Morgunblaðið - 12.02.2002, Síða 24
ERLENT
24 ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÞÓTT júgóslavnesk stjórnvöld hafi
samþykkt að framselja Slobodan Mil-
osevic, fyrrverandi forseta Júgóslav-
íu, vegna efnahagslegs þrýstings
Vesturlanda eru ákærurnar á hendur
honum mikið feimnismál í Belgrad.
Flestir ráðamannanna hafa færst
undan því að ræða málið og þeir sem
hafa látið álit sitt í ljós efast um hlut-
leysi stríðsglæpadómstólsins í Haag.
Viðbúið er að tortryggni Serba aukist
eftir að réttarhöldin yfir Milosevic
hefjast í dag.
„Hver einn og einasti maður sem
ég tala við hérna er mjög andvígur
dómstólnum í Haag,“ sagði serbneski
lögfræðingurinn Biljana Kovacevic-
Vuco, sem er hlynnt réttarhöldunum.
„Fólk byrjar á að segja: „Við verðum
að fordæma alla stríðsglæpamenn og
það sem gerðist í Srebrenica var mjög
slæmt, það var glæpur, en … en …
en …“ Það eru alltaf einhver „en“.“
Talið er að serbneskar öryggis-
sveitir hafi myrt 7.000 múslíma, karl-
menn og drengi, í Srebrenica á þrem-
ur dögum árið 1995 eftir að þær náðu
borginni á sitt vald. Voru það mestu
fjöldamorðin í stríðinu í Bosníu 1992–
95.
„Serbar geta ekki trúað því að sam-
landar þeirra hafi framið þessa glæpi,
þannig að segja má að þjóðin sé í af-
neitun,“ sagði Bratislav Grubacic,
stjórnmálafræðingur í Belgrad.
Söguleg réttarhöld
Þrátt fyrir andstöðu Serba verða
réttarhöldin í Haag mjög söguleg því
þetta eru mikilvægustu stríðsglæpa-
réttarhöld í Evrópu frá því að réttað
var yfir leiðtogum nasista í Nürnberg
eftir síðari heimsstyrjöldina. Er þetta
í fyrsta sinn sem fyrrverandi þjóð-
höfðingi er sóttur til saka fyrir stríðs-
glæpi, meðal annars þjóðarmorð.
Stríðsglæpadómstóllinn hefur
ákveðið að sameina allar ákærurnar á
hendur Milosevic, þannig að aðeins
verður réttað einu sinni í málum hans
en ekki tvisvar eins og áður var ráð-
gert. Stríðið í Kosovo verður þó tekið
fyrir fyrst og síðan verður fjallað um
átökin í Bosníu og Króatíu.
Milosevic hefur verið ákærður fyrir
þjóðarmorð í Bosníu og glæpi gegn
mannkyninu í Kosovo og Króatíu.
Hann er einnig sakaður um brot á
Genfarsáttmálanum og lögum og við-
teknum venjum sem gilt hafa í hern-
aði. Verði hann fundinn sekur verður
hann dæmdur í lífstíðarfangelsi.
Hafnar dómstólnum
Paul Williams, lagaprófessor við
American University í Washington,
tók þátt í stofnun stríðsglæpadóm-
stólsins árið 1993 þegar hann starfaði
í utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna.
Hann segir að dómstóllinn hafi þrjú
meginmarkmið: „að skrásetja ná-
kvæmlega atburðina á Balkanskaga,
fyrirbyggja að aðrir þjóðarleiðtogar
heimili stríðsglæpi í framtíðinni og
láta þá sem báru ábyrgð á stríðsglæp-
unum á Balkanskaga svara til saka í
því skyni að hlífa þjóð þeirra við sam-
eiginlegri sök“.
Milosevic hefur reynt að grafa und-
an þessum markmiðum dómstólsins
með því að ýta undir þá tilfinningu
Serba að þeir hafi enn einu sinni verið
gerðir að fórnarlambi. Hann segir að
dómstóllinn hafi verið stofnaður á
fölskum forsendum, sé pólitískt tæki
til að koma óorði á Serba og hafi ekki
vald til að draga hann fyrir rétt. Dóm-
stóllinn eigi frekar að ákæra Atlants-
hafsbandalagið fyrir stríðsglæpi þar
sem óbreyttir borgarar hafi fallið í
loftárásum þess á Serbíu þegar Kos-
ovostríðið geisaði.
„Hann ver serbnesku
þjóðina, ekki sjálfan sig“
Dómstóllinn og aðalsaksóknari
hans, Carla Del Ponte, hafa margoft
sagt að aðeins sé réttað yfir Milosevic
og ekki serbnesku þjóðinni. Margir
Serbar eiga þó erfitt með að trúa því
og þögn ráðamannanna í Belgrad ýtir
undir efasemdirnar. Margir þekktir
Serbar, þeirra á meðal nokkrir lög-
fræðingar sem hafa verið óformlegir
ráðgjafar Milosevic, hafa einnig kynt
undir tortryggninni.
„Í réttarhöldunum sem hefjast 12.
febrúar eru það Júgóslavía og Serbía
sem svara til saka,“ sagði Zdenko
Tomanovic, lögfræðingur í Belgrad
sem ræddi við Milosevic í Haag ný-
lega.
Milosevic virðist njóta verulegs
stuðnings í Serbíu og andstaðan við
dómstólinn hefur aukist. „Það er aug-
ljóst að þetta er pólitískur dómstóll og
greinilegt er að allt er spunnið upp til
að koma óorði á serbnesku þjóðina,“
sagði Dragan Petrovic, 77 ára ellilíf-
eyrisþegi í Belgrad. „Ég styð allt sem
Milosevic gerir í Haag. Hann er af-
bragðsföðurlandsvinur. Hann ver
serbnesku þjóðina, ekki sjálfan sig,“
sagði Petrovic og bætti við að hann
væri miklu ánægðari með Milosevic
núna en þegar hann var forseti.
Margir stjórnmálaleiðtogar, lög-
fræðingar og stjórnmálaskýrendur í
Serbíu telja að eina leiðin til að auka
trúverðugleika dómstólsins, að
minnsta kosti í augum Serba, sé að
tryggja Milosevic góða málsvörn fyrir
rétti. Það væri til að mynda hægt með
því að heimila spurningar um ýmsa
óljósa þætti átakanna á Balkanskaga.
Verjandi Milosevic
gæti til dæmis bent
á að þótt serbneskir
hermenn hafi fram-
ið stríðsglæpi í Kró-
atíu hafi þeir orðið
til þess að tugir þús-
unda Serba hafi
verið reknir þaðan og margir þeirra
séu nú flóttamenn í Serbíu. Forseti
Króatíu á þessum tíma, Franjo
Tudjman, hafi þó ekki verið ákærður,
aðeins Milosevic.
„Það verður aldrei hægt að skrá-
setja söguna nákvæmlega vegna þess
að Tudjman var aldrei ákærður,“
sagði Williams, fyrrverandi lögfræð-
ingur bandaríska utanríkisráðuneyt-
isins. Tudjman lést í desember 1999,
áður en stríðsglæpadómstóllinn gat
ákært hann.
Ákæran sögð geta haft slæmar
afleiðingar fyrir Júgóslavíu
Milosevic hefur neitað að ráða verj-
anda og Dragoljub Micunovic, forseti
neðri deildar serbneska þingsins, hef-
ur skorað á stjórn Serbíu að ráða lög-
fræðing til að verja serbnesku þjóðina
fyrir réttinum. „Dómstóllinn í Haag
er að skrifa sögu Balkanskaga og ein
stofnun dugir ekki til að tryggja hlut-
leysi. Okkur sem þjóð ber skylda til
að hjálpa dómstólnum að sjá allar
staðreyndir málsins, þannig myndum
við hjálpa dómstólnum en einnig al-
menningi að skilja atburðina.“
Micanovic varar við því að ákæran
um þjóðarmorð í Kosovo geti haft al-
varlegar afleiðingar fyrir júgóslav-
neska ríkið.
„Þjóðarmorðsákæran er mjög al-
varleg og beinist ekki aðeins að Milos-
evic og tveimur eða þremur öðrum
einstaklingum, heldur er hætt við að
hún kastist til baka á ríkið.“
Predrag Simic, ráðgjafi Vojislavs
Kostunica, forseta Júgóslavíu, óttast
að dómstóllinn einfaldi útlistanir sín-
ar á átökunum um of. „Ég er hræddur
um að sagan sem dómstóllinn skrifar
einkennist af stöðluðum ímyndum,
dregin verði upp einhæf mynd af yf-
irgangi [Serba].“
Gamlir samstarfsmenn
Milosevic geta ráðið úrslitum
Búist er við að réttarhöldin standi í
rúmt ár. Saksóknararnir ætla að
stefna hundruðum vitna fyrir dóm-
stólinn og flest þeirra voru fórnar-
lömb stríðsglæpanna í Kosovo, Bosn-
íu og Króatíu. Þeir segja að allt að 30
fyrrverandi samstarfsmönnum Mil-
osevic verði einn-
ig stefnt og vitn-
isburður þeirra
gæti ráðið úrslit-
um í réttarhöld-
unum.
Saksóknar-
arnir hafa ekki
enn birt lista yfir serbnesku vitnin en
júgóslavneskir fjölmiðlar hafa birt
nöfn fyrrverandi embættismanna
sem líklegt er að komi fyrir réttinn.
Þeirra á meðal er Zoran Lilic, sem var
forseti Júgóslavíu á árunum 1993–97
en var mjög valdalítill í sambandsrík-
inu. Milosevic var þá forseti Serbíu og
hafði bæði tögl og hagldir í Júgóslav-
íu.
Milosevic vék Lilic úr embætti
vegna andstöðu hans við aðgerðir
serbnesku öryggissveitanna í Kosovo.
Lilic viðurkenndi í viðtali við serb-
neskt dagblað nýlega að saksóknar-
arnir hefðu óskað eftir því að hann
bæri vitni. „Ef til vill geri ég það
vegna þess sem hann gerði mér,“
hafði blaðið eftir honum.
Ætla að stefna Clinton
og Blair fyrir réttinn
Dómstóllinn getur gefið út vitn-
astefnur en ekki neytt menn til að
koma fyrir réttinn. Stuðningsmenn
Milosevic telja ýmislegt benda til þess
að saksóknararnir eigi í vandræðum
með að fá embættismennina fyrrver-
andi til að bera vitni gegn honum.
Ráðgjafar Milosevic vona reyndar
að hann hagnist sjálfur á vitnisburði
fyrrverandi samstarfsmanna sinna og
segja að 1.380 stuðningsmenn hans
hafi samþykkt að koma fyrir réttinn.
Þeir segjast einnig ætla að reyna að
stefna Bill Clinton, fyrrverandi
Bandaríkjaforseta, Madeleine Al-
bright, fyrrverandi utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, og Tony Blair, for-
sætisráðherra Bretlands, fyrir rétt-
inn.
AP
Bosnísk kona heldur á myndum af ættingjum sem voru myrtir eða hurfu
í Srebrenica í Bosníu árið 1995 eftir að serbneskar öryggissveitir náðu
borginni á sitt vald. Konan var í mótmælagöngu í gær í bænum Tuzla.
Serbar efast
um hlutleysi
dómstóls-
ins í Haag
Fyrstu stríðsglæparéttarhöld yfir
fyrrverandi þjóðhöfðingja að hefjast
AP
Milosevic, fyrrverandi forseti Júgóslavíu, leiddur fyrir stríðsglæpadóm-
stólinn í Haag í júlí á síðasta ári. Réttarhöldin í máli hans hefjast í dag.
’ Saka dómstólinnum lygar til að
koma óorði á serb-
nesku þjóðina ‘
YASSER Arafat, forseti
heimastjórnar Palestínu-
manna, kvaðst í gær staðráðinn
í því að standa
af sér tilraunir
Ísraelsstjórn-
ar til að ýta
honum til hlið-
ar en Ariel
Sharon, for-
sætisráðherra
Ísraels, hefur
sagt að hann
vilji sjá aðra
viðsemjendur fyrir hönd Pal-
estínumanna en Arafat. Sagði
Arafat að Ísraelsmönnum
myndi ekki takast að knésetja
palestínsku þjóðina og að þeim
væri nauðugur einn kostur að
ræða við hann enda væri hann
réttkjörinn leiðtogi Palestínu-
manna.
Sharon kennir Arafat um þá
öldu ofbeldis sem riðið hefur yf-
ir í Mið-Austurlöndum undan-
farna mánuði og hefur átt fundi
með tveimur háttsettum emb-
ættismönnum palestínsku
heimastjórnarinnar, Ahmed
Qorei og Mahmoud Abbas.
Segja Ísraelsmenn að þessir
menn séu líklegri en Arafat til
að vilja beita palestínska öfga-
menn, sem efnt hafa til fjölda
sjálfsmorðsárása gegn Ísr-
aelum undanfarnar vikur og
mánuði, hörðu.
Hefur lagt sig allan fram
Arafat sagði hins vegar í
samtali við breska ríkisútvarp-
ið, BBC, í gær að Qorei og Abb-
as væru samstarfsmenn sínir
og „á sama báti“ og hann. „Ísr-
aelar verða að semja við palest-
ínsku þjóðina og palestínska
þjóðin hefur kjörið Yasser Ara-
fat sem leiðtoga sinn. Það er
jafnframt hennar að velja arf-
taka hans,“ sagði Arafat.
Arafat kvaðst gera allt sem í
hans valdi stæði til að halda
hryðjuverkum Palestínumanna
í skefjum. „Það er ekki hægt að
biðja mig um að gera meira því
ég hef lagt mig allan fram.
Enginn getur hins vegar skilað
fullkomnum árangri, ekki einu
sinni öflugasta stórveldi heims-
ins í dag, Bandaríkin.“
Sagði Arafat í samtali sínu
við fréttamann BBC að það
væri lygi að palestínskir
hermdarverkamenn gengju nú
lausir, sem að öllu jöfnu ættu að
vera á bak við lás og slá.
Arafat
segist
eini við-
semj-
andinn
Yasser
Arafat
TÍU manns biðu bana þegar mað-
ur gekk berserksgang í bænum
Mdantsane, nálægt hafnarborginni
Austur-London í Suður-Afríku, á
laugardag. Sjö til viðbótar voru
fluttir alvarlega særðir á sjúkra-
hús og tveir þeirra voru enn í lífs-
hættu í gær.
Maðurinn er sagður hafa skotið
kærustu sína til bana eftir rifrildi,
en hún mun hafa slitið sambandi
þeirra. Hann fór einnig heim til
foreldra hennar og myrti þá og
einn ættingja þeirra. Hann rændi
síðan bíl, ók um hverfið og hóf
skothríð á vegfarendur. Hann
skaut að lokum sjálfan sig til bana
þegar lögreglumenn umkringdu
hann.
Meira en 20.000 morð eru fram-
in í Suður-Afríku á ári hverju og
um helmingur þeirra með byssum.
Myrti 10 manns
í æðiskasti
Mdantsane. AFP.