Morgunblaðið - 12.02.2002, Qupperneq 12
FRÉTTIR
12 ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
GUNNAR I. Birgisson, alþingismað-
ur og formaður bæjarráðs Kópavogs,
varð efstur í prófkjöri sjálfstæðis-
manna í Kópavogi. Ármann Kr.
Ólafsson, aðstoðarmaður sjávarút-
vegsráðherra, náði öðru sæti, en
Bragi Michaelsson, sem var í öðru
sæti, lenti í því sjötta. Bragi segir
nánast engar líkur á að hann taki
sjötta sætið og útilokar ekki að hann
fari í sérframboð. Um 2.700 manns
tóku þátt í prófkjörinu.
Gunnar I. Birgisson sagðist vera
sáttur við sína útkomu úr prófkjör-
inu. Hann sagðist ekki hafa beitt sér
mikið í prófkjörsbaráttunni heldur
kosið að sitja á friðarstóli.
„Það sóttust tveir aðrir eftir fyrsta
sætinu og því varð eðlilega meiri
dreifing á atkvæðum en stundum áð-
ur, en ég fékk samt yfirburðakosn-
ingu í fyrsta sæti. Það urðu breyt-
ingar á listanum. Fulltrúi þess unga
fólks sem verið hefur að flytja inn í
bæjarfélagið, Ármann Kr. Ólafsson,
náði öðru sæti með glæsibrag. Síðan
kom í þriðja sæti vinsæll og duglegur
skólastjóri, Gunnsteinn Sigurðsson,“
sagði Gunnar og kvaðst telja listann
sigurstranglegan.
Gunnar var spurður um útkomu
Braga Michaelssonar.
„Bragi er búinn að vinna í áratugi
mjög dyggilega og samviskusamlega
fyrir Sjálfstæðisflokkinn og hefur
hvergi af sér dregið. Prófkjörið end-
urspeglar vilja sjálfstæðismanna í
Kópavogi, sem voru að velja sér fólk
til að fara fram í bæjarmálum. Það
má vera að Bragi hafi haft það á móti
sér að hann er búinn að vera nokkuð
lengi, en ég harma það ef hann ætlar
að fara fram í sérframboð. Ég tel að
staða bæjarmála í Kópavogi sé með
þeim hætti að það sé nú varla efni í
slíkt. Við stöndum þokkalega vel í all-
flestum málum og erum til fyrir-
myndar í mörgum málaflokkum. Það
kæmi mér því á óvart ef Bragi færi í
sérframboð og vona að það komi ekki
til slíks,“ sagði Gunnar.
Bragi Michaelsson
íhugar sérframboð
Bragi Michaelsson sagðist ekki
vera sáttur við að falla úr öðru sæti
niður í það sjötta. Niðurstaða próf-
kjörsins væri nokkuð tilviljunar-
kennd. Það munaði aðeins tuttugu at-
kvæðum á fimmta og sjötta sæti,
fjörutíu atkvæðum á fjórða og sjötta
sæti og liðlega hundrað atkvæðum á
þriðja og sjötta sæti.
„Það er ljóst að það börðust
ákveðnar fylkingar í þessu prófkjöri.
Sumir höfðu betri að-
gang að upplýsingum
eins og gengur og ger-
ist og voru kannski
með fleira fólk í kring-
um sig. Það sem mér
finnst mikilvægast í
sambandi við svona
prófkjörsbaráttu er að
menn eiga ekki að
reka áróður gegn
neinum og það lagði ég
áherslu á,“ sagði
Bragi.
Bragi sagði að það
væri ekkert launung-
armál að Gunnar I.
Birgisson hefði ekki
verið sérstakur stuðn-
ingsmaður sinn í gegn-
um árin. Í prófkjöri
1993 hefði hann gert
misheppnaða tilraun
til að koma sér út úr
bæjarstjórn, en minna
hefði borið á því í síð-
ustu tveimur prófkjör-
um. Hins vegar hefði
verið mjög gott sam-
starf milli sín og Gunn-
steins Sigurðssonar í
gegnum árin. Gunn-
steinn hefði hins vegar
núna stefnt á sömu
mið og það hefði komið niður á fylgi
við sig.
Bragi fór fyrst í framboð fyrir
Sjálfstæðisflokkinn í Kópavogi 1974
og varð aðalbæjarfulltrúi árið eftir
þegar Sigurður Helgason lét af störf-
um. Hann varð aftur
varabæjarfulltrúi
1978, en settist fljót-
lega aftur í bæjar-
stjórn þegar Axel
Jónsson forfallaðist.
Frá þeim tíma hefur
hann setið sem aðal-
fulltrúi í bæjarstjórn.
„Ég er einn af þeim
mönnum sem hafa
haldið uppi fylgi eldri
sjálfstæðismanna í
Kópavogi. Ég hef
verið í flokksstarfi í
þrjátíu ár og á marga
vini og kunningja inn-
an flokksins. Sumum
fannst óvægilega
vegið að Ríkharði
Björgvinssyni á sín-
um tíma þegar hann
hætti afskiptum af
pólitík. Ég var í þeim
hópi. Margt af þessu
fólki studdi mig og
hefur gert það alla
tíð.“
Bragi var spurður
hvort hann ætlaði að
taka sjötta sætið á
lista Sjálfstæðis-
flokksins.
„Það eru nánast
engar líkur á að ég sitji í sjötta sæti
lista Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi.
Menn hafa mjög legið á mér um að
skoða þann möguleika að fara fram
með sérstakt framboð. Ég hef ekki
tekið ákvörðun í því máli, en mun
skoða alla möguleika í stöðunni.“
Bragi sagði að í stórum flokki eins
og Sjálfstæðisflokknum kæmu menn
sér saman um niðurstöðu mála og
það hefðu menn gert í bæjarstjórn
Kópavogs. Það þýddi þó ekki að
menn væru sammála um alla hluti.
„Ég hef oft viljað leggja aðrar
áherslur en orðið hefur niðurstaða í
samkomulagi milli manna. Ég hefði
t.d. viljað sjá að meira fé yrði varið til
frágangs í umhverfismálum í bæn-
um. Ég hefði líka viljað sjá meiri
áherslur á vegum bæjarins í forvarn-
armálum. Þá tel ég að bærinn hefði
átt að hafa meira frumkvæði í því að
byggja upp dvalarheimili fyrir aldr-
aða,“ sagði Bragi.
Óljóst hvort Halla Halldórs-
dóttir tekur 5. sætið
Ármann Kr. Ólafsson, bæjar-
fulltrúi og aðstoðarmaður sjávarút-
vegsráðherra, var kjörinn í bæjar-
stjórn fyrir fjórum árum og var þá í
fimmta sæti. Hann stefndi á annað
sæti listans og náði því, en hann fékk
um þrjú hundruð atkvæðum meira í
það sæti en næsti maður.
Ármann sagðist vera mjög ánægð-
ur með niðurstöður prófkjörsins. „Ég
held að þessa góðu niðurstöðu megi
að hluta til þakka því hvernig ég hef
unnið á kjörtímabilinu sem er að líða
og að hluta til þakka ég þetta þeim
stefnumálum sem ég setti fram í
kosningabaráttu minni. Ég fann í
baráttunni fyrir miklum stuðningi frá
breiðum hópi manna sem var tilbúinn
til að vinna fyrir mig,“ sagði Ármann.
Halla Halldórsdóttir, hjúkrunar-
fræðingur og bæjarfulltrúi, lenti í
fimmta sæti, en hún var áður í þriðja
sæti. Hún stefndi á annað sætið og
sagðist því ekki vera ánægð með að
hafa færst neðar á listann. „Ég er
mjög ánægð og sátt við heildarnið-
urstöðuna. Ég er með langhæstu út-
komuna. Yfir 80% kjósenda merktu
við mig, en það segir sig sjálft að ég
er ekki sátt við að lenda í fimmta
sæti. Ég hef setið átta ár í bæjar-
stjórn og hef því öðlast góða reynslu
af bæjarmálum. Ég tel að það hefði
verið sterkt fyrir flokkinn að ég hefði
verið í öðru sæti.“
Halla sagði aðspurð að hún ætti
eftir að gera upp við sig hvort hún
tæki fimmta sætið. Hún ætti eftir að
skoða málið betur.
Ekki náðist í Gunnstein Sigurðs-
son, sem hreppti þriðja sætið.
Skipan lista breyttist við prófkjör sjálfstæðismanna í Kópavogi um helgina
! " !
# $
% !
!
!& '
(
(
''
%)! !
" *+%
!
#' $
'
,
* -
" '
.
Sigurrós
Þorgrímsdóttir
Halla
Halldórsdóttir
Gunnar Birgisson
áfram í fyrsta sæti
Bragi
Michaelsson
Gunnsteinn
Sigurðsson
Gunnar I.
Birgisson
Ármann
Kr. Ólafsson
RAGNHEIÐUR Ríkharðs-
dóttir skólastjóri varð efst í
prófkjöri sjálfstæðismanna í
Mosfellsbæ um helgina. Ragn-
heiður hlaut 456 atkvæði í
fyrsta sæti en 882 kusu í próf-
kjörinu. Haraldur Sverrisson
lenti í öðru sæti og Herdís Sig-
urjónsdóttir í því þriðja.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir
fékk 456 atkvæði í fyrsta sæti
og 85,4% atkvæða alls. Í öðru
sæti varð Haraldur Sverrisson
með 322 atkvæði í 1.–2. sæti og
58,9% atkvæða alls. Í þriðja
sæti varð Herdís Sigurjóns-
dóttir með 399 atkvæði í 1.–3.
sæti og 66,1% atkvæða alls.
Hafsteinn Pálsson lenti í
fjórða sæti með 388 atkvæði í 1.–4.
sæti og 58,4% atkvæða alls. Í fimmta
sæti varð Klara Sigurðardóttir með
298 í 1.–5. sæti og 41,4% atkvæða
alls. Pétur Berg Matthíasson lenti í
sjötta sæti með 399 í 1.–6. sæti og
46,0% atkvæða alls. Í sjöunda sæti
lenti Bjarki Sigurðsson með 352 at-
kvæði í 1.–7. sæti og með 40,6% at-
kvæða alls.
„Ég held að þessi niðurstaða sýni
að sjálfstæðismenn í Mosfellsbæ hafi
viljað verðlauna mig fyrir þau störf
sem ég hef unnið að í bæjarfélaginu í
gegnum tíðina.
Ég er mjög bjartsýn fyrir kosn-
ingarnar í vor fyrir hönd flokksins.
Við stefnum ákveðið að því að vinna
meirihluta í bæjarstjórn í kosning-
unum 25. maí. Við munum ekki unna
okkur hvíldar og ég hef sagt við
flokksfélaga mína að við þurfum að
finna einn sjálfstæðismann til
viðbótar á hverjum degi fram
til kosninga,“ sagði Ragnheið-
ur.
Haraldur Sverrisson sagð-
ist í samtali við Morgunblaðið
vera mjög ánægður með sína
útkomu í prófkjörinu, hann
hefði stefnt að fyrsta eða öðru
sæti. Haraldur hefur verið
varabæjarfulltrúi frá síðustu
kosningum, þegar hann hafn-
aði í sjötta sæti eftir prófkjör,
og átt sæti í tveimur nefndum
bæjarins.
„Sér í lagi er ég ánægður
með hvað listinn fékk glæsi-
lega kosningu. Þátttakan í
prófkjörinu er nærri því helm-
ingi meiri en síðast. Við ætlum okkur
ekkert annað en sigur í kosningum í
vor og komast í meirihluta,“ sagði
Haraldur.
Sjálfstæðisflokkurinn í Mos-
fellsbæ hefur verið í minnihluta í
bæjarstjórn í tvö kjörtímabil. Flokk-
urinn var með þrjá menn í bæjar-
stjórn í síðustu kosningum, en aðeins
Herdís Sigurjónsdóttir sóttist eftir
endurkjöri.
Prófkjör sjálfstæðismanna í Mosfellsbæ
Ragnheiður Ríkharðs-
dóttir í efsta sæti
Haraldur
Sverrisson
Ragnheiður
Ríkharðsdóttir
ÁTTA einstaklingar gefa kost á sér í
prófkjöri Samfylkingarinnar vegna
vals á frambjóðendum flokksins á
Reykjavíkurlistann. Framboðsfrest-
ur rann út sl. laugardag.
Valdir verða frambjóðendur í þrjú
efstu sæti sem koma í hlut Samfylk-
ingarinnar á R-listanum í sveitar-
stjórnarkosningunum í vor. Þeir sem
gefa kost á sér eru: Helgi Hjörvar,
Hrannar Björn Arnarsson, Sigrún
Elsa Smáradóttir, Stefán Jóhann
Stefánsson, Stefán Jón Hafstein,
Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Pétur
Jónsson og Tryggvi Þórhallsson.
Að sögn Katrínar Theodórsdóttur,
formanns framkvæmdanefndar próf-
kjörs Samfylkingarfélaganna, hefst
kjörfundur á morgun, miðvikudag, og
lýkur sunnudaginn 17. febrúar. Kosið
verður alla virka daga frá kl. 16.00 til
19.00, en laugardag og sunnudag kl.
10.00–17.00. Auk þess fá allir félagar í
Samfylkingunni í Reykjavík sendan
kjörseðil í pósti. Prófkjörið er opið
öllum félagsmönnum í Samfylking-
unni og einnig óflokksbundnum
Reykvíkingum sem lýsa yfir stuðn-
ingi við Samfylkinguna og greiða 500
kr. þátttökugjald.
Uppstillingarnefnd mun svo í
framhaldi af niðurstöðum prófkjörs-
ins raða í önnur sæti á framboðslist-
anum. ,,Við það val verður auðvitað
gætt ýmissa sjónarmiða sem Sam-
fylkingin byggir á, s.s. skiptingar á
milli kynja og svo framvegis,“ segir
Katrín. Kom henni að sögn nokkuð á
óvart hversu margir gefa kost á sér
til þátttöku í prófkjörinu. ,,Það er
jafnframt mjög gleðilegt að það skuli
vera svona margir í flokknum, sem
eru tilbúnir að axla ábyrgð, margt
frambærilegt fólk,“ segir hún.
VG leita eftir tilnefningum
Ákveðið var á fundi í stjórn Vinstri-
hreyfingarinnar – græns framboðs
(VG) í síðustu viku að leita til fé-
lagsmanna um óbundnar tilnefningar
hugsanlegra frambjóðenda vegna
uppstillingar á framboðslistann. Í
framhaldi af því fær svo uppstilling-
arnefnd það verkefni að vinna úr til-
nefningum og raða á listann. Kom
uppstillingarnefnd saman til fyrsta
fundar í gærkvöldi og verða væntan-
lega send bréf til félagsmanna á
næstu dögum og leitað eftir tilnefn-
ingum, skv. upplýsingum Sigríðar
Stefánsdóttur, formanns félags VG í
Reykjavík.
Átta frambjóðend-
ur í prófkjöri Sam-
fylkingarinnar