Morgunblaðið - 12.02.2002, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 12.02.2002, Blaðsíða 18
SUÐURNES 18 ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ Nýjar vörur Nýjir litir Barnavagnar og barnarúm Hlíðasmára 17, Kópavogi, sími 564 6610 verslun.strik.is/allirkrakkar NESFISKUR hf. í Garði mun leggja að minnsta kosti tveimur tog- bátum í vor og flytja aflaheimildir þeirra yfir á aðra báta fyrirtækisins. Áhöfnunum hefur verið sagt upp störfum. Nesfiskur hf. gerir nú út sjö fiski- skip. Samkvæmt upplýsingum Bergþórs Baldvinssonar fram- kvæmdastjóra hefur verið ákveðið að hagræða í útgerðinni með því að leggja togbátunum Jóni Gunnlaugs- syni GK 444 pg Sigurfara GK 138. Bátarnir eru 105 og 138 brúttólestir að stærð.Áhöfnun þeirra hefur verið sagt upp, samtals fjórtán mönnum. Segir Bergþór hugsanlegt að fleiri skipum verði lagt en það mál sé enn til skoðunar. Bergþór segir að fyrirtækið sé að bregðast við breyttum aðstæðum. Nauðsynlegt sé að stilla af útgerðina miðað við þann kvóta sem fyrirtækið hafi og reyna að ná honum með sem hagkvæmustum hætti. Nesfiskur hefur yfir að ráða um 4.000 þorsk- ígildistonnum af kvóta. Hann segir að dregið verði úr leigu á kvóta. Nesfiskur rekur umfangsmikla fiskverkun í Garði. Bergþór reiknar ekki með miklum breytingum í vinnslunni. Stór hluti afla þessara tveggja báta hafi farið sem ísfiskur með gámum á erlenda markaði. Leggja tveimur togbátum Garður LAGÐAR hafa verið fram í hrepps- nefnd Gerðahrepps tillögur VA-arki- tekta að deiliskipulagi fyrir svæði við hjúkrunarheimilið Garðvang í Garði þar sem gert er ráð fyrir frekari upp- byggingu á þjónustu við aldraða. Samþykkt var að leggja tillögurnar fyrir stjórn Dvalarheimila Suðurnesj- um og óska eftir að fá að byggja fyrsta áfanga íbúða fyrir aldraða á lóð Garðvangs. Hreppsnefnd Gerðahrepps hefur fengið lánsloforð hjá Íbúðalánasjóði til að ráðast í byggingu tíu leiguíbúða fyrir aldraða. Fyrirhugað er að byggja íbúðirnar í raðhúsum og par- húsum og er áhugi á að gera það í ná- grenni Garðvangs. Í framhaldi af því lét hreppsnefnd gera tillögur að deiliskipulagi fyrir svæðið og hefur óskað eftir viðræðum við stjórnendur hjúkrunarheimilisins um uppbyggingu á svæðinu en hug- myndin er sú að leita eftir þjónustu hjá Garðvangi fyrir aðra íbúa á reitn- um. Stækkun, þjónustuhús og íbúðir Í tillögum arkitektanna er gert ráð fyrir möguleikum til stækkunar hjúkrunarheimilisins Garðvangs. Þar er nú rými fyrir fjörutíu einstaklinga en gert ráð fyrir möguleikum á að byggja húsnæði fyrir sextíu til við- bótar á lóð sunnan núverandi heim- ilis. Hugmyndin er að byggja þjónustu- hús á lóðinni til að koma fyrir þjón- ustu við íbúa innan svæðisins og í ná- grenni, svo sem innkaupaþjónustu, viðgerðarþjónustu, félagsþjónustu, heilsurækt, sundlaug, læknisþjón- ustu, endurhæfingu svo sem sjúkra- þjálfun, klúbbastarfsemi, kaffihúsi og vínstúku, svo vitnað sé í hugleiðingar arkitektanna. Vaktin er athygli á möguleika þess að byggja tveggja hæða hús og innrétta íbúðir á annarri hæðinni, til dæmis hvíldaríbúðir. Lagt er til að lóð verði fyrir tvö lítil fjölbýlishús, tveggja hæða, hvort um sig með 6–12 íbúðir. Loks er lagt til að skapað verði mótvægi við fjölbýlis- húsin með einnar hæðar rað- og par- húsabyggð, þar sem yrðu tíu þriggja herbergja íbúðir og sex tveggja her- bergja. Fyrsti áfangi uppbyggingar á lóðinni sem ákveðið hefur verið að ráðast í miðast einmitt við byggingu tíu slíkra íbúða, það er að segja tveggja raðhúsa með fjórum íbúðum hvort og tveggja íbúða parhúsa. Arki- tektarnir nefna þann kost að tengja minni hús fyrsta áfanga við þjónustu- húsið með yfirbyggðum gangi. Lagt er til að grænt útivistarsvæði verði á suðurhluta lóðarinnar. Það tengist garði hjúkrunarheimilisins sem ekki verði girtur af og görðum íbúðarhúsanna. Aðalgöngustígur verði í miðju hverfinu, með skjólgóð- um áningarstöðum búnum setbekkj- um, og tengi hann saman íbúðarhúsin og þjónustuhúsið. Varpað er fram þeirri hugmynd að stígurinn verði yf- irbyggður að hluta. ()! %         !  "  #$%   &  ! !  $'   ('&    ) *% ('&  +, $- ('&  .,/ $'            Tillögur að uppbygg- ingu á lóð Garðvangs Garður ÍSLANDSPÓSTUR hefur ákveðið að loka pósthúsinu í Vogum og samið um að starfsfólk Hraðbúðar ESSO á staðnum annist póstþjónustuna frá 1. maí. Hreppsnefnd Vatnsleysu- strandarhrepps hefur áhyggjur af skertri þjónustu, einkum vegna þess að póstgíróþjónusta leggst af. Jóhanna Reynisdóttir, sveitar- stjóri í Vogum, segir að kallað verði eftir svörum Íslandspósts um breyt- ingar á þjónustu við þessa skipulags- breytingu. Hún segist ekki efast um að starfsfólk verslunarinnar muni bjóða góða þjónustu á þessu sviði. En ef póstgíróþjónusta falli niður, eins og útlit sé fyrir, muni þjónustan skerðast og það geti komið sér illa. Jóhanna segir að þjónusta póst- hússins hafi minnkað á undanförnum árum. Það sé aðeins opið í þrjá og hálfan tíma á dag. Nú sé verið að loka því á sama tíma og stöðug fjölg- un sé í sveitarfélaginu og telur hún að átt hefði að hinkra aðeins með þessa aðgerð. Póstafgreiðslan fer í verslunina Hafa áhyggjur af skertri þjónustu Vogar OSN-LAGNIR ehf. áttu lægsta tilboð í dælustöð við Eyjavelli í Keflavík, pípulögn og rafbúnað, og ákvað bæjarráð Reykjanes- bæjar að taka tilboðinu. Kostnaðaráætlun gerði ráð fyrir að verkið myndi kosta bæ- inn tæpar 19,8 milljónir kr. Til- boð OSN-lagna hljóðaði upp á 17,4 milljónir, sem er liðlega 88% af áætlun. Sex önnur fyr- irtæki buðu. Keflavíkurverk- takar voru með lítið eitt hærra tilboð en OSN-lagnir en önnur tilboð voru hærri. Tilboði OSN- lagna tekið Keflavík BÆJARSTJÓRN Sandgerðis telur ekki ástæðu til að lækka þjónustugjöld, í framhaldi af óskum verkalýðsfélaga, þar sem bærinn hafi ekki hækkað gjald- skrár sínar. Bæjarstjórn fagnaði bréfi Verslunarmannafélags Suður- nesja þar sem skorað er á Sand- gerðisbæ að afturkalla nú þegar allar hækkanir og leggja þannig sitt af mörkum til að verja stöð- ugleikann og lífskjörin í landinu, og tók undir þau sjónarmið sem fram koma í erindinu. Tekið er fram í bókun að bæj- arstjórn Sandgerðisbæjar hafi ekki hækkað þjónustugjöld sín á árinu 2001 og engar hækkanir hafi verið teknar til umræðu eða afgreiðslu við gerð fjárhags- áætlunar fyrir árið 2002. Þá er þess látið getið að þjónustugjöld bæjarfélagsins séu með þeim lægstu á Suðurnesjum. Engar hækkanir þjónustu- gjalda Sandgerði SIGURÐUR Aðalsteinsson bar sig- urorð af Guðjóni Haukssyni í úr- slitaleik Opna Grindavíkurmótsins í pílukasti. Báðir keppendur fengu nokkur tækifæri til að skjóta sig út í lokaleiknum en lukkan var með Sigurði að þessu sinni. Þetta mót var nú haldið í fjórða sinn í Festi í Grindavík. Sigurður Hjörleifsson hlaut viðurkenningu fyrir hæsta útskot mótsins og Sig- urður Aðalsteinsson fékk viður- kenningu fyrir fæstar pílur í út- skoti. Alls voru keppendur 36. Daníel Eyjólfsson var mótsstjóri og var ánægður með keppnina. „Hér í Grindavík er starfandi pílu- klúbbur. Mótið fór vel fram og al- menn ánægja með það. Það er mik- ið af nýjum mönnum að keppa hér, jafnvel í fyrsta sinn, þannig að pílu- kast er í góðum gír,“ sagði Daníel. Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson Sigurður Aðalsteinsson fagnar verðlaunum sínum. Lukkan var með Sigurði Grindavík HREPPSNEFND Gerða- hrepps hefur skorað á landeig- endur að breyta viðmiðun lóð- arleigu en það myndi leiða til lækkunar á henni. Einnig vill nefndin fá fellda niður leigu skólalóðarinnar. Á síðasta fundi hreppsnefnd- ar Gerðahrepps var samþykkt tillaga frá fulltrúum F-listans sem skipa meirihluta nefndar- innar um að skora á landeigend- ur í Gerðahreppi að taka upp sömu stefnu og hreppurinn varðandi innheimtu á lóðarleigu. Hreppurinn innheimtir leigu sem nemur 1% af fasteignamati lóðar en í leigusamningum land- eigenda er yfirleitt miðað við ákveðinn launataxta. Fram kemur í tillögunni að ef landeig- endur færu að þessum tilmælum myndi lóðarleiga lækka um allt að helming hjá flestum leigutök- um. Sömu áskorun er beint til Landeigendafélags Gerða- hrepps um óskipt land þess. Fram kemur í samþykktinni að Gerðahreppur greiðir leigu fyrir lóð Gerðaskóla þar sem hún er í einkaeigu og að Gerða- hreppur sé eina sveitarfélagið á Suðurnesjum sem greiðir leigu vegna skólalóðar. Skoraði hreppsnefndin á eigendur Gerða að fella niður þessa lóð- arleigu. Áskorunin var samþykkt með fimm atkvæðum, tveir fulltrúar sátu hjá. Skora á land- eigendur að lækka leigu Garður BÆJARFULLTRÚAR Samfylk- ingarinnar leggja til að Reykjanes- bær leysi til sín félagsheimilið Stapa í Njarðvík og láti gera á því nauðsyn- legar endurbætur. Tillögu þeirra var vísað til bæjarráðs þar sem málefni félagsheimilisins eru til umfjöllunar. Félagsheimilið Stapi er í eigu Ungmennafélags Njarðvíkur, Kven- félags Njarðvíkur og Reykjanesbæj- ar, þar sem hver aðili á 33% og skátafélagsins sem á 1%. Sérstök hússtjórn annast reksturinn og hef- ur leigt hann út. Núverandi rekstr- araðili hefur samning um rekstur hússins fram í júlí en hefur óskað eft- ir að hann verði styttur. Þá hafa meðeigendur Reykjanesbæjar óskað eftir að bærinn kaupi þeirra hlut. Tillaga Samfylkingarinnar gengur út á að Reykjanesbær leysi núver- andi rekstraraðila undan samningi. Jafnframt verði hafnar samningavið- ræður við ungmennafélagið og kven- félagið um kaup á þeirra hlut. „Húsið verði nýtt í þágu hinna ýmsu félaga- samtaka í bænum og bæjarbúa og farið í þær nauðsynlegu endurbætur sem breytt nýting kallar á. Það er skylda okkar að tryggja að þetta sögufræga hús verði bæjarbúum til sóma,“ segir í tillögunni, sem Ólafur Thordersen mælti fyrir á bæjar- stjórnarfundi í vikunni. Hann segir að húsið sé að grotna niður og eina færa leiðin sé að bærinn taki það yfir og standi fyrir endurbótum á því. Hann telur að það kosti milljónir eða tugi milljóna. Ellert Eiríksson bæjarstjóri segir nauðsynlegt að skoða þetta mál í þaula. Húsið sé nauðsynlegt og kappsmál að það sé í sem bestu ásig- komulagi. Vilja að bærinn leysi til sín Stapa Njarðvík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.