Morgunblaðið - 12.02.2002, Blaðsíða 37
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2002 37
FLATAHRAUNI 31 • HAFNARFIRÐI • SÍMI 555 6025 • www.kia.is
KIASportage
KIA ÍSLAND
H
ið
O
P
IN
B
E
R
A
!
Fögnum vetri
á einstökum jeppa!
KIA ~ kominn til að vera!
KIA Sportage er verulega rúmgóður, alvöru jeppi með háu og lágu drifi og
LSD læsingu á afturdrifi. Hann er byggður á öflugri grind og 2000 cc, 4 cyl.
vélin, gefur 128 hestöfl. Þetta er bíllinn sem kemur þér á fjöll án þess að
kollkeyra fjárhaginn! KIA Sportage fæst í tveimur útgáfum, Classic og
Wagon, dísil eða bensín, beinskiptur eða sjálfskiptur – Þitt er valið.
Fjallabakurinn . . .
Sjón er sögu ríkari og
reynsluakstur KIA Sportage
óviðjafnanlegur. Komdu og mátaðu
nýjan jeppa við þig og fjölskylduna.
Verð frá 2.150.000 kr.
AF UMRÆÐUM
síðustu vikna að dæma
er ljóst að í all mörgum
sveitarfélögum munu
kosningarnar í vor snú-
ast að miklu leyti um
skipulagsmál. Í raun er
ekkert undarlegt við
það því skipulagsmálin
eru ein þau veigamestu
þegar kemur að stjórn-
un sveitarfélaga.
Þegar kemur að því
að vinna nýtt skipulag
eða breyta í eldri hverf-
um bregður stundum
svo við að tillögurnar
sem líta dagsins ljós koma almenn-
ingi í opna skjöldu. Aukin þátttaka
íbúa við gerð skipulags myndi örugg-
lega draga mjög úr þessum viðbrögð-
um og gera að verkum að almenn-
ingur yrði meðvitaðri og sáttari við
umhverfi sitt.
Lóðaframboð ber gjarnan á góma
enda mjög mikilvægt að í sveitar-
félögum sem vilja vaxa og dafna sé
alltaf til staðar nóg framboð bygging-
arhæfra lóða fyrir allar gerðir íbúðar-
húsa. Þegar kemur að því að veita
þessar lóðir hefur það hingað til tíðk-
ast að kjörnir fulltrúar sveitarfé-
lagsins sjái um að úthluta eftir fyr-
irfram gefnum reglum. Ég tel afar
mikilvægt að reglur um lóðaveitingar
séu það skýrar og af-
dráttarlausar að póli-
tískt kjörnir fulltrúar
þurfi ekki að skipta sér
að útlutunum.
Umferðaröryggismál
eru mikilvægur hluti
skipulagsmála. Lækk-
un umferðarhraða í
íbúðarhverfum þykir nú
sem betur fer sjálfsagð-
ur hlutur enda sýna
tölulegar staðreyndir
að sú aðgerð dregur
mjög úr alvarlegum
umferðarslysum. Langt
er þó í land og ætti t.d.
að líta sérstaklega til
umferðaröryggis skólabarna. Það
mætti t.d. gera með því að fá börnin
sjálf til að benda á þær hættur sem
þau telja mestar á leið þeirra í skól-
ann.
Í nútíma skipulagsfræðum eru
færð fyrir því rök að íbúðarbyggð
skuli vera þétt og að í eldri bæjarhlut-
um næst miðbæ sé æskilegt að þétta
íbúðarbyggð sem mest. Í Hafnarfirði
er nú stefnt að því að vinna nýtt deili-
skipulag fyrir Norðurbakkann svo-
kallaða. Skoðanir um málið eru afar
skiptar og byggjast að mínu mati oft
á misskilningi. Fulltrúar minnihlut-
ans í bæjarstjórn hafa ,,matreitt“
málavexti eftir eigin uppskrift og úr
orðið naglasúpa af verstu gerð. Stað-
reyndirnar eru hins vegar þær að
skipulagsvinna er rétt að hefjast og
verður hún unnin með góðri vitund og
vilja íbúa Hafnarfjarðar. Ég hef eng-
an hitt, hvorki samflokka mér né
aðra, sem áhuga hafa á að reisa há-
hýsi í miðbænum. Áhuginn snýst
fyrst og fremst um að gefa bænum þá
andlitslyftingu sem hann á skilið.
Mál málanna
Vilborg
Gunnarsdóttir
Höfundur gefur kost á sér í 3.–5.
sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins.
Hafnarfjörður
Skipulagsmálin, segir
Vilborg Gunnarsdóttir,
eru ein þau veigamestu
þegar kemur að stjórn-
un sveitarfélaga.
Grundvallarstefna
Sjálfstæðisflokksins er
frjálslynd umbóta-
stefna á grundvelli ein-
staklingsframtaks og
atvinnufrelsis, með
hagsmuni allra stétta
fyrir augum. Stefnan
er tvíþætt: Annars
vegar að tekið sé fullt
tillit til þeirra sem
minna mega sín og
hins vegar frelsi til at-
hafna. Stefnan felur í
sér að hver einstak-
lingur eigi að vera
sjálfstæður, fá að njóta
hæfileika sinna, hafa
athafnafrelsi og skoð-
anafrelsi, en vera um leið ábyrgur
gerða sinna. Frelsið þarf óhjá-
kvæmilega á stundum skipulag, og
stjórn sveitarfélags er
hluti af því skipulagi.
Það er undir þessum
formerkjum sem und-
irritaður óskar eftir
stuðningi Hafnfirðinga
í eitt af efstu sætum á
lista Sjálfstæðisflokks-
ins í Hafnarfirði en
prófkjör verður haldið
í Víðistaðaskóla 16.
febrúar nk. Bærinn
okkar á að vera vel
rekið bæjarfélag, þar
sem virðing er borin
fyrir frelsi og hags-
munum einstaklings-
ins og þar sem opinber
gjöld eru í lágmarki.
Leggja ber áherslu á fjölbreytt og
öflugt íþróttastarf. Nýting orku-
linda í nágrenni Hafnarfjarðar er
mikilvægt hagsmunamál, sem mun
skila sér í fjölbreyttri atvinnuupp-
byggingu. Nánari upplýsingar má
finna á heimasíðunni „www.askil.is“.
Óska eftir stuðningi
Ágúst Sindri
Karlsson
Hafnarfjörður
Ég óska eftir stuðningi
Hafnfirðinga, segir
Ágúst Sindri Karlsson, í
eitt af efstu sætum á
lista Sjálfstæðisflokks-
ins í Hafnarfirði.
Höfundur er lögmaður og varabæj-
arfulltrúi og tekur þátt í prófkjöri
sjálfstæðismanna.
ÞAÐ er fagnaðarefni að Stefán
Jóhann Stefánsson hefur ákveðið
að gefa kost á sér
í 3. sæti Samfylk-
ingarinnar á lista
Reykjavíkurlist-
ans í komandi
borgarstjórn-
arkosningum. Ég
get með góðri
samvisku og í
fullri einlægni
sagt að þar fer
maður sem hefur unnið félaginu
og flokknum vel og ósleitilega, er
heiðarlegur í starfi og víðsýnn;
félagshyggjumaður í besta skiln-
ingi þess orðs. Hann er mikill
áhugamaður um málefni höf-
uðborgarinnar og hefur setið í
nefndum á hennar vegum. Hjá
honum fer því saman áhugi á
borgarmálum, dugnaður og þekk-
ing á viðfangsefninu.
Í starfi formanns Kjördæma-
félags Samfylkingarinnar hefur
Stefán Jóhann reynst sá manna-
sættir sem nauðsynlegur hefur
verið, auk þess að sýna þá festu
og einurð sem til þarf þegar á
hefur þurft að halda.
Ég er því sannfærður um að
Stefán Jóhann myndi skipa 3.
sæti Samfylkingarinnar – og 9.
sæti Reykjavíkurlistans – með
þeim sóma sem nauðsynlegur er.
Ég skora á stuðningsmenn
Samfylkingarinnar í Reykjavík,
að fylkja sér að baki Stefáni og
veita honum brautargengi í próf-
kjörinu.
Stefán
Jóhann í 9.
sæti R-listans
Haukur Már Haraldsson
framhaldsskólakennari skrifar:
Haukur Már
Haraldsson
Meira á mbl.is/Prófkjör
OFT hefur verið á það bent að erf-
itt hefur verið að fá ungar og færar
konur til að starfa í
stjórnmálum. Þátt-
taka í stjórnmálum
krefst mikils og
óreglubundins
vinnutíma. En ein-
staka konum tekst
að samræma störf,
móðurhlutverk og
stjórnmál og slíkt
ber að meta.
Sigrún Elsa Smáradóttir er 29 ára
matvælafræðingur í fullu starfi sem
markaðsstjóri. Hún er móðir
tveggja barna. Hún stundar nú nám
í viðskipta- og markaðsfræðum. Sem
varaborgarfulltrúi fyrir Reykjavík-
urlistann hefur hún á þessu kjör-
tímabili setið í fræðsluráði og fleiri
nefndum og hefur að allra mati stað-
ið sig þar prýðilega.
Sigrún Elsa býður sig fram í próf-
kjöri Samfylkingarinnar í þessari
viku undir kjörorðinu „fjölbreytni
skapar tækifæri“. Í því felst að-
alsmerki frjálslyndrar hugsunar.
Börn eru misjöfn með ólíkar þarfir
og slíkt á að viðurkenna í skólastarfi.
Samtímis eiga allir að njóta sömu
tækifæra. Það er aðalsmerki góðrar
félagshyggju.
Kjósum Sigrúnu Elsu.
Kjósum Sigrúnu
Elsu
Gísli Gunnarsson, prófessor
í sagnfræði, skrifar:
Gísli
Gunnarsson
Meira á mbl.is/Prófkjör
PRÓFKJÖR Sjálf-
stæðisflokksins í
Hafnarfirði vegna
sveitarstjórnarkosn-
inga í vor verður í
Víðistaðaskóla á laug-
ardaginn kemur. Próf-
kjör eru kjörinn vett-
vangur fyrir okkur
sem viljum bjóða fram
krafta okkar á vett-
vangi stjórnmálanna í
fyrsta skipti. Undir-
ritaður hefur ákveðið
að gefa kost á sér í
prófkjörinu og sækist
þar eftir stuðningi
þínum í 4.–6. sæti.
Vegna starfa minna
að skólamálum í bænum eru þau
mér ofarlega í huga. Markviss og
nútímaleg uppbygging á þeim vett-
vangi er mikilvægt innlegg í fram-
tíðina. Styrkja þarf tengsl milli
heimila og skóla og auka samvinnu
milli allra skólastiga. Í leikskóla
þarf að búa börnin vel undir
skólagönguna og í grunnskólanum
þarf enn frekari tengingu við
framhaldsskóla. Þá tel ég mikil-
vægt að unnið verði með skipuleg-
um hætti að stofnun háskóla í
skólabænum Hafnar-
firði.
Bestu forvarnirnar
felast að mínu mati í
kraftmiklu íþrótta- og
æskulýðsstarfi. Starf-
semi félagsmiðstöðva í
skólunum hefur
reynst farsæl og víð-
ast tekist með ágæt-
um. Starf félagsmið-
stöðvanna þarf því að
styrkja enn frekar.
Mörg glæsileg
íþróttamannvirki eru í
bæjarfélaginu en ég
tel mikilvægt að hug-
að verði að betri nýt-
ingu þeirra þannig að
sett verði heildstæð, skýr og skipu-
leg markmið í rekstri þeirra.
Þá eru ný æfinga- og útivistar-
svæði nauðsynleg. Þau æfinga-
svæði sem í notkun eru anna ein-
faldlega ekki þeim fjölda sem nú
stundar íþróttir í Hafnarfirði. Það
er í raun ánægjuleg þróun og að
mínu mati er ein af grundvallar-
skyldum samfélagsins einmitt í því
fólgin að gera bæjarbúum, ungum
sem öldnum, kleift að stunda heil-
brigða lifnaðarhætti við viðunandi
aðstæður.
Mikilvægt er fyrir ungt fólk að
eiga fulltrúa í stjórnkerfi Hafnar-
fjarðar. Ég er reiðubúinn að axla
þá ábyrgð sem slíku fylgir.
Því skora ég á þig að mæta í opið
prófkjör Sjálfstæðisflokksins laug-
ardaginn 16. febrúar og veita mér
stuðning í 4.–6. sætið.
Skólamál, íþróttir og
æskulýðsmál í öndvegi
Leifur S.
Garðarsson
Höfundur er aðstoðarskólastjóri
og tekur þátt í prófkjöri sjálfstæðis-
manna.
Hafnarfjörður
Mikilvægt er fyrir ungt
fólk, segir Leifur S.
Garðarsson, að eiga
fulltrúa í stjórnkerfi
Hafnarfjarðar.
Lyklakippur
Litir: Gyllt, silfrað
aðeins 350 kr.
NETVERSLUN Á mbl.is