Morgunblaðið - 12.02.2002, Side 22
NEYTENDUR
22 ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Rannsóknarráð Íslands
auglýsir almenna styrki úr
Rannsóknanámssjóði 2002
Hlutverk Rannsóknanámssjóðs er að styrkja rannsóknatengt
framhaldsnám að loknu grunnnámi við háskóla.
Veittir eru styrkir til framfærslu nemenda í rannsóknatengdu
framhaldsnámi, sem stundað er við háskóla eða á ábyrgð hans
í samvinnu við rannsóknastofnanir eða fyrirtæki. Styrkurinn til
framfærslu miðast einungis við þann tíma sem nemendur vinna
að meistara/doktorsverkefni sínu. Rannsóknaverkefni skal
nema að minnsta kosti 30 einingum af náminu og tengjast
rannsóknasviði leiðbeinanda. Sé námið stundað við háskóla
erlendis skal rannsóknaverkefnið lúta að íslensku viðfangsefni
og vísindamaður með starfsaðstöðu á Íslandi taka virkan þátt í
leiðbeiningu nemandans. Framlag leiðbeinanda hér á landi þarf
að vera verulegt og vel skilgreint.
Tilhögun námsins fer eftir reglum einstakra deilda og eftir al-
mennum reglum háskóla. Athugið að umsóknir þurfa að áritast
af aðalleiðbeinanda og forstöðumanni deildar/stofnunar. Vís-
indanefnd viðkomandi háskóla eða samsvarandi aðili metur
vísindalegt gildi verkefna, framkvæmda- og fjárhagsáætlun og
vísindalega hæfni leiðbeinenda. Umsækjendur, leiðbeinendur
jafnt sem nemendur, eru hvattir til að kynna sér vandlega regl-
ur sjóðsins og þær kröfur sem gerðar eru til umsækjenda.
Umsóknarfrestur um almenna styrki úr Rannsóknanáms-
sjóði er til 1. mars nk. Umsóknareyðublöð og leiðbeiningar
fyrir umsækjendur fást á heimasíðu RANNÍS
http//:www.rannis.is eða á skrifstofu RANNÍS, Laugavegi
13, 101 Reykjavík, sími 515 5800. Umsóknir skal senda til
RANNÍS merktar „Rannsóknanámssjóður“.
Auk almennra styrkja veitir Rannsóknanámssjóður FS-styrki í
samvinnu við fyrirtæki og stofnanir. Sjá heimasíðu RANNÍS
varðandi nánari upplýsingar um FS-styrki.
Viltu kaupa atvinnu?
Nýskráð fyrirtæki:
1. Bifreiðaumboð með heimsfræg umboð, varahluta- og viðgerð-
arþjónustu.
2. Netverslun, ein sú fullkomnasta og sú sem gefur mesta mögu-
leika.
3. Ein stærsta hársnyrtistofa borgarinnar. Yfirfullt að gera. 8 stólar.
4. Einstakur ferðamannabæklingur, útg. síðan '86.
Traustir viðskiptavinir.
5. Þægilegt heimafyrirtæki. Hrað- og boðsendingar. 3 bílar fylgja.
6. Frábær skyndibitastaður, snyrtilegur og gefur vel af sér.
7. Sérverslun með gólfflísar. Eigin innflutningur.
8. Þekkt, vinsæl blómabúð við Grafarvoginn.
9. Hannyrða- og gluggatjaldaverslun, sú eina í sínum bæ.
10. Kaffihús við Laugaveginn. Mánaðarvelta kr. 3,5 millj.
11. Heilsustúdíó í Garðabæ. Þægilegt fyrir eina konu.
12. Búningaleiga með 5000 búninga. Mikil eftirspurn.
13. Þekkt bílaverkstæði með öll tæki og góða aðstöðu.
Erum með úrval fyrirtækja á skrá hjá okkur á hverjum tíma.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
EINAR ÖRN REYNISSON, LÖGG. FASTEIGNASALI.
ERLENT
VIÐ fyrstu sýnatöku á hráu salati í
átta verslunum í Reykjavík frá júní
til október 2001 reyndist helmingur
sýna yfir viðmiðunarmörkum hvað
varðar heildargerlafjölda, sem bend-
ir til þess að aldur hráefnisins hafi
verið of mikill, skolun ófullnægjandi
eða geymsluskilyrðum áfátt. Við
þriðju sýnatöku voru niðurstöður
hins vegar í lagi á öllum stöðunum.
Þetta kemur fram í fyrstu könnun
sinnar tegundar hérlendis á örveru-
fræðilegum gæðum matvara úr sal-
atbar 2001 á vegum Umhverfis- og
heilbrigðisstofu Reykjavíkur, mat-
vælaeftirlits, en niðurstöðurnar voru
birtar á dögunum. Tekin voru tvö
sýni úr hverjum salatbar í átta versl-
unum í Reykjavík, en Hagkaup,
Spönginni, Hagkaup, Skeifunni,
Nóatún, Lóuhólum, Nóatún, Hvera-
fold, Nóatún, Hringbraut, Nóatún,
Nóatúni, Nóatún, Rofabæ, og Ný-
kaup, Kringlunni, tóku þátt í könn-
uninni. Annars vegar var tekið sýni
af fersku niðurskornu grænmeti og
hins vegar af niðursoðnum túnfiski.
Tilgangur könnunarinnar var að
meta öryggi matvara í salatbörum
með því að kanna gerlafræðilegt
ástand á niðurskornu fersku græn-
meti og soðinni matvöru úr salatbar.
Sýnin voru send til rannsóknar hjá
Rannsóknarstofu Hollustuverndar
ríkisins. Kælihitastig í salatbarnum
var mælt og gerði Heilbrigðiseftirlit-
ið ekki athugasemdir ef hitastigið
var undir átta gráðum á selsíus.
Að lokinni fyrstu sýnatöku var
sent bréf til verslananna, settar fram
kröfur til úrbóta og bent á að fljót-
lega yrði aftur tekið sýni af hráu sal-
ati í salatbörum þar sem niðurstöður
voru ófullnægjandi.
Við endurtekna sýnatöku voru
niðurstöður fullnægjandi í tveimur
tilvika en útkoman hafði versnað hjá
tveimur fyrirtækjum. Kóligerlafjöldi
var í báðum sýnum yfir viðmiðunar-
mörkum og staphylococcus aureus,
gulir klasagerlar, sem finnast á húð,
í sýni í annarri versluninni, en ef
mikið er af staphylococcus aureus í
vöru má rekja það til ófullnægjandi
persónulegs hreinlætis starfsfólks
og bent á í skýrslunni að við þetta
ástand sé mikil hætta á matareitrun
vegna neyslu vörunnar. Við ítrekaða
sýnatöku voru sýnatökur í lagi.
Ekki virtist vera samhengi milli
hitastigs í vöru og gerlafjölda, sem
skýrist líklega á því að varan var
geymd í stuttan tíma í salatbarnum.
Túnfiskurinn reyndist í lagi í öllum
tilvikum, sem bendir til þess að
krossmengun milli hrárra og soðinna
matvæla ætti sér ekki stað við með-
höndlun matvæla í salatbarnum og
ekki hafi verið um mengun að ræða
frá viðskiptavininum.
Mat heilbrigðiseftirlitsins er að
með virku gæðaeftirliti, góðu hrein-
læti og vöruvöndun sé hægt að
tryggja ferska og örugga vöru úr
sjálfsafgreiðslu salatbara verslana,
segir í niðurstöðu skýrslunnar.
Morgunblaðið/Golli
Heilbrigðiseftirlitið hefur samið leiðbeinandi reglur um salatbari í verslunum.
Helmingur sýna yfir
viðmiðunarmörkum
AFGANAR, sem bandarískir her-
menn handtóku í misgripum, kveð-
ast hafa sætt barsmíðum á þeim 16
dögum, sem þeir voru í haldi.
Bandarískar sérsveitir gerðu 23.
janúar árás á þorpið Uruzgan í suð-
urhluta Afganistans. 21 afganskur
hermaður féll í árásinni og 27 voru
handteknir. Nú liggur fyrir að hluti
þeirra sem féll var hliðhollur Banda-
ríkjamönnum og herförinni gegn tal-
ibönum og al-Qaeda. Kann það raun-
ar að hafa gilt um alla þá sem
sérsveitin felldi.
Svo virðist því sem árásin hafi ver-
ið gerð fyrir mistök. Mennirnir 27
sem handteknir voru fengu frelsið í
liðinni viku eftir að hafa verið 16
daga í haldi. Fjórir þeirra kveðast
hafa sætt barsmíðum og annarri illri
meðferð á meðan þeir voru á valdi
bandarísku hermannanna. Tveir
segjast hafa misst meðvitund vegna
barsmíða og aðrir tveir segjast hafa
rifbrotnað. „Þeir kýldu okkur og
börðu okkur með byssum sínum,“
segir einn mannanna. Þeir kveðast
hafa sætt þessari meðferð allt þar til
bandarísku hermönnunum varð ljóst
að þeir hefðu handtekið og fellt vin-
veitta hermenn en ekki talibana og
al-Qaeda-liða.
Á miðvikudag í fyrri viku viður-
kenndi Donald Rumsfeld varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna að
hugsanlegt væri að vinveittir afg-
anskir hermenn hefðu verið felldir í
áðurnefndri árás. Talsmaður varnar-
málaráðuneytisins sagði og að svo
virtist sem fangarnir og þeir sem
féllu hefðu ekki tilheyrt hryðju-
verkahópum eða verið talibanar.
Bandaríska leyniþjónustan hefur
hafið að greiða ættingjum þeirra
sem felldir voru bætur.
Þorpsbúar felldir?
Íbúar í Zhawar, afskekktu þorpi í
austurhluta Afganistan, halda því
ennfremur fram að Bandaríkja-
mönnum hafi orðið á mistök þegar
þeir felldu þrjá menn í eldflaugar-
árás á mánudag í fyrri viku. Árásin
var gerð eftir að njósnamyndir höfðu
gefið til kynna að þar færi hávaxinn
maður ásamt öðrum sem sýndu hon-
um mikla lotningu. Var sú ályktun
dregin að þar kynni að fara háttsett-
ur liðsmaður al-Qaeda, jafnvel Os-
ama bin Laden sjálfur.
Íbúarnir segja að mennirnir sem
féllu hafi verið að safna saman brota-
járni sem þeir hugðust koma í verð
þegar eldflaugin hæfði þá. Banda-
rískur liðsafli hefur verið sendur til
þorpsins til að afla sýna úr líkams-
leifum mannanna þriggja í þeirri von
að þannig megi bera kennsl á þá.
Bandarískir her-
menn vændir um
misþyrmingar
Brotajárnssölumenn sagðir
hafa fallið í eldflaugarárás
Uruzgan. Los Angeles Times. Zhawar. The Washington Post.
VARANGGHANA Vanavichayen
(t.h.), 56 ára tveggja barna móðir,
er orðin fyrsta konan sem tekur
búddamunksvígslu í Taílandi.
Hingað til hafa einungis karlar
getað orðið munkar þar í landi og
konur orðið að sætta sig við lægri
stöðu sem nunnur. Hafa margar
kvartað yfir að í því hlutverki
hafi þær ekki notið nægrar virð-
ingar. Við athöfnina, sem fram
fór í Bangkok sl. sunnudag, voru
viðstaddir kvenbúddamunkar frá
Sri Lanka, Tíbet, Indónesíu og
Taívan, auk taílenskra klerka.
Vanavichayen er ekki fyrsta taí-
lenska konan sem tekur munk-
vígslu, tvær hafa þegar tekið
vígslu á Sri Lanka. „Ég veit að
það kann að verða andstaða, en
ég er reiðubúin og veit að ég er
að gera rétt,“ sagði Vanavich-
ayen.
Reuters
Fyrsti kven-
munkurinn
í Taílandi