Morgunblaðið - 12.02.2002, Side 27

Morgunblaðið - 12.02.2002, Side 27
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2002 27 Heimsferðir bjóða nú vikulegt flug til Benidorm í sumar á frábærum kjörum og þeir sem bóka fyrir 15.mars geta tryggt sér allt að 40.000 afslátt fyrir fjölskylduna í valdar brottfarir, eða 10.000 kr. á manninn. Heimsferðir fagna nú 10 ára afmæli sínu á Benidorm og aldrei fyrr höfum við boðið jafn glæsilegt úrval gististaða á þessum vinsæla áfangastað. Og að sjálfsögðu bjóðast þér spennandi kynnisferðir í fríinu og þjónusta reyndra fararstjóra Heimsferða til að tryggja þér ánægjulega dvöl í fríinu. Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Verð kr. 38.265 M.v. hjón með 2 börn, 2–11.ára, 22. maí í viku, El Faro, með 40 þúsund kr. afslætti. Verð kr. 49.965 M.v. hjón með 2 börn, 2–11.ára, 19. júní í 2 vikur, El Faro, með 40 þúsund kr. afslætti. Verð kr. 49.950 M.v. 2 í íbúð í viku, El Faro, 22. maí, með 10.000 kr. afslætti. Bókaðu til Benidorm og tryggðu þér 40.000 kr. afslátt af ferðinni Beint flug alla miðvikudaga í sumar 10 ár á Benidorm Glæsilegustu gististaðirnir Ótrúlegt verð í sólina í sumar Fáðu bæklinginn sendan Lægsta verðið í sólina MEÐ Cherubini og Gluck sem einu undantekningarnar voru tón- skáld síðbarokksins í forgrunni á tónleikunum í hinni tjaldlaga en þokkalega velhljómandi Grensás- kirkju sl. laugardag. Skiptust þar íslenzk sópransöngkona og ung- versk mezzosópransöngkona, báð- ar af yngri kynslóð, á einsöngs- lögum, inn á milli sameiginlegra dúetta. Söngkonurnar munu hvor um sig fást við söngkennslu; önnur í Reykjavík, hin á Stykkishólmi. Kristínu R. Sigurðardóttur heyrðu höfuðborgarbúar og und- irritaður síðast í engilsaxneskri leikhússveiflu á tónleikum Hljóm- kórs Garðars Cortes í Ými fyrir hálfum mánuði. Ildikó Varga hafði hins vegar ekki áður rekið á fjörur þess er hér skrifar, og sama gilti um píanistann, sem ásamt „Hildi- gunni“ (eins og mezzosöngkonan hefði ugglaust verið nefnd í Eddu- kvæðum) mun einnig starfa í Hólminum – kannski að undanskil- inni einni framkomu með Samkór Mýramanna hér syðra fyrir hart- nær fimm árum. Sumum finnst hann kannski dí- sæt klissja, en þegar efsta og næstefsta kvenraddgerð efla sam- an tvísöng, dettur mörgum samt fyrstur í hug dúettinn úr „Lakmé“ Delibesar sem verðug kassastykk- ishliðstæða við Perlukafaradúett karlsöngvara, og hefði mín vegna gjarna mátt vera viðbótarfrávik frá síðbarokkinu á þessum tón- leikum. Annars var síður en svo upp á verkefnavalið að klaga. Úr meistaraverki Pergolesis, Stabat mater, sungu stöllurnar fyrst dú- ettinn Inflammatus, þá Eja mater (Ildikó) og loks Cujus animan [sic?] gementem (Kristín). Næstur var dúett eftir Cherubini, Solitario bosco ombroso. Eftir óperuendur- bótatónskáldið Gluck söng Ildikó aríuna O, del mio dolce ardor og Kristín hina frægu aríu Orfeusar úr Orfeusi og Evridísi. Síðan var ónefndur dúett eftir Cherubini. Eftir stutt hlé söng Ildikó fal- lega hið kunna „Largo“ úr Serse Händels til trésins góða, Ombra mai fu, og Kristín hina hálsbrjót- andi kólóratúraríu Rejoice úr Messíasi, sem varð meðal há- punkta tónleikanna með glæstu flúri, allskýrum trillum og m.a.s. smávegis af vel staðsettum slétt- söng, sem manni skilst sé annars farinn að gera mörgum drama- tískum bel canto-söngvaranum líf- ið leitt í barokktúlkun, ef hlíta ber ýtrustu kröfum nýlegrar upphafs- hyggjustefnu. Eftir Cherubini kom, eftir til- kynnta breytta efnisniðurröðun, barcarole-kenndur dúett í 6/8, „Ó ef aðeins niðandi lækurinn“ (frum- heitis ekki getið). Fornaría Pergol- esis Se tu mámi [= m’ami] var næst, vel flutt af Kristínu, nema kannski hvað einum of oft var rennt upp í tóninn. Ildikó skartaði tignarlegum flúrsöng í Armatae face úr óratóríunni „Juditha“ eftir Vivaldi. Loks kom hálfgildings ekkó-dúett (aftur ónefndur á frum- máli) eftir Cherubini, en virtist, eftir meðhöndlun tónskáldsins að dæma, ekki með öllu óháður áhrif- um frá ekkóaríu Bachs úr Jólaóra- tóríunni, Flösst, mein Heiland. Það kann að hafa haft sín letj- andi sálfræðilegu áhrif á söngtján- inguna að hvorki var kirkjan yfir- máta gjöful á hljómburð né aðsókn tónleikagesta mikil, eins og oft vill verða á síðdegistónleikum. Raddir beggja söngkvenna voru vissulega athygliverðar fyrir mikla hljóm- fyllingu, og tæknikunnáttan var ótvírætt á sínum stað. En í heild var eins og vantaði nokkuð upp á mýkt og hlýleika, þrátt fyrir rytm- ískt og inntónunarlegt öryggi og jafnvel allnokkur tilþrif innan um í dýnamík og textatúlkun. Þó tæp- lega nógu mikil til að hvert lag náði að öðlast sinn afgerandi svip. Þá virtist píanistinn framan af óþarflega spar á pedalinn og und- irleikurinn fyrir vikið fremur þurr. Tónleikaskránni háðu bæði prentvillur og skortur á frumtitl- um. Þá var né heldur allra þýð- enda getið, auk þess sem skraut- leg Vivaldi-leturgerðin henti, þrátt fyrir músíkalskt heiti sitt, varla nógu vel niðursmækkuð til aflestr- ar á söngtextum. Morgunblaðið/Golli „Raddir beggja söngkvenna voru vissulega athygliverðar fyrir mikla hljómfyllingu, og tæknikunnáttan var ótvírætt á sínum stað.“ Ildikó Varga og Kristín R. Sigurðardóttir ásamt Clive Pollard píanóleikara. Gæðabarokk fyrir sópran og mezzo TÓNLIST Grensáskirkja Sönglög og dúettar eftir Pergolesi, Cher- ubini, Gluck, Händel og Vivaldi. Kristín R. Sigurðardóttir sópran og Ildikó Varga alt. Clive Pollard, píanó. Laugardaginn 9. febrúar kl. 16. SÖNGTÓNLEIKAR Ríkarður Ö. Pálsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.