Morgunblaðið - 12.02.2002, Síða 19

Morgunblaðið - 12.02.2002, Síða 19
LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2002 19 Model 6333DWBE 14.4 v Rafhlöðuborvél Aukarafhlaða / taska REYKJAVÍK: Ármúla 11 - Sími 568-1500 AKUREYRI: Lónsbakka - Sími 461-1070 Model 6834 Gifsskrúfvél 470 W O = 4 x 57 mm Tilboðsdagar Kr. 59.920* Kr. 25.520* Kr. 18.880* Flex 2 Mix Mix Ótal möguleikar á uppstill- ingum. Eigum til beyki og kirsuberjaliti á lager, sérpöntum í hlyn. Í VETUR hafa ellefu, tólf og þrettán ára nemendur í grunnskólanum í Þykkvabæ keppst við að læra fer- skeytlur utan að, en alls eru sextán börn á þessum aldri í 5., 6. og 7. bekk skólans, sem njóta samkennslu í flestum greinum. Það var íslenskukennari þeirra, Særún Sæmundsdóttir, sem átti hugmyndina að því að kynna fyrir börnunum þessa gömlu list og bað- stofumenningu, að kasta fram stöku og að geta kveðist á. Að sögn hennar hitti þetta í mark hjá rúmum helm- ingi nemendanna og var verkefnið komið á góðan rekspöl á degi ís- lenskrar tungu í nóvember sl. „Ég umbuna krökkunum með smáverðlaunum eftir hverjar fimm ferskeytlur sem þau hafa lært, stærri verðlaun koma eftir fimmtíu, en ein stúlka hefur náð þeim frá- bæra árangri að hafa lært eitt hundrað ferskeytlur utan að og fékk hún sérstaka viðurkenningu, en stefnan er að læra a.m.k. eitt þúsund ferskeytlur í vetur,“ sagði Særún. Það hafa komið nokkrar skemmti- legar frumortar vísur í þessu átaki barnanna í Þykkvabæ og fær ein að fljóta hér með eftir Ínu Karen Markúsdóttur: Haustið kemur, sumri hallar, skólinn byrjar, skyldan kallar. Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir 5., 6. og 7. bekk í grunnskólanum í Þykkvabæ lætur sig ekki muna um að læra utanbókar ferskeytlur í hundraðavís. Hafa lært 685 fer- skeytlur utan að Þykkvibær UM þessar mundir eru liðin 30 ár frá því að vikublaðið Dagskrá í Vestmannaeyjum hóf göngu sína. Í vikulegri útgáfu bæjar- og héraðs- fréttablaða telst það dá- góður árangur, ekki síst þegar til þess er tekið að einn og sami maðurinn hefur séð um útgáfuna frá upphafi ásamt fullu starfi við annað. Að sögn Hermanns Einarssonar útgefanda hefur þetta gengið upp með miklum stuðningi nánustu vina og vandamanna ásamt stuðningi fjölda lesenda Dagskrár, viðskiptavina og skrifara. Dagskrá hefur alla tíð verið unnin og prentuð í Prentsmiðjunni Eyrúnu í Vest- mannaeyjum og hefur Óskar Ólafs- son prentari verið Hermanni innan handar við uppsetningu og prentun blaðsins frá upphafi, enda hefur um- brot og uppsetning blaðsins verið til fyrirmyndar. Frá upphafi hefur blaðið verið unnið með þeirri bestu tæknilegu þekkingu og tækjum sem völ hefur verið á og segir Hermann breytingarnar vera með ólíkindum frá því að fyrsta tölublaðið leit dags- ins ljós og til dagsins í dag. Hlutlaust blað Í gegnum tíðina hefur hlutleysi verið haft að leiðarljósi og það hafa allir getað óttalaust tjáð sig með vissu um nafnleynd í Dagskrá. Her- mann segir að það sé hverju sam- félagi nauðsynlegt að hver og einn hafi málfrelsi og tillögurétt og hefur þess verið gætt í hvívetna á síðum Dagskrár. Auk þess að fræða og upplýsa fólk um gang mála hefur blaðið verið vettvangur almennra skoðanaskipta og gagnrýni á menn og málefni er varðar bæjarheill. Hermann sagði að á þessum tíma- mótum væri ástæða til að þakka íbú- um Vestmannaeyja fyrir hollustu og margvíslegan stuðning við útgáfu Dagskrár og um framtíðina sagði Hermann að enginn vissi hvað hún bæri í skauti sér en í dag er engan bilbug að finna á útgáfu Dagskrár. Vestmannaeyjar Morgunblaðið/Sigurgeir Hermann Einarsson, útgefandi Dagskrárinnar. Vikublaðið Dagskrá 30 ára NÝ íþróttadeild, Skíðadeild Umf. Selfoss, var stofnuð á Selfossi mið- vikudaginn 6. febrúar sl. 10 manns mættu á stofnfundinn en stofnfélag- ar eru 13. Markmið með stofnun skíðadeildarinnar er að efla áhuga á skíðaíþróttinni og gefa félögum kost á kennslu og þjálfun, vinna að bættri aðstöðu fyrir skíðaíþróttina á Sel- fossi og stuðla að góðum samgöng- um í skíðalöndin. Fyrir nokkrum árum var starf- rækt Skíðafélag Selfoss en starfsemi þess hefur legið niðri. Hin nýja skíðadeild tekur við hlutverki Skíða- félagsins og fékk 164 þúsund kr. í arf frá Skíðafélaginu sem stofnfram- lag. „Miklar og góðar umræður urðu um starfið framundan og margar góðar hugmyndir komu fram, þar á meðal að lagfæra aðstæður í „Fjall- inu eina“ á Selfossi fyrir börn, að leggja gönguskíðabrautir og koma á skipulögðum ferðum í skíðalöndin á Hellisheiði og Bláfjöllum. Hin ný- kjörna stjórn mun á næstu dögum byrja að skipuleggja vetrarstarfið og eiga íbúar í Árborg eftir að verða varir við mikið skíðastarf hjá félag- inu,“ segir í fréttatilkynningu frá fé- laginu. Þar segir einnig að þeir sem hafi áhuga á að fræðast meira um skíða- deildina, gerast félagar eða aðstoða á einhvern hátt geti haft samband við framkvæmdastjóra Umf. Selfoss. Í stjórn voru kosnir: Formaður Sigurborg Kjartansdóttir, gjaldkeri Elínborg Ingólfsdóttir. Meðstjórn- endur voru kjörnir Þröstur Brynj- ólfsson, Grímur Arnarsson, Svala Þrastardóttir. Varastjórn skipa Bryndís Eva Óskarsdóttir, Sólrún Stefánsdóttir og Ingibjörg Magnús- dóttir. Morgunblaðið/Sig. Jóns Ný stjórn skíðadeildar Ungmennafélags Selfoss á stofnfundinum, Bryn- dís Eva Óskarsdóttir, Grímur Arnarson, Sigurborg Kjartansdóttir, El- ínbjörg Ingólfsdóttir og Ingibjörg Magnúsdóttir. Á myndina vantar Þröst Brynjólfsson, Svölu Þrastardóttur og Sólrúnu Stefánsdóttur. Skíðadeild stofnuð hjá Umf. Selfoss Selfoss HALDIÐ var nýlega fjáröfl- unarkaffi til kaupa á nýju orgeli fyrir Skeggjastaðakirkju í grunnskól- anum á Bakkafirði. Meðan gestir gæddu sér á kaffi og tertum sungu krakkarnir í kirkju- skólanum nokkur lög. Börnin í TTT-starfi kirkjunnar, 10 til 12 ára gömul, voru með leikþátt um miskunn- sama Samverjann í nútíðinni og einnig söng kirkjukór Skeggja- staðakirkju nokkur létt lög. Góð mæting var og söfnuðust 64.000 krónur. Að sögn Freydísar Magn- úsdóttur, formans sóknar- nefndar, kostar orgelið um 800.000 krónur hingað komið. Sagði hún að kirkjunni hefðu borist nokkur gjafabréf að upp- hæð 290.000 krónur. Safnað fyrir nýju orgeli Bakkafjörður Nýja orgelið í Skeggjastaðakirkju.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.