega „Tainted Love“ og öll gömlu
„eitís“-börnin risu úr sætum af
taumlausri kátínu.
Drottn-
ingar
tvær
TÓNLEIKAR
Íslenska óperan
Tónleikar með breska söngvaranum
Marc Almond fimmtudaginn 31. janúar
2001. Með honum komu fram tveir er-
lendir hljóðfæraleikarar sem léku á píanó
og gítar. Einnig komu fram íslensku lista-
mennirnir Jóhann Jóhannsson, Sara Guð-
mundsdóttir og strengjakvartett. Sér-
stakur gestur Almonds var Páll Óskar
Hjálmtýsson en hann sá einnig um upp-
hitun ásamt Moniku Abendtroth.
MARC ALMOND
Skarphéðinn Guðmundsson
Morgunblaðið/Golli
Marc Almond heillaði gesti óp-
erunnar með kröftugum og
leikrænum flutningi.
mbl.isFRÉTTIR