Morgunblaðið - 02.02.2002, Page 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Uppfærslutilboð – 30% afsláttur!!
www.atv.is – Skeifunni 17
Afritunarhugbúnaður
BJÖRGÓLFUR Thor Björgólfsson,
Magnús Þorsteinsson og Björgólfur
Guðmundsson, stofnendur og eigend-
ur bjórframleiðandans Bravo Int-
ernational í Rússlandi, hafa gert bind-
andi samkomulag við fyrirtækið
Heineken um að selja því bjórverk-
smiðju Bravo í Pétursborg. Verðmæti
sölunnar er jafnvirði um 41 milljarðs
króna. Björgólfur Thor, sem er
stjórnarformaður Bravo, segist afar
sáttur við þessa sölu, fengist hafi gott
verð, Heineken sé ákjósanlegur
kaupandi og að salan sé viðurkenning
fyrir mikið uppbyggingarstarf og að
seljendur skili af sér góðu búi.
Samningurinn felur jafnframt í sér
að Heineken kaupir 49% hlut í ann-
arri verksmiðju Bravo sem framleiðir
og selur áfenga svaladrykki og til-
búna kokteila.
Björgólfur Thor, stjórnarformaður
Bravo, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að salan hefði verið lengi í und-
irbúningi og margir hefðu slegist um
að kaupa fyrirtækið. Hann sagðist
telja þetta góða sölu og að fyrir fyr-
irtækið hafi fengist gott verð. Fyrir-
tækið væri nú á því stigi að heppilegt
væri að frumkvöðlarnir skiluðu því af
sér til fyrirtækis á borð við Heineken
og sagðist hann afar sáttur við að
samningar hafi náðst við það fyrir-
tæki. Líta mætti á söluna sem mikla
viðurkenningu fyrir þau störf sem
unnin hefðu verið við uppbyggingu
fyrirtækisins, bæði af hálfu íslensku
stofnendanna og rússnesku starfs-
mannanna.
Björgólfur Thor sagði að hann og
Magnús hefðu þó ekki sagt alveg skil-
ið við verksmiðjuna sem verið væri að
selja, því þeir myndu sitja í stjórn
þess fyrst um sinn, hann sem stjórn-
arformaður og Magnús sem stjórn-
armaður.
Spurður um framtíðaráform benti
hann á að þeir ættu eftir söluna verk-
smiðju áfengra svaladrykkja og tilbú-
inna kokteila í félagi við Heineken og
myndu áfram vinna að uppbyggingu
hennar. Þótt hún væri mun minni en
verksmiðjan sem þeir hafi verið að
selja sé hún engu að síður stór á ís-
lenskan mælikvarða. Þá sagði hann
að nú myndi hann einbeita sér meira
að Pharmaco, en hann er stjórnarfor-
maður þess fyrirtækis og í stjórn sit-
ur einnig Björgólfur Guðmundsson.
Íslendingarnir þrír stofnuðu verk-
smiðjuna árið 1998. Félagið hefur síð-
an náð 4% markaðshlutdeild í bjór-
sölu í Rússlandi öllu, en í Pétursborg
er markaðshlutdeild þess 17% og í
Moskvu 7%. Félagið framleiðir bjór
undir vörumerkjunum Botchkarov og
Ohota og einnig Lövenbrau sam-
kvæmt sérleyfi. Framleiðslugeta
verksmiðju þess, sem er hin sjötta
stærsta í Evrópu, er 535 milljónir
lítra á ári, en til samanburðar er salan
á Íslandi 11 milljónir lítra á ári.
Í fréttatilkynningu vegna sölunnar
segir að Heineken sé einn stærsti
bjórframleiðandi í heimi og eigi 110
brugghús í 50 löndum og selji fram-
leiðsluna í 170 löndum. Rússland sé
talið verða einn af fimm stærstu bjór-
mörkuðum í heimi innan fárra ára.
Selja verksmiðjuna í
Pétursborg á 41 milljarð
Ljósmynd/Mykel Nicolaou
Frá undirritun samkomulags um kaup Heineken á bjórverksmiðju Bravo í Pétursborg í Rússlandi. Björgólfur
Thor Björgólfsson undirritar samkomulagið fyrir hönd seljenda og honum á hægri hönd er fulltrúi Heineken.
Margir sýndu áhuga á bjórframleiðslu Íslendinganna í Rússlandi
TÆKI sem mælir samfellt radon-
innihald hitaveituvatnsins hefur ver-
ið sett í eina af borholum Selfoss-
veitna í Laugardælalandi. Radon er
lofttegund en aukið magn þess í vatn-
inu sem kemur af miklu dýpi getur
bent til yfirvofandi jarðskjálfta. Það
er Raunvísindastofnun Háskóla Ís-
lands sem stendur að þessu verkefni
en tækið smíðaði Guðjón I. Guðjóns-
son starfsmaður Raunvísindastofn-
unar.
Tækið tekur aflestur sex sinnum á
sólarhring. Á miðnætti sendir það
boð með farsíma í tölvu á Raunvís-
indastofnun. Þessi tölva verður síðar
staðsett í jarðskjálftamiðstöðinni á
Selfossi. „Við erum að kanna vísbend-
ingar um að hægt sé að spá skjálftum
út frá radoninnihaldi vatnsins, svona
hálfum mánuði áður en þeir verða,“
sagði Páll Theodórsson eðlisfræðing-
ur hjá Raunvísindastofnun.
Guðjón I. Guðjónsson, Páll Theo-
dórsson og Jens Sigurðsson hjá Sel-
fossveitum sjást hér koma mælunum
fyrir.
Morgunblaðið/Sig. Jónss.
Spáð fyrir
um jarð-
skjálfta
Selfossi. Morgunblaðið.
Árborgarsvæðið/16
SEÐLABANKINN gerir ekki ráð
fyrir að verðlagsmarkmið kjarasam-
komulags Alþýðusambands Íslands
og Samtaka atvinnulífsins um „rauða
strikið“ svokallaða í maí náist. Þetta
kom fram í máli Birgis Ísleifs Gunn-
arssonar, formanns bankastjórnar
Seðlabanka Íslands, á blaðamanna-
fundi í gær.
„Frávikið verður þó lítið og mark-
miðið gæti náðst ef gengi krónunnar
styrkist frekar og/eða átak til lækk-
unar verðlags skilar marktækum
árangri. Og það er margt að gerast
þessa dagana sem bendir til þess að
það gæti orðið,“ sagði Birgir Ísleifur.
Á fundinum var einnig tilkynnt
ákvörðun bankans um að lækka ekki
stýrivexti við núverandi efnahags-
ástand, mikla verðbólgu og hættu á
gengislækkun við lækkun stýri-
vaxta. Hins vegar gætu forsendur
breyst hratt, að sögn Birgis Ísleifs.
Verðbólga frá upphafi til loka síð-
asta árs var 9,4% og er aðalmarkmið
Seðlabankans að halda verðbólgunni
í skefjum. Í nýrri verðbólguspá
bankans kemur fram að verðbólgu-
horfur eru betri á þessu ári en því
næsta. Í stað verðbólguspár upp á
4,1% innan þessa árs sem birt var í
nóvember sl., er nú spáð 3% verð-
bólgu innan ársins. Innan næsta árs
er einnig spáð 3% verðbólgu og er
það nokkuð meira en spáð var, en áð-
ur hljóðaði spáin upp á 2,3%.
Gylfi Arnbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri ASÍ, sagði að spálíkan
Seðlabankans gerði ráð fyrir að vísi-
talan yrði eitthvað fyrir ofan rauða
strikið í maí, en bankinn taki hins
vegar undir það með ASÍ að það séu
allar forsendur fyrir því að krónan
styrkist frekar og að teknu tilliti til
þess séu allar forsendur fyrir því að
verðlagsmarkmiðin náist.
Gerir ekki ráð
fyrir að rauða
strikið haldi
Vextir ekki/10
Seðlabankinn lækkar ekki vexti
BANASLYS varð á Gemlufalls-
heiði síðdegis í gær, þegar bifreið
lenti utan vegar rétt ofan við bæ-
inn Kirkjuból í Bjarnadal í Ön-
undarfirði. Ökumaður, sem var
einn í bifreið sinni, var látinn þeg-
ar björgunarlið kom á vettvang.
Lögreglan á Ísafirði fékk til-
kynningu um slysið í gegnum
Neyðarlínuna kl. 16.15 og voru
lögregla, sjúkrabifreið og læknir
strax send á vettvang. Mikill veð-
urhamur var í Bjarnadal og á
Gemlufallsheiði, hvassviðri og byl-
ur og átti björgunarlið í erfiðleik-
um með að komast á vettvang sök-
um þess.
Er björgunarlið kom á staðinn
var ljóst að ökumaður bifreiðar-
innar var látinn. Bifreiðin var tals-
vert utan vegar og þurfti mokst-
urstæki til aðstoðar svo komast
mætti að slysstaðnum. Ekki er
hægt að greina frá frekari atvik-
um eða nafni hins látna að svo
stöddu.
Banaslys á
Gemlufallsheiði
STJÓRN Arcadia sleit í gær
margra mánaða viðræðum við
Baug varðandi hugsanlega yf-
irtöku Baugs á fyrirtækinu
enda telur stjórnin litlar líkur á
að Baugi takist að fjármagna
yfirtökuna innan viðunandi
tímamarka.
Jón Ásgeir Jóhannesson seg-
ir Baug enn hafa mikinn áhuga
á Arcadia og fjármögnun yfir-
tökutilboðsins sé vel á veg
komin. Engu skipti þótt slitnað
hafi upp úr viðræðunum, Baug-
ur hafi þegar aflað sér nægi-
legra upplýsinga um fyrirtæk-
ið.
Verð hlutabréfa í Arcadia fór
allt niður í 230 pens í gær eftir
að tilkynnt var um viðræðuslit-
in en hækkaði aftur og var við
lok dags 255 pens. Það er 5,6%
lækkun frá deginum áður.
Verð hlutabréfa í Baugi
lækkuðu um 2% á Verðbréfa-
þingi Íslands. Viðskipti með
bréf Baugs voru ekki stöðvuð á
VÞÍ fyrr en nokkru eftir að
fréttatilkynning frá Arcadia
birtist á London Stock Ex-
change.
Viðræðum
Arcadia og
Baugs slitið
Arcadia slítur/18