Morgunblaðið - 12.02.2002, Side 2

Morgunblaðið - 12.02.2002, Side 2
FRÉTTIR 2 ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.isÓlympíuleikarnir í Salt Lake City komnir á fulla ferð / B1, B12 Brentford til í að fá fleiri Íslendinga til félagsins / B2 12 SÍÐUR48 SÍÐUR Sérblöð í dag Á ÞRIÐJUDÖGUM DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra segir að innan stjórnarflokkanna ríki það viðhorf að æskilegt sé að selja Símann, en þó einungis fáist fyrir hann gott verð og sanngjarnt. Hann segir að stjórn- völdum og einkavæðingarnefnd hafi ekki enn bor- ist slíkt tilboð og þess vegna þyki sér vera minni líkur á því heldur en meiri að sala á Símanum gangi fram í þessum áfanga. Þetta kom fram í svari forsætisráðherra við fyrirspurn Steingríms J. Sigfússonar, formanns Vinstri grænna, í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í gær. Steingrímur vísaði til viðtals við forsætisráðherra í Kastljósi á sunnudagskvöld þar sem fram kom það mat að ólíklegt væri að af sölu Landssímans yrði í þessum áfanga. Sagði hann orð forsætisráðherra í raun merkja „meiri háttar kúvendingu“ og að í staðinn fyrir einka- væðinguna, sem verið hefði „algjört trúaratriði stjórnarflokkanna“ hefði nú verið gefinn upp bolti með þeim möguleika að öllu yrði slegið á frest og þess í stað farið í endurskipulagningu fyrirtæk- isins, það styrkt og rekið áfram. „Og væri nú bet- ur að ríkisstjórnin rambaði inn á það spor og væri þá frekar hægt að hafa einhvern pólitískan frið um þetta fyrirtæki,“ sagði Steingrímur J. ennfremur. Kemur til greina að taka fjármuni út úr rekstri fyrirtækisins fyrir sölu Davíð Oddsson sagði ekkert nýtt í afstöðu sinni né stjórnarflokkanna, aldrei hefði staðið til annað en selja Símann aðeins fyrir viðunandi verð. Tækist það ekki í þessum áfanga, væri ekki ann- að að gera en vinna áfram að málefnum fyrirtæk- isins, t.d. hvort rétt kynni að vera að taka fjár- muni út úr rekstri fyrirtækisins áður en það yrði selt, en þau sjónarmið hefðu verið uppi. Hann sagði hins vegar að það væri stjórnar Landssím- ans, auk samgönguráðherra, að ákveða þessi skref yrði ekkert af sölu nú, en ekki einkavæðing- arnefndar. „Engu að síður verður þannig á málum haldið að Síminn getur verið áfram til sölu ef haldgott, hagkvæmt og hagstætt tilboð berst,“ sagði for- sætisráðherra. „Við teljum að Síminn hafi verið mældur á sanngjörnu verði, þó að slíkt tilboð hafi ekki kom- ið vegna þeirra aðstæðna sem nú eru uppi í ver- öldinni. Við teljum að Síminn hafi ekki verið of hátt metinn, við teljum þvert á móti að hann hafi verið metinn af sanngirni og þess vegna höfum við ekki viljað fallast á neinn afslátt af þeim töl- um,“ sagði Davíð ennfremur og bætti því við að engin ákvörðun hefði verið tekin um það að fresta varanlega sölumeðferð Símans í eitt eða tvö ár, eins og Steingrímur J. Sigfússon hafði innt hann um. Sagði forsætisráðherra að áður en slík ákvörðun væri tekin, þyrfti að ræða málið innan ríkisstjórnarinnar og einkavæðingarnefndar. Frágengið er að Ólafur Davíðsson, ráðuneytis- stjóri í forsætisráðuneytinu, taki við formennsku í einkavæðingarnefnd af Hreini Loftssyni, sem sagði af sér formennsku á dögunum. Telur minni líkur en meiri á því að sala Símans gangi fram í þessum áfanga Fæst einungis fyrir gott verð og sanngjarnt VIÐSKIPTARÁÐUNEYTIÐ telur ekki efni til ráðstafana vegna að- gerða Samkeppnisstofnunar gegn olíufélögunum í desember síðastliðn- um, að því er fram kemur í svarbréfi ráðuneytisins til Verslunarráðs Ís- lands í gær. Bréfið er sent vegna er- indis Verslunarráðs til ráðuneytisins 1. febrúar síðastliðinn þar sem óskað var eftir sérstakri athugun ráðu- neytisins á fyrrnefndum aðgerðum Samkeppnisstofnunar. Verslunarráð óskaði í erindi sínu eftir því „að viðskiptaráðherra beiti sér fyrir því að öllum þeim gögnum sem hald var lagt á og afritum af þeim verði skilað til baka en málið gegn olíufélögunum hafið á nýjan leik á löglegum forsendum ef ástæða þykir til“ og jafnframt „að gerðar verði ráðstafanir til þess að fram- kvæmd aðgerða af þessum toga verði með eðlilegum hætti ef til þeirra kemur í framtíðinni“. Í bréfi viðskiptaráðuneytisins er vísað í samkeppnislög og sagt að af þeim leiði að samkeppnisráð hafi stöðu sjálfstæðrar stjórnsýslunefnd- ar og því geti viðskiptaráðherra ekki gefið ráðinu bindandi fyrirmæli um úrlausn einstakra mála. Um leið er bent á rétt vörsluhafa haldlagðs munar til að bera ágreining um hald- lagningu undir dómara. Þá segir í bréfi ráðuneytisins að áfrýjunarnefnd samkeppnismála sé bær til að endurskoða alla þætti í málsmeðferð Samkeppnisstofnunar og samkeppnisráðs við efnislega meðferð máls fyrir nefndinni. Þess vegna sé ekki ástæða fyrir ráðuneyt- ið til að taka framkvæmd húsleitar- innar hjá olíufélögunum í desember til sérstakrar athugunar. Túlkun EES-reglna ekki rýmri hér á landi en í öðrum löndum Viðskiptaráðuneytið sendi einnig frá sér greinargerð í tilefni ályktun- ar framkvæmdastjórnar Samtaka atvinnulífsins þar sem því hafði verið beint til efnahags- og viðskipta- nefndar Alþingis að fram færi skoð- un á ákvæðum samkeppnislaga. Í ályktuninni og greinargerð með henni var því haldið fram að túlkun laganna og framkvæmd viki veru- lega frá reglum EES-réttarins og því sem tíðkast í öðrum Evrópulönd- um. Heimildir Samkeppnisstofnunar til húsleitar væru til að mynda rýmri hér á landi. Þessu hafnar ráðuneytið og nefnir til að mynda í greinargerð sinni dæmi um reglur einstakra landa í Evrópu og segir að þær regl- ur veiti samkeppnisyfirvöldum yfir- leitt rýmri heimildir en reglur EES- réttarins. Viðskiptaráðu- neytið ósam- mála VÍ og SA Ráðherra telur sig ekki geta gripið inn í aðgerðir Samkeppnisstofnunar  Bréf viðskiptaráðherra/46 ELDUR var borinn að fjórum bílum á Hvolsvelli að morgni sunnudags. Tveir þeirra, jeppi og fólksbíll, eru mikið skemmdir ef ekki ónýtir. Skemmdir voru unnar á tveimur bílum til viðbótar, lofti hleypt úr dekkjum á jeppa og eldur kveiktur í sófa í sólstofu einbýlishúss. Gils Jóhannsson varðstjóri lög- reglunnar á Hvolsvelli segir að skemmdarverkin hafi að öllum lík- indum verið framin á áttunda tím- anum á sunnudagsmorgun. All- margir hafa verið yfirheyrðir vegna málsins, þar af einhverjir sem eru grunaðir. Enginn hefur þó verið handtekinn vegna rannsókn- arinnar. Flestir bílarnir voru ólæstir og stóðu við einbýlishús. Jeppinn sem skemmdist hvað mest stóð að hluta undir bílskýli og segir Gils að hefði eldurinn borist út fyrir bílinn hefði verið veruleg hætta á að eldur kæmist í þekjuna og þaðan í íbúð- arhúsið. Innandyra svaf sjö manna fjölskylda. Í öðru tilfelli slökkti nágranni eld í sæti bíls og afstýrði þar með frekari skemmdum. Kveikt í leðursófa Þá var farið inn í garðhýsi við einbýlishús. Skorið var gat á leður- sófa og kveikt í. Húsmóðirin hafði vaknað snemma um morguninn og var að lesa Morgunblaðið þegar henni varð litið út í garðhýsið og sá eldstrók upp úr sófanum. Hún sótti vatn í snarheitum, slökkti eldinn og dró að því búnu sófann út í garð. Eftir er að meta tjón af völdum skemmdarvarganna en ljóst er að það er talsvert. Gils segir að það sé óhugur í íbú- um á Hvolsvelli vegna skemmdar- Skemmdarverk unnin á Hvolsvelli að morgni dags Fólksbifreið er ónýt eftir að kveikt var í sætisbaki. Eldur kveiktur í fjórum bílum Morgunblaðið/Steinunn Ósk verkanna. Hann skorar á þann eða þá sem þarna voru að verki að sýna þann manndóm og ábyrgð að gefa sig fram við lögreglu. Jafnframt biður hann alla þá sem hafa einhverja vitneskju sem gæti nýst við rannsókn málsins að hafa samband við lögreglu. KONAN sem lést í bílslysinu í Ham- arsfirði síðastliðinn föstudag hét Ágústa Egilsdóttir, til heimilis að Svínaskálahlíð 23 á Eskifirði. Hún var fædd 3. október árið 1956 og læt- ur eftir sig eiginmann og fjögur börn. Lést af slysförum í Hamarsfirði Ágústa Egilsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.