Morgunblaðið - 12.02.2002, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 12.02.2002, Blaðsíða 47
Brutu rúður til að stela áfengi og tóbaki LÖGREGLAN stöðvaði um helgina 17 ökumenn grunaða um ölvun við akstur, 22 um of hraðan akstur, 12 virtu ekki stöðvunar- skyldu og 10 óku gegn rauðu ljósi. Síðdegis á föstudag var kvartað vegna bifreiða sem ekið var ógæti- lega á ísum á Rauðavatni innan um hestamenn og börn að leik. Þá var tilkynnt um að bifreið hafi verið ekið inn í Hljómskálagarðinn við Sóleyjargötu. Ökumaðurinn hafði misst stjórn á bifreiðinni. Ekki urðu slys á fólki. Skömmu eftir hádegi á laugardag var bifreið ekið á ljósastaur í Ein- arsnesi. Enginn slasaðist en öku- maður er grunaður um ölvun við akstur. Harður árekstur varð á gatna- mótum Miklubrautar og Kringlu- mýrarbrautar síðdegis á laugardag. Einn maður var fluttur á slysadeild með sjúkrabíl. Hann kvartaði und- an verkjum í hálsi. Tvö önnur kvörtuðu vegna hálsmeiðsla en ætl- uðu sjálf á slysadeild. Þá varð árekstur á Bústaðavegi vestan við Bústaðabrú. Ökumenn beggja bif- reiða og farþegi voru flutt á slysa- deild með sjúkrabílum. Beita varð klippum til að ná konu út úr ann- arri bifreiðinni. Meiðslin voru ekki talin alvarleg. Sögðu ökumann hafa stungið af Aðfaranótt sunnudags veittu menn athygli bifreið sem hafði ver- ið ekið yfir Melatorg. Fimm manns sem voru við bifreiðina kváðu öku- mann hafa farið í burtu af staðnum. Þau voru handtekin vegna gruns um ölvun við akstur. Á sunnudagsmorgun var bifreið stöðvuð á Vesturlandsvegi, nálægt Víkurvegi en tilkynnt hafi verið um að reynt hafi verið að aka bifreið- inni utan í aðra bifreið. Ökumaður var ölvaður og fékk að gista í fangageymslu. Á sunnudagskvöld var bifreið ek- ið út af Grafarholtsvegi. Missti öku- maður vald á bifreiðinni í lausamöl og hafnaði utan vegar og endaði á stórum steini. Ekki var talin ástæða til að flytja fólkið á slysadeild en það ætlaði að fara sjálft þangað til rannsóknar. Aðfaranótt laugardags var mjög rólegt í miðborginni og ekki margir á ferli. Veðrið var gott en kalt. Einn maður var tekinn með fölsuð skilríki, annar fluttur á slysadeild eftir slagsmál og tveir teknir fyrir ólæti. Vatnsleki þegar kona var að þvo sokka Á laugardagsmorgun var tilkynnt um vatnsleka í íbúð við Skúlagötu. Reynt var að hringja í íbúðina það- an sem lekinn kom en enginn svar- aði. Lögreglan fór þá inn í íbúðina og hitti fyrir konu sem ekki vildi ræða við lögreglu en kvaðst hafa verið að þvo sokka. Skemmdir voru hverfandi litlar. Þá var tilkynnt um innbrot í hús í austurborginni. Stolið var pening- um, geisladiskum og fleiru. Slys varð í íþróttahúsi við Aust- urberg um hádegi á laugardag. Þar hafði drengur dottið fram af áhorf- endapalli sem dregin er fram við íþróttaleiki. Hann var fluttur á slysadeild með sjúkrabíl, talinn hafa fengið heilahristing og áverka á fæti. Farið var inn í aðstöðu starfs- manna fyrirtækis í austurborginni síðdegis á laugardag og stolið GSM-símum og veskjum starfs- manna. Í veskjunum voru peningar, greiðslukort og fleira. Nokkuð var að gera hjá lögreglu í miðborginni aðfaranótt sunnu- dags. Maður var handtekinn á Lauga- vegi með e-töflur og kókaín. Höfð voru afskipti af nokkrum einstak- lingum eftir svall næturinnar. Ein rúða var brotin á svæðinu. Veruleg- ur erill var hjá lögreglu í öðrum hverfum borgarinnar vegna ölvaðs fólks. Tilkynnt var um grunsamlegar mannaferðir við hús í Mosfellsbæ aðfaranótt sunnudags en íbúar væru fjarverandi og búið að taka rafmagn af húsinu. Þarna inni í húsinu reyndist vera hópur fólks en enginn gaf sig fram sem húsráð- andi. Á vettvangi fundust allmargar bláar töflur, ætlaðar e-töflur. Snemma á sunnudagsmorgun var tilkynnt um menn að brjóta rúðu í verslun í Skipasundi. Fjórir menn voru handteknir en tekið hafði verið smávegis af tóbaki úr versluninni. Þá var tilkynnt um brotna rúðu í verslun ÁTVR í Spönginni. Áfeng- isflöskum var stolið úr glugganum. Um hádegi á sunnudag var til- kynnt um innbrot í hús flugskóla á Reykjavíkurflugvelli. Þar var stolið ýmsum dýrum tækjum. Þá var tilkynnt um innbrot í hús í Norðurmýri. Þar var stolið tveimur vodkaflöskum og nokkrum róandi pillum. Síðdegis var tilkynnt um fólk sem hafði framvísað falsaðri happaþrennu að upphæð kr. 5.000 í söluturni í vesturbænum. Úr dagbók lögreglu 8.–11. febrúar GREINARGERÐ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2002 47 stofnunar, sem leggja á það mat við húsleit hvaða gögn kunni að hafa þýðingu vegna málsins. Eins og áður sagði getur ESA ekki lagt hald á gögn heldur ein- ungis tekið afrit af þeim á starfs- stöð fyrirtækis. Leggur SA mikla áherslu á þetta atriði. Að mati ráðuneytisins er réttaröryggi ís- lenskra fyrirtækja ekki minna þótt Samkeppnisstofnun geti, líkt og fjölmargar systurstofnanir hennar, lagt hald á frumgögn. Minnt er hér á að þessar aðgerðir Sam- keppnisstofnunar fara fram sam- kvæmt lögum um meðferð opin- berra mála. Í því felst m.a. að á starfsstöð fyrirtækis útbúa starfs- menn Samkeppnisstofnunar skrá yfir haldlögð gögn og fá fyrirtækin afrit af þeirri skrá. Samkeppnis- stofnun hefur upplýst ráðuneytið um það að samkvæmt vinnureglum hennar séu starfsmenn fyrirtækja hvattir til að vera viðstaddir þegar leit fer fram á skrifstofum þeirra. Starfsmönnum fyrirtækja hefur aldrei verið vísað út úr skrifstofum meðan leit fer fram hjá þeim. Stofnunin hefur einnig upplýst að henni hafi aldrei borist at- hugasemdir frá viðkomandi fyrir- tækjum um framgangsmáta henn- ar að þessu leyti. Loks hefur stofnunin upplýst að í aðgerðum af þessum toga séu lögmenn viðkom- andi fyrirtækja oft viðstaddir leit- ina og gæti hagsmuna þeirra. Þannig hafi t.d. verið í þeim að- gerðum sem fram fóru í desember sl. Ráðuneytinu hefur verið greint frá því að þegar frumgögn hafa verið afrituð hjá Samkeppnisstofn- un sé þeim skilað eins fljótt og unnt er. Viðkomandi fyrirtæki fá senda lista yfir afrituð gögn og þeim hefur verið boðið að skoða þau hjá Samkeppnisstofnun. Þegar rannsókn Samkeppnisstofnunar er komin á rekspöl er í málum af þessum toga tekin saman svoköll- uð frumathugun þar sem gerð er nákvæm grein fyrir þeim þáttum í starfsemi fyrirtækjanna sem kunna að orka tvímælis og þeim gögnum frá fyrirtækjunum sem styðja slíkar ályktanir. Með þess- ari frumathugun fylgir listi yfir öll gögn málsins. Viðkomandi fyrir- tæki geta síðan gert athugasemdir við frumathugun Samkeppnis- stofnunar og lagt fram ný gögn áð- ur en málið er endanlega afgreitt. Samtök atvinnulífsins telja einn- ig að persónuverndarsjónarmiða sé ekki gætt við framkvæmd þess- ara aðgerða. Ráðuneytið telur að hér verði að hafa í huga að í eðli leitar felst að þeir sem hana fram- kvæma geta komist í tæri við per- sónuleg gögn ef slík gögn eru geymd á starfsstöðum fyrirtækja. Gildir í því sambandi einu hvort verið er að rannsaka samkeppn- islagabrot, skattalagabrot, fjársvik o.s.frv. Til að tryggja leynd við- kvæmra upplýsinga eru í sam- keppnislögum og í lögum um rétt- indi og skyldur starfsmanna ríkisins lagðar trúnaðarskyldur á þá sem framkvæma leit. Ráðuneyt- inu er ekki kunnugt um það að starfsmenn Samkeppnisstofnunar hafi misfarið með trúnaðarupplýs- ingar. Að öllu þessu virtu telur ráðu- neytið að reglur samkeppnislaga um leit og haldlagningu séu ekki í ósamræmi við það sem tíðkast í öðrum Evrópulöndum eða feli í sér skert réttaröryggi. Telur ráðu- neytið því ekki á þessu stigi ástæðu til að ráðast í breytingar á ákvæðum samkeppnislaga sem þetta varða. 2. Sektarheimildir samkeppnis- yfirvalda. Í greinargerð SA er lát- ið að því liggja að sú orðalags- breyting sem gerð var á 1. mgr. 52. gr. samkeppnislaga hafi verið gerð á röngum forsendum og að til stuðnings henni hafi verið vísað með röngum hætti til EES/ EB-samkeppnisréttar. Að mati ráðuneytisins fær þetta ekki stað- ist. Með lögum nr. 107/2000 var 1. málslið 1. mgr. 52. gr. samkeppn- islaga breytt með þeim hætti að orðið leggur var tekið upp í stað orðanna getur lagt. Eftir breytinguna hljóðaði ákvæðið svo: Samkeppnisráð legg- ur stjórnvaldssektir á fyrirtæki eða samtök fyrirtækja sem brjóta gegn bannákvæðum laga þessara eða ákvörðunum sem teknar hafa verið samkvæmt þeim, sbr. IV. og V. kafla laga þessara, nema brotið teljist óverulegt eða af öðrum ástæðum sé ekki talin þörf á slík- um sektum til að stuðla að og efla virka samkeppni. Við ákvörðun sekta skal hafa hliðsjón af eðli og umfangi samkeppnishamlna og hvað þær hafa staðið lengi. Sekt- irnar renna til ríkissjóðs. Eins og fram kemur í athuga- semdum í frumvarpi til breytinga á samkeppnislögum var tilgangur þeirrar orðalagsbreytingar sem gerð var á 1. mgr. 52. gr. sá að taka af tvímæli um það, að meg- inreglan sé sú að stjórnvaldssektir séu lagðar á vegna brota á ákvæð- um samkeppnislaga. Segir í at- hugasemdunum að sú meginregla stuðli að því að markmið sam- keppnislaga nái fram að ganga, þar sem stjórnvaldssektir sam- kvæmt lögunum hafi bæði almenn og sérstök varnaðaráhrif. Frekari athugasemdir var ekki að finna um þessa tilteknu breytingu. Hins vegar virðist á því byggt í greinargerð SA að í frumvarpi til breytinga á samkeppnislögum hafi, varðandi ofangreinda breytingu á 1. mgr. 52. gr. samkeppnislaga, verið vísað sérstaklega til EES/ EB-réttar. Eins og athugasemdir við ákvæðið í frumvarpinu bera með sér var hvergi vísað til EES/ EB-réttar varðandi þá breytingu sem gerð var á 1. mgr. 52. sam- keppnislaga. Hins vegar er vísað til EES-réttar varðandi breyt- inguna sem gerð var á 2. mgr. ákvæðisins. Ekki er því um það að ræða að rangar upplýsingar af ein- hverju tagi varðandi EES/EB- samkeppnisrétt hafi komið fram varðandi þá breytingu sem gerð var á 1. mgr. 52. gr. samkeppn- islaga. Framangreind áherslubreyting sem gerð var á 1. mgr. 52. gr. sam- keppnislaga er að mati ráðuneyt- isins eðlileg og í fullu samræmi við EES/EB-samkeppnisrétt. Ekki fær staðist sú fullyrðing SA að sektum sé beitt í undantekninga- tilvikum hjá framkvæmdastjórn EB. Framkvæmdastjórnin hefur margoft beitt sektarheimildum sín- um og eru sektir meginreglan í málum sem varða t.d. verðsamráð, markaðsskiptingu og misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Fram- kvæmdastjórnin hefur frá upphafi sektað yfir 650 fyrirtæki og var t.d. á síðastliðnu ári sektað í tólf málum. Heildarfjárhæð sekta sem framkvæmdastjórnin hefur lagt á frá upphafi er um 315 milljarðar kr. Í þessu samhengi má einnig hafa í huga að í áðurnefndu frum- varpi til breytinga á dönsku sam- keppnislögunum er ráð fyrir því gert að styrkja sektarákvæði lag- anna til að tryggja að sektar- ákvarðanir stuðli með varnaðar- áhrifum sínum að því að markmið laganna nái fram að ganga. Í ljósi þessa alls telur ráðuneyt- ið að ekki verði séð þörf þess að ráðast í breytingar á sektarákvæð- um samkeppnislaga. 3. Ákvæði samkeppnislaga um bann við samkeppnishömlum og um samrunaeftirlit. Ráðuneytið fellst ekki á það mat SA að ástæða sé til að endurskoða bannákvæði samkeppnislaga, þ.e. bann 10. gr. laganna við samkeppnishamlandi samráði og bann 11. gr. við mis- notkun á markaðsráðandi stöðu. Ákvæði þessi eru efnislega sam- hljóða hliðstæðum ákvæðum í EES-samningnum. Þá minnir ráðuneytið á að breið samstaða var á Alþingi um þær breytingar sem gerðar voru á 10. og 11. gr. lag- anna með lögum nr. 107/2000. Auk þess voru flestir umsagnaraðilar sammála þeim breytingum eða gerðu ekki athugasemdir. Viðskiptaráðuneytið telur í ljósi þess sem hér var rakið, að ekki verði séð þörf þess að endurskoða umrædd ákvæði að svo stöddu. Hið sama gildir um samruna- ákvæði laganna. FRÉTTIR HÓPVINNUKERFI ehf. standa fyrir námskeiði um ISO 15489:2001 í tengslum við um- hverfi íslenskra stofnana og fyr- irtækja miðvikudaginn 20. febr- úar kl. 13.30 á Grand Hótel Reykjavík. Fyrirlesari verður Jóhanna Gunnlaugsdóttir lektor við Háskóla Íslands og ráðgjafi hjá Gangskör sf. Námskeiðið er ætlað stjórn- endum sem bera ábyrgð á skjala- og upplýsingamálum stofnana og fyrirtækja, skjala- stjórum sem eiga að koma á skjalastjórn og fylgja eftir ein- stökum þáttum skjalastjórnar, kerfisfræðingum sem vinna við þróun rafrænna skjala- og upp- lýsingakerfa, tölvukennurum sem kenna á rafræn skjala- og upplýsingakerfi og starfsmönn- um sem bera ábyrgð á og varð- veita heildstæð skjalasöfn um störf sín. Þátttakendur geta skráð sig á námskeiðið með því að senda tölvupóst á svala@hopvinnu- kerfi.is, í gegnum heimasíðu Hópvinnukerfa ehf: http:www.- hopvinnukerfi.is eða í síma, seg- ir í fréttatilkynningu. Námskeið um skjalastjórnun HÁRGREIÐSLUSTOFA Jónu Sig- urbjartsdóttur á Kirkjubæjar- klaustri hefur opnað útibú í hluta af gamla bifreiðaverkstæðinu í Vík. Að sögn Jónu verður stofan opin tvo daga í viku til að byrja með og eru þær tvær sem vinna þar. Auk Jónu starfar þar Ester Elín Bjarnadóttir. Hárgreiðslu- stofan býður upp á alla almenna hársnyrtingu. Einnig var á sama stað opnuð snyrtistofa og verður hún einnig opin tvo daga í viku. Það er Margrét Birgisdóttir snyrtifræðingur sem sér um að fegra Mýrdælinga. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Ester Elín og Jóna með hendur í hári viðskiptavina. Hárgreiðslu- og snyrti- stofa opnuð Fagridal. Morgunblaðið. AÐALFUNDUR Menningar- og friðarsamtaka íslenskra kvenna árið 2002 verður haldinn fimmtu- daginn 14. febrúar kl. 20 í MÍR- salnum við Vatnsstíg 10. Fundarefni: 1. Venjuleg aðal- fundarstörf: Skýrsla formanns og kosningar í stjórn félagsins. 2. Hugflæði um nýbreytni í starfi MFÍK. Ræddar hugmyndir að áframhaldandi starfi. Fundurinn er öllum opinn. Aðalfundur MFÍK ÁSTA R. Möller alþingismaður hef- ur opnað heimasíðu á Netinu. Hyggst hún þannig auka tengslin við samborgara sína, eins og hún segir í tilkynningu. Heimasíðan er vistuð hjá Alþingi og er slóðin www.al- thingi.is/astam. Opnar heimasíðu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.