Morgunblaðið - 12.02.2002, Side 16

Morgunblaðið - 12.02.2002, Side 16
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 16 ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ Nýtt - Jacob Jensen hönnun - Nýtt Garðar Ólafsson, úrsmiður, Lækjartorgi. Sími 551 0081. Með veðurstöðinni frá Garðari Ólafssyni úrsmið við Lækjartorg spáir þú sjálfur í veðrið. Veðurstöðin, sem er dönsk hönnun frá Jacob Jensen, samanstendur af einingum sem hver og einn getur raðað saman eftir því hvaða mælitæki nýtast hon- um best. Í veðurstöðina er hægt að fá rakamæli, loftvog, hita- mæli úti og inni þráðlaust, klukku og vekjara og kostar hver eining frá 4.300 kr. FJÖLMENNI var á fundi sem Skipulags- og byggingarsvið Reykja- víkurborgar boðaði til í gær um skipulagsmál að Suðurhlíð 38 þar sem fyrirhuguð er bygging fjögurra hæða fjölbýlishúss. Skipulags- og byggingarnefnd samþykkti nýtt deiliskipulag á byggingarreitnum í lok janúar, þar sem íbúðum í fyrir- huguðu fjölbýlishúsi var fækkað úr 50 í 46 og húsið lækkað um allt að ein- um metra og það brotið upp til að koma til móts við athugasemdir íbú- anna. Á fundinum kom fram að margir íbúar hverfisins eru ennþá ósáttir við fyrirhugaða byggingu og telja hana í ósamræmi við skipulag í hverfinu. Ingibjörg Sólrún Gísladótt- ir borgarstjóri sagði að nú lægi fyrir skipulagstillaga sem samþykkt hefði verið í skipulags- og byggingarnefnd, en ákveðið hefði verið að boða fund til að heyra sjónarmið íbúanna áður en málið verður afgreitt endanlega í borgarráði. Helga Bragadóttir, skipulags- fulltrúi hjá Borgarskipulagi, kynnti nýju skipulagstillöguna og rakti for- sögu hennar. Hún sagði m.a. að Suð- urhlíðahverfið hefði í upphafi verið reist til að þétta byggð og það væri jafnframt tilgangurinn með bygg- ingu fjölbýlishússins í Suðurhlíð 38. Þá sagði hún að í næsta nágrenni væri Garðshorn, þar sem umhverfið væri með nokkuð öðrum hætti en íbúðabyggðin í hverfinu og því hefði verið litið til þess að hverfið tæki ákveðnum breytingum þegar sunnar drægi. Fólki tíðrætt um ímynd svæð- isins í athugasemdum Samkvæmt eldra aðalskipulagi var lóðin skipulögð sem stofnanalóð en því breytt yfir í íbúðabyggð og sagði Helga margar tillögur hafa verið til skoðunar um nýtingu byggingar- reitsins. Hún sagði lóðina hafa verið stærri í upphafi en henni hefði verið skipt í tvennt sem m.a. helgaðist af því að hluti upphaflegu lóðarinnar væri veghelgunarstæði vegna fram- tíðarlegu Hlíðarfóts. Að sögn Helgu bárust um 15 at- hugasemdir við byggingu fjölbýlis- hússins auk undirskriftalista með 107 undirskriftum íbúa í hverfinu. Helga sagði allar athugasemdirnar eiga það sammerkt að fólk væri ósátt við hæðina á húsinu og teldi það skerða útsýni frá Suðurhlíðahverfinu yfir Fossvoginn og til Kópavogs. Þá hefði fólk bent á að hæð hússins væri ekki í samræmi við aðrar byggingar í hverfinu, íbúðir væru of margar og aukin umferð mundi valda óþægind- um og slysahættu. „Fólki verður tíðrætt um ímynd hverfisins, að hún muni í raun breyt- ast vegna þess að þetta var svo heild- stætt hverfi í upphafi,“ sagði Helga. Hún sagði skipulagsyfirvöld líta þannig á að þótt einhver útsýnis- skerðing yrði stæðu syðstu húsin í Suðuhlíðum það hátt að efri hæð húsanna næði yfir fjórðu hæð fyrir- hugaðs fjölbýlishúss og því væri ekki um óeðlilega útsýnisskerðingu að ræða innan borgarmarka. „Þær tillögur sem hafa verið sam- þykktar núna gera ráð fyrir að fjórða hæðin verði töluvert inndregin. Þá getur það fengið á sig léttara yfir- bragð, eða uppbrotnara, skulum við segja. Hvað varðar umferðina var aukningin borin undir umferðardeild sem taldi að umferð vegna 50 íbúða, sem eru nú orðnar 46, myndi aukast um 15-20% og gatnafyrirkomulagið ætti að ráða auðveldlega við þá aukn- ingu. Það er ekki talið að aukin um- ferð leiti inn í sjálft hverfið, Birkihlíð- ina og Víðihlíðina, við þessar breyt- ingar. Ennfremur kemur fram í svari umferðardeildar að bætt verði við hraðahindrunum og Suðurhlíða- hverfið verði 30 km svæði og komið verði fyrir hraðahindrunum í hverf- inu sem ættu að draga úr umferð- arhraða,“ sagði Helga. Mestu skiptir að gæði þess að búa í hverfinu minnka Hildur Einarsdóttir, talsmaður íbúa í Suðurhlíðum, sagði að aldrei hefði verið gert ráð fyrir byggingu stórhýsis í hverfinu, enda hverfið skipulagt þannig og bæri ekki meiri umferð en þá sem fyrir er. „Í hverf- inu eru tveir sérskólar, Heyrnleys- ingjaskólinn og skóli fyrir þroska- hefta, einn grunnskóli, sérbýli fyrir þroskahefta og leikskóli og teljum við það mikla slysahættu ef bílum fjölgar. Í þessu litla hverfi er líka kirkja og kirkjugarður og er umferð mikil út og inn úr hverfinu við fjöl- mennar jarðarfarir, auk þess sem fólk heimsækir iðulega kirkjugarð- inn.“ Þá sagði Hildur að við þessa nýju skipan væri hætta á að fasteignamat myndi lækka í hverfinu. Hún sagði það hins vegar skipta íbúana mestu máli að gæði þess að búa í hverfinu myndu minnka til muna og sumir hefðu orðað það að flytja úr hverfinu. „Við teljum að bygging þessa húss sé ekki okkar einkamál, þeirra sem búa í þessu hverfi, heldur sé hér um mjög sérstakt svæði að ræða, eitt fegursta svæðið innan borgarmark- anna og fjölsótt útivistarsvæði. Þetta svæði er eina aðgengi okkar Reyk- víkinga að strönd og við teljum ekki hyggilegt að þrengja að því á þennan hátt.“ Að sögn Hildar eru íbúar hverf- isins í sjálfu sér ekki á móti nýrri byggð á þessu svæði, svo framarlega sem hún sé í samræmi og í sátt við umhverfið. „En ef litið er til þess að á lóð fyrir framan húsið á að vera munni sem tekur við umferð frá Fossvogsgöngum, eins og gert er ráð fyrir í aðalskipulagi Reykjavíkur, þá teljum við hyggilegast að hætta við að byggja á svæðinu, a.m.k. þar til búið væri að hanna umferðarmann- virkin þannig að menn sæju hvernig þau koma út.“ „Við sem búum í hverfinu erum flest frumbýlingar sem þýðir að við höfum búið hér í 18 ár og höfum mjög sterkar taugar til hverfisins og um- hverfis þess. Við eigum mjög erfitt með að sjá fyrir okkur þarna fjög- urra hæða hús sem er að bygging- armagni svipað að stærð og ráðhúsið í Reykjavík. Við teljum þetta hús engan veginn myndi fara vel í lands- laginu, sem er aflíðandi, og myndi skaga þarna upp úr eins og illa gerð- ur hlutur. Við erum að vonast til að borgaryfirvöld hlusti á okkur íbúana og aðra Reykvíkinga sem telja að hér sé um skipulagsslys að ræða,“ sagði Hildur. Þegar komnir 30 fyrirhugaðir kaupendur á lista Arnar Hannes Gestsson tók í svip- aðan streng og Hildur og sagði það skjóta skökku við að setja fjögurra hæð blokk inn í hverfið. „Þetta er falllegt hús en það bara passar ekki inn í þetta hverfi. Af hverju var ekki bara haldið áfram með hverfið í lág- reistri byggð?“ Jón Valur Smárason tók síðan til máls, en hann er annar eigenda lóð- arinnar þar sem fyrirhuguð bygging á að rísa. „Fyrirhuguð bygging er tvær, þrjár og fjórar hæðir og stór hluti húsa hér í hverfinu er þrjár hæðir, þannig að ég get ekki alveg skilið þann málflutning að hér sé um háhýsi að ræða. Fjarlægðin á milli þessara staða er frá 200 og allt að 400 metrum. Hæðarmunurinn er gífur- legur, við erum að tala um 10 til 20 metra. Suðurhlíð 38 mun verða fal- legt, lágreist fjölbýlishús sem fellur vel að umhverfinu með um 46 íbúð- um,“ sagði Jón Valur. Hann sagði að þegar væru komnir yfir 30 fyrirhugaðir kaupendur á lista. Flestir ættu það sameiginlegt að vera komnir yfir miðjan aldur og það segði sig sjálft að betri nágranna væri varla hægt að hugsa sér. „Við höfum fundið fyrir miklum áhuga hjá fólki sem býr í þessu hverfi í stórum húsum og hefur hug á að minnka við sig en ekki fara úr hverfinu. Þar væru íbúðir eins og þessar ef til vill mjög góður kostur.“ Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri, sagði að hafa yrði í huga í þessari umræðu að lóðin hefði verið ætluð til að byggja á. „Þetta var stofnanalóð, að vísu ekki ætluð til að byggja þarna íbúðabyggð, en var ætluð til uppbyggingar og það var auðvitað ekkert sem gat komið í veg fyrir að menn gætu nýtt hana með þeim hætti. Þannig að þetta er ekki eins og þarna hafi verið tekið grænt svæði og því breytt í byggingalóð.“ Finnst væntanlegir ná- grannar taka sér illa Borgarstjóri sagði síðan hægt að deila um hvernig yfirbragð bygginga eigi að vera og alltaf sé umdeilt þegar nýjar byggingar eru reistar í eldra hverfi. „Menn verða síðan að hafa í huga að það getur verið mikilvægt í svona hverfum að hafa nokkuð fjöl- breytta gerð íbúða, þannig að fólk, sem vill t.d. minnka við sig, eigi ein- hverra kosta völ.“ Þá sagði Ingibjörg Sólrún það kosta talsverða fjármuni að breyta svæðinu í útivistarsvæði. „Það var einfaldlega okkar mat að ekki væri réttlætanlegt að verja tugum millj- óna úr borgarsjóði til þess að halda þessari tilteknu lóð óbyggðri.“ Guðmundur Guðmundsson tók til máls og sagði að hann og kona hans hefðu mikinn áhuga á að kaupa íbúð í væntanlegu fjölbýlishúsi við Suður- hlíð 38. „Okkur finnst að væntanlegir nágrannar taki okkur illa. Það er svo að allsstaðar er fólk sem vill ekki ný- búa nálægt sér.“ Hann sagðist ekki myndi eiga leið í gegnum hverfið heldur færi hann eftir samgönguleið meðfram hverfinu. Þá sagðist hann hafa skoðað húsin í hverfinu og fengi ekki betur séð en mörg húsin væru þrjár hæðir og nýja húsið væri aðeins fjórar hæðir. „Það liggur lágt í land- inu og nokkuð fjarri íbúðabyggðinni sem hér er fyrir og skyggir því ekki á hana,“ sagði Guðmundur. Guðrún Zoëga sagði að svo virtist sem sumir misskildu málstað þeirra sem hafa mótmælt byggingu hússins. Þeir séu almennt ekki á móti því að þarna sé byggt en menn hafi skoðun á því hvernig sé byggt og fólk telji að þarna sé verið að byggja alltof stórt, alltof mikið og í miklu ósamræmi við önnur hús í hverfinu. „Mér finnst að þarna eigi að vera lágreist byggð, smá hús sem geta staðið þétt þess vegna, en ekki svona veggur sem lok- ar fyrir útsýnið út á sjóinn.“ Fyrirhuguð bygging fjölbýlishúss við Suðurhlíð 38 rædd á fjölmennum fundi Telja byggingu fjölbýlishúss í ósamræmi við byggðina Íbúar Suðurhlíða hafa mótmælt fyrirhugaðri byggingu fjölbýlishúss og telja það of hátt og auka umferð of mikið um hverfið. Nýtt deili- skipulag hefur verið samþykkt en skipulags- yfirvöld borgarinnar boðuðu til fundar með íbúum til að kynna framkvæmdir áður en endanleg ákvörðun yrði tekin í borgarráði. Tölvugerð mynd sem sýnir fyrirhugað fjölbýlishús í Suðurhlíð 38. Morgunblaðið/Sverrir Fjölmennt var á fundi skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar um skipulagsmál í Suðurhlíð 38. Suðurhlíðar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.